Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 17.02.1964, Side 1

Mánudagsblaðið - 17.02.1964, Side 1
j‘BlaSfyr\ 17. árgangur Mánudagur 17. febrúar 1964 7. tölublað Milljónaglapræði Einars Sigurðssonar Söluskattinum eytt í vonlaust fyrirtæki — Ný kassagerð óþarfiStjórn S.H. handbendi æfintýramanns — Stefnt að algjörri einokun — Þau furðulegu tíðindi hafa gerzt, að nokkrir menn innan stjórnar Sölumiðstöðvarinnar, undir forustu Einarg Sigurðsson- ar, hafa tekið tii við stofnun nýrrar kassagerðar. 1 Reykjavik er nú staríandi nýtízku kassagerð búin öllum beztu tækjum, sem slík verksmiðja getur ráðið yfir og fullnægir öllum þörfum þjóðarinnar í þessum efnum á lægsta liugsanlegu verði. Er öskjuframleiðsla Kassagerðar Reykjavíkur enn ódýrari við- skiptavinum liennar en sambærilegar öskjur eriendis, sem þakka má þvi einungis hve hagsýnir forustumenn verksmiðjunnar hafa verið. Til þess, að fá fulla nýtingu véla og þó aðallega til að geta haldið áfram hinu lága verði Ieitar Kassagerðin nú fyrir sér á erlendum markaði. Glapræði S.H. verður því betur Ijóst ef skoðað er í grunn hverjir standa að baki og hve vel þeim sömu hefur undanfarin ár tekizt að draga meirihluta eigenda hraðfrystihúsanna á asnaeyrum. „MÁ ÉG LilKA . . .“ Einar Sigurðsson hefur lengi litið Kassagerð Reykjavíkur iliu auga og öfundar. Hefur verksmiðjan borið sig, sýnt hagnað, auk þess sem hún hef- fslenzkar flugfreyjur — Myndasería Flugfrevjurnar ckkar verða fallegri með hverju árinu og utan við skrifstofu Flugfélags Islands hittum við ungfrú Kristínu Árnadóltur, flugfreyju, nýkomna frá Kaupmannaliiifn sem er hennar uppáhaldsborg á flugrútum félagsins, en einmitt þar fá hinar ungu stúlkur tíma til að stoppa og kíkja í búðarglugga. Kristín er dóttir hjónanna Árna Kristjánssonar, píanóleikara og Önnu Steingrímsdóttur, fædd í Reykjavík og Reykvíkingur í húð og hár. Kristín er lagleg, eins og sjá má, skolhærð, vel vaxin, en gekk í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar „á yngri árum“ —- hún er nú tvítug — og síðar í verzlunardeild Ilagaskóla. Hún vann hjá Eimskipafélagi íslands um stuml og í Danmörku dvaldi hún árlangt, en hefur annars ferðast, utan vinnunnar, um T>vzka.1anrl ott Týról. en<l« hefnr In'm mikið rniti »f ferðalög- um innanlands og utan. Utan vinnu skenuntir hún sér við lestur, fcr í lcikhús og hefur auðvitað sérstaklega gaman af musikk. Krist-n er ólofuð, og má ekki, samkvæmt fyrirmælum flugfétag- sen, Kgi. Ijósmyndari). ur framleitt fyrsta flokks vöru. Þar sem Sölumiðstöðin er einn aðalviðskiptavinur Kassagerðar innar, hefur Einari þótt leitt, að láta slíkt gull sigla með garði án þess að geta skotið putta í, og hefur oft farið þess á leit við forstjóra Kassagerð- arinnar að þeir rugluðu saman reitum sínum, sem auðvitað hefur verið þverlega synjað af hans hálfu. SÖEUSKATTUR í æfintVri Þau tíðindi hafa nú gerzt, rétt eftir að rikisstjómin hækk aði söluskattinn til að styrkja hinn þrautpínda frystihúsalýð, að Einar og vikapiltar hans hafa ritað frystihúsaeigendum bréf og skipað þeim að vera þátttaikendur í nýju fyrirtæki — kassagerð — leggja til þess eftir efnum, en njóta siðan góðs af m.a. fá ódýrari umfoúð- ir um vaming sinn. Markmiðið er aðeins eitt: að koma Kassa gerðmni á kné, hvað sem það kostar og hremma síðan eigur hennar og byggja upp nýja ein okun. ERLEND SAMKEPPNI Þótt Kassagerðin sé ein við þessa firamleiðslu, þá er síður en svo að hún búi hér sam- keppnislaust. Sölumiðstöðin og fíeiri aðilar eru, eðlilega, sí- fellt á hnotskógi eftir ódýrum umfoúðum um lieim allan og reiðubúnir að hætta skiptum sínum við Kassagerðina bjóðist þeim hagkvæmari kjör. Þetta eru aðeins eðileg viðskipti, enda gerir Kassagerðin sér þau ljós og hefur ekkert við þa.u að at- huga. Góðæri og mi'kil fram- leiðsla, beztur vélakostur og reynsla um árat.ugi gerir það, að verksmiðjan ekki aðeins framleiðir foeztan vaming sinn- ar tegundar og algjörlega sam- bærilegan við það bezta austan hafs og vestan, heldur leitar fyrir sér um markaði erlendis til að nýta betur vélar sínar og geta haldið hinu lága fram- leiðsluverði hér hf-ir»" DRÆPU HVOR AÐRA Það er útilokað að reka hér á Iandi tvær slíkar verksmiðj- ur og starfræksla þeirra myndi aðeins þýða marg-hækkaðan framleiðslukostnað og mjög sennilega. verri framleiðslu. Kostnaðiirinn við »ð konia upp annarri fullkomiimi verksroiðju væri ekk: undir 40—50 milljcn um, eða því, sem við verSonv nú að greiða aukakga fð að halda Einari og kumpánum upp úr skítnum. Einar sjálfur er manna bezt þekktur fyrir um- svif og gerir nú stærsta skip fiskiflotans, Sigurð, út á ríkis- sjóð, en cinu frystihúsa hans var lokað fyrir sóðaskap. Það, sem vakir fyrir Einari og þeim kumpánum er aðeins það eitt að skapa einokun á öllu því sem snertir frystihús sín, bæði hring S.H., flutning vamingsins og nú innpökkun. Sá gífurlegi kostnaður þessu samfara úti- lokax raunverlega allt brölt S.H. £ þessa átt. Nú er bezt að athuga hvar hinn raunverulegi hundur ligg ur grafinn og skyggnast bak við tjöldin, sjá og skilja hvi- líku ryki Einar og Co. með þá- verandi víni sinum J. Gunnars- syni, sló í augu hinna saklausu og kraftlausu utanhæjarfrysti- húsaeigenda. er þeir nota sem þeytispjöld. Eins og kunnugt er, þá var upprunalega ætlazt til að • Jöklar, dóttirrfyrirtæki S.H. smíðuðu eitt eða tvö smá- Framhald á 4. síðu. Úlfarnir ráðast á hjörðina Það setti margan hijóðan að hlusta á þingflréttir á fhnmtu- dagskvöldið. Siðferðispostularnir við Austu'rvöll sem alltaf enjt að leita að bjargráðum fyrir þjóð sína haJa nú fundið lausnina. Það er að skammta vel í dallinn sinn. Laun þeirra eiga að hækka, úr 60 þús. í kr. 132 þús. á ári og helmingur þess skattfrjáls sem er hreint lögbrot. Það fór vei á því að „kratinn“ forseti sameinaðs Alþingis Birgir Finnsson skyldi flytja þessar frómu óskir þingmanna daginn eftir að málgagn hans Alþýðublaðið var með siðferðisprédikun, — var að lýsa — „filisteunum", sem nú vaða uppi i opinbem lífi samanber Álfsnes-Glaumbæjar æfin- týrið og Keflavíkurhneykslið, þar sem dauðir merni fá kaup árum sarnan. Og ekki nóg með það, bankastofnanir em kross- flæktar í allan ósómann með milljóna upphæðir, mest fyrir póli- tískar fyrirskipanir þeirra sem völdin hafa. Þingmenn hafa undan farið vaðið elginn um dýrtíð og dráps- klifjar á allan almenning og sumir hafa trúað að þeir meintu eitthvað með þessu fleipri sínu. Flest allir þingmenn eru há- launamenn t.d. 7. ráðherrar, nokkrir bankastjórar, prófessorar, ritstjórar, auk þess alþýðuforingjar, sem snauðir verkamenn aia á Ijökum sínum, þó þeir verði að þræla myrkranna á milli og geti hvorki keypt smjör né rjómalögg. Það er varla sá þingmaður til sem ekki er hlaðinn bitlingum bak og fyrir, þeim er raðað í svoköluð bankaráð, útvarpsráð, í stjóm ýmissa ríkisfyTÍr- tækja, við endurskoðun o. s. frv. Hjá flestum af þessum sextíu manna hópi er viðkoman í Al- þingishúsinu aðeins aukastarf og full laun annarsstaðar. Þetta eru nú okkar þjóðarleiðtogar i dag. Þeir standa á rústum sinna eigin verka síðustu áratugina; það er áreiðanlega, heimsmet hvað grátt þeir hafa leikið þjóð sína. Sparsemi og heiðarleiki hefur verið svívirt þannig að með gengishruni og óðaverðbólgu hefur öilu sparifé þjóðarinnar verið rænt — gert verðlaust. 1 sveitunum liggur við landauðn, sjávarútvegur og verzlun er nær gjaldþrota, allt er þetta fyrir ofstjóm og óstjórn óþroskaðra og vesælla valdhafa. — Og svo er síðasta bjargráðið að hækka kaup þingmanna yfir 100% og greiða auk þess öll fterðalög, ef þeim dytti nú í hug að hreyfa sig úr stað. Þingmenn Reykja- víkur fá eflaust farmiða með „Strætó“ ef slík farartæki em nógu fín fyrir þá háttvirbu. Hvað finnst kjósendum — er nú mælirinn ekki orðinn fullur? Fyrrverandi kjósandi. Starfsmaiur öreigafor- sprakkanna í óhemju lúxus Flytur milli Bozgar og Sögu — Miklar annir — Blessun Hannibals -- Hvað næst? - Meiri verkiöll? Ef menn kunna að vinna — og lifa í vellystugheitum og prakt — þá er draumurinn sá, að fá vinnu hjá verkalýðsfélög- unum eða Alþýðusambandinu. Framkvæmdastjórar slíkra stór- fyrirtækja eru ekki að fá sér íbúðir eða ómerkileg herbergi — ef þeir eru utanbæjarmenn — heldur fiytja þeir milli góðbú- anna í liöfuðstaðnum, þ.e. Hótel Borgar og systur hennar á Meiunum, roaddömu Sögu. Leitað austur Um þessar mundir er verið að byggja yfir þreytta verka- lýðsleiðtoga — og óþreytta Uggur út af rannsókn Mikill uggur er nú í leiðandi mönnum Sjálfstæðis- flokksins vegna uppljóstrana í hinu mikla fjárglæfra- máli, sem þar er komið í Ijós. Allskyus brögðum ku hafa verið beitt til að þagga niður þær örmu raddir, sem réttarrannsókn og réttlæti vilja, en ekki komið að gagni enn. Aðalforsprakkmn, Jósafat, ku nú ver.o hinn erfiðasti í yfirheyrslum og berja hnefa í borð, hclmtandi á sinn ínnd hina æðstn menn Sjálfstæðisfokksins. Ðóm- ariim á í eHifmn vandræðum vegna ofstopamannsins, en ckki hafa Mnir „æðri“ menn verið fáanlegir tíl að koma i ‘nwáfeoimsónn í ,.S*tprnÍTin“. Uigjarnir segja, að allmikið sé um eftirspurnir syðra W' ferðalög ferðaskrifstofanna hér, einkum I hinar liiigri ferðter. Ekki staðfest þc. líka — austan fjalls, og þarf mikið til að híbýli þar séu ÖU hin vistlegustu. Ekki hefur verið talið sómasamlegt aá fá einhvem höfuðstaðarbúa til að hafa yfirumsjón með vertónn, heldur hefur verið seilzt tiL Austfjarða og þaðan þrifinn úr sælu og kyrrð sveitarinnar hnm kunni athafnamaður og etór- hugi Bóas Emilsson, hlýlegur maður og blíðlyndur. Á hóteli Þessu embætti fylgja umsvif mikil daga og nætur, og dugar ekki annað en sá, sem það skip ar, sitji á þeim stað, þar sem allir geti náð í hann á nóttu sem degi. Bóas hefur, af skilj- anlegum ástæðum ekki viljað binda sig við einkaíbúð, þar sem truflanir kynrnu að verða um nætur, þegar menn þurfa að ná til hans, heldur hefur hann, af einskærri tillitssemi og skiln ingi, flutt sig í skarkala hótela og vertshúsa, þar sem hann haliar var’^ FRfðj fvrir óþreytt um, æpandi skvaldurlýð, ekki hefur annað að dunda við Framhald á 6. siðu.

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.