Morgunblaðið - 14.05.2005, Side 3

Morgunblaðið - 14.05.2005, Side 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2005 D 3 SAN Antonio Spurs fékk mikla mótspyrnu á útivelli gegn Seattle Sonics í NBA-deildinni í körfu- knattleik í fyrrinótt en þar hafði Sonics betur 92:91. Staðan í einvíg- inu er 2:1 en Spurs sigraði í tveimur fyrstu leikjunum á heimavelli. Sonics kom þar með í veg fyrir að vera 3:0 undir en engu liði hefur tekist að snúa við blaðinu í sjö leikja einvígi eftir að hafa tapa þremur leikjum í röð. „Við sýndum hvað í okkur býr. Menn þurftu að grafa dýpra en áður og sýna sitt allra besta í vörn sem sókn,“ sagði Jerome James leikmaður Sonics en hann skoraði 15 stig í leiknum og geigaði ekki í sjö skottilraunum sínum. Tim Duncan fékk tækifæri til þess að skora sigurkörfuna á lokasekúnd- um leiksins en skot miðherja Spurs fór ekki ofan í. Shaquille O’Neal var ekki með Miami Heat sem sigraði Washing- ton Wizards 102:95 og er staðan nánast vonlaus fyrir Wizards sem er 3:0 undir í einvíginu. Alonzo Mourning og Dwyane Wade sáu að mestu um að skora en Wade skoraði 31 stig og Mourning var með 14 stig og 13 fráköst. „Ég er ekki búinn að gleyma því hvernig á að spila þrátt fyrir að hafa farið í nýrnaaðgerð,“ sagði Mourning en hann hefur átt við erfið veikindi að stríða undan- farin ár. „Það er ekkert sem getur stöðvað þetta lið. Möguleikarnir eru óendanlegir,“ sagði Dwayne Wade, leikstjórnandi Heat. Leikmenn Seattle Sonics bitu frá sér ÁSTHILDUR Helgadóttir og stöllur hennar í Malmö burst- uðu Kopparbergs, 5:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í fyrrakvöld. Ásthildur lék allan leikinn í framlínunni en tókst ekki að skora en átti engu að síður góðan leik. Ásthildur, sem nýbyrjuð er að spila eftir afar erfið hné- meiðsli, er markahæst í deild- inni ásamt öðrum leikmanni með fjögur mörk. Malmö er efst í deildinni eftir fjórar um- ferðir með 10 stig eins og Umeå og Örebro. Stórsigur hjá Ásthildi axhi- isson urðs- dsson Goran ússon ævar Ein- Þor- rsson teven , Jón Valur Komnar: Anna Rún Sveinsdóttir (Fjölni), Birna Kristjáns- dóttir (Breiðabliki), Elín Svavarsdóttir (FH), Margrét Lára Viðarsdóttir (ÍBV), Rut Bjarnadóttir (HK/Víkingi). Farnar: Katrín Jónsdóttir (Amazon Grimstad), Margrét L. Hrafnkelsdóttir (Gróttu). ÍBV Komnar: Guðrún S. Viðarsdóttir (Þór/KA/KS), Hólmfríður Magnúsdóttir (KR). Farnar: Claire Johnstone (Skotland), Karen Burke (Eng- land), Margrét Lára Viðarsdóttir (Val), Mary McVeigh (Bandaríkin), Michelle Barr (England). KR Komnar: Ásgerður H. Ingibergsdóttir (Gróttu), Carmen Watley (Bandaríkjunum), Erla Dögg Sigurðardóttir (Breiðabliki), Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (Þrótti R.), Hrefna Jóhannesdóttir (Medkila), Ingibjörg Jóhannesdótt- ir (Þrótti R.), Katherine Winstead (Bandaríkjunum), Lilja Dögg Valþórsdóttir (Þór/KA/KS), Sarah Halpenny (Bandaríkjunum). Farnar: Edda Garðarsdóttir (Breiðablik), Guðlaug Jóns- dóttir (Breiðablik), Hólmfríður Magnúsdóttir (ÍBV), Sif Atladóttir (FH). Breiðablik Komnar: Casey McCluskey (Bandaríkjunum), Edda Garð- arsdóttir (KR), Guðlaug Jónsdóttir (KR), Laufey Björns- dóttir (KA), Lára Hafliðadóttir (HK/Víkingi), Meghan Ogilvie (Bandaríkjunum), Tesia Kozlowski (Bandaríkjun- um), Þóra B. Helgadóttir (Kolbotn). Farnar: Birna Kristjánsdóttir (Val), Erla Hendriksdóttir (Skovlunde). Stjarnan Komnar: Margrét G. Vigfúsdóttir (Þór/KA/KS), Sandra Sigurðardóttir (Þór/KA/KS), Soffía Gunnarsdóttir (Sindra). Farnar: Guðlaug S. Gunnarsdóttir (Keflavík). FH Komnar: Guðrún Ása Jóhannsdóttir (Sindra), Sif Atladótt- ir (KR). Farnar: Elfa Hermannsdóttir (Þrótt R.), Elín Svavarsdótt- ir (Val), Elísabet G. Björnsdóttir (Þrótt R.), Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir (Keflavík). Keflavík Komnar: Claire McCombe (Kilmarnock), Donna Chayne (Kilmarnock), Guðlaug S. Gunnarsdóttir (Stjörnunni), Hansína Gunnarsdóttir (HK/Víkingi), Jessica Chipple (Bandaríkjunum), Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir (FH). Farnar: Helena Rut Steinsdóttir (ÍA), Jóna Júlíusdóttir (Víði). ÍA Komnar: Helena Rut Steinsdóttir (Keflavík), Renee Bal- coni (Bandaríkjunum). Farnar: Berglind Magnúsdóttir (ÍR), Magnea Guðlaugs- dóttir (Svíþjóð).  HEIÐAR Davíð Bragason GKj, lék á 2 höggum yfir pari á Opna enska meistaramóti áhugamanna í golfi í gær. Heiðar lék á 74 höggum. Birgir Vigfússon úr GR lék á 78 höggum og Stefán Orri Ólafsson úr Leyni á 83 höggum.  ARNÓR Atlason, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg í sigurleik gegn Grosswallstadt í gærkvöldi í þýsku 1. deildarkeppninni, 30:18, og Sigfús Sigurðsson skoraði tvö mörk. Einar Hólmgeirsson skoraði tvö mörk fyr- ir Grosswallstadt.  LUIS Figo leikmaður spænska liðsins Real Madrid hefur gefið kost á sér í portúgalska landsliðið á nú en knattspyrnusamband landsins greindi frá þessu í dag. Hinn 32 ára gamli miðjumaður sagði í ágúst á síð- asta ári að hann ætlaði ekki að leika fleiri landsleiki en hefur nú snúist hugur. Figo verður með í leik gegn Slóvökum hinn 4. júní en liðin eru bæði með 14 stig í undankeppni heimsmeistaramótsins í knatt- spyrnu.  CHELSEA bætti þremur viður- kenningum í safn sitt í gær þegar fulltrúar frá Barcleys, einum stærsta stuðningsaðila ensku úrvals- deildarinnar, tilkynntu um val á bestu leikmönnum og þjálfara. Jose Mourinho var útnefndur knatt- spyrnustjóri ársins, Frank Lampard leikmaður ársins og Peter Cech fékk gullhanskana sem besti markvörður ársins.  ÞJÁLFARAR 1. deildarliðanna í knattspyrnu spá því að Bjarni Jó- hannsson, þjálfari Breiðabliks og hans menn standi uppi sem sigur- vegar í deildinni. Spáin er þannig: Breiðablik 71 atkvæði, Víkingur 69, Þór 68, KA 65, HK 51, Völsungur 38, Fjölnir 29, Haukar 26, Víkingur Ólafsvík 19 og KS 14. FÓLK Það væri svolítið skrýtið af mér aðspá ekki Val sigri á mótinu í ár eins og liðið hefur spilað nú á und- irbúningstímabilinu og miðað við þann mannskap sem er í liðinu. Hins vegar held ég að það sé ekki alveg að marka þessa leiki í vor. Valur hefur teflt fram sínum sterkasta mann- skap sem verður með í sumar á með- an önnur lið hafa ekki gert það og eru þessa dagana að fá þá leikmenn sem verða með í sumar,“ segir Hel- ena. ,,ÍBV, KR og Breiðablik eru að bæta við sig leikmönnum nú á loka- sprettinum fyrir mót og það er von mín að þessi lið geti staðið uppi í hárinu á Val. Valur er klárlega með besta leikmannahópinn og mín til- finning er sú að liðið hampi titlinum í haust. Það væri eitthvað óeðlilegt ef svo yrði ekki. Margrét Lára Viðars- dóttir er Val auðvitað gríðarlegur liðsstyrkur en á sama tíma er mikill missir fyrir ÍBV sem einnig verður án Olgu Færseth í mest allt sumar. “ Keflavík getur blandað sér í toppbaráttuna Ég er spennt að sjá hvernig mótið fer af stað. Valur mætir Breiðabliki í fyrstu umferðinni og sá leikur er prófraun á hvað hefur verið að marka í undirbúningnum. Valur, KR og Breiðablik verða örugglega í toppbaráttunni. Ég bjóst við meira af liði ÍBV áður en Olga meiddist en ÍBV hefur sterkan heimavöll og ég held að liðið eigi eftir að sækja í sig veðrið. KR-liðið hefur staðið sig framar vonum í undirbúningsleikj- unum miðað við að það hefur vantað stelpurnar í liðið sem eru í skólum erlendis. Það er góð reynsla í KR- liðinu, þar eru margir landsliðsmenn og það á eftir að bíta vel frá sér í sumar. Svo get ég alveg séð fyrir mér að Keflavík geti blandað sér í þennan hóp. Þær hafa styrkt sig og mér sýnist mikill metnaður í kring- um þeirra lið,“ segir Helena sem lét af störfum sem landsliðsþjálfari í fyrra. Á brattann að sækja hjá FH- ingum og Skagamönnum Um botnbaráttuna segir Helena; ,,Ég held að það verði töluvert á brattann að sækja fyrir ÍA og FH og mér sýnist að Stjarnan standi þeim aðeins framar. ÍA hefur misst frá sér reynda leikmenn sem er mjög erfitt. Ég vona innilega að ÍA fari ekki nið- ur aftur og er að vona að hefðin fyrir kvennaboltanum myndist upp á Skaga aftur en auðvitað vill maður engum svo illt að falla. Ég held að slagurinn um neðsta sætið komi til með að standa á milli ÍA og FH,“ segir Helena. Eins og hjá körlunum stefnir í að margir útlendir leikmenn leiki með liðunum í sumar. Hvernig líst Hel- enu á þá þróun? ,,Ég held að það sé bara gott fyrir deildina að fá stelpur að utan. Deild- in styrkist við það og þetta er nánast það eina sem við getum gert til að fá betri deildarkeppni. Ég hef ekkert á móti komu þessara leikmanna,“ sagði Helena Ólafsdóttir. Morgunblaðið/Árni Torfason Þessar þrjár landsliðsstúlkur – Nína Ósk Kristinsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir, Val, og Hrefna Jóhannesdóttir, KR, eiga örugglega eftir að hrella markverði í sumar. Helena Ólafsdóttir, fyrrverandi landsliðsþjálfari, rýnir í Landsbankadeild kvenna Óeðlilegt ef Valsstúlk- urnar fagna ekki sigri FLESTIR hallast að því að Valur verji Íslandsmeistaratitil sinn í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í sumar en Valskonur hafa farið mikinn á undirbúningstímabilinu og hafa verið nær ósigrandi. Helena Ólafsdóttir, fyrrverandi landsliðsþjálfari, er í hópi þeirra sem spá Valskonum titlinum. Morgunblaðið fékk Helenu til að spá í spilin fyrir komandi leiktíð en Íslandsmótið hefst á mánudaginn með leik KR og Breiðabliks. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is nn Breytingar á kvennaliðunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.