Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 28.10.1963, Síða 6

Mánudagsblaðið - 28.10.1963, Síða 6
ÚR EINU í ANNAÐ Stórkostlegur „blöffari" — Leiðrétting — Slepjan í minningargreinum — Um malbikun gatna — Skemmtistaðir og þrengsli — Svívirðileg álagning — Ýmislegt um vín og ástir Það er orðinn skenuntilegur beimsborgarbragur á þvi, hvemig hinir ungu og efnilegu kvennamenn hðfuðstaðar- ins „plata“ stelpumar okkar lítilsigldu. Nýlega vakti það talsverða athygli, að tæplega þrítugur bisnismaður hér í Reykjavík sat í Klúbbnum með þremur ungum blóma- rósum, sem bókstaflega göptu af hrifningu yfir öllu, sem hann sagði og gerði. Það, sem hreif þær mest, var þó það, að í hvert skipti, sem hann kveikti sér í vindli, skrifaði hann kr. 1000 þúsund — ávísun og kveikti siðan í hennL — Stúlkumar héldu, í einfeldni sinni, að businessmaðurinn væri svo efnaður, að slíkt „bruðl" — munaði hann engu. Síðan valdi hann þá fallegustu, skrif- aði út 5000 krónu ávísun, brenndi hana, og skundaði með dömuna í næsta leigubíl. Þau mistök urðu í dálki þessum í siðasta tölublaði, að sagt var að lögreglubíllinn, sem þaut að ástæðulausu í mesta umferðartímanum yfir Kópavogsháls, hafi tilheyrt Kcrpavogslögreglunni. Þetta er ekki rétt, þeirra bíll er rauður, en þetta var grænn jeppa-station, með rauðu topp- Ijósi og sírenu, en bæði tími og dagur er rétt. BSllinn mim vera hafnfirzkur eða reykvískur og lögreglunni til mestu hneysu. Minningargreinar dagblaðanna eru að verða eins hvim- leiðar og mistökin hjá landsímanum. Vissulega er gaman, að allir dauðir Islendingar skuli vera ofurmexmi — át einu eða öðru sviði — sem ekki má gleymast, en erum við ekki famir að ganga of langt í þessari bamalegu dýrktm, þótt einhver okkar drepist nokkum veginn vammlaus. Söknuð og harm skilja allir, en að flíka öllum þessum tilfinningum í dagblöðunum og hreykja hverju oflofinu ofan á annað, er að gera okkur að hreinustu þmgeyingum. Myndu borgaryfirvöldin ekki vilja bráðlega malbika þær götur í Hlíðunum, þar sem mest er umferðin, í stað þess að vinna aðeins við þær, sem ekki fara aðrdr um en þeir, sem við göturnar eiga heima. T. d. hafa umferðaryfirvöld- in gleymt Barmahlíð, ofar Lönguhlíð, einni mestu umferð- argötu Hlíðanna fyrir allskyns flutningatæki, en samt er gatan enn eitt svað, þegar eitthvað er að veðri. Yfirvöldin verða að lagfæra svona nokkuð, og hefðu betur fyrr gjört. Það horfir orðið til vandræða á ýmsum skemmtistöðum, sem hingað flytja góða skemtikrafta vegna þess, að borða- laus lýður þrengist að pallinum, þar sem sýningin er. — Forstjórar þessara húsa verða að finna ráð við svona þrengslum, banna fólki með öllu að skyggja á fyrir sitj- andi gestum, því mikið er talað um offylli á þessum stöð- um, svo margir gestir telja að hætta stafi af, ef eitthvað skeður t.d. eldsvoði. Menn, sem matast með fólki sinu á svona stöðum, eiga þá kröfu, að eigendur þeirra sjái svo til, að þeir sjái allt það, sem veitingastaðimir hafi upp á að bjóða. Fyrst minnzt er á næturlífið okkar: Getur nokkur upp- lýst það, hvaðan nokkrum veitingastöðum kemur leyfi til að selja aðgang á 35 krónur? Það er vást næstum nóg að borga þessar kr. 25, sem ræningjar hafa þegar sett upp, en óþarfi fyrir veitingamenn að ganga á lagið. Gestir geta kært, og ef þeir halda máli sínu til streitu, þá má refsa veitingamanni með því að taka af honum leyfi til veitinga. Það væri kannske reynandi, ef íslenzkir restauratörar halda fast við að bæta skömm ofan á svívirðu. Langdrukkinn vinur okkar var á gangi á Laugavegin- um, og í ölæðinu setti hann tvær krónur í stöðumæli þar. Þegar nálin sýndi 30 á mælinum, starði hann á hana augnablik, og mælti síðan í hálfum hljóðum: Og hvert í logandi, ég er búinn að leggja af yfir 100 pund“-Það er víða siður í Hollandi, þegar kona elur fyrsta barnið, að eiginmaðurinn stökkvi upp í rúm, en hin nýja móðir standi á fætur og færi honum cocktail í rúmið .... Mestu vín- svelgir heimsins, þ. e. þeir sem drekka sterkustu vínin, eru Rússar, sem sjaldan blanda áfengið ....... Rússneskar stúlkur eru svo óðar í „vestrænt" kampavín, að þær vilja fóma ÖLLU til að fá flösku......Það þykir sannað úti um heim (skýrslur ekki til á íslandi), að normal stúlkur hafa mestu skömm á fullum karlmönnum. Þær eru ekki sérstaklega á móti því, að menn séu hýrir, en vita, að þeir eru oftast hinir lélegustu elskhugar fullir .Hvað eegja okkar vaJkyrjur? - SJÓNVARP - — Þessa viku — Sunnudagur 27. október 14.30 The Chapel of the Air 15.00 Wonderful World of Golf - 16.00 Planet Earth 16.30 Harvest 17.00 American Musical Theater 17.30 The Christophers 18.00 AFRTS News 18.15 Sacred Heart 18.30 Championship Bridge 19.00 Sing along with Mitch 19.55 AFRTS News Extra 20.00 The Ed Sullivan Show 21.00 Rawhide 22.00 The Jack Paar Show 22.55 AFRTS Final Edition News 23.00 The Tonight Show Mánudagur 28. október 17.00 What’s My Line? 17.30 The Bob Cummings Show 18.00 AFRTS News 18.15 University of Maryland 18.30 The Danny Thomas Show 19.00 Lawrence Welk’s Dance Party 19.55 AFRTS News Extra 20.00 The Andy Griffith Show 20.30 Flight 21.00 The Perry Como Show 22.00 Peter Gunn 22.30 The Twilight Zone 22.55 AFRTS Final Edition News 23.00 The Steve Allen Show Þriðjudagur 29. október 17.00 The Price Is Right 17.30 Col. March of Scotland Yard 18.00 AFRTS News 18.15 The Telenews Weekly 18.30 My Three Sons 19.00 GBS Reports 19.55 AFRTS News Extra 20.00 Encyclopedia Britannica 20.30 Glenn Miller Time 21.00 I’m Dickens .. He’s Fenster 21.30 The Bob Newhart Show 22.00 The U.S. Steel Hour 22.55 AFRTS Final Editian News 23.00 Wire Service Miðvikudagur 30. okitóber 1 17.00 I’ve Got a Secret 17.30 Sea Hunt 18.00 AFRTS News 18.15 Air Power 18.30 TRUE ADVENTURE 19.00 Communism: Myth vs. Reality 19.30 Global Zobel 19.55 AFRTS News Extra : 20.00 Bonanza 21.00 Hootenanny 21.30 The. Joey Bishop Show 22.00 Fight of the Week í 22.55 AFRTS Final Edition News 23.00 The Steve Allen Show Fimmtudagur 31. október 17.00 To Tell the Truth 17.30 Stump the Stars 18.00 AFRTS News 18.15 The Telenews Weekly 18.30 The Ted Mack Show 19.00 Walt Disney Presents 19.55 AFRTS News Extra 20.00 Biography 20.30 Theater of Tomorrow 21.30 Accent 22.00 The Untouchables 22.55 AFRTS Final Edition News 23.00 The Tonight Show Föstudagur 1. nóv. 17.00 Password 17.30 Willy 18.00 AFRTS News 18.15 The Air Force Story 18.30 Lucky Lager Sports Time 19.00 Current Events 19.30 Dobie Gillis 19.55 AFRTS News Extra 20.00 The Garry Moore Show 21,00 Mr. Adams and Eve 21.30 Combat! 22.30 Tennessee Emie Ford Show 22.55 AFRTS Final Edition News 23.00 Northem Lights Playhouse „Flirtation Walk' Laugardagur 2. nóvember 10.00 Magic Land of AUakazam 11.00 Kiddie’s Comer 12.30 Roy Rogers 13.00 Current Events 14.00 Saturdav Sports Time 16.30 Country America 17.30Candid Camera 17.55 Chaplain’s Comer 18.00 AFRTS News 18.15 Air Power 18.30 The Big Picture 19.00 Perry Mason 19.55 AFRTS News Extr; 20.00 The 20th Century 20.30 Bat Masterson 21.00 Zane Grey Theater 21.30 Gunsmoke 22.00 The Dick Van Dyke Show 22.30 Lock Up 22.55 AFRTS Final Edition News 23.00 Northem Lights Playhouse -Nobdy’s Baby“ Hitt og þetta úr skemmtanalífínu Úr miklu að velja — Goti, sæmilegt, lélegt — Gos og verðlag — Tíkall-svindl — Sigtún á uppleið Reýkvíldngar eiga nú um æði margt að velja, ef þeir kjósa að eyða kvöldstund á einhverri veitingastofunni í höfuðstaðn- um. Hótel Saga reið á vaðið með svokallað „Floor show“ og náði góðum söngvara Dlck Jor- dan, en stúlkumar eru heldur lélegar, og „sjóið“ i heild all- ómerkilegt. Dick er líka kvenna gull Lidós, vekur talsverða at- hygli, en einna mestur einsöngv ara sem hér vinna, er Herbie Stubbs, Klúbbsins. Heldur er þó meistari Stubbs einhliða og söngvar hans orðnir þreytandi, einfaldlega vegna þess, að nær hver og einn einasti negrasöngv ari, sem stendur upp úr „mass- anum“ kyrjar þessi „ættjarðar- lög“ kynstofnsins. Röddin er hinsvegar mikil, og þó vildi maður heyra eitthvað nýrra og ferskara en boðið er upp á. Klúbburinn á ekki lítið að þakka Aage Lorange, sem leik ur í hvíldartíma hljómsveitanna þannig að alltaf er músílck og dansmöguleikar. Ha'ukur Morth ens, vor Bing Crosby, er í Glaumbæ og dregur að, eins og vant er, en allt Glaumbæjar- standið hefur komið einhverri ótrú á staðinn. Sigtún byggir allt á innlendum kröftum og kemur þar brjóstvit Sigmars forstjóra til greina, en hann veit hvað hann syngur þótt ekki sé hann menntaður á „heimsmælikvarða" í veitinga- húsamálum, eins og margir hinna forstjóranna telja sig vera. Sigtún er farið að lífgast eftir margra ára „tómthús- mennsku“ .... Tríó Finns Ey- dals og Helena eru nú byrjuð á Borginni, sem átt hefur erfitt uppdráttar, en ætlar nú að auka skemmtikrafta, því hart verður keppt um hylli almennings á vetri komanda.....Skrítið er, að þurfa að greiða kr. 21.00 — tuttugu og eina, segi og skrifa — fyrir eina flösku af Coca Cola, en þetta er nú prísinn samt. Svona álagning gæti gengið á Waldorf Astoria og Club 21 (sem hvorugt þorir að leggja svona á gosdrykk), en þetta gengur ekki á Islandi, nærri 1000% álagning!! .... Sagt er að Klúburinn sé að byrja á því að lækka alla gos- drykki, enda er ekki að spyrja að því að Birgir og Bjarni kunna bæði að vingast við við- skiptavini og láta þjónustulið vinna.....Röðull hefur ailtaf stöðuga aðsókn, og þar er það mjög sæmilegir skemmtikraftar og þjónusta, sem ráða aðsókn- inni....Annars er það leiðin leg staðreynd, að þessir staðir, yfirleitt, reyna alltof mörg 6- dýr brögð til að losa gestina við aurana sína, einkum og sér í lagi þegar þeir eru — í al- gjöru leyfisleysi — að bæta tikall á þessar tuttugu og fimm krónur, sem veitingamenn hafa leyfi til að krefjast við inn- ganginn.....Það er alveg nóg að geyma fötin fyrir 10 kall per flík.... Dofnar yfir víxlamólum - Eru Frjólsþýðingar orðnir hrœddir? Búizt er við, að á næst’unni verði heldur mikil mnsldpti í svonefndu víxlamáli, sem blásið hefur verið upp í æsistál í vikublaðinu Frjáls þjóð, meira af ofsa en forsjá. Talið er, að þeir, sem orðaðir hafa verið við þetta „mál“, hyggi nú á að svara ýmsu og komi þá margt á daginn. Frjáls þjóð dofnaði all-mjög um s.l. helgi, og varð árás blaðsins mátt- Iaust raus og dylgjur, sparðatíningur ósamboðinn hverjum siðuðum manni. Menn undrast, hvers vegna ekki er rætt um víxlakaup annarra banka og viðskipti þeirra á öðrum sviðum, enda sýnilegt, að hér er um persónnlegt hatur á banka og banka- stjóra að ræða, en ekki um „vöm fyrir þá fátæku“, eins og það. er orðað af ofsóknarliði F.Þ. Mánudagsblaðin’o hafa bor- izt tugir bréfa s.l. vikur, spumingar til aðalpersónanna í harmleik Frjálsrar þjóðar, Þeirra Benedikts Guttormssonar, Páls löglærða, Bergs bankastarfsmanns og jafnvel annarra innan bankans. Era spumingar þesar hvassyrtar mjög og sýna glöggt, að ekki hafa þeir félagar allir kafnað í vin- sældum né réttlætismóðu, þegar þeir höfðu völdin. Blaðið hefur hliðrað sér hjá þessari deilu, þótt hún ómerkileg og byggð á fölskum hvötum fremur en réttlætisþorsta, og aðeins svarað og rætt, þegar á það hefur verið minnzt. Virðist þessi fjármáiabóla Fr. þjóðar vera að hjaðna. Mun þá sagt um þá Berg og félaga, eins og Indíáninn sagði forðum: „Him big smoke but no fire“. Þetta er hið vinsæla tríó Finns Eydals, ásamt söngkonunni okkar Helenu Eyjólfsdóttur, sem um síðastliðin mánaðamót byrjuðu að skemmta á Hótel Borg. — Finnur hefur starfrækt tríóið sitt síðastliðin iy2 ár, og hefur það notið síaUkinna vinsælda fyrir fágaðan og skemmtilegan leik. — Helena Eyjólfsdóttir, sem lengst hefur verið talin okkar fremsta söngkona, syngur nú aftur með hljómsveit Finn, eftir nokkurt hlé, og óskum við Hótel Borg til hamingju með þessa ágætu skemmtikrafta. — (Ljósmyndari Kristján Magnússon).

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.