Morgunblaðið - 11.04.2005, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 B 5
TVÖ efstu liðin í ítölsku deild-
inni, meistarar AC Milan og
Juventus, urðu að sætta sig við
jafntefli um helgina og það gegn
liðum neðarlega í deildinni. Milan
gerði 1:1 jafntefli við Brescia,
sem er í næstneðsta sæti og Juve
heimsótti Fiorentina og þar urðu
lyktir 3:3.
Þessi úrslit breyta svo sem
engu eða litlu fyrir stöðu liðanna
á toppnum og þrátt fyrir að
þriðja efsta liðið, Inter Mílanó
næði að leggja Bologna 1:0 með
marki frá Richardo Cruz snemma
leiks, þá er Inter enn 14 stigum á
eftir AC Milan og Juve.
„Brescia lék vel og átti jafn-
teflið skilið. Við vorum slakir og
náðum aldrei að stjórna leikn-
um,“ sagði Carlo Ancelotti, þjálf-
ari Mílanliðsins, eftir leikinn.
Í Flórens var mikið fjör því
heimamenn í Fiorentina komust
þrívegis yfir en Juve tókst alltaf
að jafna og í tvígang var það
sænski leikmaðurinn Zlatan Ibra-
himovic. Markvörður Fiorentina
átti sök á tveimur markanna og
Dino Zoff, þjálfari liðsins og fyrr-
um markvörður Juve og ítalska
landsliðsins var ekki kátur. „Það
er erfitt fyrir okkur að sætta
okkur við þessi úrslit, en svona
er þetta bara. Ábyrgð markvarð-
ar er mikil og það hefur oft al-
varlegar afleiðingar ef hann ger-
ir mistök,“ sagði Zoff.
FÓLK
ÍVAR Ingimarsson þurfti að
fara af velli á 56. mínútu vegna
veikinda þegar Reading vann góð-
an útisigur, 2:1, á toppliði Sunder-
land í ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Ívar var
með flensu. Gamla brýnið Martin
Keown leysti Ívar af hólmi í vörn
Reading sem er áfram í ágætri
stöðu í baráttunni um sæti í um-
spilinu um úrvalsdeildarsæti.
ÞÓRÐUR Guðjónsson var vara-
maður hjá Stoke City en kom ekki
við sögu þegar lið hans tapaði, 3:1,
fyrir Derby County. Með þessum
úrslitum getur Stoke endanlega
gleymt öllum draumum um að
komast í umspilið.
BJARNI Guðjónsson var enn frá
vegna meiðsla þegar lið hans,
Plymouth, vann Nottingham For-
est, 3:0, á útivelli í mikilvægum
fallslag í 1. deildinni. Plymouth er
þar með komið úr mestu fallhætt-
unni en fyrrum Evrópumeistarar
Forest virðast á leið niður í 2.
deild. Bjarni verður væntanlega
með í næsta leik Plymouth.
JÓHANNES Karl Guðjónsson
lék allan leikinn með Leicester
sem gerði jafntefli, 1:1, við Bright-
on á útivelli í 1. deild. Leicester er
áfram á hættusvæði deildarinnar.
Jóhannes var tvívegis nálægt því
að skora með hörkuskotum sem
markvörður Brighton varði naum-
lega.
GRÉTAR Rafn Steinsson lék
síðustu 10 mínúturnar með Young
Boys sem steinlá á heimavelli, 2:5,
gegn Basel í svissnesku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gær.
Young Boys er í 5. sæti, fjórtán
stigum á eftir toppliðinu Basel.
STEFÁN Þ. Þórðarson skoraði
tvö mörk fyrir Norrköping sem
vann Nyköping, 9:0, í síðasta und-
irbúningsleik sínum fyrir tímabilið
í sænsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu.
GÍSLI Kristjánsson skoraði 5
mörk fyrir Fredericia sem tapaði,
29:27, fyrir botnliðinu Silkeborg/
Voel í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik á laugardaginn.
Fredericia er í 10. sæti af 14 liðum
og er þremur stigum frá fallsæti
þegar liðið á þrjá leiki eftir.
DAGUR Sigurðsson skoraði 3
mörk fyrir Bregenz sem gerði
jafntefli, 31:31, við Aon Fivers á
útivelli í úrslitakeppninni um aust-
urríska meistaratitilinn í hand-
knattleik í gær. Bregenz er í
þriðja sæti með 15 stig en á leik til
góða á Krems, sem er með 18 stig,
og Aon Fivers sem er með 16 stig.
THEODÓR Hjalti Valsson og fé-
lagar í Haslum tryggðu sér silf-
urverðlaunin í norsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik á laugar-
daginn með því að sigra Runar á
útivelli, 29:27. Theodór Hjalti
skoraði ekki í leiknum.
RÚNAR
Kristinsson
tók við fyr-
irliðastöð-
unni hjá
Lokeren á
laugardag,
þegar Ís-
lend-
ingaliðið
mætti And-
erlecht í
belgísku 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Arnar Þór Viðarsson,
fyrirliði Lokeren, tók út leik-
bann og var ekki með. And-
erlecht sigraði, 2:0, með mörk-
um frá Wilhelmsson og
Jestrovic. Rúnar og Arnar
Grétarsson léku allan leikinn
með Lokeren en Marel Bald-
vinsson var frá sem fyrr vegna
meiðsla.
Indriði Sigurðsson lék allan
leikinn með Genk sem vann
auðveldan útisigur á Sint-
Truiden, 2:0. Indriði þótti
standa sig vel.
Rúnar
Rúnar fyr-
irliði í stað
Arnars
Markið dugði þó ekki Watfordsem beið lægri hlut, 1:2, og er
nú komið í mjög alvarlega stöðu, í
fjórða neðsta sæti deildarinnar, með
jafnmörg stig og Brighton sem er í
fallsæti.
Heiðar lék allan leikinn en Brynj-
ar Björn fór af velli 11 mínútum fyrir
leikslok. Gylfi Einarsson var meðal
varamanna Leeds en kom ekki við
sögu. Heiðar var óheppinn að jafna
ekki metin seint í leiknum en Neil
Sullivan, markvörður Leeds, gerði
þá mjög vel að verja skalla íslenska
landsliðsmiðherjans. Sullivan hafði
líka varið glæsilega frá Heiðari á
upphafsmínútum leiksins.
Heiðar hefur skorað 52 af þessum
100 mörkum fyrir Watford en hann
gekk til liðs við félagið árið 2000. Áð-
ur hafði hann skorað 48 mörk á sjö
árum með Dalvík, Þrótti í Reykjavík
og Lilleström í Noregi. Fyrsta
deildamark sitt gerði Heiðar 15 ára
gamall fyrir Dalvík gegn HK í 2.
deild hinn 24. júní árið 1993.
Yfirstandandi tímabil er þegar
orðið það besta hjá Heiðari eftir að
hann gekk til liðs við Watford. Hann
hefur gert 13 mörk í 1. deildinni og
17 mörk samtals í vetur. Áður hafði
hann mest skorað 11 deildamörk á
einu tímabili, veturinn 2002–2003.
Besta tímabil Heiðars á ferlinum var
hins vegar árið 1999 þegar hann
skoraði 16 mörk í 25 leikjum fyrir
Lilleström í norsku úrvalsdeildinni.
AP
Heiðar Helguson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur skorað
100 deildamörk. Hér er hann í leik með Watford gegn Fulham.
Heiðar með
100. markið
HEIÐAR Helguson skoraði sitt
100. deildamark á ferlinum þeg-
ar Watford mætti Leeds í ensku
1. deildinni í knattspyrnu á
laugardaginn. Heiðar jafnaði
metin, 1:1, þegar fjórar mínútur
voru eftir af fyrri hálfleik, skall-
aði boltann þá í mark Leeds eft-
ir að markvörðurinn hélt ekki
þrumuskoti frá Brynjari Birni
Gunnarssyni.
&$ &$
! "
%&
'(
'%
)*+
# $ %&
& '(
HERMANN Hreiðarsson og fé-
lagar í Charlton misstu af dýr-
mætum stigum í baráttunni um
Evrópusæti þegar þeir töpuðu,
4:2, fyrir Portsmouth, sem lék í
fyrsta skipti undir stjórn Frakk-
ans Alain Perrin en hann tók við
liðinu á fimmtudag. Sá franski
kvaðst lítið vita um ensku knatt-
spyrnuna, enn minna um hina
nýju leikmenn sína og ekkert um
lið Charlton, en stýrði liði sínu
eins og herforingi, og blés til
sóknar á lokakaflanum eftir að
lið hans hafði misst niður tveggja
marka forskot. Perrin skipti inn
á tveimur sóknarmönnum og ann-
ar þeirra, Diomansy Kamara,
skoraði, 3:2, rétt fyrir leikslok.
Lomana LuaLua innsiglaði sig-
urinn í blálokin.
Charlton er þar með fimm stig-
um á eftir Bolton sem er í sjötta
sætinu en það gefur væntanlega
keppnisrétt í UEFA-bikarnum.
„Ef við verjumst ekki betur en í
þessum leik eigum við ekki
möguleika,“ sagði Alan Curbishl-
ey, knattspyrnustjóri Charlton.
Hermann lék allan leikinn með
Charlton.
Evrópu-
draumur
Charlton að
fjara út?
Toppliðin urðu að
sætta sig við jafntefli