Morgunblaðið - 15.07.2005, Síða 3

Morgunblaðið - 15.07.2005, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2005 C 3 ÍÞRÓTTIR SIR Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri Manchester United, vill að varnarmaðurinn Rio Ferdin- and skrifi sem fyrst undir nýjan samning við félagið. „Ég vil ganga frá þessu máli því það er farið að hafa neikvæð áhrif á undirbúnings- tímabilið hjá okkur. Það er óþol- andi að hafa þetta hangandi yfir og þá eru allar vangaveltur um fram- tíð hans félaginu ekki til hagsbóta. Við erum búnir að bjóða honum frá- bæran samning og ég vona að hann skrifi undir sem fyrst,“ sagði Sir Alex Ferguson. Ferdinand var keyptur frá Leeds árið 2002 og kostaði hann 29 milljónir punda, að jafnvirði þrjá og hálfan milljarð króna. Skrifi hinn 27 ára gamli Ferdinand undir samninginn mun hann fá eitt hundrað þúsund pund í vikulaun, að jafnvirði tólf milljónir króna. Hins vegar er talið að hann vilji fá hundrað og tuttugu þúsund pund í vikulaun og að á því strandi málið. Stuðningsmenn Manchester United eru allt annað en ánægðir með kröfur Ferdinands. Ferguson vill að Ferdin- and skrifi undir sem fyrst Leikur Fjölnis og Víkings fór fjör-lega af stað því strax á annarri mínútu fékk Atli Guðnason, sóknar- maður Fjölnis upplagt færi eftir að hann stal boltanum af varnarmanni gestanna en máttlaust skot hans var auðvelt varnar fyrir Ingvar Kale í marki Víkings. Eftir því sem leið á leikinn róaðist hann niður og mikið var um miðjuþóf og kýlingar. Á 25. mínútu skoruðu gestirnir eftir aukaspyrnu Rannvers Sigurjónssonar frá hægra vítateigs- horni. Hann gaf inn í teig þar sem Höskuldur Eiríksson stökk hæst allra og stangaði boltann í netið. Fjölnismenn voru klaufar að jafna ekki leikinn á 37. mínútu þegar Tóm- as Leifsson fékk sannkallað dauða- færi þegar boltinn barst til hans á markteig. Tómas þurfti ekki annað en að leggja boltann framhjá Ingvari en skaut hins vegar máttlitlu skoti beint í fang hans. Síðari hálfleikur var tíðindalítill ef frá eru talin mörkin tvö sem skoruð voru. Víkingar stjórnuðu leiknum en náðu ekki að skapa sér nægilega góð færi. Það kom í bakið á þeim á 72. mínútu þegar Fjölnismenn jöfnuðu leikinn eftir hornspyrnu. Gunnar Már Guðmundsson skallaði þá í netið af stuttu færi. Gestirnir hresstust við markið og blésu til sóknar, varnir Fjölnis brustu loks þegar ein mínúta var til leiksloka. Andri Steinn Birg- isson átti góða sendingu inn í vítateig Fjölnis af vinstri kantinum á 89. mín- útu. Boltinn barst út til hægri og Davíð Þór Rúnarsson gaf lága send- ingu fyrir markið, knötturinn hafn- aði beint fyrir fótum Jóns Guð- brandssonar sem var fljótur að átta sig og lagði hann örugglega í netið og tryggði Víkingum öll stigin þrjú. Einum færri höfðu Blikar betur Í fyrri hálfleik var jafnræði með liðunum og þau léku bæði nokkuð varfærnislega. Á 41. mínútu fengu Blikar dæmda vítaspyrnu eftir að Kristján Ómar Björnsson, leikmaður Hauka, togaði Hans Hansen niður innan vítateigs. Markvörður Hauka, Amir Mehica, gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði glæsilega ágæt- lega tekna vítaspyrnu Olgeirs Sig- urgeirssonar. Staðan var því marka- laus í hálfleik og var það sanngjarnt. Breiðablik byrjaði síðan síðari hálf- leikinn af talsverðum krafti en varð fyrir áfalli eftir aðeins tveggja mín- útna leik. Þá fékk Ágúst Ásgeirsson að líta gula spjaldið fyrir leikara- skap, en hann virtist vera felldur innan vítateigs. Hann var ósáttur með dóminn og lét Kristinn Jakobs- son heyra það sem gaf honum um- svifalaust annað gult spjald og vísaði honum vinsamlegast af leikvelli. Einum færri tók það Blika nokk- urn tíma að komast aftur inn í leikinn en þessi liðsmunur var ekki að nýt- ast heimamönnum vel. Það má síðan segja að það hafi verið kaldhæðni ör- laganna að loksins þegar Haukar virtust ætla að ná að nýta sér liðs- muninn, þegar um stundarfjórðung- ur var eftir af leiknum, gerðu gest- irnir sigurmark leiksins. Haukar sóttu stíft og fengu nokkrar horn- spyrnur i röð og mark þeirra virtist liggja í loftinu. En þeir gleymdu sér allsvakalega í vörninni og það nýttu Blikar sér til fullnustu. Þeir náðu boltanum upp við eigin vítateig, og ein einföld en glæsileg stungusend- ing þaðan opnaði vörn Haukanna upp á gátt og Guðmann Þórisson komst einn á móti markverði, var yf- irvegunin holdi klædd, lék á Mehica, renndi knettinum í autt marknetið og tryggði Blikum sigurinn. Dýrmætur sigur hjá Víkingum VÍKINGUR í Reykjavík gefur ekkert eftir í toppbaráttunni í 1. deild karla í knattspyrnu en í gærkvöldi sótti liðið Fjölni heim í Grafarvog og vann mikilvægan sigur 2:1. Víkingur er í öðru sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir Breiðabliki sem lagði Hauka að velli á Ásvöllum 1:0. Þá unnu KA-menn sigur á Völsungi á Húsavík, 1:0, í síðasta leik Þorvaldar Örlygssonar sem þjálfara KA. Eftir Andra Karl og Svan Má Snorrason andri@mbl.is, svanur@mbl.is stöng. Besta færi hálfleiksins fékk hins vegar fyrrverandi leikmaður ÍBV, Allan Mörköre þegar hann slapp í gegn eftir varnarmistök ÍBV en Birkir varði meist- aralega frá honum. Fleiri urðu mörkin ekki og Eyjamenn gengu vonsviknir af velli. Leikmenn ÍBV geta svo sannarlega nag- að sig í handarbökin að hafa ekki náð hag- stæðari úrslitum í gærkvöldi. Færeyska liðið spilaði reyndar ágætlega og leikmenn liðsins voru skipulagði og fastir fyrir. Hins vegar eiga Eyjamenn að vera með mun betra lið en það var eins og leikmenn liðsins hefðu ekki áhuga á að komast áfram í Evr- ópukeppninni. Nú dugir þeim ekkert minna en að skora mark á útivelli auk þess að halda hreinu í síðari leiknum, nokkuð sem hefur ekki verið sterkasta hlið ÍBV í sumar enda aðeins skorað eitt mark á úti- velli í Landsbankadeildinni en fengið á sig fjórtán. Arfaslakt hjá okkur Birkir Kristinsson og Pétur Runólfsson voru þeir einu sem sýndu sitt rétta andlit í daufu Eyjaliði. Birkir var afar ósáttur við spilamennskuna. „Fyrirfram hefði maður verið afar ósáttur við þessi úrslit en úr því sem komið var þá áttum við ekkert meira skilið. Það kom ágætur kafli hjá okkur í fyrri hálfleik en síðan ekki sögunni meir. Seinni hálfleikur var arfaslakur hjá okkur og ég veit ekki hvað var eiginlega að. Menn hljóta að vera svona þreyttir eftir þessa leiki í deildinni en samt sem áður var þetta arfaslakt hjá okkur. Við vitum að við getum betur og eigum að geta unnið þetta lið hér á heimavelli. Núna erum við búnir að setja okkur í mjög erfiða stöðu, þurfum helst að sækja sigur og nú þurfum við bara að hysja upp um okkur buxurnar og fara að spila fótbolta á útivelli. Við verðum bara að byrja í Keflavík á mánudaginn og fylgja því svo eftir í Færeyjum,“ sagði Birkir. Ánægðir en heill leikur eftir Pól Thorsteinsson, fyrirliði B-36 var ánægður í leikslok. „Við komum hingað til að ná í hagstæð úrslit og við erum ánægðir. Mér fannst við miklu betri fyrstu fimmtán mínút- urnar og þeir voru heppnir með jöfn- unarmarkið. Boltinn fór þá í okkar mann og skaust inn fyrir, beint á sóknarmann þeirra sem var í góðu færi. Við erum auðvitað ánægðir með jafntefli hér en gerum okkur grein fyrir að það er heill leikur eftir. En ef við fáum okkar stuðningsmenn á völl- inn þá er allt hægt. Það væri gaman að komast áfram en við þurfum að gleyma þessum leik núna og búa okk- ur undir þann næsta. Morgunblaðið/Sigfús r í baráttu við einn sóknarmanna B-36 frá Færeyjum. enn í slæmri u eftir jafn- á heimavelli Eyjum í gærkvöldi í UEFA-bikarnum, 1-1 ð á óvart. Reyndar eru Færeyingarnir í enn eru í botnbaráttu Landsbanka- steinsvellinum að Eyjamenn eiga að enn einn af sínum verri leikjum í sumar ÍRIS Anna Skúladóttir, Fjölni, komst í úrslit í 1.500 m hlaupi á heimsmeistaramóti unglinga 17 ára og yngri í Marrakech í Marokkó í fyrrakvöld. Íris Anna hljóp á 4.32,89 mín. og bætti sinn fyrri ár- angur um 5/100 úr sek. Íris varð áttunda í mark í fyrri riðli og með 12. besta tíma af þeim 26 stúlkum sem kepptu, en tólf stúlkur keppa til úrslita síðdegis í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur keppandi kemst í úrslit á heimsmeistaramóti 17 ára og yngri, en mótið er geysi- lega sterkt. Þess ber að geta að Íris Anna er með yngri keppendum því hún er á 16. ári og það gerir árang- ur hennar enn athyglisverðari. Sveinn Elías Elíasson, Fjölni, hafnaði í 17. sæti af 32 keppendum í áttþraut sem lauk í gærkvöld. Sveinn hlaut 5.663 stig og bætti sinn fyrri árangur um 182 stig og setti um leið Íslandsmet sveina. Þorsteinn Ingvarsson, úr HSÞ, varð í átjándi sæti af 42 keppendum í undankeppni langstökks á mótinu í gær. Þorsteinn stökk 6,94 metra en hann á best 7,38. Til þess að komast í úrslit tólf þeirra bestu þurfti að stökkva a.m.k. 7,05 metra. Þorsteinn tekur þátt í undankeppni þrístökks í dag. Ragnheiður Anna Þórsdóttir, FH, kastaði kringlunni 36,91 metra og var um fjóra metra frá sínu besta. Hún hafnaði í 31. sæti af 33 keppendum. Íris Anna komst í úrslit á heimsmeistaramótinu Morgunblaðið/Eggert Íris Anna Skúladóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.