Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 B 7
ÍÞRÓTTIR
KR-INGAR urðu um helgina
meistarar í glímunni þegar lið
þeirra sigraði í Sveitaglímu Ís-
lands, en glímt var í íþróttahúsi
Hagaskóla á laugardaginn. Í
karlaflokki sigruðu KR-ingar en
þeir glímdu við Þingeyinga (HSÞ)
um sigurlaunin. KR sigraði með
14,5 vinningum gegn 10,5.
Mikil stemning var á meðal
fjölmargra áhorfenda sem
skemmtu sér frábærlega. Lið KR
skipuðu Pétur Eyþórsson, fyr-
irliði, Ólafur Haukur Ólafsson,
Jón Birgir Valsson, Lárus Kjart-
ansson, Óttar Ottósson, Ásgeir
Víglundsson, Snorri Guðmunds-
son og Andreas Kools.
KR-ingar meistar-
ar í Sveitaglímu RÓBERT Kristmannsson ogKristjana Sæunn Ólafsdóttir úr
Gerplu urðu um helgina Norð-
urlandameistarar unglinga í fim-
leikum en keppt var í Finnlandi.
Róbert sigraði á bogahesti og
Kristjana Sæunn varð í fyrsta
sæti í gólfæfingum. Róbert varð
annars í 4. sæti á gólfi og 6. sæti í
stökki. Bjarki Ásgeirsson úr Ár-
manni var í 4. sæti á bogahesti og
5. sæti á tvíslá. Kristjana varð í 3.
sæti á slá og 2. sæti í stökki. Fríða
Rún Einarsdóttir úr Gerplu varð í
2. sæti á gólfi og í 3. sæti í stökki. Í
gær fór fram liðakeppni þar sem
íslenska stúlknaliðið varð í 3. sæti,
Kristjana Sæunn var í 2. sæti í
fjölþraut og Fríða Rún í 4. sæti.
Íslenska strákaliðið var í 4. sæti í
gær, Róbert var í 3. sæti í fjöl-
þraut og Bjarki í 6. sæti.
Róbert og Kristjana
Norðurlandameistarar
Átján lið með rétt rúmlega þrjúhundruð keppendur tóku þátt
á mótinu sem fór að sögn mótshald-
ara afskaplega vel fram. Keppt var
í þremur flokkum, blönduðum,
kvenna- og karlaflokk.
Sænska liðið Stockholm Top
Gymnastarna varð Norðurlanda-
meistari í hópfimleikum kvenna,
sigraði nokkuð örugglega með 25,85
stig en í öðru sæti var Team Asker
frá Noregi með 24,30 – en það varð
Evrópumeistari síðastliðið haust.
Kristian Viltpola, einn þjálfara
sænska liðsins, var kampakátur
þegar úrslitin voru ljós. „Við vissum
að möguleikar okkar væru góðir en
bjuggumst ekkert frekar við því að
sigra á mótinu. Okkur hefur gengið
vel á undanförnum mótum og urð-
um meðal annars í öðru sæti á síð-
asta Evrópumóti. Við áttum ágætis
æfingar á mótinu og liðið var vel
samstillt en við getum alltaf bætt
okkur og getum betur. Æfingar
voru strangar fyrir mótið og við
æfðum þrjá tíma á dag, fimm daga
vikunnar, og fórum einnig í stuttar
æfingaferðir, sagði Kristian í sam-
tali við Morgunblaðið.
Miklar væntingar voru gerðar til
Stjörnustúlkna sem áttu góða
möguleika á verðlaunasæti. Þær
urðu að láta sér nægja fimmta sæt-
ið að þessu sinni og voru vonsvikn-
ar með árangurinn.
Tímamót hjá Stjörnunni
„Við klúðruðum á frekar mikil-
vægum stundum og mistökin voru
dýrkeypt. Það er klárt mál að við
ætluðum okkur meira en ákveðin
huggun er hversu vel okkur tókst
upp í gólfæfingunum. Við settum
okkur háleit markmið fyrir mótið
og líklegt að stressið hafi verið að
stríða okkur. Þetta er einnig spurn-
ing um dagsformið og nánast bara
heppni hvaða lið sigrar hverju
sinni,“ sagði Hrefna Hákonardóttir,
liðsmaður Stjörnunnar.
„Keppnistímabilið hjá okkur er
eiginlega búið en nú eru tímamót
fram undan hjá hópnum. Þjálfar-
arnir sem við höfum haft síðastliðin
tvö ár eru samningslausir og ætla
að færa sig um set og eins eru
nokkrar að hætta vegna aldurs.
Þannig að við verðum að bíða og sjá
hvað gerist á næstunni. Það verða
því mikil umskipti við þetta og mikil
óreiða fram undan, sagði Íris Svav-
arsdóttir.
Kim Fischer, annar þjálfara
Stjörnustúlkna, var vonsvikinn með
lokastöðuna en mótið var það síð-
asta sem hann fer með liðið á.
„Ég hefði reyndar viljað sjá betra
mót núna, þó svo við hefðum ekki
unnið áttum við að geta lent í verð-
launasæti. Við erum öll vonsvikin
vegna þess að ef við hefðum átt
góðan dag hefðum við lent ofar.
Nú hefst nýtt tímabil hjá okkur
þjálfurunum. Við viljum fá nýjar
áskoranir og ákváðum því að fara
yfir í Gerplu. Við erum búnir að
þjálfa hjá Stjörnunni núna í tvö ár
og hefur tekist mjög vel. Stjörnulið-
ið er orðið mjög sterkt og gengur
vel á alþjóðavettvangi. Gerpla er
með ungt lið á uppleið og nýja fim-
leikahúsið mun reynast þeim vel,
þar verða áhöld til alls og aðstaðan
til fyrirmyndar. Nýja húsið mun
lyfta Gerplu og íþróttinni á hærri
pall,“ sagði Kim Fischer.
Evrópumeistararnir sigruðu
Karlaflokkurinn var hápunktur
mótsins enda krafist flóknari æf-
inga hjá þeim. Tilþrifin voru slík að
áhorfendur risu á fætur hvað eftir
annað. Evrópumeistararnir HSG
Slagelse frá Danmörku urðu einnig
Norðurlandameistarar með 27,95
stig eftir hörkuspennandi keppni
við landa sína í Silkeborg sem end-
uðu með 27,90 stig.
Í blönduðum flokki var það svo
sænska liðið Motus Salto sem bar
sigur úr býtum með 24,95 stig.
Veisla fyrir fjögur
hundruð manns
Rúmlega þrjú hundruð keppend-
ur tóku þátt á mótinu auk þjálfara
og aðstandenda og umgjörðin því
nokkuð umfangsmikil. Eftir að móti
lauk á laugardag var slegið upp
veislu fyrir rúmlega fjögur hundruð
manns. Laugardalshöllinni var á
skömmum tíma breytt í veislusal
undirlögðum fimleikafólki. Auk
matar og drykkjar var boðið upp á
diskótek fram eftir kvöldi.
Einnig voru skoðunarferðir í boði
fyrir liðin á sunnudaginn sem mörg
hver nýttu sér. Margir skruppu í
Bláa lónið til að slaka á eftir erfiða
keppni meðan aðrir fóru að skoða
Gullfoss og Geysi.
Norðurlandamótið í hópfimleikum í Laugardalshöllinni
Stjarnan varð að sætta
sig við fimmta sæti
BOÐIÐ var upp á sannkallaða fimleikaveislu á laugardaginn þegar
Norðurlandamótið í hópfimleikum fór fram í Laugardalshöll. Margir
lögðu leið sína í höllina til að berja helsta afreksfólk hópfimleik-
anna augum og urðu ekki fyrir vonbrigðum enda tilþrifin glæsileg.
Stjarnan og Gerpla tóku þátt fyrir Íslands hönd, í kvennaflokki, en
hvorugu liðinu tókst að komast á verðlaunapall. Stjarnan lenti í
fimmta sæti og Gerpla í því sjöunda en átta lið tóku þátt í flokknum.
Eftir Andra Karl
Morgunblaðið/Golli
Stjörnustúlkurnar urðu að sætta sig við fimmta sætið á Norðurlandamótinu í hópfimleikum í Laugardalshöllinni.
í
r
a
ð
-
ú
ð
r
í
a
á
n
i
í
a
-
-
a
í
-
í
sjálfsvald sett hvenær þeir raka sig.
Mér skilst reyndar að Falur sé jafnvel
að hugsa um að halda áfram að safna,“
sagði Sigurður.
Hann sagði móttökurnar í Keflavík á
laugardaginn þegar liðið kom úr frægð-
arförinni í Hólminn frábærar. „Það var
flugeldasýning og allt og rosa stuð.
Stuðningsmenn okkar, sem eru þeir
bestu á landinu, tóku virkilega vel á
móti okkur. Stelpurnar, sem urðu Ís-
landmeistarar í vikunni, voru auðvitað
búnar að fá sitt, en þær voru líka með
okkur á laugardaginn. Þetta var virki-
lega skemmtilegt.“
Er eitthvað farið að huga að næsta
vetri?
„Nei, ekki neitt. Við erum bara að
njóta augnabliksins núna og síðan verð-
ur sjálfsagt farið að skoða málin. Ég
var bara með samning út þetta tímabil
og það á eftir að ræða það og skoða
hvort ég verð áfram. Það er ekkert
byrjað að hugsa um það,“ sagði þjálfari
Íslandsmeistaranna.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
mi, eftir að hafa lagt Snæfell að velli.
smeistara Keflavíkur
emmti-
imma