Mánudagsblaðið - 15.10.1956, Blaðsíða 8
Mánudagsblaðið
Austur-þýzkir bílar til sýnis
„Vagninn hf.” flytur inn „plasl-bíla"
Á síðastliðnu ári þegar samið var við viðskiptanefnd Austur-Þjóð-
verja um vöruskipti milli landanna, lögðu þeir sérstaka áherzlu
á að íslendingar keyptu af þeim skip, vélar og þungavinnutæki alls
konar, og þar með taldir bílar.1
Snernma á þessu ári var svo hlutafélagið DESSA stofnað til þess
að annast þessi viðskipti, en síðan hefur hlutafélagið Vagninn tekið
að sér sölu og dreifingu bílanna og varahluta til þeirra.
Þannig fórust forstjóra „Vagnsins hf“, Júlíusi Magga Magnús
konar, og þar með talda bíla.
ÖR EINU
I ANNAÐ
Nýr matbar í
Lækjargötu
S. 1. laugardag var opnaður
nýr matbar með sjálfsaf-
greiðslu í Lækjargötu 8. Nefn
ist hann „Kjörbarinn“. Eig-
endur hans eru Axel Magn-
ússon, Mávahlð 41, og Ragn-
ar Alfreðsson, Aragötu 9. —
Verður Ragnar forstjóri og
yfirmatreiðslumaður.
Kappkostað verður að hafa
á boðstólum alls konar mat,
heitan og kaldan. Hamborg-
ari, alls konar samlokur og
aðrir sérréttir verða búnir til
jafnharðan og um er beðið.
Franskar kartöflur og „Fish
and Ships“ verður selt út í
smekklegum umbúðum. Bæði
venjulegt kaffi og Mokkakaffi
hitað í sérstakri könnu, verð-
ur alltaf hægt að fá nýlagað.
Kjörbarinn verður opinn
alla daga frá kl. 8—23:30, en
á tímanum kl. 11—11:30 og
17—17:30 verður Iokað vegna
hreinsunar, enda gætt ýtrustu
hreinlætisreglna í hvívetna.
Skreytingar á sal Kjörbars-
ins hefur Sigurður Karlsson
gert. Blikksmíði annaðist
Agnar Breiðfjörð, trésmíði
Óskar Þórðarson, málun Ottó
Guðmundsson, pípulagningar
Haraldur Salomonsson, raf-
lagnir Ástvaldur Jónsson.
Borð hefur smíðað verksmiðj-
an Stálprýði, stólar eru frá
Reykjalundi, Fluorescent-ljós
gerði Stálumbúðir og gler-
vinnu annaðist Glersala og
speglagerð, Laufásvegi 17.
Merki Kjörbarsíins er efltir
Svein Kjarval.
Gamla bíó sýnir nú franska
mynd sem nefnist ,Næturfélagar‘
og fjallar um líf vændiskvenna
Parísarborgar. Lýsir myndin, að
því að bezt verður séð, daglegum
raunum slíkra stúlkna, lýsir á-
stæðum fyrir því að þær leggja
þennan atvinnuveg fyrir sig; þá
er og lýst húsþændum þeirra
„alfonsunum“ hórkörlum þeim,
sem tekjur hafa af vændi.
Þetta vandamál stórborgaranna
virðist nú aukast mjög og erfitt
að gera gagnráðstafanir sem að
verulegu haldi koma. Myndin
byggir því mest á persónulegri
sögu einnar stúlku, húsþónda
hennar, svo og nokkrum stall-
systrum liennar. Sýnir myndin
oft á mjög athyglisverðan hátt
atriði úr lífi þessara ólánskinda,
Flestar gerðir austur-þýzkra
fólks- og vörubíla, þar með taldir
sendiferðabilar, hafa nú borizt til
landsins, og eru til sýnis á Aust-
ur-þýzku bílasýningunni, sem
haldin er í Vagninum hf. að
Laugavegi 103.
Af bílum þeim sem til sýnis eru
vekur plastþíllinn P-70 eflaust
mesta athygli.
Þetta er fjögurra manna bíll
með tveggja strokka tvígengis-
vél og framhjóladrifi, og er öll
yfirbygging bílsins úr plastefni,
ótrúlega sterku.
sem selja blíðu sína þeim sem
hæst bjóða. Þá eru líka sýnd
mörg atriði úr lífi „alfonsanna“
hinna miskunnarlausu kaupa-
héðna, sem snara stúlkurnar og
gera þær háðar sér til þess að
þær vinni verk sitt. Kvenfólk
þetta er upp og niður en myndin
sýnir þáðar hliðar, illa og góða,
þessara kvenna. I
Frakkar, sem sjaldnast veigra'
sér við að sýna konulikamann t
klæðlítinn, eru furðu hógværir
í mynd þessari; standast ekki
mátið að fullu, en beita furðulegri
varfærni.
Leikurinn er víða mjög góður,
en jafnbeztur er hann hjá Ray-
mond Pellegrin, Jo hórkarl, sem
sýnir frábæra persónutúlkun —
annarsvegar hinn tungumjúka
„sjarmör" -—- hinsvegar hið sam-
vizkulausa hrottamenni, sem
einskis svífst. Francoise Arnoul,
Olga, leikur vel hlutverk gæfu- j
snauðrar ungrar móður, sem fer
inn á braut vændis og stallsystur
hennar leika allvel hlutverk sín.
Myndin hefur þann hvimleiða
galla umbótamynda að vera um
of perspnuleg og viðkvæm, bend-
ir ekki á lausn en ásakar óbeint
þjóðfélagið. Sem slík er myndin
mjög góð, hefur visst listrænt
Framhald á 4. síðu.
í pésa, sem Þórður Runólfsson,
öryggismálastjóri hefur þýtt fyr-
ir Vagninn hf., sézt að eiginleik-
ar plastefnisins, eins og það er
notað í yfirbyggingu bílanna, er
að engu leyti ótryggara en bodí-
stál, en stendur því í flestum
atriðum miklu framar. Á sýning-
unni er t.d. ljósmynd af þessum
litla 4 manna bíl, þar sem 15 full-
orðnir menn standa ofan á hon-
um, og mun óhætt að fullyrða að
e-nginnj bíll með bodístálsyfir-
byggingu þyldi slíka raun.
Plastbíllinn P-70 fæst bæði sem
fólksbíll og stationbíll.
Þá er sýndur þarna bíll sem
nefnist Wartburg, og er fimm
manna. Af honum eru til bæði
fólksbíll og stationbíll, og eru
báðar gerðirnar fallegar.
Wartburg-bílar
Wartburg bílarnir eru, eins og
P-70 með framhjóladrifi, en vél-
in er þriggja strokka tvígengisvél.
Tvígengisvélar ryðja sér nú mjög
til rúms í heiminum, enda þykja
þær á ýmsan hátt hentugri en
eldri gerðir, og má því til sönn-
unar nefna að önnur stærsta bíla
smiðja heims hefur nú nýlega
hafið framleiðslu slíkra véla í
bíla sína.
Garantgerðin — benzín
eða dicsel
Frágangur innan í bílunum
Framhald á 4. síðu.
son hafi fengið stórlán eystra
— gegn vissum pólitískum
loforðum?
Skemmfileg revía — Mjólkurbúðir — Lögbrof
j eg vegtylSur — Eilífðarmálin — Gleymd
| sakamál —
Revían, Svartur á Ieik, sem Kontrabandið sýnir
í Sjálfstæðishúsinu, vekur mikla og verðskuldaða
kátínu gesta um þessar mundir. Revían, sem er í
tveim þáttum, er á köflum bráðfyndið gaman um
stjórnmál og dægurþras auk skemmtilegra söngva.
Ýmsir af þekktustu gamanleikurum okkar koma
fram og leika þeir hlutverk sín, yfirleitt, ágætlega.
I ★ ----------------------
Skrifstofa borgarlæknis hefur undanfarið látið
eigendur matsölustaða bæta snyrtiherbergi sín, enda
voru þau í mesta ólestri. Nú væri nauðsyn, að full-
trúar skrifstofunnar athuguðu hvort starf sfólk í mjólk-
urbúðum hlýddu í öllu reglum þeim, sem slíka staði
varða. Er þar víða pottur brotinn og nauðsyn að hið
opinbera hlutist til um að reglunum sé hlýtt.
i ★ ----------------------
Eins og menn muna þá fékk Vilhjálmur Þór kross
frá ríkinu num líkt leyti og olíudeild SÍS var dæmd í
stórsektir fyrir svindl. Síðan varð hann bankastjóri.
Skömmu seinna var Sigurður Jónasson, framkvæmda-
stjóri ,,olíunnar“, sem dæmdur var í stórsektir fyrir
framkvæmdir sama brots, gerður að forstjóra Tóbaks-
einkasölunnar. Nú hefur Pétur Pétursson, aðstoðar-
maður Sigurðar, verið settur í Viðskiptanefnd (!), og
sezt þar kinnroðalaust.
Væri nú nokkuð úr vegi að setja Franz Andersen,
endurskoðanda, í tukthúsið fyrir að hafa komið upp
um glæpinn ? — svona til að halda samræminu.
I ★'----------------------
Þegar skömmtunartímabilið var á hátindi stóð verzl-
unarfólk oft tímum og dögum saman í fordyri gjald-
eyris- og innflutningsnefndar og beið þess að nefndar-
menn miskunnuðu sig yfir það. Frú Anna Friðriksson,
hljóðfærasali'; þótti stundum einna áköfust en erfitt
með vöru þá er verzlun hennar selur.
Eitt sinn er frúin hafði sótt mál sitt fast og verið
heldur fáryrt í garð nefndarmanna, varð Skúla Guð-
mundssyni, alþm., sem þá sat í nefndinni ,að orði:
„Haldið þér ekki, frú Friðriksson, að yður væri betra
að hugsa meira um eilífðarmálin en þá hina veraldlegu
hlutina?“
Frúnni varð orðfall, og ríkti friður lengi eftir.
★ ----------------------
Það er eitthvað undarlegt hve hljótt h’efur verið
um stórglæpamálin (frá þvi í fyrravetur) síðan nýja
stjórnin tók við. Það væri vissulega fróðlegt að vita
hversu þessum málum vindur fram eða hvort núver-
andi dómsmálaráðherra ætlar að ,,geyma“ þau eitt-
hvað lengur.
Ekkert hefur ennþá heyrzt frá þessum rannsókn-
um síðan í vor — og blöðin, sem þá kröfðust mest að-
gerða verið undarlega hljóð.
Mva<1 á að gera í kvöld?
SUNNUDAG
Gamla Bíó: Næturfélagar. F. Arnold. Kl. 5 og 9. Davy Crockett kl. 7.
Nýja Bíó: Kyrtillinn. V. Mature. Kl. 6:30 og 9.
rjarnarbíó: Bob Hope og börnin 7. Kl. 5, 7, 9.
Austurbæjarbíó: Blaðamannakabarettinn.
Stjörnubíó: Ránið í spilavítinu. G. Madison. Kl. 5, 7, 9.
rrípólibíó: Kjólarnir hennar Katrínar. Kl. 5, 7, 9.
Hafnarbíó: Glæpaferð. R. Calhoun. Kl. 5, 7, 9.
Laugarásbíó: Vígvöllurinn H. Bogart. Kl. 5, 7, 9.
Þjóðleikhúsiff: Spádómurinn. R. Arnfinnsson. Kl. 20.
Iðnó: Kjarnorka og kvenhylli. G. Þorbjarnardóttir. Kl. 20.
LBirt án ábyrgðar.)
Vændislíf og rralfonsarr í Gantla Bíói