Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 1
2005  FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÞRETTÁN ÁR FRÁ SIGRINUM Í BÚDAPEST / C2 KEFLVÍKINGAR hefja vörn bikarmeistaratitilsins í knattspyrnu með því að sækja heim 1. deildarlið Fjölnis. Liðin mætast í Grafarvogi 19. eða 20. júní en þá verður 3. umferð bikarkeppninnar, VISA-bikarsins, leikin. Reyndar verður viðureign Gróttu og ÍA strax í næstu viku vegna þátttöku Skagamanna í Intertoto-keppninni. Íslandsmeistarar FH fara suður með sjó og leika þar við 3. deildarlið Víðis úr Garði. KR-ingar, sem hafa oftast allra orðið bikarmeistarar, 10 sinnum, fara upp í Efra- Breiðholt og leika þar gegn 2. deildarliði Leiknis. Valsmenn, sem hafa unnið fjóra fyrstu leiki sína í úr- valsdeildinni, fara norður á Árskógsströnd og leika gegn 3. deildarliði Reynis. Það verður ekki fyrsti leikur Valsmanna á Árskógsvelli því þeir léku þar gegn Leiftri/Dalvík í 1. deildinni fyrir nokkrum árum. Fylkir fer til Siglufjarðar og mætir 1. deildarliði KS og Fram fer austur á firði og mætir Fjarðabyggð. Keflavík byrjar bik- arvörn í Grafarvogi ■ Bikardráttur/C2 Okkur hefur gengið illa ogframmistaðan verið langt und- ir væntingum en nú er kominn tími til að snúa við blaðinu. Andrúmsloft- ið í hópnum er gott þó menn séu vissulega vel meðvitaðir um óánægju fólks með árangurinn. Ég trúi því að þessi mótbyr hafi eflt liðið og að við sýnum það í þessum leikj- um sem eftir eru,“ sagði Logi í gær.“ Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði í Morgunblaðinu í dag [í gær] að krafan væri sú að uppskera sex stig úr leikjunum við Ungverja og Maltverja. Hvað segirðu um það? „Stefnan er fyrst og fremst sett á að spila góðan fótbolta frá aftasta manni til þess fremsta. Takist það þá eigum við góðan möguleika á að ná sigri á heimavelli gegn þessum þjóðum. Það er eðlilegt að menn setji kröfur á landsliðið, hvort sem um ræðir áhorfendur, fjölmiðla eða stjórn KSÍ, og það er okkar að sýna að við getum staðið undir þeim. Okk- ur hefur ekki tekist það í þessari undankeppni, en lengi er von á ein- um.“ Logi segist reikna með svipaðri leikaðferð og gegn Ítölum í lok mars, en sá leikur var markalaus, þar sem áherslan var lögð á varn- arleikinn. „Við þurfum að fá trúna aftur og vonandi einhverja heppni, við viljum ná ofar, við viljum gera betur og eigum gera betur,“ sagði Logi Ólafsson. Morgunblaðið/Sverrir Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, kveðst vera þreyttur eftir langt og strangt tímabil með Chelsea en segist eftir sem áður ætla að nýta alla sína orku í landsleikina tvo við Ungverja og Möltu. Hér leikur hann listir sínar með boltann á æfingu. Sjá viðtal við Eið á C3. „Viljum og eigum að gera betur“ LOGI Ólafsson, annar þjálfara íslenska landsliðsins í knattspyrnu, sagði menn vera tilbúna í slaginn og staðráðna í að gera betur í leikjunum tveimur gegn Ungverjalandi og Möltu en í hinum fimm leikjunum sem búnir eru í forkeppninni. Ísland mætir Ungverjalandi á Laugardalsvellinum á morgun og Möltu á miðvikudaginn. Eftir Svan Má Snorrason svanur@mbl.is Hugmyndir forráðamanna IHF,sem kynntar hafa verið Al- þjóða ólympíunefndinni (IOC), ganga út á að Afríka, Asía, Evrópa og Ameríka eigi frátekið eitt sæti hver á Ólympíuleikunum. Er það hugsað þannig að álfumeistarar hverju sinni taki það sæti. Heims- meistarar eiga einnig öruggan keppnisrétt á Ólympíuleikum auk gestgjafa ólympíuleika, líkt og ver- ið hefur. Í karlakeppninni standa þá eftir sex laus sæti, en alls taka tólf þjóðir þátt í handknattleik- skeppni karla á Ólympíuleikum og tíu í kvennaflokki. Hvaða þjóðir hreppi hin sex sæti karlakeppninnar, svo dæmi sé tek- ið, verði ákvarðað með sérstakri riðlakeppni í júní 2008 þar sem 24 þjóðir, frá öllum heimsálfum, verða dregnar í sex riðla. Sigurlið hvers riðils verður verðlaunað með far- seðli á Ólympíuleikana í Peking. Svipuð hugmynd er uppi varðandi kvennakeppnina nema að í henni munu 16 þjóðir spreyta sig í fjórum fjögurra liða riðlum í mars 2008. Forkeppni þessarar riðlakeppni á að vera lokið í desember 2007 í kvennaflokki en í janúar 2008 í karlaflokki sem væntanlega mun þýða að efstu þjóðir Evrópukeppn- innar í janúar 2008 komast í und- ankeppnina í júní. IHF hefur ekki upplýst hversu mörg sæti Evrópa fær í þessari 24 liða riðlakeppni. Hugmyndir IHF hafa fallið í grýtta jörð á meðal forráðamanna handknattleiksmála í Evrópu og einnig hjá handknattleiksmönnum. Skoðun manna er sú að frekar væri þörf á að fækka mótum landsliða en að fjölga þeim þar sem álag á þá leikmenn sem leika t.d. á Spáni og í Þýskalandi sé orðið of mikið. Talið er að það sé aðeins forms- atriði að IOC samþykki tillögur IHF og því megi telja fullvíst að þær nái fram að ganga í stjórn IHF enda runnar undan rifjum Hassans Moustafa, forseta IHF, sem hefur hingað til ráðið því sem hann vill ráða. Vilja koma í veg fyrir spillingu Með þessum breytingum segjast forráðamenn IHF vilja tryggja að bestu handknattleiksþjóðirnar hverju sinni taki þátt í Ólympíu- leikum. Um leið verði þess gætt að sem flestar heimsálfur eigi mögu- leika á að taka þátt. Þá á fyrr- greind riðlakeppni að koma í veg fyrir spillingu sem vart hefur verið í kringum Asíu- og Afríkukeppnina á undanförnum árum þar sem leik- ið hefur verið um farseðla á Ólymp- íuleika. IHF telur að með því að hafa umsjón með undankeppni Ól- ympíuleika og blanda þjóðunum saman í keppninni verði komið í veg fyrir spillingu. Orðrómur hefur verið uppi um að í tengslum við As- íu- og Afríkukeppni landsliða fyrir síðustu Ólympíuleika hafi peningar í einhverjum tilfellum ráðið meira um úrslit leikja en kunnátta í íþróttinni. IHF vill for- keppni fyrir ÓL 2008 ALÞJÓÐA handknattleikssambandið, IHF, hefur í hyggju að halda undankeppni í júní 2008 fyrir Ólympíuleikana sem fara fram þá um sumarið í Peking. Í keppninni verði leikið um helming þeirra sæta sem í boði verða í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna. Nái hug- myndir IHF fram að ganga þá mun aðeins sigurlið heimsmeist- aramótsins í Þýskalandi 2007 vinna sér sjálfkrafa keppnisrétt á Ól- ympíuleikana en ekki sjö efstu þjóðirnar eins t.d. var í undanfara síðustu Ólympíuleika. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.