Morgunblaðið - 14.05.2005, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.05.2005, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR 2 D LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ RÓBERT Gunnarsson, fyrir- liði danska handknattleiks- liðsins Århus, er tilnefndur sem leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni en alls eru fimm leikmenn til- nefndir. Íslenski landsliðs- maðurinn er langmarkahæsti leikmaður dönsku deild- arinnar en í frétt dagblaðsins Östjylland er þess getið að Róbert leiki aðalhlutverk í vörn sem sókn hjá Århus en liðið leikur til úrslita um danska meistaratitilinn. Róbert er eini er- lendi leikmaðurinn sem tilnefndur er en hinir fjórir eru: Anders Eggert, GOG, Sören Stryger, landsliðsfyrirliði Dana, Flensburg, Lars Möller Madsen, Skjern og Bo Spelleberg, KIF Kolding. Róbert verður leikmaður þýska liðsins Gum- mersbach á næstu leiktíð. Róbert Róbert tilnefndur í Danmörku VÍKINGAR frá Ólafsvík, nýliðar í 1. deild- inni í knattspyrnu, fengu í gær góðan liðs- auka fyrir sumarið. Tveir skoskir knatt- spyrnumenn frá 1. deildar liðinu Ross County komu þá til liðs við þá. Þeir heita Steven MacKay, 23 ára varnar- eða miðju- maður, og Craig Campbell, 21 árs varnar- maður. MacKay lék 17 leiki með Ross County í vetur, 4 þeirra í byrjunarliði. Campbell var í láni hjá 3. deildar liðinu Peterhead og spilaði þar 27 leiki og skor- aði eitt mark. Jóhannes Eðvaldsson, fyrr- um landsliðsfyrirliði og leikmaður með Celtic á árum áður, sem er búsettur í Skot- landi, hafði veg og vanda af komu leik- mannanna til Ólafsvíkur og fylgdi þeim til landsins. Stefnt er að því að leikheimildir verði tilbúnar fyrir þá þannig að þeir geti leikið með Víkingum gegn HK í fyrstu umferð 1. deildarinnar á mánudaginn. Skotar til Ólafsvíkur „ÞAÐ er mikið að gera hjá okkur í því að gefa út keppnisleyfi og ganga frá félagaskiptum. Og við gerum okkar besta til þess að allir þeir sem þurfa á keppnis- leyfi að halda fái slíkt fyrir fyrstu umferð,“ sagði Klara Bjartmarz, starfsmaður Knattspyrnusambands Íslands, í gær við Morgunblaðið en hún vildi ekki gefa upp hve margir erlendir leikmenn eiga eftir að fá keppnisleyfi. „Við tjáum okkur ekki um einstök félagsskipti á meðan þau eru í vinnslu en það eru enn nokkrir leikmenn sem eiga eftir að fá keppnisleyfi. Við þurfum að fá staðfest- ingu frá þeim knattspyrnusamböndum þar sem við- komandi lék síðast og þetta tekur allt sinn tíma. En við verðum við störf um helgina og þetta á eftir að tínast inn smátt og smátt,“ sagði Klara. Samkvæmt reglum KSÍ þurfa erlendir leikmenn að- eins að hafa verið á landinu í einn sólarhring áður en hægt er að útbúa keppnisleyfi að því gefnu að öll gögn hafi borist erlendis frá. Klara sagði að þeir þættir sem snúa að atvinnuleyfi fyrir viðkomandi væru ekki á verksviði KSÍ og hún þekkti ekki það ferli. Annir í félaga- skiptum hjá KSÍ Víkingur R. Komnir: Björgvin Vilhjálmsson (Fylki), Daði Kristjánsson (Þór), Davíð Þór Rúnarsson (Fjölni), Elmar Dan Sigþórsson (KA), Elvar Guðjónsson (ÍR), Halldór Jón Sigurðsson (Tindastóli), Hörður Bjarnason (Breiðabliki), Ingvar Þór Kale (KS), Jóhann Guðmundsson (Stjörnunni), Jón Haukur Haraldsson (Sindra), Milos Glogovac (Serbíu), Rannver Sigurjónsson (Breiðabliki). Farnir: Borko Marinkovic (Serbíu), Dejan Miljanic (Serbíu), Grétar S. Sigurðarson (Val), Kári Árnason (Djurgården), Martin Trancík (Slóvakíu), Sigursteinn Gíslason (hættur), Steinþór Gíslason (Val), Viktor B. Arnarsson (Fylki), Þorvaldur M. Guðmundsson (Hauka). KA Komnir: Sándor Forizs (Leiftri/Dalvík). Farnir: Atli Sveinn Þórarinsson (Val), Dean Haukar Komnir: Amir Mehica (Bosníu), Betim H jadini (Leikni R.), Birgir Rafn Birgi (HK), Emir Dervic (Bosníu), Svavar Sigu son (Völsungi), Þorvaldur Már Guðmund (Víkingi R.) Farnir: Edilon Hreinsson (Þrótt R.), G Lukic (Stjörnuna), Guðmundur Magnú (Hugin), Ryan Mouter (MK Dons), Sæ Eyjólfsson (Þrótt R.) Víkingur Ó. Komnir: Craig Campbell (Ross County), ar Hjörleifsson (Aftureldingu), Einar Óli varðarson (Val), Eyþór Páll Ásgeir (Breiðabliki), Slavisa Mitic (Fjölni), St MacKay (Ross County) Farnir: Hallur Ásgeirsson (Neista D.), Pétur Pétursson (Danmerkur). Fjölnir Komnir: Atli Guðnason (HK), Ásmundur Arn- arsson (Völsungi), Hálfdán Daðason (BÍ), Heiðar Ingi Ólafsson (Völsungi), Jens Harð- arson (HK), Oddur H. Guðmundsson (Völs- ungi), Ólafur Páll Johnson (KR), Pétur G. Markan (BÍ), Sigmundur Ástþórsson (FH), Ögmundur Rúnarsson (Val). Farnir: Davíð Þór Rúnarsson (Víking R.), Dragan Vasilijevic (Serbíu), Ívar Björnsson (Fram), Kristján G. Sveinsson (Hugin), Ilic (Serbíu), Ríkharð Snorrason (Stjörnuna), Slavisa Mitic (Víking Ó.) KS Komnir: Danilo Radoman (Serbíu), Mark Duffield (GKS), Sasa Zelic (Serbíu). Farnir: Ingvar Þór Kale (Víking R.), Sasa Durasovic (Leiftur/Dalvík). Sverrir Sverrisson (hættur), Þorsteinn Sveinsson (HK). Þór Komnir: Hazar Can (Nijmegen), Jóhann H. Traustason (Leiftri/Dalvík), Lárus Orri Sig- urðsson (WBA), Pétur Kristjánsson (Dan- mörku). Farnir: Daði Kristjánsson (Víking R.), Helgi Jones (Fjarðabyggð). Völsungur Komnir: Baldvin Jón Hallgrímsson (Val), Mil- an Janosevic (Njarðvík), Sreten Djurovic (Keflavík), Zoran Daníel Ljubicic (Keflavík). Farnir: Arngrímur Arnarson (Danmerkur), Ásmundur Arnarsson (Fjölni), Baldur Sig- urðsson (Keflavík), Heiðar Ingi Ólafsson (Fjölni), Oddur H. Guðmundsson (Fjölni), Svavar Sigurðsson (Hauka). Martin (ÍA), Elmar Dan Sigþórsson (Víking R.), Ronni Hartvig (Danmerkur). HK Komnir: Eyþór Guðnason (Njarðvík), Ólafur V. Júlíusson (Fylki), Rúrik Gíslason (Ander- lecht), Þorsteinn Sveinsson (Breiðabliki). Farnir: Atli Guðnason (Fjölni), Ásgrímur Al- bertsson (Keflavík), Birgir Rafn Birgisson (Hauka), Jens Harðarson (Fjölni). Breiðablik Komnir: Errol McFarlane (Líbanon), Hans Fróði Hansen (Fram), Hjörvar Hafliðason (KR), Petr Podzemsky (KR). Farnir: Hákon Sverrisson (Ými), Hörður Bjarnason (Víking R.), Kjartan Antonsson (hættur), Kristófer Sigurgeirsson (Fram), Páll Gísli Jónsson (ÍA), Pétur Ó. Sigurðsson (FH), Rannver Sigurjónsson (Víking R.), HANDKNATTLEIKUR Þýskaland Magdeburg – Grosswallstadt...............30:18 Wallau – Gummersbach........................33:45 Pfullingen – HSV Hamburg.................32:38 EM 17 ára liða Ísland - Rússland ..................................19:22 Litháen - Búlgaría.................................26:12 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Úrslitakeppnin, 2. umferð: Austurdeild: Washington – Miami ...........................95:102  Staðan er 3:0 fyrir Miami. Vesturdeild: Seattle – San Antonio ...........................92:91  Staðan er 2:1 fyrir San Antonio. ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Forkeppni 17 ára liði kvenna í Evrópu- keppninni: Laugardagur: Digranes: Búlgaría - Rússland..................14 Digranes: Ísland - Litháen ........................16 Sunnudagur: Digranes: Rússland - Litháen...................14 Digranes: Ísland - Búlgaría.......................16 KNATTSPYRNA Mánudagur: Efsta deild karla, Landsbankadeild: Laugardalsvöllur: Fram - ÍBV .................17 Hlíðarendi: Valur - Grindavík ...................17 Akranes: ÍA - Þróttur R. ...........................17 Keflavík: Keflavík - FH ........................19.15 Efsta deild kvenna, Landsbankadeild: KR-völlur: KR - Stjarnan..........................14 1. deild karla: Þórsvöllur: Þór - KS...................................13 Víkin: Víkingur R. - Fjölnir .......................14 Kópavogur: Breiðablik - Haukar ..............14 Ólafsvík: Víkingur Ó. - HK........................16 Akureyrarvöllur: KA - Völsungur ............16 2. deild karla: Tungubakki: Afturelding - Huginn ..........14 Neskaups.: Fjarðabyggð - Stjarnan...........1 Njarðvík: Njarðvík - Leiftur/Dalvík.........16 ÍR-völlur: ÍR - Leiknir R...........................16 Sauðárkrókur: Tindastóll - Selfoss...........16 Leiðrétting Markafjöldi Gunnars H. Þorvaldssonar, ÍBV, misritaðist í gær í blaðauka um Ís- landsmótið í knattspyrnu, í grein um markakónga 1955–2004. Gunnar H. var markakóngur í fyrra með 12 mörk. UM HELGINA Morgunblaðið fékk Jörund ÁkaSveinsson, þjálfara Stjörn- unnar í Garðabæ, sem leikur í 2. deild karla, til að spá í spilin fyrir komandi tímabil í 1. deildinni en Jör- undur hefur séð til flestra liðanna í undirbúningi þeirra fyrir Íslands- mótið. ,,Ég sé eiginlega fyrir mér tví- skipta deild. Í efri hópnum verða Breiðablik, Víkingur Reykjavík, KA, Þór og HK og í neðri hópnum Hauk- ar, Völsungur og Fjölnir ásamt ný- liðunum Víkingi Ólafsvík og KS,“ segir Jörundur Áki. ,,Breiðablik hefur spilað glimrandi vel á undirbúningstímabilinu og Bjarni Jóhannsson er búinn að gera miklar breytingar á liðinu. Svo er bara spurning hvort Blikarnir höndla þá pressu sem jafnan hefur verið viðloðandi í Kópavoginum. Miðað við vorleikina er Breiðablik með eitt sterkasta liðið í deildinni. Það hafa orðið miklar breytingar hjá Víkingi. Þeir hafa misst töluvert af mannskap en hafa fengið aðra í staðinn og það verður fróðlegt að sjá hvernig Sigurði Jónssyni tekst að púsla liðinu saman. Ég held að Vík- ingar hafi alveg burði til að berjast um efstu sætin enda Sigurður dug- legur að peppa sína menn upp.“ Þórsarar með leikmann sem getur komið þeim upp „Ég spái því að Akureyrarliðin Þór og KA verði bæði með í toppbar- áttunni. Þórsararnir eru með gott lið og hugsanlega hafa þeir einn leik- mann sem getur komið þeim upp. Það er Lárus Orri Sigurðsson. Hann kemur til með að hjálpa Þórsliðinu mjög mikið með sinni miklu reynslu og það koma örugglega margar sóknir andstæðinga Þórs til að stranda á Lárusi Orra og Hlyni Birgissyni. Þó svo að KA-liðið hafi misst sterka pósta úr sínu liði eftir fallið úr úrvalsdeildinni í fyrra þá held ég að liðið verði með í toppslagnum. HK getur líka blandað sér í topp- baráttuna. Liðið hefur bætt við sig leikmönnum og mér hefur fundist liðið spila vel á undirbúningstíma- bilinu. Það er stemning og sjálfs- traust í HK-liðinu sem getur fleytt því langt í sumar. Öll þessi fimm lið eiga möguleika á að fara upp en ég held að byrjunin skipti gríðarlega miklu máli,“ segir Jörundur. Jörundur reiknar með æsispenn- andi baráttu í neðri hlutanum. ,,Væntanlega verður erfitt fyrir nýju liðin, Víking Ólafsvík og KS, sem eru töluvert óskrifað blað og ef- laust verður erfitt fyrir Völsung að fylgja eftir góðu sumri í fyrra. Hús- víkingarnir hafa misst góða stráka en á móti hafa þeir fengið Zoran Daniel Ljubicic og tvo Serba og með þá innanborðs gætu þeir alveg gert fína hluti. Haukar og Fjölnir verða væntanlega í þessum pakka líka og ég sé fyrir mér gríðarlega harða keppni liða um að forðast fallið,“ seg- ir Jörundur. Jörundur Áki Sveinsson spáir í spilin fyrir átökin í 1. deild „Sé fyrir mér tvískipta deild“ KEPPNI í 1. deild karla í knatt- spyrnu hefst með heilli umferð á mánudag. Þá mætast Víkingur og Fjölnir, Breiðablik fær Hauka í heimsókn, nýliðar Víkings frá Ólafsvík taka á móti HK, KA og Völsungur mætast á Akureyri og annar Norðurlandsslagur er á dagskrá en Þór og KS eigast þá við. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Lárus Orri Sigurðsson, leikmaður Þórs, er kominn í nýtt umhverfi – han etur ekki kappi við kappa eins og Paul Scholes, Man. Utd, í sumar. Breytingar hjá liðunum í 1. deild karla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.