Mánudagsblaðið - 14.10.1957, Side 7
Mánudagur 14. október 1957
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
7
Framhald af 3. síðu.
langar leiðir og náðu hámarki,
þegar bamið var faett. Aumingja
sængurkonurnar urðu að taka
þessu með þolinmæði eins og
sjálfsögðum hlut. íbúar Hawai
brugðust illa við, þegar amerísk-
ir púritanar fóru að reyna að af-
nema þessa þjóðlegu skemmíun,
en nú mun hún þó úr sögunni.
Á melanesisku eyjunum tíðkast
þetta fullum fetum enn í dag,
og stundum er hvítum ferðalöng-
um boðið á þessar skémmtanir.
Opinberar fæðingar þekkjast
víðar en hjá villimönnum. I
Miklagarði var sá siður, að keis-
aradrottningarnar fæddu börn
sín í sérstöku herbergi, purpura-
salnum, að viðstöddum æðstu
mönnum ríkisstjórnar og hirðar.
Sá, sem ekki hafði fæðzt á þenn-
an hátt, þótti ekki réttborinn til
keisaratignar. Svipaðar venjur
þekktust áður fyrr við fleiri hirð-
ir í Evrópu.
Eiginlegar fæðingarlækningar
hófust hjá mehningarþjóðúm
fornaldar, Egyptum, Indverjum,
Gyðingum og Grikkjum. Hjá
þeif varð til sérstök stétt ljós-
mæðra, sem oft kunnu sitt fag og
gerðu fleira en að syngja töfra-
þulu.r eða lokka hið ófædda barn
með loforðum eða ógna því. Prest
ar þessara fornaldarþjóða kunnu
líka ýmislegt fyrir sér í læknis-
fræði. Þó að lækningar væru enn
samfléttaðar alls konar töfratrú
þar einnig farið að byggja á
reynslunni og hugsa rökrænna
en áður.
Hjá þessum fornu þjóðum var
tekinn í notkun fæðingarstóll-
inn, sérstaklega gerður til að láta
konur ala börn sín í honum.
Þessir stólar tíðkuðust svo langt
fram eftir öldum.
Fæðingarlækningar tóku geysi
miklum framförum í Alexandríu
á síðustu öldunum fyrir Krists
burð. Þar komust þær algerlega
á veraldrænan og rökrænan
grundvöll, en allri hinni fornu
hjátrú var varpað fyrir borð.
Læknarnir í Alxexandríu gerðu
keisaraslturði, en oftast eða allt-
af til að bjarga barninu, eftir að
móðirin var látin. Það er út-
breiddur misskilningur, að keis-
araskurður dragi nafn sitt af
Júlíusi Cæsar ,en því var lengi
trúað, að hann hefði homið í
heiminn á þann hátt. Skýring
orðsins er ekki örugg. Sumir
halda, að það sé dregið af caes-
ura (skurður) og orðið keisara-
skurður sé því upptugga (tauto-
logi) líkt og halarófa. Aðrir
halda, að það sé dregið af lex
Cesare, keisaralegri tilskipun í
Róm um þetta efni.
Á miðöldum hrakaði allri lækn
islist stórkostlega, og þetta á
ekki hvað sízt við um fæðingar-
lækningar. Þá dó mikill fjöldi
kvenna af barnförum. Þá var sú
skoðun ríkjandi, að harmkvæli
kvenna, sem fæddu börn, væru
þeim rétt mátuleg, þær væru
með þessu að súpa seyðið af af-
broti Evu, formóður sinnar, þeg-
i
ar hún tók eplið.
Á 16. öld fóru fæðingarlækn-
ingar að taka framförum á ný.
Þá voru það í mörgum löndum
rakarar eða bartskerar sem á-
samt ljósmæðrum höfðu það hlut
verk að taka á móti börnum. En
sumir þeirra vissu talsvert fyrir
sér. Langmestar urðu framfarir
í fæðingarlækningum á 19. öld,
eítir að sótthreinsun kom til sög-
unnar. Þá fyrst hætti það að
vera stórkostleg lífshætta fyrir
hverja konu að ala börn.
Kreinsunarathafnir
Hjá mörgum þjóðum eru kon-
ur taldar óhreinar eða tabú fyrst
eftir að þær hafa alið börn. Því
verður að hreinsa þær með alls
konar göldrUm og séremoníum.
Þessar hreinsanir gátu tekið á sig
form hreinna pyndinga. I Síam
tíðkaðist lengi sá siður, að kona,
sem fætt hafði barn varð að
liggja á milh tveggja elda, stund-
1 um -svo, að lrún brenndist til ó-
bóta. Eftir fæðingu fyrsta barns
' Siri^ vakð hý.n . að .ljggja þannig
í 30 daga, en síðan í ,3 daga eftir
hverja fapðingu. Enginn.vafi, er
talinn á því, að sá kristilegi sið-
ur að leiða kpin!Ub-,Ár,kÍrkju--eigi
rætur sínar að rekja íil ramm-
heiðinna hreinsunarathafna.
a
Einn hinn fáránlegasti af bllum
þeim undarlegu siðum, sem
mannfólkið hefur tekið upp á, er
það, sem nefnt er franska orðinu
couvade. Hann er í því fólginn,
að faðir barnsins, en ekki móðir-
in, leggst á sæng. Móðirin fer
strax að sinna sínum venjulegu
störfum, en faðirinn leggst í rúm
io og ber sig oft aumlega. Þykir
vel hlýða, að hann hljóði og
gráti. Hann liggur oftast í rúm-
inu 10—14 daga, og þann tíma má
hann ekki neyta nema .álcveðinna
fæðutegunda, ef hann brýtur það
tabú,‘er hætta á, að barnið veik-
ist eða deyi. Couvadesiðurinn
þekkist víða um heim. Enn í
dag er hann ekki horfinn meðal
Baska á Spáni, og til skamms
tíma eimdi eftir af honum í Eist-
landi. Hann er algengur á stórum
svæðum í Suður-Ameríku meðal
Indíána, og hann tíðkast allvíða
í Asíu og Afríku. Ýmsir íorriald-
arrithöfundar geta um þennan
sið, og segja að hann tíðkist á
Spáni og á Korsíku. Marco Polo
rakst á þetta í Túrkestan. Margt
er á huldu um uppruna þessarar
undarlegu venju, en hún stendur
eflaust í sambandi við trúna á
leyndardómsfullt samband milli
föður og barns. Hún er skyld
þeim siðum, að föðurnum beri að
taka á móti nýfæddu barni sínu
með viðhöfn eða helgiathöfnum.
Hjá Rómverjum var sá siður, að
faðirinn tók nýfætt barn sitt af
gólfi og lyfti því þrisvar yfir
höfuð sér og viðurkenndi með
því faðernið.
Allvíða er líka til sú trú, að
maður, sem á þungaða konu,
beri þess ýmis merki. Það geti
jafnvel haft áhrif á útht hans
og-;hgilSU.
í sveituriurh í East Anglía í
Englandi er sú trú til enn í dag,
að manni, ‘sfem • á fearn í voriitm,'
hætti mjÖg til a&' íá tanhþínu,
þessi kvjilli ásæki Wáriri rnjö^ -
allan meðgöngutímann. Þessi
þtyóðtrú var 'tekin svo alvarlega
á þessum slóðum, að svo seint
sem 1863 var barn dæmt á mann
á slíkum foi’sendum. Vinnukona
ein hafði átt vingott við tvo
sveitapilta um lík't leyti og treyst
ist ekki til að kveða upp úr um
það, hvor þeirra mundi vera fað-
ir barns þess, sem hún fæddi. En
dómaririn var ekki í vandræðum.
Hann náði í vitni, sem báru það,
að annar piltanna hefði löngum
verið illa haldinn af tannpínu á
meðan stúlkan gekk með- barnið.
Hinn gat sannað, að hann hafði
ekki fundið til neins slíks. Þá
þurfti ekki framar vitnanna við,
,og barnið var dæmt á tannpínu-
.manninn. Ekki fara þó sögur af
því, að óttinn við tannpínuna
hafði gert karlmenn í East Anglía
neitt siðsamári í ástamálum en
gengur og gerist annars staðar í
heiminum.
Ólafur Hansson.
SIVERT LANGAB YÐUK?
FeM'ði&foéh OitíjiÞFS
FINNIÐ ÞÉE FERÐ
VH) YÐAK HÆFI
BÖKIN ER ÖKEYPIS,
skrifið, hringið eða komið.
0RL0F H.F.
Aiþjóðleg ferðaskrifstofa
Sími 82265-6-7
er seli s effiríölto &mi
Skálholt, Þórsgötu 29
Víðir Fjölnisvegi 2
Vitabar
Leifsgata 4, tóbalís- og sælgætisverzlun
Greiðasðlusfaðin
Stefánskaffi, Bergstaðastræti
Gosi, veitingastofa, Skólav.st. og Bergst,str.
Óðinsgata 5
Þórsbúð, Þórsgötu 14
Barónsstíg 27, veitingastofa
Frakkastíg 16
Hafliðabúg, Njálsgötu 1.
Njálsgata 49
Florida, veitingastofa, Hverfisgötu
Stjörnukaffi, Hverfisgötu
Hvérfisgata 71
Þfostur, Hverfisgötu
Sölutuminn, Hlemmtorgi
Adlon, Laugavegi 126
Sælgætisverzlun, Sundlaugavegi 12
Turninn, Langbolisvegi
Turninn, Kéttarhoiísvegi
Hlíðarbakarí
Krónan, Mávahlið
Tóbaks og sælgætisverzlun, Laugvegí 80
Vöggur, veitingastofa, Laugavegi
Tóbak og sælgæti, Laugavégi 34
Adlon, Laugavegi 11
Laugavegur 8
Sælgætisveralu, Lauganesvegi 53
Pylsubarinn, Austurstræti
HressingarskáUan
Tuminn, Hverfisgötu
Tumiim, Lækjartorgi
Tuminn, Kirkjustræti
Adlon, Aðalstræti
Aladin, konfektbúð, Vesturgötu
Fjóla, veitingastofa, Vesturgötn
Vesturgata 53, veitingastofa
West-End, veitingastofa
Straumnes, veitingastofa, Nesvegi
Bræðraborgarstig 29.
VerzEanlr:
Bókaverzlun Braga Brynjólfssonar
Bókaverzlun Isafoldar
Bókaverzlun Lárúsar Blöndal
Bókaverzlun, Eynmndson.
Blaðatum, Eymundsson
Tóbaksbúðin, Kolasundi
Fossvogsskýlið
Kópavogsskýlið
Kafnarfjörður:
Sælgætisverzlunin Strandgötn 33
Biðskýli ílafnárfjarðat
Bókabúð Böðvars
Mánabar