Mánudagsblaðið - 16.06.1958, Blaðsíða 5
Mármdagur 16. júní 1958
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
5
RADDIR LESEHDA
Landhelgin
Herra ritstjóri.
I grein, sem birtist í Mánu-
dagsblaðinu þann 9. þ. m. og
nefnist ,,Pétur ,,Nelson“ ætl-
ar að stríða við Breta“ er gert
gys að getu Islendinga til
gæzlu fyrirhugaðrar 12 mílna
landhelgi. Er helzt á greinar-
höfundi að skilja, að þar eð ls-
lendingar afi ekki hernaðar-
legt bolmagn á við Breta, séu
allar bollaleggingar um slíka
landhelgi hjóm og vindur og
Islendingum til aðhlægis.
Nú ríður á að halda saman;
feit Björnsterne Björnson
skáld, er frelsisbarátta Norð-
manna stóð sem hæst, og f ékk
þá að svari þessa hæglátu að-
vörun: Nú ríður á að 'halda
sér saman. Sama máli gegnir
hér þessa dagana. Við verðum
að standa sem einn maður um
ákvörðun ríkisstjórnarinnar,
og þótt einhverjir kunni að ef-
ast um framgang þessa máls,
er það skylda þeirra að vekja
ekki opinberar deilur um ráð
stafanir Islendinga, hvað þá
að draga dár að þeim.
Loka orustan í frelsisbar-
áttu Islendinga er að hef jast.
Fyrr hlutum við stjómmála-
legt sjálfstæði með skilnaðin-
um við Dani; nú berjumst við
fyrir efnahagslegu sjálfstæði,
sem án 12 mílna landhelginn-
ar verður ekki tryggt. íslend-
ingar höfðu ekki hernaðarleg-
an styrk á við Dani. Ef til
valdbeitingar hefði komið af
þeirra hálfu, væri sjálfstætt
Island ef til vill aðeins draum-
ur. En málstaður íslands var
þá sem nú sverð þess, lagaleg
ur réttur skjöldurinn. Islend-
ingar þarfnast ekki annarra
vopna til að tryggja sigur
sinn á alþjóðlegum vettvangi.
Bretar geta að vísu hótað
varðskipum okkar öflugri her
skipum. Sú var tíðin, að slík-
ar aðferðir voru einkennis-
merki og innihald brezkrar ut
anríkismálastefnu. En tímarn
ir hafa breytzt, og slík fram-
koma yrði Bretum sá álits-
hnekkir, er aldreí fengizt bætt
ur. íslendingar hafa og aldrei
iðkað það, að leggjast í duftið
fyrir dólgnum.
En meðal annarra orða, og
vantrúuðu fólki til hughreyst-
ingar: Eru Islendingar ekki
enn fullgildir þátttakendur í
NorðurAtlantshafsbandalag-
laginu? Er ekki grundvöllur
þess bandalags gagnkvæm
vörn við vopnaðri árás? Ef
Bretar nota herskip sín gegn
Islenzkum varðskipum, hlýtur
það að skoðast vopnuð árás
á Island. Eg fæ ekki betur séð
en að öðrum Norður-Atlants-
hafsbandalagsþjóðum beri sið
ferðileg og samningsleg
skylda til að snúast þá gegn
Bretum. Þá reynir á orðheldni
þessara þjóða og hver alvara
var með stofnun bandalags-
ins. Að óreyndu skal því ekki
trúað, að þær þjóðir ómerki
samninga sína, heit og heiður
til styrktar brezku útgerðar-
valdi.
Nelson var djarfur og dáð-
ur flotafonngi. „Nelson“ er
einnig þekkt þrælatak í fjöl-
bragðaglímu. Það er engum
íslending skömm að því að
vera kenndur við hinn brezka
flotaforingja, þegar brezka
stjórnin gleymir því, sem
hann barðist fyrir, og kennir
sig við glímutakið.
Ólafur H. Ólafsson.
MJÖLK
KAFFI
ÖL, GOSDRYKKER
SÆLGÆTl
TÖBAKSVÖRUB
O.FL.
ÍSBCRG - Auslunlrstt
Krossgóta
MónudagsbtaSsint
SKÝRINGAR:
Lárétt 1 Klettur 5 Drykkjustaður 8 Farið á sjó 9
Troðningur 10 Tilfinning 11 Fljót í Káðstjórnarríkjunum
12 Barst með vindinum 14 Jökli 15 Nagdýr 18 Uppahafsst.
20 Biblíunafn 21 Guð 22 Und 24 Skomingurinn 26 Spilið 28
Bíta 29 Labbar 30 Handsamað. t
,i;im
Lóðrétt: 1 Ðvalarheimili 2 Tæma 3 Öpíum 4 Ósamst.
5 Is 6 Friður 7 Skel 9 Rófurnar 13 Eldsneyti 16 Dráttur 17.
Þvegið 19,Stórir 21 Höföðborgf 25 Heppni 27 Upphafsst.
MÁUVIIVG utanhúss
oa mnan
HÖRPUSILK!
fyrirliggjandi í eftirtöldum
litum:
Beinhvítt — sítrónugult
krómgult.— gult
orange — rautt
fagurgrænt — grænt
blátt — maroon
rjómagult — sólgult
bleikt — rautt
ljósgrænt — ljósblátt
jadegrænt — opalblátt
grátt — svart
Þakmálning:
Zinkgræn
Græn
Gra
Fagurrauð
Oxydrauð
'ts
Ensh vélalökk
Hörpm vélalakk
Sígljál
útlhurðalakk
Glært viðarlakk
Gólflakk
Penslar
flatir penslar
hring penslar
kalk kústar
Mttisspaðar
sparslspaðar
stálburstar
Uinbönd
sandpappír
bakkar fyrir rullur
Spai-sl
Folyfilla fyllri
T*refyUir
Lím 1
Ferntsolía
Terpiniína G!u||amétnin| i
Þurrkefni
* Allt vörur á gamía verSiitu!
HELGI MAGNÚSSON & C0. Hafnarstræti 19 •— Söni 1-31-84