Mánudagsblaðið - 17.02.1964, Side 2
1
Mánudagsblaðið
Máandagnr 17. febrúar 1964
Menn byrja á of mörgum
framandi tungum en lesa of
lítið í bók bókanna. Þar segir
meistarinn: Fuglar hafa hreið-
ur, refir hafa greni en manns-
ins sonur gertur hvergi hallað
höfði. Það útlegst að efnið en
ekki andinn njóta skjóls og
hlýju mannfélagsins.
Islendingar hafa hlýtt þess-
ari aðvö-"un og reist með orku
og atfylgi mikil og góð hús.
Húsagerð til eigin afnota er
mesta áhugamál borgaranna í
bas og sveit. Fyrr á öldum þeg
ar þjóðin bjó í dölum og út
tíl stranda þótti það sæmd
hvers heimilis að hafa góða
gestastofu. Þessi þáttur þjóð-
lifsins hefur glatast á leið tíl
borganna Fólk í mestu höfuð-
stöðum landsins Reykjavík og
Ákureyri svo að tvö dæmi séu
tekin af mörgum, á fögur í-
búðarhús en engar gestastofur,
sem það nafn er gefandi. Nú
ætlar Reykjavík að byggja
sína gestastofu, ráðhúsið við
Tjömina. Menn deila um stað-
inn eins og vant er. Það þarf
líka að tala um fleira en veðr-
ið. Svo lyktar málinu eins og
með Þjóðleikhúsið. Um það var
deilt en samt var húsið reist.
Nú koma þangað 100 þúsund
gestir hvert ár, borga hátt inn
gangsgjald og eru hissa á því
að Ingólfur og Hallveig skyldu
ekki byggja þetta alnauðsyn-
legasta gleði, hvíldar- og hress
ingarhús fyrir svo sem 1000
árum. Sama verður sagan um
ráðhúsið.
GESTASTOFA
Nú vill borgin fá sina gesta
stofu enda var mál til komið.
Fyrir tuttugu árum var Guð-
mundur Ásbjörnsson, gildur
bóndasonur úr Ámesþingi, for-
seti bæjarstjómar og mikill
ráðamaður í borginni. Hann
hafði ámm saman undirbúið
ráðhúsmálið, bæði með mörg-
um ferðum til annara Ianda og
heima fyrir. Honum lék hugur
á að þessi gestastofa bæjarins
væri bæði góð og falleg. Hann
setti fimm manna nefnd í bæj-
arstjóminni til að undirbúa
málið, þar vóru fulltrúar úr
öllum litlu flokkunum en for-
Jónas Jönsson frá Hrifíu:
//
REFIR HAFA GRENI EN..
setinn og sveit hans réð öllu
sem máli skipti. Nefndin var
einhuga um 'byggingu ráðhús-
hallarinnar og samþykkti í
fyrstu lotunni að byggja við
norðurenda Tjamarinnar. Bár-
an var keypt og ákveðið að
kaupa til- falls bæði Búnaðar-
félagshúsið og Iðnó. Herferð
Guðmundar forseta var ágæt-
lega undirbúin. Nefndin átti að
halda vikulega fundi um málið
undir stjórn forsetans. En þá
brotnaði hjól í flokksvél Mbl.-
manna. Tveir bæjarfulltrúar,
Valtýr Stefánsson og Gunnar
Thoroddsen gerðu einhversíkon
ar heimilisuppreist um málið
allt. Næsti fundur í byggingar-
nefnd var aldrei boðaður, og
ráðhúsið ekki byggt. Nokkru
síðar andaðist Guðmundur hinn
einlægi forgöngumaður ráð-
hússins og fór með sína Tjarn
arhöll til betri heima.
SORGARSAGA
Anhars á gestastofa höfuð-
staðarins lengri sorgarsögu.
Bærinn byggði um aldamótin
reisulegan bamaskóla og síðar
leikhúsið Iðnó við Tjömina,
hvorttveggja hin prýðilegustu
hús. En bæjarstjómin sjálf
átti ekki greni eins og refim-
ir. Hún hélt sitt þing í Gúttó,
fátæklegum timburskúr. Að
lokum risu óánægðir borgarbú-
ar gegn sinum höfðingjum og
ráku þá með grjótkasti og spýt
um út á götu. Þá fluttu feður
bæjarins upp í rambyggileg-
asta hanabjálkaloft í bænum,
efst í Eimskip. Þar var vígi
gott, ef lýðurinn sótti að sín-
um oddvitum, en ekki var til
óboðlegra gestaherbergi í öllum
bænum. Loks flutti bæjarstjóm
heimili sitt inn í verksmiðju-
hverfin, þar sem góð rúgbrauð
eru bökuð. Húsið er í Glaum-
bæjarstíl án fegurðar. Loks
sáu forráðamenn borgarinnar
að þessi hirðulausu skipti við
stjórn bæjarins væri ósæmileg
fyrir höfuðborg. Vom þá marg
ir kunnáttumenn settir til að
gera ráðhústeikningar. Munu
sex húsameistarar hafa gert
teikningu og líkan af ráðhúsi
við Tjömina. Þennan smíðis-
grip hefir öll bæjarstjórnin
samþykkt. Er forganga Guð-
mundar Ásbjömssonar og stað-
arval endursamþykki einróma.
Þessari ráðagerð verðv.r að
koma í framkvæmd. Húsakynni
bæjarstjómar hafa áratugum
verið öllum bæjarbúum til van
sæmdar. Meðan hæstiréttur var
uppi á lofti tugthússins voru
dómaramir í vandræðum með
húésneipuna þegar erlendir
stéttarbræður komu og vildu
sjá dómhúsið. Tóku dómaram-
ir þá það ráð að bjóða gestin-
um heim til þess dómara, sem
bjó að beztum húsakynnum. Á
aldarfjórðungsafmæli hæstarétt
ar var bætt viðunanlega úr hús
leysi þeirrar stofnunar. Nú er
röðin komin að ráðhúsinu. Bæj
arfulltrúamir hafa tveim sinn-
um samþykkt að reisa ráðhús
við norðurenda Tjarnarinnar.
EKKI ANDRÍK
Það verður sennilega ekki and-
rík bygging. Hér eru húsameist
arar í tugatali. Óvíða bregður
fyrir andríki í húsagerð þeirra
en i bænum er mikill fjöldi
góðra íbúða, þar má lifa heilsu
samlegu og þægindaauðugu
lífi. Ráðhúsið mun verða í
sama stíl og hin nýju háhýsL
Mikill dugnaður og innanhús
hagsýni kemur fram hjá þeim
mörgu mönnum sem standa fyr
ir húsagerð hinna nýju hverfa.
Meira má ekki heimta af hinu
nýja ráðhúsi. Það verður fyrir
ferðarmikil og rúmgóð gesta-
stofa, rísandi borgar. Öflugar
súlur verða undir múrum hall-
arinnar lfkt og í undrahertoga-
höllinni í Feneyjum^ sem lætur
fara vel um sig á lausum
grunni. Húsum Skúla Thorodd-
sen og heimili Oddfellowregl-
unnar verður 'kippt burtu. Höf-
uðborg getur keypt og fjarlægt
nokkur hús sem standa í vegi.
Tjörnin stækkar frá ráðhúsinu,
þegar hinn leiðinlegi þvervegur
og enn leiðinlegri brú hverfa.
Tjörnin þarf að vera tveggja
metra djúp. Leirinn getur mynd
að grunn í Vatnsmýrinni. Mjög
mun skorta bílastæði í miðbæn
um hvað sem ráðhúsi líður en
gott svæði er fyrir risavaxna
bílageymslu undir Landakots-
túni. Bærinn spennir greypar
um Tjörnina norðanverða en á
góðan núbúa að baki sér við
Austurvöll. Þar er ríkið sjálft,
dómkirkja þjóðarinnar og Al-
þingi. Jón Sigurðsson hvatti
samherja sína til að sýna í
verki að þeir kynnu að meta
fengið frelsi með því að reisa
virðulega þinghöll. Fáum mán-
uðum eftir dauða forsetans
stóðu vinir hans og leiknautar,
Tryggvi Gunnarss., Jón á Gaut
löndum, Grimur Thomsen og
fleiri mætir menn fyrir þvi
stórvirki að reisa þinghöll úr
stórgrýti úr hæðunum við bæ-
inn. Húsið kostaði 120 þúsund
,en það var þriðjungur land-
sjóðstekna hallærisárið 1881.
GLÆSILEG HÖLL
Sést af þessu hversu eindreg-
inn var stórhugur landsmanna
og hve mikils þeir virtu sitt
nýja frelsisvirki Alþingi. Mjög
snjall danskur húsameietari
teiknaði húsið en þröngsýnir
skrifstofumenn í Reykjavík
lækkuðu undirstöðuna, mjög
að óvilja húsameistarang er
hann frétti um breytinguna.
En hvað sem um það má segja
er þinghúsið glæsileg höll og
bar af húsum um tign á íslandi
þar til Hannes Hafstein syst-
ursonur Tryggva Gunnarsson-
Starfsstúlkur óskast
Starfsstúlkur vantar nú þegar í eldhús Kópavogs-
hælis. Upplýsingar gefur matráðskonan í
síma 41502.
Reykjavík, 13. febrúar 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna,
Bókarastarf
Skrifstofa ríkisspítalanna óskar eftir að ráða bók-
ara til starfa í sjúklingabókhaldi nú hið fvrsta
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
nám, menntun og fyrri störf sendist til Skrif-
stofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík
fyrir 27. febrúar n.k.
Reykjavík, 13. febrúar 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna,
Höfum ávallt fyrirliggjandi hin heimsþekktu
Philips sjónvarpstæki
Gæðum PHILIPS-íækja er óþarft að lýsa, þau þekkja allir. — Verð
frá kr. 11.790,00 — Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Fýrirliggjandi 5 mismunandi tegundir. — Hin viðurkenndu WlSI-loft-
net jafnan fyrirliggjandi í tveimur stærðum. Önnumst uppsetningu þeirra.
Nýung:
TELE-SCOPESKERMURINN er kominn.
Stækkar — skýrir — dýpkar myndina. Hin einfalda bygging hans og
áfesting hæfir hvaða sjónvarpstæki sem er.
SJÓNVARPSEIGENDUR. Kynnið yður þessa nýung.
Véla & Raftækjaverzlunin
Bankastræti 10 & Lækjartorgi — Sími: 12852.
ar reisti Landsbókasafnið. Þing
húsið er fyrir margra hluta
sakir þjóðargersemi og á það
skilið að þess sé jafnan minnst
með virðingu. Er það þess
vegna óvitahjal að ræða um að
flytja þinghúsið eða nota það
eins og úrgangsvöru til lítilmót
legra þarfa. Hitt erannaðmál,
að Alþingi hefur atækkað og er
fyrir löngu orðið alltof lítið
vegna nýrra verkefna. En úr
því má bæta og það auðveld-
lega. Rikið á allmikla baklóð
sem bærinn mun þurfa við þeg
ar ráðhúsið er komið við
Tjörnina. Hins vegar á ríkið
allmikla lóð með fram Kirkju-
stræti, sem verður breikkað og
lengt ixm í Lækjargötu. Vestan
til á þeirri lóð eru gömul timb
urhús, Skjaldbreið og SlS,
Sambandið hefur nú byggt sitt
höfuðsetur við Ingólfsstræti og
á þar enn hússtæði frá tímum
Hallgríms Kristínssonar, það er
bezti hluti lóðarinnar. Þessi
gömlu hús verður rikið að
kaupa eftir mati pg tryggja
þar með framtíð þinghússins.
Hér ætti ríkið að reisa tvö hús
úr höggnu grjóti í samstíl
við þinghúsið. Það hús, sem
fyrst yrði reist, næst þinghús-
inu gæti vel heitið Hlaðbúð,
eftir góðfrægri stofu í þing-
húsinu. Þangað mundu flytjast
allar skrifstofur úr þinghús-
inu. Þar kæmi gott bókasafn,
en það var aldrei tíl í gömlu
byggingunni. Þar mundu koma
nefndaherbergi( fundarstofur,
setustofur og veitingaskáliim,
sem of lengi hefur vantað í hið
góða hús frá 1881.
þriðja iiUsid
Þriðja húsið þarf að koma
von bráðar. Það gæti verið
skrifstofa forseta eða jafnvel
forsetahús ef henta þætti að
hann væri búsettur í Reykja
vík. Sýrlendingar eru mann-
fleiri en Islendingar. Forseta-
húsið í Damaskus er ekki viða
meira en þinghús Islendinga.
Sagt er að merkur þingmað-
ur í Alþýðuflokknum hafi lagt
til að húsmál Alþingis yrðu
leyst með nýrri byggingu við
Kirkjustræti. Það yrði skrf-
stofu og nefndahús Alþingis en
fundir þingsins yrðu framvegis
í hinum sögufræga steinbæ,
sem hefur nýlega haldið í kyrr
þey sitt áttræðisafmæli. Eg hef
orðið þess var að áhugamenn
í Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokknum hafa talað með sam-
úð um þessa hugmynd. Hygg
ég að hún verði varla endur-
bætt nema ef vera skyldi með
bendingunni um forsetahúsið
við Kirkjustræti. Þrengslin í
þinghúsinu og þá ekki sízt mis
notkun forhallarinnar er lýð-
veldinu til minnkunnar. Nú
leika ríkistekjur og ríkisgjöld
á milljörðum. Tilkostnaður við
að bæta á þann einfalda hátt
sem hér er að vi'kið er ekki um
talsverður, þegar sæmd þings
og þjóðar á í hlut. Forfeður
núverandi kynslóðar fórnuðu
þriðjungi landstekna til að
reisa fyrstu og einhverja feg-
urstu höll sem þjóðin á eftir
þúsund ára byggð í landinu.
Helzt til lengi hefur foiráða-
menn höfuðborgar og ríkis
vantað viðeigandi húsaskjól.