Morgunblaðið - 27.07.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.07.2005, Blaðsíða 1
2005  MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÞRJÚ STIG TIL SKAGAMANNA Í GRINDAVÍK / C2 UNGLINGALANDSMÓTIÐ 2006 verður haldið á Laugum í Þingeyjarsýslu og hafa fram- kvæmdaaðilar nú þegar hafið undirbúning. Var á dögunum tekin ný og glæsileg sundlaug í notkun sem mun nýtast á mótinu. Mótið í ár, það áttunda í röðinni, verður í Vík í Mýral um helgina, og þar má búast við tæp- lega 10.000 unglingum og foreldrum við leik og keppni í þrjá daga. Á setningu mótsins í Vík í Mýrdal á föstu- dagskvöldið mun Björn Bjarndal Jónsson, for- maður UMFÍ, tilkynna hvar Unglingalands- mótið 2007 verður haldið. Mjög mikil spenna er um það hvar mótið verður haldið en þrír aðilar berjast um að halda það. Þetta eru Þorláks- höfn, framkvæmdaaðili HSK, Hornafjörður, framkvæmdaaðili USÓ, og Blönduós þar sem framkvæmdaaðili er USAH. Laugar næst en hvað svo? BJARNI Þór Viðarsson, FH-ingur- inn sem er á mála hjá enska úrvals- deildarliðinu Everton, var valinn besti leikmaðurinn á alþjóðlega knattspyrnumótinu í Svíþjóð sem lauk á laugardaginn. Þar léku ung- lingalandslið Íslands, Svíþjóðar, Noregs og Tyrklands en liðin voru skipuð leikmönnum á yngra ári, fæddum 1988. Frammistaða íslenska liðsins vakti mikla athygli en það vann Tyrki 3:1 og Svía 4:1 áður en það beið lægri hlut fyrir Norðmönnum, 1:2, í leik sem réð úrslitum. Íslenska liðinu dugði jafntefli í þeim leik og var lengi vel yfir en Norðmenn náðu að knýja fram sigur og hirða efsta sætið. Bjarni Þór var fyrirliði íslenska liðsins á mótinu og lék stórt hlutverk á miðjunni í öllum leikjum þess. Bjarni bestur í Svíþjóð JAKOB Jóhann Sveinsson, sund- kappi úr Ægi, var nálægt sínum besta árangri þegar hann keppti í 50 metra bringusundi á heims- meistaramótinu í Montreal í Kan- ada í gær. Jakob Jóhann kom í mark á 28,92 sekúndum sem er 6/100 úr sekúndu frá hans besta tíma. Það dugði honum hins vegar skammt því hann hafnaði í áttunda og síð- asta sæti riðils síns og í 33. sæti af 97 keppendum sem þátt tóku í greininni. Synda þurfti á 28,10 sekúndum til að komast áfram en sextán fyrstu keppendurnir kom- ast í úrslit. Árangur Jakobs Jóhanns verð- ur að teljast góður miðað við að hann hefur lent í skakkaföllum í ferðinni og tognaði meðal annars illa í nára en synti þó. Jakob nálægt sínu besta HÉR á myndinni má sjá Örn Arn- arson sundkappa, næstfjærst, hefja keppni í 100 m baksundi á heims- meistaramótinu í Montreal. Örn náði sér ekki á strik og varð að sætta sig við 33. sæti af 74 kepp- endum á 57,43 sek. Örn er eini íslenski keppandinn sem verður í sviðsljósinu í dag, en þá keppir hann í 100 m skriðsundi. AP Örn á ferðinni í Montreal Páll Ólafsson, þjálfari karlaliðsHauka, var ánægður með dráttinn. „Það er alveg hægt að segja að þetta hafi verið drauma- dráttur. Án þess að ég vilji vera of sigurviss þá tel ég að við eigum að fara nokkuð örugglega áfram enda er handboltinn hér á landi mun hærra skrifaður en í Lúxemborg. Við munum samt að sjálfsögðu ekki vanmeta þá en ég held þó að við hefðum ekki getað verið miklu heppnari.“ Páll reiknar með að báð- ir leikirnir fari fram í öðru hvoru landinu. „Það er oft svo, þegar reiknað er með því að styrkleika- munur liða sé talsvert mikill, að reynt er að semja um að spila báða leikina í öðru landinu og ég á von á að sú verði raunin,“ sagði Páll Ólafsson, þjálfari Hauka. Takist Haukum að slá út lið H.C. Berchem fara þeir í riðlakeppni Meistara- deildarinnar. Íslandsmeistarar Hauka fara til Lúx- emborgar í Evrópukeppni meistaraliða „Drauma- dráttur“ ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í handknattleik karla mæta H.C. Berchem frá Lúxemborg í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Karla- lið Vals dróst á móti HC Tbilisi frá Georgíu í fyrstu umferð Evr- ópukeppni félagsliða, EHF-keppninni. Íslandsmeistarar Hauka í kvennaflokki drógust gegn ítalska liðinu Pelplast Handball Salerno í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða. Fyrri leikir liðanna fara fram 3. eða 4. september og seinni leikirnir viku síðar. Stjörnu- stúlkur drógust á móti tyrkneska liðinu Anadolu University S.C. í annarri umferð Evrópukeppni bikarhafa. Fyrri leikurinn fer fram 1. eða 2. október og sá seinni viku síðar. Eftir Svan Má Snorrason svanur@mbl.is ■ Við seljum ekki .../C3 ÞÓREY Edda Elísdóttir varð í gærkvöldi í 5. til 7. sæti í stang- arsökki á móti í Svíþjóð. Hún fór yfir 4,25 metra í fyrstu tilraun en felldi síðan 4,45 metra þrívegis. Yelena Isinbayeva hafði nokkra yfirburði, fór yfir 4,79 í annarri tilraun og lét þá hækka rána í 5,01 metra – freistaði þess að setja enn eitt heimsmetið – en felldi þrisvar. Hún hóf ekki keppni fyrr en ráin var komin upp í 4,72 og sveif léttilega yfir hana í fyrstu tilraun og síðan 4,79.Anna Rogowska varð önnur með 4,65 metra eins og Monika Pyrek sem varð þriðja og Tatiana Polnova fjórða með 4,45 metra. Jafnar Þórey Eddu urðu þær Kristen Belin og Anzhela Balakhonova Þórey Edda stökk 4,25

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.