Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 4
ÍÞRÓTTIR
4 B MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENDINGAR komu mikið
við sögu í undanúrslitaleik
Celtic og Hearts í bik-
arkeppni unglingaliða í
skosku knattspyrnunni á
laugardaginn. Kjartan Henry
Finnbogason og Theódór
Elmar Bjarnason í Celtic
hrósuðu þar sigri í fram-
lengdum leik gegn Hjálmari
Þórarinssyni í Hearts, 3:1, og
mæta St. Mirren í úrslitaleik
keppninnar. Hjálmar skoraði mark Hearts, jafn-
aði 1:1, seint í síðari hálfleik. Í framlengingunni
var það síðan glæsileg samvinna Kjartans og Elm-
ars sem endaði með því að Kjartan var felldur í
vítateig Hearts. Hann tók vítaspyrnuna sjálfur og
kom Celtic í 2:1. Kjartan lagði síðan upp þriðja
markið áður en yfir lauk.
Kjartan Henry og
Hjálmar skoruðu
Kjartan
Henry
„ÞETTA var stór áfangi í bar-
áttu okkar fyrir meistaratitl-
inum,“ sagði Felix Magath,
þjálfari Bayern München, eft-
ir sigur á Borussia Möncheng-
ladbach, 2:1, í þýsku 1. deild-
inni í knattspyrnu á
laugardaginn. Bayern náði
með sigrinum þriggja stiga
forystu því Schalke, skæðasti
keppinauturinn, steinlá í
Stuttgart, 3:0, þar sem Kevin
Kuranyi fór á kostum og skoraði öll mörkin.
Michael Ballack skoraði sigurmark Bayern
gegn Gladbach með skalla, sex mínútum fyrir
leikslok. Bayern er með 59 stig og Schalke 56, en
Stuttgart eygir nú von, er með 54 stig og á
heimaleik gegn Bayern í síðustu umferðinni, þar
sem úrslitin gætu mögulega ráðist.
Stór áfangi
hjá Bæjurum
Kevin
Kuranyi
EVERTON vann Crystal Palace 4:0 í gær og er
því fjórum stigum á undan nágrönnum sínum í
Liverpool en þessi nágrannalið berjast um
fjórða sætið í deildinni og þar með sæti í Meist-
aradeildinni á næstu leiktíð. Mikel Arteta skor-
aði snemma leiks úr aukaspyrnu og Tim Cahill
bætti tveimur við í síðari hálfleik áður en James
Vaughan skoraði fjórða markið, hans fyrsta
mark fyrir félagið enda að leika sinn fyrsta leik.
Leikmenn Everton vissu hvað þeir þurftu að
gera; Liverpool tapaði daginn áður og því var
allt lagt í sölurnar enda litlir kærleikar með ná-
grannaliðunum úr Bítlabænum.
Everton var mun sterkari aðilinn í leiknum
og hefði hæglega getað gert út um leikinn í
fyrri hálfleik. Menn fóru hins vegar illa með
nokkur færi en það kom ekki að sök því mörkin
komu eftir hlé.
*
+,-
Everton er í
góðum málum
ÞEGAR franski landsliðsmaðurinn Robert
Pires skoraði sigurmark Arsenal gegn
Middlesborugh skoraði hann 100. mark Ars-
enal á keppnistímabilinu.
Arsenal hefur skorað 73
mörk í ensku úrvals-
deildinni, 13 í Meist-
aradeild Evrópu, 6 í bik-
arkeppninni, 5 í
deildarbikarkeppninni
og þrjú í öðrum keppn-
um. Thierry Henry hefur
skorað flest mörk Arsen-
al á keppnistímabilinu,
eða 30 mörk, þar af 25 í
úrvalsdeildinni. Pires
hefur skorað 13 mörk.
Þess má geta að Henry er langmarkahæsti
leikmaðurinn á Englandi, en síðan kemur
Defoe hjá Tottenham með 21 mark og Alan
Shearer, Newcastle, með 19 mörk, en aðeins
sjö þeirra í úrvalsdeildinni.
Johnson hjá Crystal Palace hefur skorað
18 mörk – öll í úrvalsdeildinni.
Yakubu hjá Portsmouth, Rooney, Man-
chester United, og Drogba hjá Chelsea hafa
skorað 15 mörk, en síðan koma fjórir leik-
menn með 14 mörk, Eiður Smári Guðjohn-
sen, gamli félagi hans Hasselbaink, Ljung-
berg og Frank Lampard.
Robert Pires með
100. mark Arsenal
Robert Pires
PHILIPPE Senderos, hinn 20 ára gamli mið-
vörður Arsenal, hefur heldur betur slegið í
gegn í leikjum með meisturunum að und-
anförnu. Síðan hann hóf að leika með byrj-
unarliði Arsenal hefur liðið leikið sex leiki í röð
án þess að fá á sig mark, en hann hefur nú leik-
ið átta leiki í röð án þess að þurfa að hirða
knöttinn úr netinu – sex leiki með Arsenal, þar
af einn Evrópuleik gegn Bayern München, og
tvo leiki með landsliði Sviss, sigurleik gegn
Kýpur, 1:0, og jafnteflisleik gegn Frökkum í
París, 0:0. Senderos hefur náð að binda vörn
liðsins vel saman og hann hefur fyllt skarð Sol
Campbell, landsliðsmiðvarðar Englands, sem
hefur verið meiddur. Campbell mun leika um
næstu helgi bikarleik gegn Blackburn og er þá
reiknað með að Senderos leiki við hlið hans.
Senderos hefur
slegið í gegn
JAMES Vaughan, leikmaður Everton, varð í
gær yngsti leikmaðurinn til að skora mark í úr-
valsdeildinni og um leið yngsti leikmaðurinn til
að skora fyrir aðallið félagsins.
Þegar staðan var orðin þægileg hjá Everton
á móti Crystal Palace setti David Moyes
Vaughan inn á sem varamann og varð hann þar
með yngsti leikmaður, eftir stríð, sem leikið
hefur með aðalliði félagsins. Joe Royle var sá
yngsti en Vaughan var í gær 12 dögum yngri en
Royle þegar hann lék sinn fyrsta leik.
Vaughan fékk fljótt færi til að skora í gær en
misnotaði það færi en gerði hins vegar engin
mistök þremur mínútum fyrir leikslok eftir
góðan undirbúning Kilbane og Osman.
Vaughan sá yngsti
til að skora
Þrátt fyrir að tapa tveimurstigum þegar meistaraefnin
óku á móti Birmingham virðist
fátt geta komið í veg fyrir að
Chelsea hampi meistarabikarn-
um í fyrsta sinn í hálfa öld. „Við
lentum 1:0 undir og þegar þannig
er má segja að það sé óhjá-
kvæmilegt að maður hugsi sem
svo að kannski náum við engu
stigi úr viðkomandi leik,“ sagði
Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, eftir leikinn.
Eiður Smári Guðjohnsen var á
varamannabekknum en kom inn
á í hálfleiknum ásamt Didier
Drogba, sem gerði síðan jöfnun-
armarkið átta mínútum fyrir
leikslok og tryggði eitt stig.
Chelsea hefur því aðeins tapað
einum leik af þeim 32 sem liðið
hefur leikið í deildinni.
„Birmingham átti jafnteflið
skilið, en kannski áttum við líka
skilið eitthvað meira. Við lékum
illa í fyrri hálfleik og þetta var
eins og slakur vináttuleikur, en
það skánaði eftir hlé. Nú eru
bara sex leikir eftir og við erum
með 11 stiga forystu þannig að
þetta gæti vart verið mikið betra.
Ég er mjög ánægður með lífið og
tilveruna enda erum við þegar
komnir með einn bikar, erum
efstir í deildinni og í fjórðungs-
úrslitum Meistaradeildarinnar
þar sem við sigruðum í fyrri
leiknum,“ sagði Mourinho.
Sir Alex Ferguson var fámáll
eftir leik Manchester United
gegn Norwich og hann neitaði að
ræða við fjölmiðla eftir leikinn.
Það lá hins vegar miklu betur á
leikmönnum Norwich, sem
kræktu sér þarna í þrjú óvænt en
dýrmæt stig í vonlítilli fallbar-
áttu sinni. Ferguson var með þá
Rooney og Nistelrooy á bekkn-
um í fyrri hálfleik en lét þá inn í
þeim síðari en allt kom fyrir ekki.
„Það eru mikilvægir leikir
framundan hjá okkur við Crystal
Palace og Southampton og ef
okkur tekst að ná í einhver stig í
þeim leikjum erum við aftur
komnir í raunverulega baráttu
um að halda sæti okkar í deild-
inni,“ sagði Dean Ashton, leik-
maður Norwich, en hann gerði
annað mark liðsins gegn United.
Leon McKenzie gerði síðara
markið. „United er gott lið og við
horfðum á varamannabekkinn
hjá þeim og sáum að þar voru
menn sem við gætum alveg notað
þannig að við urðum að sýna
hvað við getum. Við lærðum líka
okkar lexíu þegar við töpuðum
4:1 fyrir Arsenal á dögunum.
Vonandi tekst okkur að halda
áfram að krækja í stig og þá
sjáum við hver staða okkar verð-
ur þegar flautað verður til loka
síðasta leiksins,“ sagði McKenz-
ie.
Arsenal heldur í vonina
Robert Pires gerði eina mark-
ið í leik Arsenal og Middles-
brough og var þetta sjötti sigur
Arsenal í röð og heldur félagið
enn í vonina um að skjótast upp
fyrir Chelsea í efsta sætið á
endasprettinum.
„Við náðum ekki að skapa okk-
ur mörg færi í þessum leik, en þetta
var spurning um þolinmæði og mínir
menn höfðu hana, þeir urðu ekki
óþolinmóðir þó að illa gengi. Kannski
vantaði frjórra ímyndunarafl í upp-
byggingu í sókninni og þess vegna
kom oft pattstaða þar sem hvorki
gekk né rak,“ sagði Arsene Wenger,
stóri Arsenal.
Steve McClaren, stjóri Boro, var
ánægður með hvernig lið hans lék.
„Auðvitað hefði ég viljað vinna en ég
er samt ánægður með hvernig strák-
arnir spiluðu,“ sagði hann, en Jimmy
Floyd Hasselbaink fékk gullið færi á
að jafna. Mark Schwarzer, mark-
vörður Boro, meiddist í upphitun og
gat því ekki leikið.
Klaufaskapur hjá Liverpool
Liverpool tókst ekki að nýta gullið
tækifæri til að komast upp fyrir ná-
granna sína Everton á laugardaginn.
Liverpool heimsótti Stuart Pearce og
strákana hans í Manchester City og
Pearce fagnaði sínum fyrsta sigri, 1:0
með marki frá Kiki Musampa, sem
gerði sitt fyrsta mark í ensku deild-
inni.
„Ég er mjög vonsvikinn. Stundum
þegar maður getur ekki unnið er
jafntefli ágæt úrslit. Það var komið
fram á lokasekúndur leiksins og við
áttum innkast við miðju en gáfum
þeim boltann og þeir fara í hraðaupp-
hlaup og skora. Þetta var hræðilegt
og mínir menn verða að fara að læra
eitthvað, annars er útséð um að við
náum að tryggja okkur Evrópusæti
næsta ár. Það er mikilvægara fyrir
okkur að verða í fjórða sæti í deild-
inni en að standa okkur vel í Meist-
aradeildinni,“ sagði Rafael Benitez,
knattspyrnustjóri Liverpool eftir
leikinn.
Mourinho
ánægður
með lífið og
tilveruna
NORWICH kom svo sann-
arlega á óvart á laugardag-
inn þegar liði, sem er í
neðsta sæti ensku úrvals-
deildarinnar, lagði Man-
chester United 2:0. Á sama
tíma vann Arsenal Middles-
brough 1:0 og Chelsea gerði
1:1 jafntefli við Birmingham.
Chelsea hefur því 11 stiga
forystu á Arsenal þegar sex
umferðir eru eftir og því 18
stig í pottinum.
Reuters
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, kallar inn á
völlinn til sinna manna í leiknum gegn Birmingham.
■ Úrslit/B10
■ Staðan/B10