Tíminn - 24.03.1970, Síða 3
MIIDJUDAGUR 24. marz 1910
Jakob Guðmundsson og Hrafnhildur Sveinsdóttir í hlutverkum sínum.
„HVE GOTT
0G FAGURT"
Ungmennafélag Reykdæla sýnir
um þessar mundir skopleikinn
„Hve gott og fagurt“ eftir Somer-
set Maugham í þýðingu Árna
Guðnasonar í hinu myndarlega fé-
lagsheimiii sínu Logalandi í Reyk
haltsdal. Leikstjóri er Andrés
Jónsson.
Skákmót og
Fjöltefli Gagn-
fræðaskóla-
nemenda
HiS árlega skákmót nemenda í
gagnfræðaskólum Reykjavíkur
verður haldið í Tónabæ 4. 11. og
18. apríL
S.l. ár fór sveit G-Aust. með
sigur af hólmi.
Undanfarin ár hefur Friðrik
Ólafsson telft fjöltefli við kepp-
endur viku áður en mót hefst.
Að þessu sinni teflir hinn ungi
sigurvegari í Reykjavíkurskákmót-
inu 1970 Guðmundur Sigurjónsson
fjöltefli við keppnissveitir í Tóna
bæ á skírdag H. 2 e.h.
(Frá kulýðsráði Rvíkur).
Leiktjöld gerði Erlendur Magn-
ússon af mikilli smekikvísi.
Aðalhlutverkið Victoríu, snotr-
asta fiðrildi, leikur Hrafnhildur
Sveinsdóttir. Önnur hlutverk og
leikendur eru:
William, stríðshetja — Stefán
Eggertsson, Fredrik, önnur til —
Armann Bjarnason, Herra Leicest-
er Paton, karl í krapinu — Jakob
Guðmundsson. Herra A. B. Raham
— Málafærslum., — Andrés Jóns-
son. Ungfrú Montonoreney, hefðar
jómfrú — Ingibjörd Helgadóttir.
Frú Shuttleworth, tengdamamma
•— Steinunn Garðarsdóttir. Ungfrú
Dennis, suyrtisinót — Sigríður
Einarsdóttir. Frú Pogson, sóma-
kona — Sigríður Guðmumdsdóttir.
Taylor, stofuþerna — Ragnhildur
Þorstei.nsdóttir. Clarence, strákur
— Steinar Vilhjálmsson.
Leikurinn gerist á heimili-Victor
íu í Westminster í lok nóvember-
mánaðar 1918.
Leiksýningar eru fastur liður í
stanfsemi U.M.F. Reykdæla, og er
gott að minnast þess er Jónas
Arnason stjórnalði fyrir nokkrum
árum „Skuggasveini" ásamt And-
rési Jónssymi og lék sjálfur Skugga-
svein við mikinn fögnuð áhorf-
enda.
A síðastiliðnum vetrf sýndi fé-
lagið gamanleikinn „Allir í Verk-
fall“ eftir Duncam Greenwood.
Þóttj hanm takast svo vel og vera
Framhald á bls. 22
TÍMINN
Einar Úlafsson form. Starfs-
mannafelags ríkisstofnana
Aðalfundur Starfsmannafélags
rfkisstofnana var haldinn fimmtu
daiginn 19. þ. m. í samkomuhúsinu
Sigtúni.
Á fundinum voru rædd helztu
baráttumál ríkistarfsmanna og
samiþykbtar ályktanir, sem hér
fylgja. Á kjörskrá í félaginu erU
nú 1483.
Formaður félagsins var kjörinn
Einar Ólafsson, ÁTVR og var liann
sjálfkjörinn, þar sem ekki komu
aðrar uppástungur.
í aðalstjóm voru þessir kosnir:
Ágúst Guðmundsson, Landmæl
ingum fsl. Einar Stefánsson, Vita
og hafnarmálastj. Guðmundur Sig
ur.þórsson, Innkaupastofnun ríkis
ins, Páll Bergþórsson, Veðurstofu
fslands, Sigurður Ó. Helgason,
Tollstjóraskrifstofunni, Þórhallur
Bjarnason, Kleppsspítalanum.
I varastjórn voru sjálfkjörin:
Elísaibet Þorsteinsdóttir, Meina
tæknadeild, Gunnar Bjarnason,
Þjóðleikhúsinu, Sverrir Júlíusson
BiSlRÍB.
Auk þess voru kosnir 25 aðalfull
trúar á þing BSRB í júní n. k.
Fundinn sátu hátt á annað hundr
að félagsmenn. Á aðalfundinum
voru m. a. samþykktar eftirfarandi
tillögur:
1. Aðalfundur SFR 1970 lýsir
eindregnum stuðningi við frum-
varp það, sem liggur fyrir Al-
þingi um afnám laganna frá 1915
um bann við verkfalli opinberra
starfsmanna. Fundurinn mótmælir
jafnframt harðlega þeirri skoðun,
að opinberum starfsmönnum sé
ekki treystandi til að hljóta þau
sjálfsögðu mannréttindi að ganga
til frjálsra samninga með verk-
fallsrétti.
2. Aðalfundur SFR 1970 skorar
á Kjararáð og stjórn BSRB að
ihalda fast á málum ríkisstarfs-
manna í þeim kjarasamningum, er
í hönd fara. Með tilvísun til 20.
gr. laga um kjarasamninga opin
berra starfsmanna, lýsir fundur
inn þeirri kröfu sinni, að rífcis
starfsmenn verði ekki verr laun
aðir, en gerist fyrir sambærileg
störf á hinum almenna launamark
aði og algjört lágmark, að föst
laun í lægstu launaflokkum ríkis-
starfsmanna nægi til lífsframfæris
f jölskyldu án aukatekna.
Með hliðsjón af því, að á þingi
BSRB í jiúní n. k. verður væntan
lega fjallað um stefnu í kjaramál
um og aðferðum við gerð kjara
samninga, leggur fundurinn
áherzlu á, að frá þeim málum verði
ekki gengið án náins samráðs við
einstöfc bandalagsfélög, enda mik
ið í húfi að vel tafcist að rétta
hlut ríkisstarfsmanna efltir hinar
miklu kjaraskerðingar síðustu ára.
3. Aðalfundur SFR 1970 mót
mælir sérstaHega, að skattvísital
an skuli ekki hafa fylgt raunveru
legum hækkunum vöruverðs á
undanförnum árum. Einnig gerir
fundurinn þá fcröfu, að stað-
greiðslukerfi skatta verði rækilega
fcynnt almienningi og tekið upp
eins fljótt og auðið er. Auk þess
arar grundvallarbreytingar á skatt
heimtu verði tekjuskattur og út-
svar sameinað í einn skatt og skatt
stigar og ákvörðun persónufrá-
dráttar endurskipulagt í það horf,
að hvort tveggja fylgi verðlags
þróun og affcomu almennings.
Einar Ólafsson
Seldi fyrir 6
milljónir og
29 þús. kr.
SiB—Reyfcjavífc, laugardag.
Togarinn Sigurður seldi í gær
í Bremerhaven 333 lestir af ís-
fisfci og er það mesta magn, sem
landað hefur verið úr íslenzkum
toigara í erlendri höfn. Verð það
sem fékkst fyrir fisHnn er einnig
það hæsta, sem íslenzkur togari
hefur nokkurn tíma selt fyrir í
ísl. fcrónum, 6 milljónir og 29 þús.
en í mörfcum 251.600. Meðalverð
er 18.05 fcr.
Fisfcurinn var mestmegnis ufsi
og þorskur. Skipstjóri á Sigurði
er Arinbjörn Sigurðsson.
AUKAKJÖR-
DÆMISÞING Á
AUSTURLANDI
Guðmundur Sigurjónsson
Stjórn kjördæmissambands
Framsóknarmanna í Austurlands
kjördæmi hefur ákveðið að boðs
til aukakjördæmisþings á skír-
dag, 26. þessa mánaðar. Þingið
verður haldið á Reyðarfirði og
hefst kl. 1 e .li. Þar verður kosin
framboðsnefnd, fjallað um fyrir
hugaða skoðanakönnun vegna
framboðs við næstu Alþingiskosn
ingar og rætt um stjórnmálavið-
horfið. Nauðsynlegt er að fulltni
ar af öllu sambandssvæðinu sæki
þingið. Þar munu og mæla aiþing
ismenn Framsóknarflokksins f
kjördæminu.
Loksins. Loksins eftir allt tekkið:
Pira-System gefur yðui kost á að
Hfga upp á híbýli yðar. Ljósar við-
artegundir eru sem óðast að kom-
ast í tízku. Framúrskarandi í
barnaherbergi. Skrifborð úr ljósri
eik. Uppistöðurnar svartar eða
Ijósgráar eftir vali. Smekklegt,
nýtt, margir uppröðunarmögu-
leikar.
Hvorki skrúfa
né naglj í vegg,
Ekkert annað hillukerfi
hefur þessa kosti.
Því ekki að velja ódýrustu lausn-
ina, þegar hún er um leið sú
faliegasta. Lífgið upp á skamm-
degisdrungann með Ijósum viði.
Skiptið stofunni með Pira-vegg.
Frístandandi. Eða upp við vegg.
Bezta lausnin í skrifstofuna. Höf-
um skápa, sem faila inní. Bæði
í dökku og Ijósu. Komið og skoðið
úrvalið og möguleikana hjá okkur.
Pira fæst ekki annars staðar.
HÚS og SKIP
Ármúla 5 — Sími 84415—84416
PIRA
Frábær lausn í
húsbóndaherbergið
EINKAUMBOÐ FYRIR PIRA-SYSTEM Á ÍSLANDI