Morgunblaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.05.2005, Blaðsíða 1
2005  LAUGARDAGUR 14. MAÍ BLAÐ D B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÓEÐLILEGT EF VALSSTÚLKUR VERÐA EKKI MEISTARAR / D3 ENSKA staðarblaðið Nottingham Evening Post telur sig hafa heimildir fyrir því að Guðjón Þórðarson verði ráð- inn knattspyrnustjóri enska 3. deildar liðsins Notts County innan fárra daga. Fyrr í vikunni birtist frétt í blaðinu þess efnis að Guð- jón væri einn nokkurra kandídata í starfið og í gær greindi blaðið frá að hann sé efstur á óskalista stjórnar félagsins um að taka við liðinu og hafi samningavið- ræður stjórnarmanna við Guðjón um kaup og kjör staðið yfir síðustu daga. Guðjón yrði þar með fyrsti erlendi knattspyrnustjór- inn hjá Notts County sem er elsta knattspyrnulið heims – stofnað árið 1862. Stjórnendur Notts Coutny telja að Guðjón sé rétti maðurinn til að rífa félagið upp eftir fjórar magrar leik- tíðir en það hafnaði í 19. sæti á nýafstaðinni leiktíð og hefur mátt glíma við mikil fjárhagsvandræði. Talið að Guðjón Þórðarson taki við Notts County Tite Kalandadze hafði betur í baráttu viðRoland Eradze, ÍBV, og Augustas Straz- das, HK, sem einnig voru tilnefndir í kjöri á handknattleiksmanni ársins. Kalandadze er ein mesta stórskytta sem leikið hefur hér á landi og hann átti stóran þátt í að koma ÍBV í úrslitaeinvígið gegn Haukum um Íslands- meistaratitilinn en eins og fram hefur komið í fréttum hefur hann ákveðið að leika með Stjörnunni á næsta tímabili. Þær sem voru tilnefndar í kjör á handknatt- leikskonu ársins auk Hönnu voru þær Natasa Damiljanovic, Víkingi, og Ramune Pekerskyte, Haukum, en Hanna var einn af lykilmönnum í liði Hauka, sem varð Íslands- og deildarmeist- ari á tímabilinu og varð Hanna markahæsti leikmaður deildarinnar. Auk Árna Þórs voru tilnefndir í vali á efni- legasta leikmanni ársins þeir Andri Stefan, Haukum, og Ernir Hrafn Arnarsson úr Aftur- eldingu. Arna Gunnarsdóttir, Gróttu/KR, og Harpa Sif Eyjólfsdóttir, Stjörnunni, voru til- nefndar í vali á efnilegasta leikmanni ársins auk Sigurbjargar. Viðurkenningar á lokahófinu hlutu:  Bestu leikmenn: Tite Kalandadze, ÍBV og Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum.  Efnilegustu leikmenn: Árni Þór Sigtryggsson, Þór og Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Fram.  Þjálfarar ársins: Júlíus Jónasson, ÍR og Guðmundur Karlsson, Haukum.  Háttvísisverðlaun: Anna Bryndís Blöndal, Stjörnunni og Bjarki Sigurðsson, Víkingi.  Valdimarsbikarinn: Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukum.  Markahæstir: Halldór Jóhann Sigfússon, KA, 229 mörk. Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum, 177 mörk.  Bestu varnarmenn: Anna Bryndís Blöndal, Stjörnunni og Vignir Svavarsson, Haukum.  Bestu sóknarmenn: Ramune Pekerskyte, Haukum og Valdimar Þórsson, HK.  Bestu markverðir: Florentina Grecu, ÍBV og Roland Eradze, ÍBV.  Bestu dómarar: Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson.  Unglingabikar HSÍ: FH. Kalandadze og Hanna leikmenn ársins TITE Kalandadze, ÍBV, og Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum, voru krýnd bestu leik- menn ársins í DHL-deild karla og kvenna á lokahófi HSÍ sem haldið var í Broadway í gærkvöld. Árni Þór Sigtryggsson, Þór og Sigurbjörg Jóhannsdóttir úr Fram voru út- nefnd efnilegustu leikmenn ársins. Rúnar V. Arnarson, formaður knattspyrnu-deildar Keflavíkur, segir að sú ákvörðun Guðjóns Þórðarson að rifta þjálfarasamningi sínum við félagið hafi komið sér og öðrum Kefl- víkingum gjörsamlega í opna skjöldu. Guðjón, sem gerði í desember þriggja ára samning við Keflvíkinga, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann segist hafa rift samningi við Knatt- spyrnudeild Keflavíkur. ,,Það er alveg ljóst að Guðjón hefur ekki klá- súlu í þeim samningi sem við gerðum við hann til að rifta honum með þeim hætti sem hann hefur kosið að gera. Honum hefur greinilega verið boðið starf erlendis og er að reyna að finna sér einhverja ástæðu eins og þessi yfir- lýsing hans lítur út. Samningurinn er skotheld- ur, það er ekkert uppsagnarákvæði í honum og við munum leita réttar okkar,“ sagði Rúnar við Morgunblaðið í gær. Hefur ekki boðið liðsinni Rúnar segist hafa verið algjörlega grunlaus þegar lögmaður Guðjóns birtist skyndilega í gær þar sem hann tilkynnti að Guðjón væri hættur. Í niðurlagi í fréttatilkynningu sem barst frá lögmanni Gujóns segir; ,,Þar sem keppni á Íslandsmótinu hefst inn- an fárra daga hef ég boðið stjórn knattspyrnu- deildar Keflavíkur liðsinni mitt við að koma liði félagsins af stað í mótinu og vera stjórnendum liðsins innan handar næstu daga og vikur.“ ,,Hann hefur ekkert boðið okkur það. Lög- maður Guðjóns ítrekaði við okkur að Guðjón væri hættur. Hann hafði ekki einu sinni mann- dóm í sér til að segja okkur frá þessu sjálfur. Ég hef ekkert heyrt frá Guðjóni sjálfum um þetta mál og ég vil ítreka að hann hefur ekki boðið okkur liðsinni og við höfum engan áhuga á því. Við erum með Kristján Guðmundsson sem aðstoðarþjálfara og við treystum honum vel fyrir því að stjórna liðinu í leiknum við FH. Hann hefur ekki svikist undan merkjum.“ Guðjón talar um vanefndir á samningnum. Hvað segir þú um það? ,,Það eru engar vanefndir. Það veit hann sjálfur og ég vil ekkert ræða meira um það.“ Hvenær fékkst þú að vita að Guðjón væri hættur? ,,Eftir hádegi. Liðið er að fara austur í Hveragerði og ætlar að vera á Hótel Örk um helgina til undirbúnings fyrir leikinn á móti Ís- landsmeisturum FH. Guðjón stjórnaði liðinu í æfingaleik á móti ÍA á Akranesi í gær og ég vissi ekki hvað á mig stóð veðrið þegar mér barst þetta til eyrna. Mig grunaði þetta ekki en þegar ég hugsa til baka þá finnst mér Guðjón hafa verið töluvert annars hugar. Ég hélt að það væri bara eitthvað annað að plaga hann. Hann hefur þó sinnt sínu starfi en ekki meira en það,“ sagði Rúnar í gær. Rúnar V. Arnarsson um óvænta afsögn Guðjóns Þórðarsonar sem þjálfari meistaraflokks Keflavíkur Ákvörðun Guðjóns kom Keflvíkingum í opna skjöldu GUÐJÓN Þórðarson knattspyrnuþjálfari sagði óvænt upp starfi sínu sem þjálfari Keflavíkurliðsins í gær – aðeins þremur dögum áður en Íslandsmótið hefst. Keppni í efstu deild karla, Landsbankadeildinni, hefst með fjórum leikjum á mánudaginn og þá taka Keflvíkingar á móti Íslandsmeisturum FH. Morgunblaðið/Þorkell Guðmundur Steinarsson, fyrirliði Keflavíkurliðsins, í baráttu við FH-ingana Davíð Þór Viðarsson og Heimi Guðjónsson í Kaplakrika á dögunum. ■ Gafst upp á…/D4  Yfirlýsing Guðjóns/D4 Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.