Morgunblaðið - 15.07.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.07.2005, Qupperneq 4
ÓLÖF María Jónsdóttir, kylf- ingur úr Keili, byrjaði ekki vel í gær á fyrsta hring í móti á Evrópumótaröðinni en leikið er í Ungverjalandi. Ólöf María lék á þremur höggum yfir pari, fékk átta pör, fjóra fugla, fimm skolla, sem er eitt högg yfir pari og eina holuna lék hún á skramba, tveimur höggum yf- ir pari. Erfiðlega gekk að ljúka leik í Ungverjalandi vegna þrumuveðurs og gátu ekki allir lokið fyrsta hring. Ólöf María virðist vera í 80. til 93. sæti af þeim 126 stúlk- um sem keppa á mótinu. Bestar í gær voru ensku stúlkurnar Liza Walters og Samantha Head en þær léku báðar á fimm höggum undir pari. Ítalska stúlkan Barbara Paruscio náði að ljúka tólf holum og var á fjórum undir pari þannig að hún gæti bætt um betur. Ólöf María byrjar illa  ÞRÍR leikmenn Landsbankadeild- ar karla voru úrskurðaðir í leikbann á fundi Aganefndar KSÍ á þriðjudag. KR-ingurinn Bjarnólfur Lárusson fær eins leiks bann vegna brottvís- unar í leik gegn ÍA í 9. umferð og Grindvíkingurinn Óli Stefán Flóv- entsson og Hjörtur Júlíus Hjartar- son, ÍA, fá einnig eins leiks bann en fyrir fjórar áminningar.  ÞÁ voru tveir leikmenn í Lands- bankadeild kvenna úrskurðaðir í eins leiks bann, Pála Marie Einars- dóttir, Val, fyrir brottvísun og Jóna Sigríður Jónsdóttir, Stjörnunni, fyr- ir fjórar áminningar.  GEIR Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, var eftirlitsmað- ur á Anfield Road, heimavelli Liver- pool, í fyrrakvöld þegar liðið tók á móti Total Network Solutions í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.  SAMI Hyypia, hinum finnska varnarmanni Liverpool, verður boð- inn nýr samningur við félagið. Nokk- ur óvissa hefur verið um framtíð Finnans á Anfield en nú er ljóst að hann verður þar áfram.  KIERON Dyer, miðvallarleikmað- ur Newcastle, hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við fé- lagið. Dyer sem er 26 ára hefur leikið 189 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 28 mörk síðan hann var keypt- ur frá Ipswich árið 1999.  GRAEME Souness, knattspyrnu- stjóri Newcastle, hefur endurnýjað áhuga sinn á því að fá framherja Ful- ham, Luis Boa Morte, í raðir leik- manna Newcastle.  FREDDY Shepherd, stjórnarfor- maður Newcastle, segir að Souness verði að ná árangri með liðið á næstu leiktíð. Hann hafi ekki þolinmæði til þess að bíða lengur eftir árangri.  SIR Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, leitar nú að reyndum og sterkum leikmanni fyrir næstu leiktíð. Leikmanninum er ætlað að vera Roy Kenae til halds og trausts og fylla skarð Nicky Butt og Eric Djemba-Djemba sem báðir hafa róið á önnur mið.  GERARD Houllier, knattspyrnu- stjóri Lyon, hefur gefið sterklega í skyn að Michael Essien gangi til liðs við Chelsea á næsta sumri, en for- ráðamenn Chelsea hafa reynt hvað þeir geta til þess að fá hinn sterka miðvallarleikmann til Lundúna í sumar. FÓLK BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylf- ingur úr GKG, fór heldur betur í gang á síðari níu holunum á öðr- um hring á móti á Ítalíu. Hann lék hringinn á tveimur höggum undir pari eftir að hafa verið þremur höggum yfir pari eftir fyrri níu holurnar. Samtals er hann því á þremur höggum und- ir pari vallarins við Gardavatnið og í 32.–40. sæti en 70 kylfingar komust áfram til að leika tvo síðari hringina, eða allir þeir sem léku undir pari. Sannarlega glæsilegt skor hjá kylfingunum á þessu áskorendamóti. Birgir Leifur var á einu höggi undir pari eftir fyrstu fjórar holurnar, en lék fimmtu holuna, sem er par fimm, á átta höggum og þá næstu á skolla þannig að þá var hann komin þrjú högg yf- ir par. Hann fékk par á næstu þrjár og var því þrjú högg yfir pari eftir fyrri níu og útlitið með að komast áfram alls ekki bjart þar sem hann lék fyrsta hringinn á einu höggi undir pari. En þá hrökk piltur heldur bet- ur í gang, fékk þrjá fugla í röð og var kominn á parið. Hann paraði 13. holuna, fékk skolla á þá næstu en síðan þrjá fugla í röð öðru sinni á síðari níu hol- unum og lauk leik á síðustu hol- unni með pari. Benn Barham frá Englandi er með forystu á tíu höggum undir pari, lék báða hringina á 67 höggum. Finninn Toni Karjalainen er næstur á níu undir ásamt þeim Michael Hoey frá Norður-Írlandi og Fredrik Widmark frá Svíþjóð sem var með forystu eftir fyrsta dag á 65 höggum en hann lék á 70 högg- um í gær eins og Birgir Leifur. Veður var gott á St. Andrews ígær, rigndi reyndar aðeins und- ir lokin, en það kom ekki að sök. Woods lék einstaklega vel og þegar hann lenti í vandræðum tókst honum jafnan að bjarga sér vel úr þeim. Þeg- ar hann sigraði á mótinu árið 2000 lék hann fyrsta hringinn á 67 höggum og hélt forystu til enda og sigraði með miklum yfirburðum. Þá lék hann fjóra hringi án þess að lenda í sand- glompu en í gær fann hann loksins sandinn á St. Andrews, og það meira að segja þrisvar. „Þetta er mjög góð byrjun á móti hjá mér og ég er mjög ánægður með hvernig ég lék,“ sagði Woods. Hann getur líka verið ánægður því kappinn fékk sjö fugla á níu holum og fékk að- eins tvo skolla, en það gerðist þegar hann lenti í sandglompum. Þær eru svo litlar sumar hverjar að ef menn lenda þar er ekkert annað að gera en vippa upp úr þeim og oftar en ekki geta menn ekki slegið í þá átt sm þeir helst kjósa heldur verða jafnvel að slá til baka, eða slá nett högg í glomp- unni til að geta síðan slegið upp úr henni. „Ég er ánægður með hvernig ég hef leikið á risamótunum til þessa og ef mér tekst að halda fyrsta sætinu yrði það frábært,“ sagði Woods. Kylfingar léku vel í gær og fjörutíu þeirra luku leik undir pari enda lengst af svo gott sem logn. Um miðj- an dag vindaði aðeins en ekkert sem kylfingarnir létu á sig fá. Woods hóf leik snemma í gær og setti því við- miðið fyrir aðra og í eftirmiðdaginn reyndu fremstu kylfingar heims, Ernie Els, Vijay Singh, Phil Mickels- son og Sergio Garcia, svo nokkrir séu nefndir, stefnuna á að ná kappanum. Það tókst ekki, sumir komust nærri því en aðrir urðu að láta sér lynda að komast ekki nærri toppnum. Garcia, sem bíður enn eftir að sigra á risamóti, komst um tíma fimm und- ir par þegar hann fékk fugl á tveimur holum í röð, 11. og 12., en síðan hall- aði aðeins undan fæti hjá honum. Els og Mickelson gekk illa og Els fékk til dæmis þrjá skolla í röð, en það er hlutur sem gerist ekki á hverj- um degi hjá þeim snjalla kylfingi. Mickelson var lengi vel einu höggi undir pari en fimmtándu holuna lék hann á þremur yfir pari. Sjaldgæf tala á þeim bænum. Steven nokkur Webster, sem leik- ur á evrópsku mótaröðinni, lék vel framan af gærdeginum. Hann fékk tvo erni á fyrri níu holunum og lék þær á 30 höggum. Hann lenti síðan í vandræðum og náði ekki að halda það út. Retief Goosen er einn fjölmargra sem léku á 68 höggum í gær, en hann hefur tvívegis sigrað á Opna banda- ríska mótinu. Hann lék hræðilega síðasta daginn á Pinhurst fyrir þrem- ur vikum en sagðist vera búinn að gleyma því. „Pinehurst er gleymdur og grafinn. Ég hugsaði ekkert um hann í dag,“ sagði Goosen. Nicklaus gekk illa Jack Nicklaus gekk ekki vel í gær, hann sló reyndar ágætlega en skoraði illa og lauk leik á 75 höggum sem þýð- ir væntanlega að hann kemst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir daginn í dag nema hann bæti sig um ein sjö högg. „Ég hefði nú miklu meiri ánægju af því að labba yfir brúna á sunnudaginn frekar en föstudaginn,“ sagði Nicklaus þegar hann kom inn í gær. Reuters Tiger Woods lék vel á St. Andrews í gær og það gerðu reyndar margir aðrir kylfingar, en hann er með eins höggs forystu. Woods byrjar vel TIGER Woods tók forystu á fyrsta degi Opna breska meistaramótsins í golfi sem hófst í gær á gamla vellinum á St. Andrews. Woods lék á 66 höggum eða sex höggum undir pari vallarins. Mark Hensby frá Ástralíu er höggi á eftir og síðan koma tíu kylfingar höggi þar á eftir. Birgir Leifur fór í gang í lokin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.