Morgunblaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 B 11 bílar NISSAN PATROL ELEGANS ÁRGERÐ 2005 Leðursæti, topplúga, sjálfskiptur, ekinn 5 þ. km, 2 stk. loftdælur, aukatankur, læstur fr/aftan, 16” breiðar felgur, kastarar, öll tengi fyrir fjarskiptabúnað, tengdamömmubox, álkassi á hlera, FULLBREYTTUR 44” GLÆSILEGUR FJALLABÍLL. VERÐ 6.700.000. SKIPTI ATHUGANDI Á ÓDÝRARI. Við seljum bílana Á ttunda brautin á Blönduósi hefur haft yfir sér ákveðinn ljóma og verið nánast ófær. Brautin endar jafnan í þverhníptu stáli og hefur einungis tveimur ökumönnum tekist að keyra þar upp í gegnum tíðina en margir oltið niður og stórskemmt keppnistæki sín. Sigurður Þór Jóns- son á Toshiba-tröllinu afrekaði þetta árið 2003 og Daníel G. Ingi- mundarson á Green Thunder sýndi ótrúlega leikni og lipurð í keppninni í ár þegar honum tókst að sigrast á stálinu ógurlega. „Ég hef alltaf ætlað mér að fara upp þessa braut og það var ekkert annað að gera en að standa Green Thunder í hana. Ég var orðinn svo- lítið stressaður þegar ég var kom- inn upp með afturhjólin og hélt að ég væri að velta aftur yfir mig. Svo að ég gaf honum aðeins inn. Ég held að ég hafi keyrt einhverja metra á afturhjólunum inn barðið og svo datt hann niður að framan,“ sagði Daníel sem fékk tilþrifaverð- laun keppninnar fyrir akstur sinn í 8. brautinni. Vélin var að kafna Gunnar Gunnarsson á Trúðnum sigraði í opnum flokki og í flokki breyttra jeppa. Gunnar hefur keppt í götubílaflokki síðustu árin en færði sig í sérútbúna flokkinn í vor. „Ég er alltaf að læra betur og betur á Trúðinn, en er þó ekki alveg búinn að átta mig fullkomlega á honum ennþá. Þetta voru svo mikl- ar breytingar sem við gerðum á jeppanum fyrir þetta keppnistíma- bil,“ sagði Gunnar eftir keppnina en aðalbreytingarnar fólust í því að setja undir jeppann ausudekk, sem eru miklu gripmeiri en gömlu dekk- in og auka aflið í vélinni. „Vélin er það öflug að ég er nánast hættur að nota nítróið. Ég notaði það einungis í tveimur brautum í dag. Mér gekk ekki sérlega vel í fyrstu tveimur brautunum. Svo áttaði ég mig á því hvernig jarðvegurinn virkaði og hvernig dekkin gripu og þá gekk mér betur, sérstaklega í 4. og 5. brautinni. Trúðurinn var í mjög góðu standi en rykið í blíðviðrinu gerði okkur grikk í dag. Við þurft- um að skipta þrisvar um lofthreins- ara. Vélin var bara að kafna því hana vantaði meira loft,“ sagði Gunnar að lokum en hann þakkaði árangur sinn ekki síst vösku liði að- stoðarmanna sem héldu Trúðnum gangandi út keppnina. Ragnar vann götubílaflokkinn „Það var svo freistandi að ég lét bara vaða í endahlið áttundu braut- arinnar,“ sagði Ragnar Róbertsson á Pizza 67-Willysinum sem sigraði í götubílaflokki. „Ég þurfti þess ekki vegna þess að ég var með það mikla forystu í mínum flokki. Ég náði ekki inn á barðið en bakkaði niður og gat bjargað mér frá veltu,“ sagði Ragn- ar, sem hefði viljað gera miklu bet- ur í keppninni. „Jeppinn dreif bara ekkert hjá mér í fyrstu brautinni, spólaði og sökk niður. Ég veit ekki hvað var í gangi en sennilega hefði ég þurft að aka hraðar.“ Danni komst upp Ragnar Róbertsson sló ekki af Pizza 67 Willysinum og ekur hér í loftinu í tímabrautinni. Það var skemmtileg, jöfn og spennandi keppni á Blönduósi sl. laugardag. Jóhann A. Kristjánsson fylgdist með þegar Akstursíþróttafélag Suðurnesja hélt þar aðra um- ferð Íslandsmeistaramótsins í torfæruakstri, Glaðheimator- færuna, í samvinnu við björg- unarsveitina á staðnum.               !"# $%&                               ' ( ) * + ,  (''+ (-)+ '.+- '(- ',(+ '-, ,--    /!0$%&   ! "   #  $      #    ! ' ( ) '1.+ ',(- '-'-     Ljósmynd/JAK Daníel G. Ingimundarson sýndi frábæran akstur og tókst að aka Green Thunder 8. brautina á enda en einungis tveimur torfæruökumönnum hefur tekist það. Trúðurinn hjá Gunnari Gunnarssyni virkaði vel og sigraði hann í keppninni á Blönduósi eftir harða baráttu og tvísýna við félagana. !   2  $      (--+    !"# $%&                       % &         ' ( ) * + ,  1 (- ', '( 1 + ) ( (    /!0$%&   ! "   #  $   '       !    #    ! ' ( ) * (- ', , ,     jak@ismennt.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.