Morgunblaðið - 13.07.2005, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2005 C 3
LA
ND
SB
AN
K
AD
EI
LD
IN
CLIFTON Cook, körfuknattleiks-
maður, hefur samið um að leika
með Hamri/Selfossi á næstu leik-
tíð en hann var á mála hjá Skalla-
grími á síðustu leiktíð. Þetta er
mikill fengur fyrir Hamar/Selfoss
enda hefur Cook, sem er bakvörð-
ur, verið einn besti útlendingurinn
sem leikið hefur í deildinni hér
heima á síðustu árum. Hann lék
með Tindastól tvö fyrstu keppn-
istímabilin en gekk í raðir Skalla-
grímsmanna fyrir síðustu leiktíð.
Hann hefur skorað 23,6 stig, tekið
6,8 fráköst og gefið 4,9 stoðsend-
ingar að meðaltali í leik þau þrjú
keppnistímabil sem hann hefur
leikið hér á landi. Pétur Ingvars-
son, þjálfari Hamars/Selfoss, var
að vonum ánægður með að fá
Cook til liðsins. „Okkur veitir svo
sannarlega ekki af liðsstyrk enda
höfum við misst nánast allt byrj-
unarliðið frá því í fyrra. Við ætl-
umst til mikils af Cook og búumst
reyndar við miklu, hann hefur
sýnt að hann getur margt og mik-
ið í þessari íþrótt,“ sagði Pétur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Pétur reiknar með því að fá
annan útlending til liðsins. „Eins
og staðan er núna er því miður
fátt um fína drætti hjá okkur og
við þurfum meiri liðsstyrk og er-
um á höttunum eftir öðrum út-
lendingi.“ Pétur segist reikna fast-
lega með því að hann hafi lagt
skóna á hilluna en útilokar þó
ekkert. „Ég hleyp undir bagga ef
þess er þörf.“
Clifton Cook semur
við Hamar/Selfoss
ENSKA 1. deildar liðið Derby County er væntanlegt í stutta æf-
ingabúðavist hér á landi í næstu viku. Félagið sem var skammt frá því
að endurheimta sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni í vor mætir ÍA í æf-
ingaleik á þriðjudaginn á Akranesvelli kl. 19.
Derby kemur í þessa æfingaferð fyrir tilstuðlan ÍT ferða, Iceland
Express og Park Inn Hótel. Heimsóknin er liður í undirbúningi Derby
County fyrir keppnistímabilið í Englandi sem hefst í ágúst. Nýr knatt-
spyrnustjóri félagsins er Phil Brown sem undanfarin ár hefur verið
aðstoðarknattspyrnustjóri Bolton Wanderers.
Hörður Hilmarsson hjá ÍT ferðum vonar að þessi heimsókn verði
kveikjan að því að ensk lið fari að venja komur sínar til Íslands í æf-
inga- og undirbúningsferðir fyrir keppnistímabilið í Englandi. Ensk
félög hafa sótt talsvert til Noregs og Svíþjóðar undanfarin ár, en
hingað til ekki komið til Íslands í þessum erindagjörðum.
Derby mætir ÍA í æfingaleik
KVENNALIÐI Grindavíkur í
körfubolta hefur borist mikill liðs-
styrkur en ein besta körfuknatt-
leikskona landsins, bakvörðurinn
Hildur Sigurðardóttir, hefur
ákveðið að ganga til liðs við félagið.
Hildur, sem er 24 ára gömul, gerði
eins árs samning við Grindavík en
hún lék með sænska liðinu Jamt-
land í fyrra. Hún hefur allan sinn
meistaraflokksferil leikið með KR,
fyrir utan eitt tímabil með ÍR, en
Hildur er uppalin í Stykkishólmi.
Hún á að baki 44 landsleiki og er í
dag einn af burðarásum landsliðs-
ins.
„Mér leist strax vel á að ganga til
liðs við Grindvíkinga því það er
hugur í fólki þar á bæ,“ sagði Hild-
ur í samtali við Morgunblaðið,
spurð hvers vegna Grindavík hefði
orðið fyrir valinu. Hún segir mark-
ið sett hátt á komandi tímabili.
„Það er ætlunin að berjast um stóru
titlana og mig hlakkar mjög til.“
Unndór Sigurðsson tók nýverið
við þjálfun Grindavíkurliðsins og
var hann að vonum ánægður með
að fá Hildi í sínar raðir. „Hún var
efst á óskalistanum og það er virki-
legt gleðiefni að hafa fengið hana
til liðs við okkur enda er hún einn
albesti leikmaður landsins.“ Hann
segir að ekki séu öll leikmannamál
frágengin enn. „Við erum að leita
að erlendum leikmanni en það er
hins vegar alveg ljóst að við ætlum
að vera í slagnum um titlana á
næsta tímabili,“ sagði Unndór Sig-
urðsson.
Hildur með Grindavík
FÓLK
KNATTSPYRNULIÐ Keflvík-
inga hefur gert nýjan þriggja ára
samning við Ingva Rafn Guð-
mundsson. Ingvi er 21 árs gamall
og uppalin hjá Keflavík og á að
baki leiki með ungmennalandsliðum
Íslands. Ingvi fótbrotnaði í upphafi
leiktíðar í leik gegn ÍBV og leikur
því ekkert meira með á þessu
sumri.
MEIRA af Keflavík. Kvennalið
félagsins hefur fengið til liðs við sig
markvörðinn Steindóru Sigríði
Steinsdóttur, en hún lék síðast með
liðinu fyrir fimm árum. Steindóra á
að baki sex A-landsleiki og fjóra
U-21 leiki.
ÞÝSKA handknattleiksliðið
Magdeburg sem Alfreð Gíslason
þjálfar gerði í gær eins árs samning
við þýska landsliðslínumanninn Oli-
ver Roggisch. Hann hefur undan-
farin þrjú ár leikið með Essen en
stóð uppi samningslaust eftir félag-
inu var synjað um keppnisleyfi á
dögunum. Það er því ljóst að Sigfús
Sigurðsson fær aukna samkeppni
hjá Magdeburg á næsta keppnis-
tímabili.
SÆNSKI kylfingurinn Fredrik
Jacobson og Þjóðverjinn Bernard
Langer hafa verið kallaðir til og
munu báðir taka þátt í Opna breska
meistaramótinu sem hefst á morgun.
Langer kemur inn fyrir Shingo
Katayama frá Japan, sem getur ekki
verið með vegna meiðsla, og Jacob-
son fyrir hinn 51 árs gamla Jay Haas
frá Bandaríkjunum.
Fyrstur á biðlistanum eftir þessar
hrókeringar er Brian Davis frá Eng-
landi en landi hans, Greg Owen,
hefði átt að taka sæti Katayama.
Owen fyrirgerði hins vegar rétti sín-
um til að keppa á mótinu með því að
taka ekki þátt í úrtökumóti sem fram
fór í Bandaríkjunum fyrir hálfum
mánuði. Owen vissi ekki að hann
þyrfti að keppa þar til að halda sæti
sínu á biðlistanum og var dæmdur
frá keppninni. Samkvæmt reglum
keppninnar á sá sem er efstur á
heimslistanum, og ekki er þegar með
keppnisrétt, að taka sæti sem losnar,
að því gefnu að viðkomandi kylfingur
hafi tekið þátt í úrtökumóti. Þannig
tók Bob Tway sæti Billy Mayfair í
síðustu viku þrátt fyrir að Owen, Jeff
Maggert og Arron Pberholser væru
ofar en hann á listanum.
Owen er allt annað en sáttur með
þessa niðurstöðu. „Þeir sitja og ræða
málin yfir portvínsglasi og síðan láta
þeir eins og þetta séu lög. Við erum
atvinnumenn sem reynum að lifa af
íþróttinni og svo verðum við að
treysta á ákvarðanir fólks sem er
ekki í stakk búið til að taka ákvarð-
anir,“ sagði Owen.
Þetta verður í 27. sinn sem Langer
tekur þátt í Opna breska mótinu.
Hann hefur tvívegis sigrað þar, árið
1985 og aftur 1993, og tvisvar hefur
hann lent í öðru sæti, 1984 þegar
Seve Ballesteros vann og líka 1981.
Þrisvar hefur kappinn verið í þriðja
sæti eða jafn öðrum í því sæti þannig
að hann hefur komið nokkuð við sögu
mótsins.
Jacobson
og Langer
kallaðir til
ölnir
egar
-bik-
hófst
ðum
kom
eftir
fnaði
fékk
nett-
arki
urðu
lkur
éldu
ættu-
skey
r um
inn
alds-
eist-
m og
bolt-
yndi-
sóknum þegar færi gafst. Blika-
stúlkur gerðust ágengari upp við
mark gestanna eftir því sem leið á
hálfleikinn og á 64. mínútu brast
varnarstífla Keflavíkur þegar
Greta Mjöll skoraði annað mark
sitt eftir ágætan samleik sóknar-
manna Blika. Greta Mjöll innsigl-
aði svo sigur Breiðabliks korteri
fyrir leikslok þegar hún, eftir góða
sendingu frá Tesiu Kozlowski,
skoraði þriðja mark sitt og tryggði
um leið sæti Breiðabliks í undan-
úrslitum bikarkeppninnar.
Greta Mjöll og Casay McClau-
skey áttu góðan leik fyrir Breiða-
blik en í liði gestanna áttu þær
Ólöf Helga og Nína Ósk Krist-
insdóttir prýðilegan dag.
Lið Breiðabliks var heilt yfir
sterkari aðilinn í þessum leik. Hins
vegar voru Keflavíkurstúlkur til
alls líklegar fyrstu 60 mínúturnar
og skyndisóknir þeirra gáfu varn-
armönnum Breiðabliks lítinn frið.
Morgunblaðið/ÞÖK
óttir í baráttu við markahrókinn Gretu Mjöll Samúelsdóttur í leiknum á
mikinn og skoraði þrennu og tryggði Breiðabliki sæti í undanúrslitum.
Mjöll skaut
um áfram
abliki í undanúrslit VISA-bikarkeppn-
örk Blikastúlkna þegar þær unnu sann-
i, 3:1. Í Garðabæ sló KR lið Stjörnunnar
unnu sigur með þremur mörkum gegn
Fjölnis sér lítið fyrir og sló úrvalsdeild-
lga Franklínsdóttir skoraði tvö mark-
alsdeildar í pottinum þegar dregið verð-
al, Breiðabliki og KR úr efstu deild.
ÍÞRÓTTIR
JOHAN Boskamp, knatt-
spyrnustjóri Stoke, gerir nú allt
sem hann getur til að fá belgíska
landsliðsmaninn Carel Hoefkens
hjá Germinal (GBA) til Stoke að
því er fram kemur í Het Laatste
Nieuws í gær. Hoefkens, sem er
26 ára, skoðaði aðstæður nú um
helgina og leist honum mjög vel
á allt sem hann sá hjá Stoke City.
„Ég er búinn að gera upp hug
minn. Ég vil fara til Englands og
er mjög ánægður með tveggja
ára samninginn sem mér var
boðinn. Nú er bara að vona að
GBA leyfi mér að fara frá félag-
inu til Stoke,“ er haft eftir Hoef-
kens í gær.
Forráðamen GBA eru ekki á
því að láta hann fara fyrir minna
en sem nemur um 90 milljónum
íslenskra króna þar sem samn-
ingur hans við félagið rennur
ekki út fyrr en 2007.
Stoke á eftir Hoefkens