Tíminn - 07.01.1970, Síða 16
Enn vantar einn
erlendan meist-
ara á skákmótið
FB—Reykjavík, þriSjudag.
Afar erfiðlega hefur gengið að
fá erlenda meistara til þátttöku í
alþjóðlega skákmótinu, sem hald
ið verður hér í Reykjavxk dagana
15. janúar til 5. febrúar næst
komandi. Stafar það m. a. af þvi,
að mörg skákmót eru háð um
þetta leyti árs víðs vegar um
heim, en fyrir íslenzka skákmenn
er þetta þó heppilegasti tími árs-
ins. Hafa jafnvel þeir skákmenn,
sem áður höfðu gefið vilyrði fyrir
þátttöku, dregið sig í hlé á síðustu
stundu. Má þar nefna tvo sovézka
stórmeistara og Hollendiuginn
van den Berg.
En nú hafa fengizt tveir Júgó-
slavar, stórmeistarinn Milan Matu
lovic og alþjóðameistarinn D.
Minich, og eftirfarandi alþjóða-
meistarar: Hans-Joachim Hecht,
V.-Þýzkalandi, Theodór Ghitescu,
Rúmeníu og Bruce Amos, Kan-
ada. Alþjóðasambandið hefur nú
viðurkennt Guðmund Sigurjónsson
sem a’.þjóðameistara fyrir þetta
mót, en enn vantar einn erlendan
meistara, en vonir standa til
að úr rætist, þar eð svör hafa
ekki borizt frá öllum aðilum.
Gert er ráð fyrix, að þátttak
endur verði 16, þar af 6 erlendir
skákmeistarar. Er þetta framhald
á þeirri starfsemi, sem hófust ár-
ið 1964 með hinu svokallaða
Reykjavíkurmóti. Síðan hafa þessi
mót verið haldin annað hvert ár,
síðast „Fiske-mótið“ 1968.
íslenzku keppendurnir verða 10
þeir Friðrik Ólafsson stórmeist-
ari, Guðmundur Sigurjónsson,
Björn Þorsteinsson, Freysteinn
Þorbergsson, Bragi Kristjánsson,
Jón Kristinsson, Benóný Benedikts
son, Jón Torfason, Ólafur Kristj-
ánsson og Björn Sigurjónsson.
Telja má hina erlendu keppend
ur heimsþekkta skákmenn: Matu'.o
Akureyri
Fundur verður haldinn í
Framsóknar-
félögunum
á Akureyri
n. k. fimmtu-
dag 8. jan. kl.
20.30 í félags-
heimilinu
Hafnarstræti
90. Fundar
efni: Stjórn-
málaviðhorfin,
frummælandi Ingvar Gíslason
alþingismaður.
Stjórnirnar.
Reykjaneskjör-
dæmi
Fundur verður haldinn í
stjórn kjördæmissambands
Framsóknarmanna í Reykjanes
kjördæmi miðvikudaginn 7.
jan. kl. 20.30 að Neðstutröð 4,
Kópavogi. Formenn allra Fram
sóknarfélaga í kjördæminu
mæti á fundinn.
vic er þeirra þekktastur, en hann
sigraði sem kunnugt er á Svæða
mótinu í Aþenu á dögunum, (sem
Friðrik Ól. tók þátt í). Minich
varð í efsta sæti á Svæðamóti 1
í Portúgal og heldur því áfram,
eins og Matulovic, í heimsmeist-
arakeppninni. Þeir Ghitescu og
Hecht eru þegar velþekktir alþj.
meistarar. Amos er tiltölulega
nýtt nafn í skákheiminum. Hann
hlaut meistaratitilinn á Svæða-
móti VI í Kanada í ágúst í fyrra.
Fyrir velvilja Fræðsluráðs
Reykjavíkurborgar og skólastjóra
Hagaskólans, Björns Jónssonar
standa vonir til að mótið verði
haldið í húsakynnum þess skóla.
í gær voru gefin út ný frí-
merki hjá íslenzku póststjórninni.
Frímerki að algengasta verðgildi
höfðu þá verið uppseld lengi O'g
margir orðið að líma fjögur fri-
merki á jóla- og nýáirspóstinn.
Þessi nýja frknerkjaútgáfa átti
upphaflega að koma út í nóvetn-
ber en var frestað og síðan til-
kynnt tneð tæplega mónaðar fyr-
irvara. Sýnt hefur verið fram á
það oig það rtSkstutt m. a. af sam-
tökum frímerkj-asafnara að fjár
tapi er boðið heim með svo stutt
um tilkynningarfresti og telja sam
tök frímerkjasafnara 2 mán-
aða frest al-gtiöra lágmarlk. Þetta
liefur verið gagnrýnt og gagnrýn-
in virðist þrátt fyrir aUt bera ein-
hvern áramgur, því að póststjórn-
in hefur nú tilkynnt um nýjar frí-
tnerkjaútgáfur, sem ákveðnar hafa
verið á þessu ári.
Það er að jafnaði mikil ös í
pósthúsinu á útgófudögum — en
ýmsir framtakssamir hlaupa uodir
bagga með póststjóminni o® auð-
velda afgreiðsluna og aiuka þjón-
ustuna, en hafa einnig væntanlega
eitthvað fyrir sinn snúð. Hér sést
hinn skrautlegi kappi úr Selsvör
létta undir með póstþjónustunni
um sölu á fyrsta da®s umslögum.
Metframleiðsla sjávarafurða í Súðavík
Heildarútflutnings-
verðmætiö 59 milljónir
Framleiðsla á hvern íbúa 286 þúsund krónur
HM-Súðavík, þriðjudag.
Heildarútflutningsverðmæti
framleiðenda í Súðavík urðu
um 59 milljónir króna á árinu
sem var að líða. Er það stór
hlutur, sem byggðarlagið legg-
ur þjóðarbúinu til þegar litið
er á íbúatölu borpsins, sem var
306 manns samkvæmt síðasta
manntali. Framleiðsla á hvern
íbúa er því um 286 þúsund
krónur.
Hafin var vinnsla á hörpu-
disk síðari hluta árs eða í októ
ber h.iá hraðfrystihúsinu Frosta
h. f. Skapaðist mjög mikil at-
vinna við nýtingu hörpudisks-
ins. Einn bátur stundaði þess-
ar veiðar héðan, Guðmundur
frá Bæ. Skipstjóri Erling Auð-
unsson.
Aflinn var aðaliega fenginn
á miðum í Jökulfjörðum og við
Arnarnes.
Hraðfrystihúsið tók auk þess
á móti afla þriggja heimabáta
á árinu og nokkuð frá aðkomu
bátum. Varð heildarútflutnings
verðmæti hússins um 33 mill).
kr. á árinu. Hefur með fram
taki og dugnaði verið sigrazt
að nokkru á örðugleikum þeim
sem sköpuðust við það mikla
tjón sem byggðarlagið varð
fyrir með skipssköðum á und
anförnum árum. Framkvæmda
stjóri Frosta h. f. er Börkur
Ákason.
Niðursuðuverksmiðjan á Lang
eyri tók til vinnslu afla 8 rækju
báta á vertíðinni. ennfremur
afla rækjubáta sem fiskuðu á
Reykjarfirði á Ströndum í
sumar. Leigði verksmiðjan m.
b. Andra frá Bíldudal til rækju
leitar og flutnings á rækju af
þessum miðum. Hefur eigandi
verksmiðjunnar Björgvin
Bjarnason sýnt lofsvert fram-
tak í atvinnurekstri sínum hér,
til aukinnar nýtingar á rækju
með rækjuleit nú í sumar og
á undanförnum árum. Þá eru
og fyrirhugað á næsta ári að
verksmiðjan færi verulega út
starfsemi sína með niðursuðu
vörum á érlendan markað. Hef
ir verksmiðjan til þess öll skil
yrði þar sem hún er búin góð-
um og fulkomnum vélum og
tækjum til niðursuðu.
Þá tók verksmiðjan tii vinnslu
200 tunnur af grásleppuhrogn
um í sumar, sem lögð voru nið
ur í smáglös 50 gr. og þannig
seld á erlendan ma-rkað.
H-eildarútflutningsverðmæti
verksmiðjunnar varð um 26
millj. á árinu.
Byggingarframkvæmdir voru
helztar að hafin var stækkun á
hraðfrystihúsi Frosta h. f.,
byggð var ein hæð 345 fermt.,
en á næsta ári er áformað aö
byggja aðra hæð ofan á þá
sem byggð var í sumar. Batn
ar vinnuaðstaða og afkastageta
hraðfrystihússins verulega við
þessa stækkun. Stærð hússins
er 2200 rúmm.
Þrjú íbúðarhús voru í smíð
um á vegum Byggingarfélags
verkamanna (á árinu) tvö
þeirra voru tekin í notkun á
árinu. Hefir byggingarfélagið
þá byggt hér 7 íbúðarhús á
s. 1. 8 árum.
Hafnarframkvæmdir voru
engar á árinu, en fyrirhugað
er að hefja á næsta ári fram
kvæmdir að öðrum áfanga hafn
ÁRÁSARMENN HANDTEKNIR
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Árásarmennirnir sem rotuðu
mann og rændu á Laugaveg
inum á nýjársnótt voru hand-
teknir í dag. Voru þeir tveir
en ekki þrír, eins og sá, sem fyr
ir árásinni varð sagði lögregl
unni. Þegar hann kærði sagði
hann að mennirnir hefðu verið
3. Mennirnir, sem eru 18 o-g 24
ára gamlir játuðu á sig verkn
aðinn.
Maðurinn, sem var rændur, lá
í ailt að þrjár klukkustundir
meðvitundarlaus eftii arásina
Rankaði hann við ;ér í undir-
ganginum, senn er milli húsanna
nr. 1 og 3 við Laugaveg Var
hann þá alblóðugur og saknaði
peningaveskis síns. sem í voru
1500 krónur ásamt persónuskii
ríkjum. Yfirheyrslur i málinu
er enn ekki lokið, en mennirnir
hafa báðir játað á sig verkn-
aðinn.
argerðar, sem hafin var 1968
sem er bygging löndunar-
bryggju um 60 m. löng og upp
fylling með landi innan hafn
arinnar. Með þessum áfanga
batnar öll aðstaða til útgerðar
héðan, sem verið hefir mjög
erfið sökum ófullnægjandi hafn
arskilyrða. *
Keypt var nýtt 200 smál. fiski
skip til þorpsins á árinu m. b.
Kofri ÍS 41. Báturinn var smíð
aður í skipasmíðastöð M. Bern •
harðssonar á ísafirði. Hóf bát
urinn veiðar 12. júní með botn
vörpu og hefir útgerð hans
gengið vel. Aflaverðm-æti nú
um áramót er um 10 millj. kr.
Fór báturinn 3 söluferðir með -
ísfisk til Bretlands og seldi
fyrir um 5,4 miilj. Skipið hefir
reynzt í alla staði mjög veL
Skipstjóri er Jóhann R. Símon
arson, ísafirði.
Sjálfvirkur sími var opnaður
hér í desember-mánuði og er
það mikið hagræði fyrir alla
þjónustu og atvinnufyrirtæki
hér, þar sem símaþjónusta hér'
Framhald á bls. 15.
BLADBURDARFÓLK ÓSKAST
Grímsstaðaholti, Aragötu, Fálkagötu,
ennfremur sendill allan daginn.
Upplýsingar á afgreiðslunni, Bankastræti 7,
sími 12323.
& <$>
nnmm