Morgunblaðið - 14.05.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.05.2005, Qupperneq 4
ÓLÖF María Jónsdóttir lék á þremur höggum yfir pari í gær á Opna spænska meist- aramótinu í golfi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Íslandsmeistarinn lék því sam- tals á 7 höggum yfir pari vall- ar og komst ekki í gegnum niðurskurðinn á mótinu. Þetta er annað mótið sem Ólöf María tekur þátt í á þessu ári á Evrópumótaröðinni en hún endaði í 41. sæti á móti sem fram fór á Kanaríeyjum. Ólöf lék fyrri níu holurnar á einu undir pari en hún var 2 undir pari eftir 13 holur en lék síð- ustu fimm holurnar á fimm höggum yfir pari vallar og endaði eins og áður segir á 3 yfir pari. Efstu kylfingar mótsins voru samtals á 8 höggum und- ir pari en að venju var skorið niður í keppendafjöldanum að loknum öðrum keppnisdegi. Þeir kylfingar sem léku sam- tals á pari vallar eftir 36 holur komust áfram. Ólöf úr leik á Opna spænska HLYNUR Birgisson, hinn þrautreyndi leikmaður Þórs á Akureyri, er spámaður Morgunblaðsins fyrir fyrstu umferð efstu deildar karla í knatt- spyrnu, Landsbankadeildarinnar, en flautað verð- ur til leiks í deildinni á mánudaginn. Valur – Grindavík ,,Ég sé fyrir mér nokkuð öruggan sigur Vals- manna. Ég mætti báðum þessum liðum fyrir nokkru og mér sýnist á öllu að róðurinn verði þungur fyrir Grindavík en Valur gæti gert ágæta hluti í sumar enda liðið búið að safna til sín nokkr- um mannskap. Ég spái Val sigri, 3:0. ÍA – Þróttur ,,Ég held að þetta geti orðið mjög jafn og spenn- andi leikur en ég hallast þó að því að Skagamenn hafi betur. Mér finnst ÍA-liðið svipað því sem það hefur verið undanfarin ár. Það byggist á sterkum varnarleik en mér finnst þó ýmislegt vanta í þeirra lið. Þróttararnir hafa alveg burði til að halda sæti sínu. Þeir hafa þrautreyndan mann í brúnni en ég held að það dugi samt ekki í þessum leik. ÍA vinn- ur, 2:1. Fram – ÍBV ,,Ég held að Framarar byrji mótið með sigri. Eyjamennirnir voru ekkert sérstakir þegar við spiluðum við þá en þeir hafa verið að hrúga til sín- um útlendingum svo ÍBV-liðið er töluvert spurn- ingarmerki. Framararnir hafa styrkt sig töluvert og ætla að kveðja fallslaginn og ég spái þeim sigri í þessum leik, 2:0. Keflavík – FH ,,Ég sé ekki annað fyrir mér en að FH-ingarnir fari með sigur af hólmi í þessari viðureign í Kefla- vík. Þeir eru með geysilega gott lið, betra en í fyrra – er þeir léku mjög vel og ég sé ekki að önnur lið geti staðist þeim snúninginn. Keflavíkurliðið hefur að sama skapi. Ég spái tiltölulega öruggum FH-sigri, 3:1. Fylkir – KR ,,Líklega er þetta stórleikur umferðarinnar og erfitt að spá fyrir um þennan leik. Ég hallast þó frekar að því að KR-ingar fari með sigur af hólmi. KR-liðið hefur fengið góða leikmenn til sín en þeir hafa verið í vandræðum með meiðsli. Ef þeir geta stillt upp sínu sterkasta liði þá eru þeir með gott og öðflugt lið. Ég veit ekki alveg um styrk Fylkisliðsins. Vissulega eru til staðar hjá liðinu sterkir og reynslumiklir leikmenn en mér fannst Fylkisliðið ekki sannfærandi þegar við Þórsararnir spiluðum við þá á dögunum. Í jöfnum leik held ég að KR vinni, 1:0.“ Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu hefst á fimm vígstöðvum Hverju spáir Hlynur Birgisson?  ÓLAFUR Jón Jónsson, 17 ára sóknarmaður, skoraði tvö mörk fyrir Keflavík sem lagði ÍA, 3:1, í æfinga- leik á Akranesi í fyrrakvöld en þetta var lokaleikur liðanna fyrir Íslands- mótið í knattspyrnu sem hefst á mánudag. Reynir Leósson skoraði mark Skagamanna.  EYJAMENN mörðu sigur á 2. deildarliði ÍR, 4:3, í æfingaleik á gras- vellinum við Garðskagavita í fyrra- kvöld. Páll Hjarðar, Bjarni Rúnar Einarsson, Magnús Már Lúðvíksson og Sæþór Jóhannesson skoruðu fyrir ÍBV.  FRAKKINN Zinedine Zidane, leikmaður Real Madrid, segir í viðtali við heimasíðu spænska knattspyrnu- liðsins Real Madrid að hann ætli sér að hætta sem leikmaður árið 2007 þegar samningur hans við félagið rennur út en Zidane segir ennfremur að það komi vel til greina að hætta fyrr.  ZIDANE segir að hann hafi ekki verið ánægður með eigin frammi- stöðu í vetur með Real Madrid og hann ætli að fara vel yfir sín mál í sumar áður en hann taki endanlega ákvörðun.  KIM Nörholt og Hans Mathisen dönsku, tveir af dönsku leikmönnun- um sem eru á mála hjá Fram, fengu keppnisleyfi í gær og eru því klárir í slaginn með Fram sem mætir ÍBV í fyrstu umferð Landsbankadeildar- innar á mánudaginn.  FABIEN Barthez markvörður Marseille er enn að bíta úr nálinni eftir að hafa hrækt á andstæðing sinn. Áfrýjunarnefnd franska knatt- spyrnusambandsins hefur lengt keppnisbann hans úr þremur mán- uðum í sex. Aganefnd knattspyrnu- sambandsins úrskurðaði Barthez ný- lega í 6 mánaða bann, þar af 3 mánuði skilorðsbundið, og knattspyrnusam- bandið áfrýjaði þeirri niðurstöðu.  ÁFRÝJUNARNEFNDIN komst að þeirri niðurstöðu að bannið, sem átti að ljúka 15. október, skyldi framlengt til 31. desember nema Barthez fallist á að gegna samfélagsþjónustu. Bart- hez hefur þegar vísað niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar til Íþrótta- og ólympíunefndar Frakklands sem tekur málið fyrir 20. maí. FÓLK GUÐJÓN Þórðarson er hættur þjálfun Keflavíkur- liðsins í knattspyrnu, aðeins tveimur dögum áður en flautað verður til leiks á Íslandsmótinu en Keflvík- ingar taka á móti Íslandsmeisturum FH-inga í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar á mánudaginn. Í yfirlýsingu sem Borgar Þór Einarsson, lögmaður Guðjóns, sendi frá í gær segir: „Guðjón Þórðarson hefur ákveðið að rifta samn- ingi við Knattspyrnudeild Keflavíkur sem kveður á um þjálfun og stjórnun meistaraflokks Keflavíkur. Ástæður riftunarinnar eru verulegar vanefndir Knattspyrnudeildar Keflavíkur á fjárhagslegum jafnt sem faglegum skyldum samkvæmt samningn- um sem undirritaður var 16. desember síðastliðinn. „Ég harma mjög að til riftunar á samkomulagi við Knattspyrnudeild Keflavíkur hafi þurft að koma. Ég gekk til þessa samstarfs af heilum hug en því miður hafa þær forsendur sem menn gáfu sér í upphafi ekki reynst vera til staðar, hvorki fjárhagslegar né faglegar. Eftir að hafa ítrekað skorað á viðsemjend- ur mína að standa við þær skuldbindingar sem samn- ingur okkar kveður á um, án þess að það hafi borið árangur, stóð ég frammi fyrir þeim afarkosti að rifta samstarfinu. Það er einlæg trú mín að stjórn Knattspyrnudeild- ar Keflavíkur hafi gengið til þessa samstarf af heil- um hug og í góðri trú. Því miður hefur komið á dag- inn að félagið reyndist hvorki hafa fjárhagslegt né faglegt bolmagn til að standa við skuldbindingar sín- ar samkvæmt samningnum. Það eru mér mikil og sár vonbrigði, þar sem ég hafði á grundvelli samn- ingsins tekið ákvörðun um að setjast að á Íslandi og einbeita mér að uppbyggingu knattspyrnunnar í Keflavík. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hef ég reynt mitt ýtr- asta til að undirbúa liðið fyrir keppni á Íslands- mótinu og ég tel að það mæti vel undirbúið til leiks, leikmenn í góðu líkamlegu ástandi og leikskipulag liðsins orðið traust, auk þess sem erlendir leikmenn sem komið hafa til liðsins að mínu frumkvæði munu styrkja það verulega. Þar sem keppni á Íslandsmót- inu hefst innan fárra daga, hef ég boðið stjórn Knatt- spyrnudeildar Keflavíkur liðsinni mitt við að koma liði félagsins af stað í mótinu og vera stjórnendum liðsins innan handar næstu daga og vikur.“ f.h. Guðjóns Þórðarsonar Borgar Þór Einarsson, lögfr. Yfirlýsing Guðjóns Guðjón neitaði því að hann væriað stökkva frá félaginu vegna þess að hann hefði fengið tilboð frá enska 2. deildarliðinu Notts County. „Það er bara ekki rétt. Ég gafst bara upp á samstarfinu við Keflvíkinga og taldi að það væri betra að aðrir tæku við áður en mótið hæfist,“ sagði Guð- jón. Um samninginn sagði Guðjón að löglærðir aðilar og fagfólk hefði séð um gerð samningsins við Keflavík. „Ég kom ekki að þeim texta sem er í þeim samningi. En þær vanefndir sem ég nefni eru ekki að byrja á síð- ustu dögum. Ég átti von á launum 1. janúar sl. en sú greiðsla barst ekki fyrr en sextánda mars. Ég átti von á því að fá launin mín greidd á réttum tíma líkt og aðrir launþegar.“ Spurður hvort ákvörðunin hefði verið erfið sagði Guðjón: „Þetta gerir enginn að gamni sínu. Ég átti gott samstarf við leikmenn liðsins og ég á eftir að sakna þeirra allra. Strákarnir í liðinu hafa lagt mikið á sig í vetur og það er mikið af góðum leikmönnum í liðinu. Ég vona bara að félaginu gangi sem allra best í framhaldinu og að stjórnarmönnum félagsins takist að fara í þá átt sem þeir hafa mestan áhuga á.“ Á ekki von á því að til hans verði leitað Guðjón á ekki von á að til hans verði leitað um að aðstoða liðið á næstu dögum eins og fram kemur í fréttatilkynningunni frá Guðjóni. „Ég á ekki von á því. Þau viðbrögð sem lögfræðingur minn fékk er hann tilkynnti um ákvörðun mín voru ekki með þeim hætti að ég eigi von á því.“ Verður Guðjón Þórðarson á meðal áhorfenda er Keflavík tekur á móti FH í fyrstu umferð á mánudaginn? „Ég á ekki von á því að gera mér ferð til Keflavíkur, en ég á sjón- varpstæki og mun eflaust horfa á leikinn.“ Hverju svarar þú þegar menn segja að Guðjón Þórðarson hafi ein- faldlega verið skera á „snöruna“ til þess að geta samið við enskt lið á næstu dögum? „Mér stóð til boða að taka við Stockport á sama tíma og ég var í viðræðum við Keflvíkinga. En ég hafnað því tilboði og ákvað að snúa mér að því að flytja til Íslands. Það var mikil ákvörðun að loka dyrunum á Englandi og fara heim. Og nú nokkrum mánuðum síðar rifti ég samningi við Keflavík vegna van- efnda. Það eru gríðarleg vonbrigði fyrir mig enda hafði ég gert ráð fyrir að hlutirnir væru með öðrum hætti. Ég gerði ráðstafanir varðandi eigur mínar á Englandi með þeim hætti að ég væri að fara til Íslands og væri ekki á leiðinni til baka á næstunni. En núna er ég í þeirri stöðu að vera að veiða í gruggugu vatni. Ég þarf að finna mér starf og það vita allir hvernig það getur gengið.“ Ertu búinn að gefa það upp á bát- inn að þú verðir þjálfari hér á landi hjá öðru liði en Keflavík? „Nei. Ég er einfaldlega í óvissu og veit ekkert hvað bíður mín. En ég verð að kanna mína möguleika og ýta á þá takka sem ég tel að geti virkað,“ sagði Guðjón Þórðarson. Guðjón Þórðarson neitar því að hann sé á leið til Englands á ný „Gafst upp á samstarfinu“ „ÉG tek þessa ákvörðun eftir nokkuð langan aðdraganda. Vanefndir stjórnar knattspyrnu- deildar Keflavíkur gagnvart þeim samningi sem gerður var við mig eru með þeim hætti að ég treysti mér ekki til þess að starfa áfram. Það virðist sem menn hafi byrjað á einhverju sem þeir ráða síðan ekki við,“ sagði Guðjón Þórð- arson í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að hann sagði upp störfum hjá félaginu. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Guðjón Þórðarson er hættur störfum í Keflavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.