Morgunblaðið - 02.05.2005, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.05.2005, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2005 B 5 LIVERPOOL og Middlesbrough skildu jöfn í ensku úrvalsdeildinni á laugardag, 1:1, og var það fyrirlið- inn Steven Gerrard sem tryggði Liverpool stig í harðri baráttu um fjórða sæti deildarinnar sem gefur sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Leikmenn Liverpool hafa eflaust fagnað meira er þeir fengu að vita úrslitin úr leik Ever- ton og Fulham þar sem Everton tapaði 2:0. Liverpool er með 55 stig í fimmta sæti deildarinnar en Ever- ton er enn í því fjórða með 58 stig. Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, var langt frá því að vera ánægður með sína menn sem hafa aðeins sigrað í einum leik af síðustu fimm leikjum liðsins. „Ég er mjög óánægður með marga hluti í okkar leik. Vissulega fengum við eitt stig úr þessum leik en við eigum einum leik færra til þess að vinna upp forskot Everton og úrslitin eru langt frá því að vera viðunandi. Við lékum aðeins í 20 mínútur af eðlilegri getu í síðari hálfleik,“ sagði Benítez sem gaf Harry Kewell tækifæri í leiknum en hann hafði ekki leikið frá því í des- ember í byrjunarliðinu. Kewell var langt frá sínu besta. Steve McClar- en, knattspyrnustjóri Middles- brough, var afar ánægður með sína menn. „Leikmenn liðsins áttu meira skilið en eitt stig. Við lékum vel í fyrri hálfleik og það er greinilegt að menn eru að leggja meira á sig til þess að eiga möguleika á að leika í Evrópukeppni á næstu leiktíð.“ Rafael Benítez var ósáttur við sína menn gegn Boro „ÞAÐ er ekki hægt að lýsa því hvernig mér líður,“ sagði Frank Lampard sem skoraði bæði mörk Chelsea í 2:0-sigri liðsins gegn Bolt- on sem tryggði liðinu enska meist- aratitilinn. Lampard er nú marka- hæsti leikmaður liðsins í deildinni með 13 mörk og bæði mörkin í leiknum voru dæmigerð fyrir leik- manninn sem margir telja einn vinnusamasta miðjumann deildar- innar. „Dagskráin hefur verið þétt og erfið að undanförnu. Margir stór- leikir og við höfum þurft að ein- beita okkur að svo mörgum hlutum í einu. En við vissum að þetta verk- efni yrði aldrei auðvelt en einbeit- ingin í leikmannahópnum hefur vaxið eftir því sem á hefur liðið. Við vorum alltaf vissir um að okkur tækist að landa titlinum og nú mæt- um við til leiks í Liverpool með sjálfstraustið á réttum stað – til- búnir í allt. Margir áttu von á því að knattspyrnustjórinn myndi gera mikið af breytingum í leik- mannahópnum fyrir leikinn gegn Bolton. En það var alltaf mark- miðið að mæta til leiks gegn Liver- pool með meistaratitilinn í fartesk- inu. Það mun efla okkur sem lið fyrir þann leik. Við ætluðum að sýna hvað í okkur býr og komum flestum á óvart í þessum leik með því að nota okkar sterkasta lið,“ sagði Lampard en hann bætti því við að Mourinho hefði verið vel á verði eftir leikinn og haldið mönn- um á mottunni í fagnaðarlátunum. „Við fengum að skola munninn með kampavíni, kannski fór eitthvað af því niður, en Mourinho var harður og gaf okkur leyfi til þess að fara út að borða – en síðan verða menn að mæta snemma í háttinn enda undir- búningurinn fyrir næsta leik þegar hafinn. Við viljum komast í úrslita- leikinn í Meistaradeildinni, enda munum við allir hve mikil vonbrigði það voru að falla úr keppni í undan- úrslitum í fyrra.“ AP Frank Lampard fagnar hinum langþráða Englandsmeistaratitli Chelsea, en hann skoraði bæði mörkin í sigurleiknum gegn Bolton, 2:0, og er hann jafnframt markahæstur í liði Chelsea. „Sjálfs- traustið er á réttum stað“  ÍVAR Ingimarsson kom inn á sem varamaður í liði Reading sem tapaði 2:1 á heimavelli gegn Wolverhamp- ton í ensku 1. deildinni. Ívar kom inn á á 62. mínútu í stöðunni 1:1.  BJARNI Guðjónsson var í leik- mannahópi Plymouth að nýju eftir fjögurra vikna fjarveru vegna meiðsla en liðið tapaði 2:0 á útivelli gegn Burnley. Bjarni meiddist í vin- áttulandsleik gegn Ítölum í lok mars og hefur ekkert leikið frá þeim tíma.  GYLFI Einarsson var í byrjunar- liði Leeds sem tapaði 2:0 á útivelli gegn Leicester. Jóhannes Karl Guð- jónsson kom inn á sem varamaður í liði Leicester á 75. mínútu, en Gylfa var skipt út af á 61. mínútu.  STEFÁN Gíslason var í byrjunar- liðin norska liðsins Lyn sem gjör- sigraði Molde á heimavelli sínum, Ullevaal í Ósló, 6:1, en Lyn skoraði þrjú mörk á þremur mínútum undir lok leiksins og hafði liðið mikla yf- irburði í leiknum. Lyn hefur hins vegar lítið getað æft í Ósló að und- anförnu þar sem að æfingasvæði liðsins er ekki í góðu ásigkomulagi og hafa leikmenn þess ekið út fyrir bæinn í allt að 40 mínútur til þess að geta æft við bestu aðstæður í ná- grenni við Drammen.  JÓHANNES Harðarson lét mikið að sér kveða í liði Start gegn Viking í Noregi í gær en nýliðarnir frá Kristiansand höfðu betur, 5:2. Jó- hannes átti nokkur skot að marki og var ógnandi á miðsvæðinu en Start er í efsta sæti deildarinnar með 10 stig þegar fjórar umferðir eru bún- ar.  HANNES Sigurðsson lék ekki með Viking en hann er að jafna sig eftir höfuðhögg sem hann hlaut í síð- asta leik liðsins gegn Lilleström þar sem hann fékk heilahristing.  ÁRNI Gautur Arason var í marki Vålerenga sem sigraði með einu marki gegn engu á útivelli gegn Tromsö. Og bar það til tíðinda að Árni Gautur fékk gult spjald í leikn- um fyrir að vera of lengi að undirbúa markspyrnu frá eigin markteig.  ARNAR Þór Viðarsson, Arnar Grétarsson og Rúnar Kristinsson léku allir með Lokeren þegar liðið tapaði fyrir nágrönnum sínum AA Gent, 0:1, í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu.  INDRIÐI Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Genk er liðið gerði jafn- tefli við Oostend, 2:2, í belgísku 1. deildinni.  JÓHANN B. Guðmundsson var í leikmannahóp Örgryte í sænsku úr- valsdeildinni í gær en kom ekki við sögu í 4:1 sigri liðsins gegn Sunds- vall.  GUNNAR Heiðar Þorvaldsson kom inn á sem varamaður á 70. mín- útu í liði Halmstad sem tapaði 1:0 á heimavelli fyrir Kalmar. FÓLK Það getur ekki verið betra en aðenskt lið fagni sigri með tvo enska landsliðsmenn í aðalhlutverki. Þeir standast samanburð við alla og eru í fremstu röð í sínum stöðum í heiminum,“ segir m.a. í News of the World sem er eitt mest selda dag- blað Bretlandseyja en Terry er sagð- ur hafa stjórnað vörn liðsins eins og herforingi enda hefur liðið aðeins fengið á sig 13 mörk í 35 leikjum í deildinni. The Sunday Times segir að tvíeykið Lampard og Terry hafi ver- ið kjölfestan í liðinu í 77½ klukku- stund úti á vellinum í leikjum liðsins í vetur og varla stigið feilspor í leikj- um liðsins. Mail on Sunday hefur eftir Sir Bobby Robson, fyrrv. knattspyrnu- stjóra Newcastle, að Mourinho hafi gert vel með það lið sem hann hafi fengið í hendurnar. En Robson starf- aði með Mourinho á sínum tíma er hann var knattspyrnustjóri Barce- lona á Spáni en þar var Mourinho túlkur fyrir enska þjálfarann. „Vissulega hefur hann fengið gæða- efni frá eiganda liðsins til þess að vinna með en Mourinho hefur sýnt að hann er úrvalsklæðskeri.“ Í The Observer er sagt frá því að leikmenn Chelsea geti ekki búist við að fá sömu móttökur og þeir fengu árið 1955 er þeir höfðu tryggt sér sigur í deildinni áður en þeir léku gegn Manchester United á útivelli. Á þeim tíma klöppuðu stuðningsmenn Manchester United leikmönnum Chelsea lof í lófa er þeir héldu inn á leikvöllinn en blaðamaður Observer telur að móttökurnar verði ekki eins hlýjar þegar liðið mætir með „titil- inn“ í farteskinu á Old Trafford í næstsíðustu umferð deildarinnar. Hvað segja ensku blöðin um árangur Chelsea? Lampard og Terry fá mesta lofið ENSKIR fjölmiðlar eru mest uppteknir við að lýsa ágæti ensku landsliðsmannanna Frank Lampard og John Terry í liði Chelsea eft- ir að liðið tryggði sér sigur í ensku deildinni í fyrsta sinn í hálfa öld. Milljónirnar sem rússneski eigandi liðsins, Romran Abramovich, hefur sett í liðið á undanförnum árum eru ekki aðalmálið í augum enskra fjölmiðla og meira að segja hinn litríki knattspyrnustjóri liðsins, José Mourinho, þarf að sætta sig við að vera í aftursætinu hjá Terry og Lampard. AP n-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.