Mánudagsblaðið - 17.02.1964, Síða 6
ÚR EINU
í ANNAD
Offjölgun hjá gæsapabba — Stóihýsi og ádeila —
Björn og kvabbið — Kurteisi í útvarpi — Dauðir
bíða — Ábyrgð — Sjónvarpsnýjung
Nú mega þeir vera hamingjusamir gæsapabbarnir dr.
Finnur og Kjartan brunavörður. Sextíu gæsir töldust í
góða veðrinu um daginn á lóðinni, sem Isbjörninn stóð
einu sinni á. Þær voru rífandi og tætandi upp græna
grasið þar í hlýindunum og eiga vonandi eftir að taka
til í skrautgörðum Reykvíkinga í sumar. Kynsælli kvik-
indi eru vart til í heimi en fugladraslið hér í höfuðstaðn-
um.. og væri óhætt að rannsaka, hvaða meðöl fara í mat-
inn, sem það fær. Það mun algerlega heimsmet í smekk-
leysi að hafa 60 villtar gæsir — utan hinna mannlegu —
- SJÓNVARP -
— Þessa viku —
Sunnudagur 16. febrúar
1430 The Chapel of the Air
1500 This is the Láfe
1530 Commúnism: Myth vs.
Reality
1600 The Big Picture
1630 Biography
1700 CBS Sports Spectacular
1730 The Ted Mack Show
1800 The G. E. College Bowl
1830 Mr. Wizard
1900 AFRTS News
1915 The Sacred Heart
1930 The Jerry Lewis Show
2030 The Ed Sullivan Show
2130 Bonanza
2230 What’s My Line?
2255 AFRTS Final Edition News
2310 Northem Lights Playhouse;
„Shadows of Chinatown"
á stjái um prómenaði-götur borgarinnar, ef ekki vegna
annars en þess, sem þær óumflýjanlega verða að skilja
eftir sig. Væri máske ráð, að doktorinn og brunavörðurinn
lölluðu á eftir, hvor með sína skóflu.
Margir spyrja að því, hvers vegna nauðsynlegt sé, að
einn arkitekt frá hverjum flokki þurfi að teikna stórbygg-
ingar okkar? Það er eitthvað óheilnæmt við það, að hér
ekuli borgarstjómin þurfa að láta smáflokka troða upp
á sig allskyns rumpulýð, vegna þess að þeir eru í „flokkn-
um“, meðan betri menn og hugvitssamari standa aðgerð-
arlausir. Það er að verða hér nokkuð sjúkleg hreyfing
innan vissrar arkitektaklíku og eins hollt, að almenningur
fái að sjá hið rétta í þessum málum.
Sagt er, að Bjöm Pálsson, þingmaður hafi eytt allri
vikunni í að tala einslega við ýmsa fulltrúa á fundi bænda,
sem hópuðust hingað i vikunni. Býst Björn við rýtingi
í bakið, eftir að hann sagði eannleikann um stéttarfélaga
sína, helvitis kvabbið og kveinstafina, en bóndakarlar
þykktust við. Hvað margir þeirra bænda, sem á sam-
kundu þessari eru nú, munu, meðan á þinginu stendur,
kaupa sér eitt eða tvö íbúðarskrifli hér í höfuðborginni ?
Það er ekki nýtt, að þessir fátæku menn kaupi íbúðir „til
að gera eitthvað,“ meðan þeir standa hér við. Skortir
þingmanninn nú illa bróður til að verja sig klámhöggum
eftir bersöglina.
Ctvarpið þarf siðameistara til að kenna hinum ýmsu
fyrirlesurum sínum almennar kurteisisvenjur. Yfirleitt er
nú orðið svo, að þesir menn bjóða hvorki góðan dag né
heilsa á nokkurn hátt, áður en þeir þurfa að tala til
„þjóðarinnar". Svona lubbamennska þekkist ekki á byggðu
bóli. Þetta er gamall hryssingsháttur, sem sýnilega á sér
enn rætur hjá þessu fólki. Vitanlega er því heimilt að
auglýsa menningarleysi sitt, en óþarfi fyrir ríkisstofnanir
að þjóna þessari auglýsingastarfsemi.
Sá leiði siður tíðkast enn hér á landi, að lík eru látin
standa uppi von úr viti. og er slíkt hin mesta ómenning.
Venjulega er fólk grafið ekki seinna en þremur dögum
eftir andlát þess, en oft má heyra auglýst, að sá, sem lézt
t.d. 18. dag mánaðarins, verði ekki jarðsettur fyrr en um
mánaðamót. Þetta var skiljanlegt á vissan hátt, áður
Mánudagur 17. febrúaar
1630 Captain Kangaroo
1730 To Tell the Truth
1800 Tombstone Territory
1830 The Danny Thomas Show
1900 AFRTS News
1915 Air Force News in Review
1930 The Andy Griffith Show
2000 The Lieutenant
2100 The Thin Man
2130 The Danny Kaye Show
2230 Flight
2255 AFRTS Final Edition News
2310 The Steve Allen Shov’
Þriðjudagur 18. febrúar
1630 The Shari Lewis Show
1700 Lucky Lager Sports Time
1730 Sing along with Mitch
1830 Lock up
1900 AFRTS News
1915 The Telenews Weekly
1930 True Adventure
2000 The Dick Powell Theater
2100 The Jack Benny Show
2130 The Garry Moore Show
2230 Champiionship Bridge
2255 AFRTS Final Edition News
2315 The Andy Williams Show
Miðvikudagur 19. febrúaar
1630 Captain Kangaroo
1730 The Price Is Right
1800 Sea Hunt
1830 Encyclopedia Britannica
1900 AFRTS News
1915 Arctic Rampart
1930 The Dick Van Dyke Show
2000 The U.S. Steel Hour
2100 Adventures at Scott Island
2130 The Untouchables
2230 I’ve Got a Secret
2255 AFRTS Final Edition News
2310 The Tonight Show
Fimmtudagur 20. febrúar
1630 Do You Know
1700 Zane Grey Theater
1730 Password
1800 Science in Action
1830 The Ann Southem Show
1900 AFRTS News
1915 The Telenews Weekly
1930 My Three Sons
2000 Hootenanny
2100 Perry Mason
2200 The Edie Adams Show
2230 Peter Gnnn
2255 AFRTS Final Edition News
2315 The Steve Allen Show
fyrr. en nú er þetta ekki annað en leiðinda tilfinningasemi,
sem oft getur orðið hreinasta viðurstyggð. Heilbrigðis-
yfirvöldin munu eitthvað hafa takmarkað þessar „uppi-
stöður" a. m. k. í heimahúsum, enda sjálflsagt að fylgja
einhverjum skynsamlegum regliun í þessu efni.
Enn starfa vegheflar í höfuðstaðnum vegna þess
endemisfrágangs, sem öll götumál okkar hafa þolað
þar til nú. Margir spyrja að því hver sé ábyrgur þegar
bifreið ekur á steinhnullung, sem veghefill rífur upp, og
stórskemmist undirvagninn. Fjöldi dæma eru um þetta,
og væntanl. verður hægt að fá skorið úr um hver borgi
brúsann þegar vegheflamenn skilja. eftir slíka hnullunga á
götum. Margir telja réttilega að borgaryfirvöldin skuli
borga brúsnn, en ekki virðast þau sérlega fljót til.
Véla- og raftækjasalan í Bankastræti býður nú sjón-
varpseigendum upp á eina snjöllustu nýjung, sem sá lýð-
ur getur ímyndað sér. Verzlunin hefur á boðstólum eins-
konar „spegla-ramma“ (við kunnum vart að skýra þetta),
sem gera myndina á sjónvarpinu miklu stærri, skýrari og
dýpn en ella. Hefur þetta apparat farið mikla sigurför
um heim allan, og mun eflaust koma okkur mjög vel, því
hér eru oft skilyrði ekki eins góð og æskilegt væri. Við
skoðuðum þetta rétt fyrir helgina. og verður að segja, að
hér er á ferðinni hin þarfasta nýjung fyrir sjónvarpseig-
Föstudagur 21. febrúar
1630 Roy Rogers
1700 Men of Annapolis
1730 Tennessee Ernie Ford Show
1800 Photography — The Incisive
Art
1830 It's a Wonderful World
1900 AFRTS News
1915 Navy Screen Highlights
1930 Current Events
2000 Rawhide
2100 The Jack Paar Show
2200 Fight of the Week
2255 AFRTS Finpl <=Mjtion News
2310 The Tonigh' Show
Laugardagur 22. febrúar
1000 Kiddie’s Corner
1130 Magic Land of Allakazam
1200 Exploring
1300 American Bandstand
1400 Saturday Snorts Time
1630 The Files of Jeffrey Jones
1700 Col March of Scotl Yard
1730 Current Events
1830 Candid Camera
'855 Chaniain’s Corner
i ooo AFRTS News
1915 George Washington
U’ ° The Jackie Gleason Show
2030 Lawr Welk’s Dance Party
2130 The Defenders
2230 Gunsmoke
2255 AFRT3 Final Edition News
2310 Northern Lights Playhouse
endur.
„My Dream. Is Your»“
Mánudagur 17. febrúar 1964
SJÓNVARPID
ÞESSA VIKU
Fjórir nýir þættir í vikunni — Danny Kaye J
kominn aftur —
Starfsmaður
öreigafor-
sprakkanna
Framhald af 1. síðu.
en drykkju og bílífi. Eru fá-
gæt slík valmenni, sem þannig
fóma sér.
Kr. 200 og upp
Bóas bjó lengi á Hótel Borg
árið 1963, en fór heldur að ó-
kyrrast, þegar á leið árið, og
flutti þá á Sögu og hefur búið
þar meira og minna síðan, og
býr enn. Ekki skal hann áfelld-
ur fyrir að kjósa sér slí'ka bú-
staði, herbergi þægileg og verð
ið frá kr. 200 og uppúr á dag,
en Bóas skiptir oft um, öllum
til hægðarauka.
Góðsemi Hannibals
Það er svei mér ekki ónýtt
að næla sér í vinnu hjá hanni-
bölum öreiganna, þegar hinir
digru sjóðir þeirra geta haldið
slíkum mönnum í svon alúxus.
Vitanlega neitar Bóas réttilega
ekki hinu góða tilboði Alþýðu-
sambandsins um að búa þarna,
en skyldi Hannibal litla ekki
bregða í brún, ef hann sæi upp
hæðimar fyrir leiguna? Það er
nógu gott að óskapast á manna
mótum og svívirða sjálfbjarga
fólk, eins og leiðtogar öreig-
anna hafa jafnan fyrir stafni,
en furðu mikið ósamræmi er í
þessum leiðinlega flottræfils-
hætti og allfjarri því^ sem for-
sprakkarnir prédika.
Ef svona flottheit eru það,
sem koma skal, þá má ábyrgj-
ast, að yfirmenn verkalýðsins
hafa ekki stundlegan frið fyrir
væntanlegum yfirstjórum vænt
anlegra stórvirkja, sem unnin
verða af þessum aðilum. Það
verður gaman að heyra götu-
hornamúsíkk verkalýðsleiðtog-
anna í næsta verkfalli.
Á sunnudag er t.d. Biography,
sem byggist nú á ævisögu hinn
ar kjarkmiklu Helenar Keller,
daufdumbrar konu, sem brauzt
áfram í veröldinni og mikið
gott er komið frá. Þá er þátt-
urinn Mr. Wizard, en þar skýr-
ir Don Herbert ýmis vísindaleg
leyndarmál fyrir unga fólkinu.
Northern Lights Playhoíise
sýnir „Shadows of Chinatown"
og fjallar um brjálaðan vís-
indamann, sem ætlar að gjör-
eyða íbúum Ohinatown. Á
mánudag er það Tombstone
Territory, en þar drepur sýslu
maður flýjandi bandítt og kem
ur af stað fjölskylduerjum.
Danny Kaye byrjar nú aftur,
en Jose Ferrer og Red Norov
ásamt ýmsum öðrum hjálpa
honum af stað. Flight sýnir
okkur hversu menn bjargast á
Nörðurheimskautssvæðinu eft-
ir að flugvél þeirra hefur nauð
lent. Á þriðjudag er True Ad-
venture, og sýna þar skíða-
kappar á sjó hið glæsilegá,
sport sitt. I Dick Powell Theat-
er, leikur Powell sjálfur lög-
regluþjón, sem starfar að því
að finna fólk, sem hefur týnzt.
The Garry Moore Show fær
gesti, m.a. Jackie Mason,
Nancy Dussault og John Gary.
Á miðvikudag er það The Dick
Van Dyke Show, og nú er Bob
kominn í vandræði út af lof-
orðum símrrn. Adventnre at
Scott Island, en þar leikur
Barry SulUvan skipstjóra á
leigubáti, sem leggur frá smá-
þorpi á strönd New Englands.
The Nonight Show fær góða
gesti, m.a. Henry Youngman,
gamanleikara, og Annie Farg-
er, leikkonu o. fl. Á fimmtu-
dag. Nýtt prógram. Do You
Know. Boh Maxwell stjórnar
spurningum sem valdar eni úr
barnabókum. Science in Aetion.
Merkilegar orkulindir t.d. orka
frá sólu, keðjukjamorka, o. fL
eru hér til umræðu. The Edie
Adams Show, en þar er gestur
Count Basie. Á föstudag er m.
a. Tennessee Emie Ford Show
og Pack Paar, en Kate Smith og
Sam Levenson koma og skoða
kvikmyndir úr ferðalagi Jacks
um Kyrrahafslönd. Á laugar-
dag sjáum við svo Lorne Green,
stjörnuna í Bonanza, sem skýr
ir í stuttu máli líf Marks
Twains, hins kunna bandaríska
höfundar. The Defenders feðg-
arnir fara í heimsókn í skóla
sinn til að sjá körfuboltaleik,
og lenda í því að verja aðal-
stjömu liðsins, sem sökuð er
um að þiggja mútu. Northem
Lights Playhouse sýnir My
Dreams Is Yours með Doris
Day, Jack Carson, Adolphe
Menjou, Lee Bowman og fjall-
ar um leikaralíf.
Vetrarferðir Gullfoss njóta aukinna vinsælda
Fátt getur fólk veitt sér ánægjulegra en „að sigla“, og af af slíkum ferðalögum eru fá öllu
ánægjulegri og ódýrari en hinar vinsælu vetrarferðir Gullfoss, flaggskips Eimskips og stærsta
farþegaskipsins okkar. Hjón, ungir og gamlir, Iifa í endurminningum um þessa hvíklarríku,
skemmtilegu ferðir, því þar má allt gera, hvflast og skemmta sér í vistlegum sölum, heimsækja
sumar atliafnamestu borgir Norðurálfu, kaupa inn og njóta tilbreytingar frá hinu daglega
amstri. Um þessar mundir standa ferðirnar j’fir í fullum gangi, en vissara er fyrir þá, sem
vilja bregða á Ieik, að tryggja sér farmiða í tíma, því hver ferð er umsetin. Einmitt nú er
tími ti) að athuga sinn gang, því brátt vorar víða í Evrópu og jafnframt Iifnar yfir öllu.
Myndin sýnir farkostinn, Gullfoss, er hann siglir framhjá Surtsey — sem enn er að skapast.