Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 18.05.1964, Page 6

Mánudagsblaðið - 18.05.1964, Page 6
\ Ur einu í ANNAÐ Það er skrítið hve hljótt hefur verið um hið yfirlýsta menntunarleysi almennings, sem fram kemur í þátt- um Svavars Gests. Við geypum mikið af þvi hve vel lesnir við séum, en í Ijós kom, að almenningur kann eng- in skil á frægustu bókum okkar Eglu, Grettlu og Gunnlaugs sögu Ormstxmgu og enn fleiru sem spurt var um. Auðvitað er allt í lagi að þekkja ekki þessar sögur en að gorta opinberlega af þeim er næsta lítilmannlegt. Hins vegar var ánægjulegt í sama þætti að hlusta á brand ara Jóns Múla, þvi hver eimasti var þýddur úr amerískum blöðum og sjónvarpsþáttum, og sýnir hve víðtæk amerísk menning er orðin. Það bregst ekki. að það bezta kemur að vestan — í þessum málum. „Eg hefi ekki“ sagði merkur íslenzkur músíkmaður, ,.heyrt öllu lélegri sinfóníuiflokk en hljómsveitina hér heima, ef dæma skal eftir samibærilegum stofnunum er- lendis. Það, sem bætir úr skák er, að við gerum engar kröfur hvorki í klassiskri músikk né lúðramúsíkk, þvi Lúðrasveit Reykjavíkur er ekki aðeins léleg, heldur ákaf- lega hlægileg, og bætir það úr skák. Það eina, sem lúðra- sveitina okkar skortir eru nokkrir apar og fílar í halarófu á eftir sér, því þá yrði hún réttilega sami sirkusinn og einkennisfötin benda til.“ Nú, þá er því lokið. Ekkja ein fór nýlega á miðilsfund og náði sambandi við nýlátinn bónda sinn, og auðvibað spurði hún hann hvernig hann hefði það. „Eg hefi aldrei haft það eins gott, þetta er dásamlegur heimur, landslagið fagurt, sólin skín, næt- umar eru dásamlegar og veika kynið ofboðslega seið- magnað. Lokkandi augu fylgja manni hvert, sem maður fer.“ „Elskan mín, fyrst svona mikið er þarna til að freista þín, þá er ég hrædd um að missa ást þína. Eg vona mest af öllu, að ég hverfi hið fyrsta héðan og komi til þín í himnaríki.“ „Himnariki" svaraði maðurinn undrandi, „hver er að tala um himnaríki? Eg er aðal þarfanautið í Þingeyjar- sýslu“. Loksins er komið að því, að bændur eru farnir að kvarta yfir skemmdarfuglum eins og gæsinni og álftinni. Þessum fuglum fjölgar árlega og vegna hinnar barnalegu og eink- ar viðkvæmu löggjafar um fugladráp eru þessar tvær tegundir orðnar að þjóðarplágu. Gæsin ætti að vera rétt- dræp þann bíma, sem hún dvelur hér og fækka mætti þessum skrækjandi álftum, sem rífa í sig gras og garða. Reyndar ætti líka að leyfa að skjóta lófur og spóa, enda hinn bezti matur og veiddar í grið og erg þegar þær fljúga héðan, einkum lóan, sem gömlu skáldin máttu ekki sjá nema falla í stafi. ,.Menningarleysið“ er nú alveg að drepa þjóðina, a.m.k. þann hluta hennar sem nýtur sjónvarps. 1 s.l. viku kornu þar fram Jöhnson forseti Randarikjanna, Krúsi, Rússa- jarl, Danny Kaye, sennilega dýrasti skemmtikraftur heimsins, viðurkenndasta sinfóníuhljómsveit veraldar, frægari en sú islenzka, bókmenntafræðingar og menning- arvitar á borð við Ragnar i Smára, sumir þekktari og auk þess alskyns ómerkilegur lýður, dót í 10—20 þúsunddoll- am vikuklassanum, sem notaður er til uppfyllingar milli stóru kraftanna. Þetta er agalegt fyrir þjóðina að þurfa að búa við þetta meðan Jón Leifs og Þorsteinn Ö. ganga lausir. Hér I blaðinu hefur í mörg ár verið ritað um þann rumpulýð, sem borgaryfirvöldin hafa talið sjálfsagt að ala í íbúðum sínum. Hefur verið bent á að mikill hluti þessa fólks nýtur peninga frá tryggingastofnunum. drekkur og svallar út allt fé sem því berst, vinnur ekki þrátt fyrir nóga vinnu, tælir til sín alls kyns pakka til næturgleði. I stuttu máli má segja, að þarna gangi borgaryfirvöldin á undan öðrum í að ala upp ónytjungslýðinn. Nú er víst samþykkt að flytja eitthvað af þessu dóti á Kapla- skjólsveginn, þar sem verið er að byggja íbúðarhús fyrir nýtilegt fólk. Stendur af þessu „borgar“-fólki mesti ó- þefur í hvívetna og sannarlega skömm og óafsakanlegt að flytja það innan um ágætis fólk. Blaðið hefur margsinnis bent á, að borgaryfirvöldunum er skylt að hafa strangt eftirlit með því fólki, sem þau hafa á framfæri, og hik- laust baka af því allan styrk þegar það verskuldar hann ekki. SjónvarpiB —- Þessa viku — Sunnudaginn 17. maí. 1430 Tíhe Chapel oí the Air 1500 This is the Life 1530 Land of the Free 1600 The Big Picture 1630 CBS Sports Spectacular 1800 The Jack Benny Show 1830 The G. E. College Bowl 1900 AFRTS News 1915 The Sacred Heart 1930 Bonanza 2030 The Ed Sullivan Show 2130 Hollywood Palace 2230 What’s My Line? 2300 AFRTS Final Edition News 2315 Northern Lights Playhouse „The Gambler and the Lady“ Mánudaginn 18. maí. 1630 Captain Kangaroo 1730 To TeU the Truth 1800 Tombstone Territory 1830 The Danny Thomas Show 1900 AFRTS News 1915 Social Security in Action 1930 The Andy Griffith Show 2000 The Lieutenant 2100 The Thin Man 2130 The Danny Kaye Show 2230 Lock up 2300 AFRTS Final Edition News 23.15 The Steve Allen Show Þriðjudaginn 19. maí. 1630 Tennessee Ernie Ford Show 1700 Encyclopedia Britannica 1730 The Wonderful World of Golf. 1830 Alumni Fun 1900 AFRTS News 1915 The Telenews Weekly 1930 The Dick Powell Theater 203P The Jimmy Dean Show 2130 Combat 2230 Science Fiction Theater 2300 AFRTS Final Edition News 2315 Bell Telephone Hour Miðvikudaginn 20. maí. 1630 Captain Kangaroo 1700 The Price Is Right 1800 Sea Hunt 1830 Biography 1900 AFRTS News 1915 The Sacred Heart 1930 The Dick Van Dyke Show 2000 The Garry Moore Show 21001 Led Three Lives 2130 The Untouchables 2230 I’ve Got a Secret 2300 AFRTS Final Ekiition News 2315 The Tonight Show Fimmtudaginn 21. mai. 1630 Do You Know? 1700 My Little Margie 1730 Password 1800 Science in Action 1830 True Adventure 1900 AFRTS News 1915 The Telenew: Weekly 1930 My Three Sons 2000 Hootenanny 2100 Perry Mason 2200 The Sid Caesar Show 2230 Mvstery Theater 2300 AFRTS Final Edition News 2315 The Steve Allen Show Á RAUDU UÓSI All annasamt hefur verið hjá bönkunum undanfarið til við- bótar þeirri miklu umhirðu sem fiðurfénaður veðsettur bönkunum þarfnast í Krækl- ingahlíð og víðar. Og þar við bætist ýmsar ráðstafanir út- flytjenda sjávarafurða útvegs- ins. BíU hins nýja landsfrelsara útvegsframleiðslunnar Friðriks Jörgensen hefir sézt standa á rauðu Ijósi dögum saman með- an eigandi bílsins hefur verið í ráðherraviðtölum í stjórnar- ráðinu við Hverfisgötu. ogþess á milli hefir bíllinn staðið í svipuðum stellingum til skiftis fyrir utan gjaldeyi-isbankann. Sögur ganga um það í bæn- um að einhver órói sé hjá gjaldeyrisbönkunum vegna seinna og ófullnægjandi gjald- eyrisskila hjá útflytjandanum. Talað er um að hann hafi sent mikið af óseldri skreið til Italíu, sem ekki hafi selzt í þvi listelska landi, og hafi þá það ráð verið tekið að senda skreiðina suður til ennþá sól- ríkari landa og að þar liggi vara þessi óseld og hlaði á sig kostnaði, þannig að borin von sé hvað komi heim af gjaldeyri , í lokin, en Jörgensen mun á sínum tíma toafa svarið Emil ráðherra Jónssyni trúnaðareiða er hann fékk útflutningsleyfin og þá fer væntanlega eins og konan í Hafnarfirði sagði forð- um „Emil reddar því.“ Svo eru það örlög ríka banka- stjórans í Vestmiannaeyjum sem er framhaldandi ráðgáta. Sá ríki mun hafa haft hug á að hverfa úr bankanum á fullum eftirlaunum og snúa sér alfarið að viðskiptalegum hugðarmál- um sínum, en félagar hans munu ekki hafa talið sig mega við því að missa hann úr bank- anum. Ekkert liggur heldur fyr- ir um það að Verzlunarbank- inn sem er Jörgensen mikill haukur í homi sé fáanlegur eða treysti sér til þess að opna útibú í Eyjum og anna við- skiptaþörfum viðskiptahrings Jörgensen, en bankastjórar í Reykjavik eru nú almennt taldir hausstyggari og svart- sýnni en sem samrýmist vor- gróanda og mikilli aflavertíð og ekki mun vera rýmra um en í meðallagi hjá útgerðarmönn- um með að fá peninga til greiðslu vertíðarkaups og afla- hluta. Talað er um að Jörgensen hafi fyrirhugað að leigja er- lenda flugvél frá Ameríku til Bókaforlagið Skuggsjá hefur enn sent frá sér nýja bók um blómin blessuð, og nefnist hún „Stofublóm í litum", en höfund- urinn Ingimar Óskarsson. Bæk- ur um þetta efni hafa vakið mikla athygli, enda handhægar og heppilegar fyrir húsmæður og aðra, sem unna blómum. Bókin fjallar um ræktun inni- blóma, og eru i henni 372 teg- undir skrautblóma, sem sérstak- lega eru ræktuð innanhúss. Ingimar er höfundur blómabók- ar, annarrar, sem út kom hjá forlaginu, og nefnist Villiblóm i litum, kynningarbók um villi- gróður landsins og Norðurlanda. Þá hefur hann ritað Fiskar í þess að flytja sig og helztu viðskiptalega gæðinga sina, að- allega frá Vestmannaeyjum á heimssýninguna í Bandaríkjun- um og þá ef þeim lýst vel á sig að halda áfram til Japan og fara hringinn og koma svo heim aftur yfir Norðurpólinn og mun þá fyrirhugað að ríki bankastjórinn í skjóli stöðu sinnar, málakunnáttu og marg- háttaðrar barnaskólamenntunar verði fararstjórinn, en ekki hef- ir þess heyrzt getið að reyk- vískum bankastjórum verði boðið með í ferðina, ekki einu sinni frá Verzlunarbankanum. Hinsvegar virðist vel hugsan- legt að Jósafat, frændi ríka bankastjórans verði með í ferð- inni og annist um birgðaað- drættina á leiðunum. Banka-Surtur litum og fjallar um fiska f haf- inu umhverfis landið og svo í ám og vötnum. Þá hefur forlag- ið og gefið út tvær bækur eftir Tngólf Davíðsson ,,Garðblóm í lituf” og „Tré og runnar í lit- um”, og fjallar '■ sú fyrrnefnda um tegundir blóma, sem héru— þrífast bezt, og er ætluð áhugamönnum um skrúðgarðarækt, en hin sið- amefnda, er um ýmiskonar tré- gróður og runna, sem hér þríf- ast. Bækur þessar eru allar kreyttar hundruðum mynda og hinar aðgengilegustu, hreinasta nauðsyn þeim, sem eiga garða eða vilja hafa blóm á heimilum sínum. Bækur um blómarækt frá Skuggsjá Krúséffí Egyptalandi Föstudaginn 22. maí. 1630 The Ted Mack Show 1700 The Bob Cumm'ngs Show 1730 It’s a Wonderful World. 1800 E Steichen, Photographer 1830 Lucky Lager Sports Time 1900 AFRTS News 1915 Air Forces Review 1930 rrent Events 2000 Rawhide 2100 The Jack Paar Show 2200 Fight of the Week 2300 AFRTS Final Edition News 2315 The Tonight Show Laugardaginn 33. maí. 1000 Kiddie’s Comer 1130 Magic Land of Allakazam 1200 Exploring 1300 American Bandstand 1400 Saturdav <3->orts Timf 1630 Colonel Flack 1700 The Phil Silvers Show 1730 Current Events 1830 Candid Camera ’ 855 Chaplain’s CorneT '900 AFRTS News 1915 Canadian Travel Film The ’ackie Gleason S1- ■ "ivo i.aw Welk’c Dance p»r" 2130 Sing Along With Mitch Gunsmoke >05'- Mton inal Editim ■Last Flight“ 231" Northern Lights Playhouse 1„Romance on the High Seas“. Iirúséff forsætis’-'^berr- Rússa er nú í heimsói?" Fgyptalandi og eru mikil vinalæti með hon- um ag einræðisherra Egyptalands, Nasser. Hérsjást þeir vinirnar fagna hvor öðruni.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.