Morgunblaðið - 27.04.2005, Blaðsíða 1
2005 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SÖGUFRÆGASTA ÍÞRÓTTAMÓT Á ÍSLANDI / C4
ANDREW Sam, enskur knattspyrnumaður,
kom til landsins í gærkvöld og verður til
reynslu hjá Eyjamönnum næstu vikuna. Sam er
22 ára sóknarmaður, fæddur í Leeds, en hann
hefur verið í námi í Bandaríkjunum undanfarin
ár og ekki leikið með ensku félagi. Vestanhafs
hefur hann leikið með liði Cal State Fullerton
háskóla og skorað þar mikið af mörkum und-
anfarin ár. Að sögn Gísla Hjartarsonar hjá
knattspyrnudeild ÍBV er fyrirhugað að Sam
leiki einn til tvo æfingaleiki með Eyjamönnum
áður en tekin verði ákvörðun um hvort honum
verði boðinn samningur.
Fyrir eru hjá ÍBV þrír enskir leikmenn, Ian
Jeffs, Matthew Platt og James Robinson, sem
allir koma frá 1. deildarliðinu Crewe. Jeffs er
að hefja sitt þriðja tímabil með Eyjamönnum en
Platt og Robinson eru nýir í hópi þeirra.
Enskur sóknar-
maður til Eyja
Ásgeir Ásgeirsson, formaðurmeistaraflokksráðs karla hjá
Fylki, sagði við Morgunblaðið að
þetta hefði verið lengi í bígerð.
„Þetta mál kom upp fyrir tveimur
mánuðum, í gegnum gamlan Fylk-
ismann sem er búsettur í Argentínu
og tengist Independiente, en í milli-
tíðinni höfum við þó reynt fyrir okk-
ur á Norðurlöndunum og í Englandi,
án teljandi árangurs. Við snerum
okkur því aftur að Argentínu og nú
er þetta komið á lokastig,“ sagði Ás-
geir.
Sciucattier, 19 ára sóknarmaður,
er í aðalliðshópi Independiente en
leikur fyrst og fremst með vara-
liðinu. Peréz er tvítugur og leikur
með U21 árs liði félagsins. Þeir
verða fyrstu leikmennirnir frá Arg-
entínu sem spila með íslenskum fé-
lagsliðum.
Independiente er stórlið í suður-
amerískri knattspyrnu en félagið
hefur 14 sinnum orðið argentínskur
meistari og 7 sinnum Suður-
Ameríkumeistari félagsliða, og þá
vann félagið heimsbikar félagsliða
1975 og 1984 með sigrum á Bayern
München og Liverpool.
Fylkismenn verða með þrjá er-
lenda leikmenn í sínum röðum því
fyrir nokkru fengu þeir sænska
sóknarmanninn Erik Gustafsson frá
Örgryte.
Argentínumenn í Fylki
TVEIR argentínskir knattspyrnumenn, Hernán Gabriel Peréz og Carl-
os Raúl Sciucatti, leika með Fylki í úrvalsdeildinni í sumar. Þeir eru
væntanlegir til landsins í kringum helgina en Árbæingar hafa fengið
þá að láni frá Independiente, einu þekktasta knattspyrnufélagi í Arg-
entínu, út þetta keppnistímabil, eða til sex mánaða. Varaforseti fé-
lagsins verður með í för til að ganga frá þeirra málum hér á landi.
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Allt varð vitlaust – á suðumarki íhöllinni, enda fannst Eyja-
mönnum nokkuð að sér vegið í dóm-
gæslunni.
Helga Torfadóttir, markvörður
Hauka, byrjaði á bekknum en kom
sterk inn um miðjan fyrri hálfleik.
„Auðvitað var ég hundfúl að byrja á
bekknum en þá er bara að nýta
tækifærið þegar það gefst. Nú erum
við búin að vinna okkar fyrsta leik í
Eyjum á tímabilinu og það er ljúft.“
Haukar byrjuðu leikinn af miklum
krafti og tóku forystuna frá fyrstu
mínútu. „Í síðustu leikjum sem við
höfum spilað hér í Eyjum þá höfum
við byrjað mjög illa á fyrstu tuttugu
mínútunum. Við ætluðum ekki að
láta það gerast núna og byrjuðum
vel þó við höfum aðeins misst damp-
inn í seinni hálfleik.“
Leikurinn var æsispennandi og
bauð upp á mikla dramatík og mis-
tök. „Þetta var frábær handbolta-
leikur fyrir áhorfendur, þetta var
svolítið stress, mikið um mistök en
það er bara eðlilegt þegar komið er í
úrslit.“ Helga sagði það á hreinu að
boltinn hefði ekki verið kominn inn
fyrir línuna þegar bjallan glumdi.
„Ég sá hann lenda í gólfinu og þá
gall bjallan, þess vegna fór ég ekki í
hann,“ sagði hún í léttum tón.
Allir vafadómar með Haukum
„Þetta var ömurlegt. Við förum
með allt of mikið af tækifærum til að
komast yfir í þessum leik. Síðan falla
allir vafadómar með Haukum. Til
dæmis þegar Alla Gokorian er kom-
in í gegn og getur komið okkur yfir,
það er augljóslega brotið á henni og
það áttu að vera tvær mínútur og
ekkert annað en þeir dæmdu ekki
neitt. Þetta er annar leikurinn í röð
sem þeir dæma hjá okkur og við
fáum enga vafadóma. Hefðu tveir
þeirra fallið okkar megin þá hefðum
við klárað þennan leik. Þetta er al-
veg óþolandi,“ sagði Alfreð Finns-
son, þjálfari ÍBV. Hann sagði sitt lið
hafa byrjað illa og enginn varnar-
leikur verið fyrstu fimmtán mínút-
urnar. „Síðan drifum við okkur í
gang, spiluðum góðan sóknarleik en
erum allan leikinn að klúðra svolitlu
af dauðafærum. Síðan smellur vörn-
in betur í síðari hálfleik og Florent-
ina hrekkur í gang. Þær eru að
skora úr aukaköstum, svona svipað
og þegar Duranona var í KA, svolítið
pirrandi en engu að síður ekkert við
því að gera.“ Alfreð sagði að nú væri
ekkert annað að gera en að rífa sig
upp fyrir þriðja leikinn í Hafnarfirði
á fimmtudag. „Þetta er náttúrlega
gríðarlega sárt og mér er heitt í
hamsi. Ég er reiður. Út í dómara
leiksins sem voru engan veginn nógu
góðir í kvöld.“
Það getur allt gerst
Hanna G. Stefánsdóttir var ekki
eins áberandi og oft áður í leik
Hauka en skoraði þó nokkur mik-
ilvæg mörk í síðari hálfleik. „Við ætl-
uðum að byrja í fimm einn vörn en
tókst það ekki alveg. Þá fórum við
niður í sex núll og mér fannst sú
vörn smella. Síðan ætluðum við að
stríða þeim aðeins og breyta aftur,“
sagði hún en þá komst Eyjaliðið vel
inn í leikinn og náði að jafna. „Við
unnum þetta í lokin. Nú getum við
klárað þetta á fimmtudaginn en ég
lít á það þannig að staðan er bara
núll núll og það getur allt gerst.
Maður hefur farið í þrjá, fjóra og
fimm leiki.“
Elísa ósátt við dómgæsluna
Fyrirliði ÍBV, Elísa Sigurðardótt-
ir sagði að það væri ekki hægt að
ræða þennan leik án þess að minnast
á dómarana. „Ég veit ekki hvar þeir
voru í dag, allavega ekki hér.“ Hún
sagði þó vörn ÍBV hafa brugðist
lengi vel. „Við erum að láta Ramune
skora allt of mikið. Við náðum að
halda henni nokkuð vel niðri í fyrsta
leiknum en það tókst ekki í dag. Við
fengum fjölmörg tækifæri til að
komast yfir í leiknum en dómar féllu
okkur ekki í hag á mikilvægum
augnablikum og dómararnir áttu
sinn þátt í sigri Hauka hér í dag. Það
er fáránlegt að bjóða upp á svona
dómgæslu í úrslitaleik.“
Á suðumarki
í Eyjum
HAUKAR eru með pálmann í höndunum í einvígi sínu við ÍBV á Ís-
landsmóti kvenna í handknattleik, DHL-deildinni, eftir góðan en
nauman sigur á ÍBV úti í Eyjum í gærkvöldi, 25:24. Leikurinn var
æsispennandi, sérstaklega á lokasekúndunum. Þegar fimmtán
sekúndur voru eftir voru Haukar tveimur mörkum yfir, 25:23. Alla
Gokorian minnkaði muninn í eitt mark. Haukar tóku miðju, Eyjakon-
ur komu langt út á móti þeim og Alla vann boltann þegar þrjár sek-
úndur voru eftir, úti á miðjum vellinum. Hún skaut að marki og skor-
aði, en dómarar leiksins dæmdu markið ekki gilt – sögðu tímann
hafa verið útrunninn þegar boltinn fór yfir línuna. Sárt fyrir Eyja-
konur, en engu að síður réttur dómur.
Eftir Sigursvein Þórðarson
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Alla Gokorian, stórskytta úr liði ÍBV, sækir að marki en Harpa
G. Melsted, fyrirliði Hauka, er til varnar.