Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 14.10.1957, Page 4

Mánudagsblaðið - 14.10.1957, Page 4
MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 14. október 1957 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason. Blaðið kemur út á mánudögum. — Verð 2 kr. í lausasölu. Afgreiðsla: Tjarnarg. 39 — Sími ritstj. 1349S. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Lætur ríkisst jómín bankana hamstra gjaldeyri? Lúðvík Jcsefsson viðskiptamálaráðherra fullyrðir dag eftir dag í greinum í „Þjóðviljanum“, að nægur gjaldeyrir sé fyrir hendi. Niður í bönkum stendur hinsvegar daglega endalaus biðröð umsækjenda um gjaldeyri til kaupa á meira ceg minna nauðsynlegum vörum, sem allir fá þau dapurlegu tilsvör, að enginn gjaldeyrir sé til. Jónas frá Hrifla Þá hló konungur Alkunnugt er, að ríkis- stjórnin hefur í undirbúningi löggjöf um stórfellda gengis- fellingu og samfara henni munu auðvitað allar eriendar skuldir hækka að sama skapi. Grunur leikur nú á að ríkis- stjórnin láti bankana hamstra gjaldeyri til þess að forða þeim og öðrum, sem ríkis- stjórnin heldur verndarvæng yfir, frá skakkaföllum vegna gengisfellingarinnar. 1 sama mund lætur ríkisstjórnin sér í léttu rúmi liggja þótt brýn- ar nauðsynjar skorti, bygg- ingarframkvæmdir stöðvist og fjöldi einstaklinga, fyrir- tækja og bæjarfélaga séu látnir stofna til skulda erlend is til þess að halda atvinnu- lífinu gangandi og þótt þessir sömu aðiljar muni gjalda mik ið afhroð ef til gengisfelling- ar kemur. ÍSLENZKT KVIKMYNDAVEIt Framhald af 1. síðu steinn kvikmynd af þeim — blaðamönnum að óvörum — og síðan sýndu þeir þeim myndina. Sýnir þetta hve fljótt hinar nýju vélar, sem fyrirtækið hefur keypt, vinna og má fullyrða að mörg fyrir tæki og einstaklingar muni notfæra sér þjónustu þeirra í framtíðinni. Ný verið kom stórgáfaður og ihámenntaður konungur í listasafn þjóoar sem var að byrja búskap en vildi sýna tignum gesti hvað hún ætti bezt. Leiðsögumenn sýndu þjóðhöfðingjanum fyrst sí- gild verk. Konungur athugaði þau með gaumgæfni og rétt- mætri viðurkenningu. Þá var honum fylgt í þá álmu húss- ins sem var full af myndum 20 klessumálara. Þá hló kon- ungur. Honum ofbauð sam- safn allra vantandi hæfileika. Þar voru til sýnis verk eftir ógreinda menn, ólistræna menn, fákæna og fákunnandi, en þó hortuga og yfirlætis- fulla í sínum vanmætti. Senni lega hefur hinum vitra kon- ungi þótt furðulegast að trún aðarmenn heillar þjóðar skyldu hafa byrjendaviðleitni illa menntra viðvaninga til sýnis á almannafæri. Þetta sögulega atvik hefði getað komið fyrir í Reykja- vík. Hér er svokallað lista- safn. Þar er í miðju húsi fá- einar myndir eftir aldamóta- snillinga þjóðarinnar, en til beggja hliða eru í tugatali ís- lenzkar og erlendar klessu- myndir. Einstaka erlendir menn hafa gefið safninu gjaf ir. Sumt af því er gott, en mest allar gjafirnar eru fram reiddar til að fá íslenzkan kross en eru ekki safnhæfár. Menntamálaráð ræður yfir þessu safni. Allir nefndar- menn viðurkenna að safnið sé í ófremdarástandi og kenna fyrri nefnd um sök- ina. Hin nýja stjórn safnsins segist ætla að gera safnið boð legt þjóðinni og gestum henn ar. Til þess þarf að taka úr umferð allar klessumyndirn- ar og allmikið af gjafamál- verkum. Síðan þarf að sópa úr ráðherrabústaðnum stjórn arráðinu og frá Bessastöðum öllum sígildum verkum sem þar eru geymd fyrir Ustasaf n- ið og þjóðina. Ennfremur er geymt í safnhúsinu mikið af verðmætum myndum sem rík ið á en hefur verið haldið í stofufangelsi árum saman eins og þetta væru frelsisvin- ir austan tjalds. Birtan í hhð- arherbergjum safnsins er mjög slæm, enda eyðir glugga rýmið mestöllum veggfleti þeirra herbergja, sem horfa móti austri og vestri. Þeim gluggum ætti að loka með Ijósþéttum plötum og nota í þeirra stað þá tegund rafljósa sem erlendis eru höfð í lista- söfnum. Með þessum hætti mætti margfalda sýningar- rúmið. Fólk á Islandi getur í þessu efni setið við sama borð og RockefeUer reiðir vöru sína í listasafni í New Yorkborgar. Lástasafn landsins er til minnkunnar þjóðinni og ís- Ienzkri list eins og nú er frá því gengið. Það er í núverandi mynd aðhlátursefni jafnt vel vitborinna konunga og þegna. Tveir listamenn Sigurður Guðmundsson og Þórarinn Þorláksson sæta þar sæmi- legri meðferð. Einar Jónsson fyrirfinnst ekki. Þar eru fá- einar en miður vel valdar myndir eftir Ásgrím, Kjarval og' Jón Stefánsson. Lítið keypt og af handahófi eftir Ásgeir, Barböru, Eggert, Finn, Guðmund, Jón Engil- berts, Jón Þorleifsson, Magn- Framhald á 8 síðu. IS-DRYKKIR IS-RÉTTIR HAMBORGARAR SKINKA OG EGG HEITAR PYLSUR MJÖLK KAFFI ÖL, GOSDRYKKIR SÆLGÆTI TÖBAKSVÖRUR O.FL. ÍSBORG - Aissfurstræfi „Hver ekur eins ©g Ijon ... eftir 23. desember í FIAT-bílnum sem er aðalvinningur í Happdrætti Þjóðviljans 12 vinningar era í Happdrætti Þjóðviljans 1357 1 Fíat-bifreið, 5 manna — 85.000 2 Útvarpsfónn, Philips — 25.200 3— 8 Segulbandstæki — 30.000 9—12 Ferðaútvarpstæki — 10.000 Samtals kr. 150.800 Happdrœfti Þjóðvil jans 1957 Miðinn kostar 10.00 krónur. Dregið 23. desember n.k. — Verðlaunakrossgáta fylgir hverri blokk. Verðlaun samtals kr. 2000, Afgreiðsla happdrættisins er á Skólavörðustíg 19 — Dragið ekki að kaupa miða í von um góðan vinning,

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.