Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 1
2005  MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÍSLANDSMEISTARARNIR Í VANDRÆÐUM MEÐ STJÖRNUNA / C3 Aganefnd UEFA mun taka máliðfyrir og taka ákvörðun um við- brögð vegna ástandsins sem skapað- ist á San Síró í gær. Stuðningsmenn Inter gengu af göflunum eftir að Merk hafði dæmt mark af liðinu sem Cambiassi skoraði á 71. mínútu og í kjölfarið varð allt vitlaust á áhorf- endapöllunum. Merk kallaði í fyrstu á alla leik- menn vallarins og safnaði þeim sam- an í miðjuhringnum á meðan starfs- menn fjarlægðu blysin. En þegar ljóst var að áhorfendur ætluðu að halda iðju sinni áfram fór Merk með alla leikmenn og starfsmenn beggja liða til búningsherbergja. Eftir um 20 mínútna hlé héldu leikmenn inná völlinn að nýju en skömmu síðar fóru blysin af stað að nýju, áhorfendur köstuðu þeim inn á völlinn. Merk blés þá leikinn af og geta for- ráðamenn Inter búist við hárri fjár- sekt af hálfu UEFA og félagið verður án efa úrskurðað í keppnisbann í Evrópuleikjum af þessum sökum. Ítölsk knattspyrnulið eiga í mikl- um vandræðum með stuðningsmenn sína en um síðustu helgi voru fjöl- margir knattspyrnuáhangendur handteknir víðsvegar um landið vegna óláta og kynþáttafordóma. Og skemmst er að minnast þess að sænski dómarinn Anders Frisk varð fyrir aðkasti stuðningsmanna Roma er hann dæmdi leik liðsins gegn Dyn- amo frá Kænugarði í Meistaradeild- inni fyrr í vetur. En Roma varð að leika næstu tvo leiki án áhorfenda á heimavelli sínum í riðlakeppninni. Carlo Ancelotti þjálfari AC Milan sagði að viðbrögð áhorfenda væri skammarleg fyrir Inter. „Þessi farsi hefur ekki aðeins slæm áhrif á Inter, þetta hefur einnig áhrif á alla borgina og mitt lið. Ég hef aldrei upplifað aðra eins uppákomu á mínum ferli og hef séð margar rimmur grannaliða,“ sagði Ancelotti. Hollenski landsliðsmaðurinn Cla- rence Seedorf sem leikur með Milan sagði að ríkisstjórn Ítalíu þyrfti að taka alvarlega á vandamálinu. „Þeir sem stjórna landinu og íbúar lands- ins verða að gera sér grein fyrir að þetta ástand getur ekki haldið áfram með þessum hætti. Eitthvað verður að gera,“ bætti Seedorf við en Dida markvörður AC Milan fékk brunasár á öxlina og var stálheppinn að fá ekki flugeldinn í andlitið. AP Dida, markvörður AC Milan, fékk flugeld í sig í grannaslagnum gegn Inter í gær og var Brasilíumaðurinn stálheppinn að slasast ekki alvarlega. Gríðarleg ólæti í „Mílanóslagnum“ STUÐNINGSMENN Inter frá Mílanó voru í aðalhlutverki í granna- slagnum gegn AC Milan í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. En dómari leiksins, Markus Merk frá Þýskalandi, tók þá ákvörðun að blása leikinn af þegar korter var eftir vegna óláta stuðningsmanna sem köstuðu logandi blysum í átt að markverði Milan, Brasilíumanninum Dida, en eitt þeirra hafnaði í öxl markvarðarins. Staðan var 1:0 er Merk blés leikinn af en Andrei Shevchenko skoraði eina markið á 30. mínútu fyrir AC Milan sem sigraði í fyrri leiknum 2:0. Talsmaður UEFA sagði í gærkvöld að úr- slit leiksins yrðu látin standa. ÓLAFUR Stefánsson og félagar í Ciudad Real leika fyrri úrslita- leikinn í Meistaradeild Evrópu í handknattleik gegn Barcelona á heimavelli sínum. Hann fer fram 30. apríl eða 1. maí. Seinni leikurinn í einvígi spænsku ris- anna fer fram í Barcelona viku síðar. Þetta er í þriðja sinn sem tvö spænsk lið leika um þennan stærsta titil félagsliða í hand- knattleik. Portland bar sigurorð af Barcelona í tveimur leikjum vorið 2001 og árið 1996 var það Barcelona sem vann einvígi gegn Bidasoa. Alfreð Gíslason, Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason og félagar þeirra í Magdeburg taka á móti Guðjóni Val Sigurðssyni og hans mönnum í Essen á heimavelli í fyrri úrslitaleik EHF-bikarsins. Seinni leikurinn fer fram í Essen, og er um sömu dagsetningar að ræða. Alfreð þekkir vel til í Gruga-höllinni í Essen, en þar lék hann í mörg ár sem leikmaður Essen og varð þýskur meistari með liðinu. Þetta er í fyrsta skipti í sjö ár sem tvö þýsk lið mætast í úrslitum í Evrópukeppni. Árið 1998 hafði Kiel betur gegn Flensburg í úrslitaleikjum EHF-bikarsins. Ademar Leon frá Spáni byrjar á heimavelli gegn RK Zagreb frá Króatíu í úrslitum Evrópukeppni bikarhafa. Í Áskorendabikarnum byrjar Wacker Thun frá Sviss á heimavelli gegn Braga frá Portúgal. Ciudad og Magde- burg byrja heima Alfreð GÍSLI Kristjánsson, sem hefur leikið með Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik undanfarin tvö ár, hefur gengið frá tveggja ára samningi við Ajax frá Kaupmannahöfn. Ajax hefur tryggt sér sæti í úrvals- deildinni fyrir næsta tímabil eft- ir eins árs fjarveru en liðið er langefst í öðrum tveggja riðla 1. deildar. Gísli, sem er 24 ára, hefur átt góðu gengi að fagna eftir að hann fór frá Gróttu/KR til Fredericia. Hann var kjörinn besti leikmaður liðsins tímabilið 2003–2004 og hann hef- ur verið mjög atkvæðamikill í vetur, bæði á línunni og í varnarleik Fredericia. Hann er fjórði markahæsti leik- maður liðsins í deildinni með 73 mörk í 23 leikjum. Gísli gat valið úr þremur tilboðum, frá Fredericia, Ringsted og Ajax, en valdi Ajax þar sem hann hefur sótt um nám við háskóla í Kaupmannahöfn og eiginkona hans stundar nám þar. Gísli Kristjánsson samdi við Ajax Gísli Kristjánsson Mourinho sá leikinn á hótel- herberginu JOSE Mourinho knatt- spyrnustjóri Chelsea fylgdist með sínum mönn- um slá Bayern München út í Meistaradeildinni á hót- elherbergi í München. Mourinho, sem tók út seinni leik sinn í banni, mætti á Ólympíuleikvang- inn og ætlaði að fylgjast með leiknum úr VIP- stúkunni en rétt fyrir leik snerist honum hugur. Hann tók leigubíl í snatri inn inn á hótel og sjá leik- inn í sjónvarpi þaðan í ró- legu umhverfi ólíkt því sem var á Ólympíuleik- vanginum. ,,Að sjálfsögðu söknuð- um við knattspyrnustjór- ans og einkum og sér í lagi í leikhléinu. Við þjöpp- uðum okkur saman og reyndum að gera eins gott úr þessu og mögulegt var,“ sagði Frank Lamp- ard sem skoraði fyrsta mark leiksins og sló með því mjög á vonir Bæjara. Það skýrist í kvöld hver andstæðingur Chelsea verður í undanúrslitunum en Chelsea mætir sigur- vegaranum úr rimmu Juventus og Liverpool.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.