Morgunblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 4
ÍSLENSKA landsliðið í handknatt-
leik karla mætir Norðmönnum en
ekki Þjóðverjum á handknattleiks-
móti sem það tekur þátt í síðustu
helgina í október nk. Um tíma stóð
til að Þjóð-
verjar tækju
þátt en af því
verður ekki þar
sem þeir eru
gestgjafar svo-
kallaðrar Super
Cup-keppni sem
fram fer sömu
helgina.
Auk Norð-
manna og Ís-
lendinga taka
heimamenn og
Danir þátt í
mótinu. Rétt um
mánuði eftir
mótið í Póllandi
koma Norð-
menn til Íslands
til að spila þrjá vináttuleiki. Sam-
kvæmt vef norska handknattleiks-
sambandsins er gert ráð fyrir að
leikirnir fari fram í Hafnarfirði, í
Vestmannaeyjum og í Reykjavík,
þá væntanlega í Laugardalshöll.
„Það hefur greinileg breyting
orðið með Þjóðverjana. Bogdan
Wenta, landsliðsþjálfari Pólverja,
hafði sagt mér að Þjóðverjar yrðu
með í mótinu í Póllandi,“ sagði
Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari
í handknattleik. „Það er fínt að
mæta Norðmönnum, þeir eru með
hörkusterkt lið um þessar mundir,“
sagði Viggó ennfremur.
Á Super Cup taka fremstu hand-
knattleiksþjóðir þátt en mótið er
haldið annað hvert ár. Að þessu
sinni spreyta sig þar landslið Þjóð-
verja, Króata, Rússa, Svía og
Frakka auk heimsmeistara Spán-
verja.
Ísland
mætir Norð-
mönnum í
Póllandi
Viggó
Sigurðsson
ÍSENSKA
karla-
landsliðið í
borðtennis
er í Kos-
ovo, þar
sem það
tekur þátt í
forkeppni
Evrópu-
keppn-
innar um
helgina
ásamt
landsliðum
Skotlands,
Tyrklands
og Kosovo.
Lands-
liðið er
skipað
þeim Guð-
mundi E.
Stephensen, Sigurði Jónssyni
og Matthíasi Stephensen.
Þess má geta að Guðmund-
ur E. lék með liði sínu, Malmö
FF, á fimmtudagskvöldið, en
þá hófst sænska úrvalsdeildin
í borðtennis.
Malmö FF mætti Mariedals
IK og fögnuðu leikmenn liðs-
ins öruggum sigri, 5:0. Guð-
mundur lék vel og sigraði
Mattias Johansson örugglega
3:0 – 11:9, 11: 4 og 11:4.
Borðtennis-
landsliðið í
EM-leikjum
í Kosovo
Guðmundur E.
Guðmundur Karlsson þjálfari Íslandsmeistar-anna sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að mikill hugur væri hjá sínu liði að komast áfram í
keppninni og til marks um metnað félagsins hefði
það keypt heimaleikinn af St.Otmar.
,,Við vitum nú ekki mjög mikið um þetta lið en
miðað við þær grunnupplýsingar sem ég hef aflað
mér þá sýnist mér þetta vera mjög áþekk lið. Sviss
hefur haft vinninginn á móti Íslandi þegar þjóð-
irnar hafa mæst svo á pappírunum myndi ég telja
lið St.Otmar vera heldur sterkara en okkar. En úr
því að báðir leikirnir fara fram á Ásvöllum þá met
ég þetta einvígi til jafns. Við ætlum okkur hins
vegar að komast áfram og með góðum leikjum er
það raunhæfur möguleiki,“ sagði Guðmundur
Karlsson við Morgunblaðið.
Haukarnir komust áfram í 2. umferðina með því
að slá út ítalska liðið Pelplast Salerno en St.Otmar
tapaði fyrir rúmenska liðinu Silcotub Zalau í 1.
umferð forkeppni Meistaradeildarinnar, saman-
lagt, 64:42, en fékk keppnisrétt í EHF-keppninni.
Haukarnir hafa spilað einn leik í DHL-deildinni
þar sem þeir unnu stórsigur á grönnum sínum í
FH, 36:24. ,,Með leiknum í Meistarakeppninni og
Evrópuleikjunum erum við komin á ágætan skrið.
Stelpurnar eru í góðu formi og þær ætla svo sann-
arlega að selja sig dýrt. Þetta er í fyrsta sinn sem
Haukar eru með í Evrópukeppni í kvennaflokki og
það ríkir mikil eftirvænting í okkar herbúðum fyr-
ir þessum leikjum,“ sagði Guðmundur.
VALSMENN mæta í dag finnsku meist-
urunum í Sjundea í fyrri viðureign liðanna í
2. umferð EHF-keppni karla í handknattleik í
Finnalandi í dag og hefst leikurinn klukkan
17 að staðartíma, 14 að íslenskum.
Sjundea féll úr leik í 1. umferð forkeppni
Meistaradeildarinnar, tapaði í tvígang fyrir
Izvidac Ljubuski frá Bosníu, samanlagt,
68:49, og fékk keppnisrétt í EHF-keppninni.
Valsmenn komust átakalaust í 2. umferðina
eftir tvo stórsigra á HC Tbilisi frá Georgíu
en Valur vann samanlagt með 70 marka mun,
98:28.
„Sterkari en við bjuggumst við“
,,Við erum aðeins búnir að kynna okkur lið
Sjundea. Við höfum séð á spólu úrslitaleik
liðsins í finnsku deildinni í fyrra og þó svo að
liðið hafi misst tvo landsliðsmenn þá er það
nokkuð sterkt, sterkara en við bjuggumst
við. Við rennum samt töluvert blint í sjóinn
en mér sýnist nú á öllu að liðin séu nokkuð
jöfn að getu,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson,
þjálfari Vals, við Morgunblaðið í gær.
Í liði Sjundea eru þrír finnskir landsliðs-
menn og allir leikmennirnir eru heimamenn.
,,Það eru stórir og sterkir strákar í þessu
finnska liði þeirra og mér sýnist þeir vera
talsvert eldri en við. En stefnan er að ná hag-
stæðum úrslitum í Finnlandi og gera síðan út
um einvígið í Laugardalshöllinni eftir viku,“
segir Óskar Bjarni.
Valur mætir
finnska liðinu
Sjundea
Morgunblaðið/Kristinn
Guðbjörg Guðmannsdóttir, hornamaðurinn knái úr Haukum, skorar eitt átta marka
sinna í sigri Hauka á FH á dögunum í leik að Ásvöllum á Íslandsmótinu.
Haukakonur mæta St. Otmar frá Sviss um
helgina í tveimur Evrópuleikjum á Ásvöllum
„Við ætlum
okkur áfram“
KVENNALIÐ Hauka í handknattleik stendur
í ströngu nú um helgina en liðið mætir
svissneska liðinu St.Otmar í tveimur leikj-
um í 2. umferð EHF-keppninnar og fara báð-
ir leikirnir fram á Ásvöllum, sá fyrri í kvöld
klukkan 18.30 og sá síðari klukkan 17 á
morgun. Það verður Evrópustemmning á
Ásvöllum um helgina, þar sem karlalið
Hauka mætir danska liðinu Århus GF þar í
dag í Meistaradeild Evrópu kl. 16.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is