Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 14.10.1957, Blaðsíða 5

Mánudagsblaðið - 14.10.1957, Blaðsíða 5
Mánudagur 14. október 1957 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Piwwwira i (Framhald) . i Hægt er að leggja spilin á ýmsa vegu, og munum vér sýna þá alla, svo að lesendur geti valið úr. ’ Stokkið spilin og dragið eða látið draga (eftir því hvort þér eruð að spá fyrir sjálfan yður eða annan), og gætið sérstaklega að nota vinstri hendi. Að því búnu skuluð þér snúa þeim við þremur saman í einu og í hvert skipti, sem þér fáið tvö samlit spil af þessum þremur — t. d. tvö hjörtu, tvo tígla o. s. frv. .•— þá dragið þér hærra spilið úr og leggið á borðið fyrir íraman yður Enda þótt þessi þrjú spil ,séu öll í sama lit, þá á samt að- eins að draga hæsta spilið úr; en ef þau eru öll þrjú jafnhá, en í mismunandi litum, t. d. þrír kóng ar o. s. frv., þá skal taka öll írá Gerum ráð fyrir að með þessu móti hafi yður tekizt að velja sex úr; þá eru 26 eftir, sem þér stokkið á ný og snúið síðan við, þremur saman, eftir sömu aðferð og áður, þangað til þér hafi fengi annaðhvort þrettán, fimmtán eða sautján spil. Munið, að talan verð ur alltaf að vera oddatala, og að spilið, sem táknar persónuna sem spáð er fyrir, verður að vera eitt af þeim. Jafnvel þó búið sé að fá þessi þrettán, fimmtán eða sautj- án spil; sem krafizt er, en þetta eina hefur ekki enn komið fram, þá verður að byrja alveg á nýan leik. Byrjið því fyrSt á því að á- kveða spilið, sem táknar yður sjálfan, ef þér eruð að reyna fyr- ir sjálfan yður, en að öðrum kosti þá persónu, sem spáð er fyrir. En þá verður að muna, að spilið verður að vera í samræmi yið yfirlit þess, sem spáð er fyrir — tígulkóngur eða -drottning fyrir mjög ljósan mann eða konu, hjartakóngur eða -drottn- ing fyrir öllu dekkri persónu, lauf fyrir ennþá dekkri persónu, og spaði aðeins fyrir allra dekksta lit. Spilið, sem valið er, missir líka alla aðra merkingu en þá að vera fulltrúi Ijós- eða dökk hærðrar persónu eftir sem við á. stendur. Við skulum nú gera ráð fyrir, að spáð sé fyxir konu, sem tákn- uð er með hjartadrottningu, og að fimmtán spil hafi verið feng- in og lögð á borðið — í hálfhring — í sömu röð og þau voru dregin, nl. laufasjöið, tígultían, hjarta- sjöið, laufagosi, tígulkóngur, tíg- ulnían. hjartatían, spaðadrottn- ing, hjartaáttan, tígulgosinn, hjartadrottning, laufanían, spaða sjöið, laufaásinn ,og spaðaáttan. Þegar þér hafið athugað spilin, sjáið þér, að meðal þeirra eru tvær drottningar, tveir gosar, tvær tíur, þrjú sjö, tvær áttur og tvær níur; þér getið því tilkynnt: „Drottningarnar tvær fyrir fram- an yður tákna endurfund vina; gosamir tveir ,að það sé verið að koma af stað misklíð milli þeirra. Þessar tvær tíur merkja, að þér skiptið um atvinnu, en ég sé það á því, að önnur þeirra hefur sjö tii hvorrar handar, að það verður ekki án erfiðleika •— og þeir stafa af yeikindum eftir því sem þessi þrjú sjö segja. Hins vegar lofa þessar tvær níur einhverjum smáábata, sem stafar — samkv. þessum tveimur áttum — frá ást arævintýri/1 ‘ Þér byrjið nú á því að telja sjö spil frá hægri til vinstri og byrjið á hjartadrottningunni, sem táknaf konuna, sem spáð er fyrir. Nú er þá sjöunda spilið tíg- ulkóngur og yður er óhætt að segja: „Þér hugsið oft um einhvern heldri mann, ljóshærðan.“ Næsta sjöunda spilið(talið frá tígulkóngnum) reynist vera tígul ásinn; þér bætið við: — Þér heyrið frá honum einhverj ar gleðilegár fréttir; en auk þess hyggst hann gefa yður gjöf.“ Teljið nú frá tígulási og verð- ur þá sjöunda spilið spaðadrottn- ingin, og þér haldið áfram: „Ekkja ein er að reyna að spilla fyrir yður, einmitt af þessum sökum", og (því sjöunda spil frá spaðadrottningunni er tígultían) „ónæði það, sem hún veldur yð- ur, mun neyða yður annaðhvort til að takast á hendur ferðalag eða hafa bústaðaskipti, en“ (vegna þess að þesi tígultía er milli tveggja sjö-a) „ferðalag yðar eða flutningur verður fyrir ýmsum hindrunum.“ Er þér nú haldið áfram að telja, þá verður næst hjartadrottningin (þ. e. persónan sjálf) á vegi yðar sem sjöunda spil frá tígultíunni að telja. þá getið þér slegið botn- inn í með því að segja: „En þessar hindranir munuð þér yfirstíga sjálf án þess að þurfa á utanaðkomandi hjálp að halda.“ Takið nú tvö yztu spilin sitt hvoru megin í hálfhringnum, en Spáð í spil þau eru spaðaáttan og laufasjöið, leggið þau saman, og haldið síðan áfram: „Veikindi verða til þess að þér fáið smápeningaupphæð." Endurtakið sömu aðferð og þér fáið laufásinn og tígultíuna. „Góðar fréttir, sem verða til þess, að þér takizt á liendur ferð, sem hefur mikla hamingju í för með sér, auk þes sem yður á- skotnast peningaupphæð.“ Næstu spil sameina spaðasjöið og hjartasjöið: „Ró og fegurð, síðan nokkrar áhyggjur, en fljótlega þar á eftir ást og hamingja.“ Síðan koma laufnía og laufa- gosi, sem boða: „Yður áskotnast áreiðanlega peningar fyrir tilstuðlan dökk- hærðs og gáfaðs ungs manns — hjartadrottningin og tígulkóngur — en peningarnir koma frá heldri manninum ljóshærða; þessi fundur boðar mikla ham- ingju fyrir yður og fyllingu allra vona. Tígulgosi og hjartatía: en þetta ánægjulega hlutskipti dregst þó um stund fyrir tilstuðl- an ljóshærðs ungs manns, sem er frægur af flestu öðru en nær- gætni; hjartaátta og hjatatía ■— ást, gleði og sigur. Spaðadrottn- ingin, sem ein er eftir, er ekkj- an, sem er að reyna að skaða yður, en er yfirgefin af öllum vin um sínum.“ Takið nú saman spilin, sem þér hafið verið að nota, stokkið þau, dgagið með vinstjri hendi, og skiptið þeim síðan í þrjá hluta með því að gefa eitt spil til vinstri, annað í miðið og þriðja til hægri. Fjórða spilið er lagt til hliðar og það spil er síðan notað til að „koma á óvart“. „Nú „gefið“ þér spilin í hina þrjá staðina, þangað til stokkur- inn er búinn ,og þá kemur í ljós að í búnkanum til vinstri og í miði ðeru fimm spil í hvorum, en í þeim til hægri eru aðeins fjög- ur. Biðið nú persónuna, sem þér eruð að spá fyrir, að velja sér einn búnkann og gerum ráð fyr- ir, að það verði miðbúnkinn, en í honum séu þessi spil: tígulgosi, tígulkóngur, spaðasjö, spaða- drottning og laufsjö. Nú ætti ekki að vera mikill vandi fyrir yður eftir þann fróðleik, sem vér höfum miðlað yður um gildi hinna einstöku spila, bæði einna sér og í sambandi við önnur, að túlka það, sem í spilunum stend- ur: „Tígulgosi — ljóshærður, ung- ur maður, sem skortir nærgætni, reynir að skaða — tígulkóng- — ljóshærðan heldri mann — spaða sjö — og heppnast að valda hon- um nokkru ónæði — spaðadrottn- ing — fyrir tilstilli illgjarnrar konu — laufsjö — en málinu er auðveldlega bjargað með smá- vægilegum fjárútlátum." Takið síðan upp vinstri hand- ar pakkann, sem er fyrir „spá- manninn“ sjálfan — því hinn fyrri var fyrir þá sem spáð er fyrir. Gerum ráð fyrir að í hon- um séu hjartadrottning, laufa- gosi, hjartaátta, tígulnía og lauf- ás. Þá lesum við: „Hjartadrottning — sem er sú spáð er fyrir, er eða mun bráð- lega verða í húsi — laufgosi — þar sem hún hittir dökkhærðan ungan mann, sem — hjartanía — biður hana fyrir alla muni að hjálpa sér að ná ástum ljóshærðr ar stúlku — tigulnía — því hann hafi orðið fyrir töfum og von- brigðum — laufaás — en þá fær hann bréf, þar sem honum er tjáð, að hann hafi eignazt pen- inga, og eru þá allir erfiðleikar úr sögunni." Þriðji búnkinn er „fyrir þá, sem áttu ekki von á því“ og í honum eru fjögur spil, segjum t. d- Framhald á 8 síðu. Krossgáta i Mánudagsblaðsins SKÝKINGAK: Láré'fct: 1 Hús 5 Jarðeldar 8 Kvenmannsnafn 9 Bitling- ur 10 Skipasmiður 11 Heppni 12 Rannsóknarskip (danskt) 14 Hvíla 15 Suða 18 Fyrrverandi ráðherra 20 Fara á sjá 21 Friður 22 Hás 24 Á fiskum 26 Hríðarveðrið 28 Skálda 29 Á fuglum 30 Smámynt. Lóðrétfc: 1 Fer með pósti 2 Krakka 3 Fiskinn 4 Tónn 5 Borg á Italíu 6 Upphafsstafir 7 Velti 9 Orusta 13 Fleyta 16 Létust 17 hjá fjósum 19 Eldi 21 Hröktu 23. Veiðisvæði 25 Föl 27 Ósamstæðir. Ráðning á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 Ilmur 5 Kol 8 Lóað 9 Róla 10 Lán 11 Raf 12 12 Unna 14 Kák 15 Ilmar 18 ÁS 20 Tár 22 Ver 24 Rammi 26 Elur 28 Raup 29 Rámur 30 LRT. Lóðrétt: 1. Illugaver 2 Lóan 3 Manni 4 Uð 5 Kofar 6 Ó1 7 Las ‘ Rakarar 13 Alt 16 Mar 17 Skipt 19 Sela 21 Ámur 23 Rúm 25 Mal 27 Ru. ,

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.