Mánudagsblaðið - 17.06.1963, Page 2
\
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 17. júní 1963
Framhald af 1. síðu.
ríkisstjórn með því að hvetja
launþega landsins til átaka, er
muni orsaka þetta, þá er ten-
ingunum kastað.
AUÐUNNIN
STJÖRNARSKRÁ
Islendingar fengu sína stjórn
arskrá, hornstein lýðveldisins,
ef til vill á slikkprís, því hún
kostaði ekki eitt mannslíf, og
þvi halda þeir ef til vill að
hægt sé að fótumtroða þau at-
riði er hún byggist á og á að
vernda. En þessu er öðruvísi
farið hjá þjóðum, sem þurftu
að heyja áralangar styrjaldir
og fórna miklu blóði til að öðl-
ast sína stjórnarskrá, sbr.
Bandaríkin. Þar er einn kafli,
sem sérstaklega fjallar um
hvernig snúast eigi við ef ein-
hverjir einstaklingar og félags-
samtök hafa það að markmiði
sínu að steypa löglega kjörinni
stjórn af stóli eftir óþingræðis-
Iegum reglum. Og þannig er
litið á þessi mál hjá öllum vest
rænum lýðræðisþjóðum og er
gert hér á landi af öllu ábyrgu
fólkL
ALLT AÐ 35%
Þvi ber ríkisstjóminni, sem
á fyrst og fremst að standa
vörð um stjórnarskrána og lýð-
veldið að láta athuga þessa yf-
irlýsingu Hannibals nánar. Og
fyrsti þátturinn í þessu skemmd
arverkastríði er hafinn með því
að viss stéttarfélög fyrir norð-
an hafa sett fram kröfur um
hækkun á töxtum sinum um
allt að 35%. Þjóðin er orðin
það vel að sér að hún skilur,
að slíkar kröfur em ekki settar
fram af neinu raunsæi og ekki
kemur til mála að hægt sé að
þeim að ganga því það er ein-
göngu aukin þjóðarframleiðsla,
*em getur raunverulega hækk-
að kaup almennt. Ef i krafti
verkfallsvalds væri að þessu
gengið þýddi það innan mjög
skamms tíma stöðvun atvinnu-
lífsins eða hastarlega gengisfell
ingu. Það verður að skiljast, að
þá er það ekki sú ríkisstjórn
sem situr sem fellir gengið, sem
gefur út tilkynninguna þar að
lútandi. íslendingar mega ekki
vera þau fífl að halda að svo
sé.
Utboö
Tilboð óskast 'í að byggja Rannsóknarstofu landbún-
aðarins á Keldnaholti.
Útboðslýsingar og teiknina má vitja á skrifstofu Ram-
sóknarráðs ríkisirjs, Atvinnudeild háskólans, háskóla-
lóðinni, gegn kr. 2.000,00 skilatryggingu. TilboA ”"rða
opnuð á sama r*-að þriðjudaginn 25. júní n.k. kl.
11,00 f.h.
SÍLASALA
Hef opnað á ný bílasölu að Höfðatúni 2 undir nafninu
Bíasala Mafthíasar
Margra ára þekking og reynsla í bílasölu á undan-
fömum árum.
Á boðstólum er nú mikið úrval af öllum tegundum
og árgerðum bifreiða. Hefi einnig kaupendur að flest-
um tegundum bifreiða.
Bílasala Matthíasar mun verða miðstöð bílaviðsk'r*
inna.
Látið mig annast viðskiptín og yður mun verða veitt
;óð pjónusta.
SlLASALA MATTHÍASAR
löfðatúni 2, sími 24540.
Matthías V. Gunnlaugsson,
H AVÐ FELLIR
GENGIÐ?
Það er allt annað en tilkynn
ing frá ríkisstjóm, sem fellir
gengið. Gengisfellingin er fólg-
in í aðgerðum, sem raska eðli-
legu jafnvægi efnahagslífsins.
Svo þegar búið er að raska því
þá er það einfaldlega viðurkenn
ing á þessari jafnvægisröskun
sem tilkynningin um gengisfell
inguna er. Því eru svona brjál
æðislegar kröfur eins og nú eru
fram setrtar ekkert annað en
gengisfellingarkröfur. Eins og
ríkisstjórnin verður að standa
vörð um stjórnarskrána og ör-
yggi lýðveldisins þá verður hún
einnig að standa vörð um gjald
miðil þjóðarinnar. Þessu ætlun-
arverki hafa allar ríkisstjómir
brugðist á Islandi, meira að
segja Viðreisnarstjórnin leyfði
að skemmdarverk væru unnin í
þessu efni. En hún var heldur
sein á sér að stoppa þetta, en
hún bætti að nokkra fyrir
glappaskotið með því að við'ur-
kenna það með tafarlausri geng
isfellingu er nam þeirri pró-
sentutölu, er var f ram yfir á-
ætlaða aukningu á þjóðarfram
leiðslunni. Og hér liggja tak-
mörkin. Það er kominn almenn
ur skilningur á þessum lögmál
um efnahagslífsins; því munu
þeir verkalýðsleiðtogar sem
ganga út fyrir þessi takmörk
hér eftir hljóta umboðssvipt-
ingu frá félögum sínum, því
með þessum aðgerðum vinna
þeir beint á móti hagsmunum
launþega en EKKI með. En
þetta er einmitt tragedía ís-
lenzkra þjóðmála í dag, það
eru nefnilega ennþá nokkrir
menn í háum stöðum, sem eru
steinrunnir í yfir aldargömlum
fræðikenningum. Das Kapital
kom út 1848.
PLATA EINARS
OLGEIRSSONAR
30 ÁRA
Þeir lialda að allt sé eins og
fyrir hundrað árum, skilja ekki
nýja tímann og allar þær breyt
ingar sem átt hafa sér stað,
sem skapa allt aðrar aðstæður
og allt önnur viðhorf í einu og
öllu. Hugsið ykkur, Einar Ol-
geirsson flytur sömu ræðurnar
í dag og fyrir 30 árum. Fyrir
okkur hin er þetta orðið grát-
broslegt en fyrir hann fúlasta
alvara. Hann bara veit ekki að
þjóðfélagið er búið að „glata
glæpnum“, fátæktin og eymdin
eru ekki til á íslandi. Því er
hann og lians líkar eins og
steinrunnin tröll eða eins og
förufólkið í Islandsklukkunni.
Þjóðviljinn kvartar yfir því í
leiðara nú fyrir nokkrum dög-
um að síðan 1940 hafi þróunin
á Islandi gengið í þá átt að
gegnsýra Islendinga borgaraleg
um hugsunarhætti. Hvað erþað
sem orsakar hann? Ekkert ann
að en bættur efnahagur almenn
ings.
EKKERT RÚM
FYRIR KOMMA
Yfir þessu kvartar blaðið, þvi
þar sem efnahagur almennings
er mjög góður sbr. Bandaríkin,
Svíþjóð, Vestur-Þýzkaland, Eng
land, svo nokkur séu talin, er
ekki rúm í þjóðfélaginu fyrir
kommúnisma. Því er það lífs-
spursmál fyrir þessa aðila að
skapa hér aftur sama ástand
og var fyrir stríð og að því er
stefnt. Þessir menn vita að eft-
ir því sem almenningur á Is-
landi hefur það efnahagslega
betra því borgaralegar sinnaður
verður hann. Og ef þessir menn
væru virkilega að vinna fyrir
hag almennings væru þeir þar
með að búa sér sinn eigin
dauða. Því eru þeir með ýmsu
orðagjálfri og undir fölsku yfir-
skini að skapa hér það ástand
að þeirra fræðikenningar taki
aftur gildi. En íslenzka þjóðin
verður að sparka þessum kump
ánum þangað sem þeir eiga
heima eða borga fyrir þá far
aðra leiðina til Rússlands með
loforði að koma ekki aftur til
baka. Mun blaðið standa fyrir
þessum greiðslum og verður
gaman að sjá hve margir gefa
sig fram, sem vilja heldur lifa
í sælunni i Sovét en kapítalism
anum á Islandi. Munum við sjá
á næstu vikum hversu mjög
menn meta sína eigin paradís.
Það hefur aldrei verið eins
bjart framundan á Islandi og
nú. Það er aðeins ein hætta
sem að þjóðinni steðjar, Hanni-
bal & Co. Það verður að krefj-
ast þess að ríkisstjórnin gegni
sínu lilutverki og að þjóðin
skilji sinn vitjunartíma.
Verziunarfélögin úti á landi..
Framhald af 1. síðu.
stórhættulegar og siðgæðislaus
ar brautir.
Hverjum kennt?
Viðkomandi heildsalasamtök
og samtök iðnrekenda verða, til
að bjarga eigin skinni, að kom
ast að einhverri niðurstöðu
varðandi slík viðskipti. Æfin-
týramenn geta fengið vöi-ur frá'
hvaða fyrirtæki sem þeir vilja,
„gegn blaði“, en þegar afföllin
nálgast 90%, þá má telja vafa
samt að þau viðskipti séu gagn
kvæmur gróði. Ef hinsvegar,
þessir aðilar geta þolað slík
áföll, þá er ekkert við þessu að
segja, og mega þá bæði hinir
sárpíndu heildsalar og iðnrek-
endur halda áfram að tapa ár
eftir ár, en þá vorkennir þeim
enginn, þegar harmagráturinn
er sem al-sárastur.
Auglýsingar sem birtast eiga
í Mánudagsblaðinu
þurfa að berast ritstjórn
eigi síðar en á miðvikudögum
næstum á undan utkomudegi
Hokkrar holztu ufanlandsferðir
SUNNU með íslenzkum fararstjórum
Nokkrar helztu utanlandsferð I Þáðan verður flogið vestur
ir SUNNU með íslenzkum far- j að Kyrrahafsströnd til Vancouv
er, dvalið þar og í Seattle, far-
ið suður með ströndinni til San
Franeisco og komið við á Span
ish Fork elztu byggð Islendinga
í Ameríku á leiðinni austur til
New York aftur.
Ekið er aðeins þrjár dagleið-
ir í þessari ferð, þegar frá er
talið dags ferðalag um Nýja
ísland sjálft að loknum hátíða
höldum Islendingadagsins. Far
arstjóri í þessari ferð er Gísli
Guðmundsson fulltrúi, sem
þarna er öllum hlutum kunnug
ur. Hann hefur dvalizt langdvöl
um vestra og var meðal annars
fararstjóri í hinni miklu ferð
Karlakórs Reykjavíkur um alla
Ameríku.
arstjórum, verða sem hér segir
í sumar.
Um byggðir
V estur-lslendinga
Þetta verður önnur hópferð-
in héðan að heiman um byggðir
Vestur-lslendinga. 1 fyrra fóru
um 40 manns í svipaða ferð
vestur. Að þessu sinni verða
flugvélar meira notaðar til
ferðalaga innan Ameríku,
vegna hinna miklu vegalengda
þar. Flogið verður til New York
með Loftleiðum 30. júlí og síð
an farið til Minnesota, Norður
Dakota, Winnipeg og verið á
Islendingadeginum á Gimli um
fyrstu helgina í ágúst.
Þegar sumarið er komið sjást margar gerðir nýrra kvenhatta.
Ferðir til Evrópulanda
Af ferðum til Evrópulanda
má nefna hina árlegu og vin-
sælu ferð Sunnu til Parísar —
R'inarlar.da og Sviss, brottför
23. ágúst, fararstjóri Jón Helga
son. Er þá meðal annars verið
á uppskeruhátíð í Rínarlöndum.
Italíuferðin í septembersól,
sem Thor Vilhjálmsson rithöf-
undur hefur leitt tvö undanfar
in ár verður óbreytt en lagt
upp 12. september. Er þetta ró
leg Italíuferð með góðum dvöl-
um á helztu stöðum ítalíu, með
•’l annars 5 dögum j Róm Bíl-
Framliald á 6. síðu.
t
1