Tíminn - 24.03.1970, Side 12
Hrelndýrln vIS kemune ttl Reykjavikur f gærkvöldi.
(Tímamynd GE)
Hreindýrin í Hafnarfirði orðin átta
í.
JK—Egilsstöðnm, FB—Reykja-
vik, Reykjavík, mánudag.
Vísir að dágóðri hreindýra-
hjörð er nú kominn í Sædýra-
safnið í Hafnarfirði. Fyrir tæp
um mánuði komu í safnið þrjú
hreindýr austan af Héraði og í
dag komu fimm hreindýr tíl
viðbótar af sömu slóðum. Munu
forstöðumenn safnsins nú háfa
fengið þann hreindýrahóp, sem
þeir hyggjast hafa í safninu.
í gær fór hópur manna á
hreindýraveiðar undir leiðsögn
Þorsteins Sveinssonar kaupfé
lagsstjóra á Egilsstöðum. Var
ferðinni heitið út í Hróars-
tungu og dýrin tekin í svokall
aðri Húsey. Fyrri hreindýra-
hópurinn var tekinn á þessum
slóðum. í þetta sinn voru þrír
snjósleðar með í ferðinni, og
óku þeim Jón Sveinsson bóndi
á Egilsstöðum, Gunnar Gutt-
ormsson á Litlabakka og
Gunnar Ragnarsson frá Foss-
völlum. Auk snjósléðanna var
snjóbíll með í förinni til þess
að flytja dýrin til Egilsstaða.
Vel gek'k að handsama dýrin.
Voru það fjórar kvígur, ungar,
og einn þriggja vetra gamall
tarfur, kollóttur. Eftir að dýr
in höfðu verið handsömuð voru
þau lögð á snjósleðana fyrir
framan ökumennina, og þurftu
þeir ekki aðstoð við áð koma
þeim að snjóbíinum. Má segja
að mjög merkilegt sé,
hversu spök dýrin eru, eftir að
búið er að ná beim á annað
borð.
Svo virðist, sem hreindýrin
austan af Héraði setli að fella
sig heldur vei við iifnáðarhætt
ina hér. Verða nú kómin átta
hreindýr í Sædýarsafnið, þrír
tarfar og fimm kýr.
Járnnámið á Dynskógafjöru
er að hefjast á nýjan leik
-j
AK, Rvfk, mánudag.
Stanzlausir flutningar standa nú
yfL- á járninu af Dynskógafjöru
austan frá Hjörleifshöfða til
Reykjavikur. Enn munu vera ó-
fluttar um 700 lestir.
Allt járnið, sem búið er að
grafa upp, hefur nú verið selt,
meginhiutinn til Svíþjóðar, en
aðeins lítið eitt innanlands. Verð
ið er allgott, en þó væri miklu
hagkvæmara að geyma járnið inn
an lands til notkunar næstu árin
og fá þannig birgðir, því að þetta
er ágætt járn til steypu og hefur
verið notað hér s. 1. ár. Hins veg
ar hefur ekfci fengizt næg fyrir
greiðsla af opinherri hálfu til
þess að innlend járniðnaðarfyrir
tæfci treysti sér til þess að kaupa
nokkurra ára birgðir, þótt mjög
hagkvæmt sé að losna á þann
hátt við flutningskostnáð.
>á munu þeir félagar, sem unnið
hafa að járnnáminu á Dynskóga
fjöru, hafa í hyggju að halda verk
inu áfram í vor og sumar, og
þar sem þeir hafa aflað sér góðra
og alldýrra tækja og komið upp
vinnuaðstöðu á staðnum, telja
þeir meira upp úr því að hafa,
sem hér eftir næst, en það sem
náðist í fyrra gefi lítið í aðra
hönd, þar sem svo dýrt var að
afla tækja og koma sér fyrir.
Einnig vona þeir nú að geta flutt
járnið beint af staðnum á bílum
til Reykjavíkur og losna við sel-
flutninginn að Hjörleifshöfða. Sví
ar taka járnblokkirnar óhreinsað
ar.
ÞRÁTTUÐU UM VÍNVERÐ
OG LÉTU HENDUR SKIPTA
Loðnuaflínn
svipaður og
á sama tíma
í fyrra
06—(Reykjavík, mánudag.
Á miðnætti laugkardagirm 2L
marz var heildar loðnuaflinn orð
inn 141.067 lestir. Á sama tíma
í fyrra var loðnuaflÍBH 142,346
lestir. Hœsta verðstöðin í dag eru
Vestmannaeyjar. Þar hafa borizt
á land 66,309 lestir.
í fyrra voru bomnar á laod í
Reykjavík 32,632 lestir af loðnu
á þessum tíma en í ár 1784 lest-
ir.
Eftir.taldir bátar hafa fengtð 3
þúsund lestir eða meina á þessari
vertíð: Súlan 4,616 lesttr, Gfsli
Ámi 4,203 lestir. Eldborg 4,158
lesitir, Öm 3,918 lestír, Örfirisey
3,872 lestir, Hilmir 3,421 lest,
Loftur B'áldvinsson 3,346 lestir,
Fifill 3,266 lestir, Helga Guð-
mundsdóttir 3.246 lestír, Birtíng
ur 3,240 Héðinn 3,142 lestir, Ósk
ar Magnússon 3,101 lest, Heimir
3,096 lestír, og Gígja 3000 lestir.
Um 40 bændur
vilja hraða
Laxárvirkjun
EJ—Reyfcjavík, mánudag.
í síðustu viku fcomu nokkrir
tugir bænda úr Reykjadal, Aðal
dal og Reyfcjahverfi í Þingeyjar-
sýslu saman til fundar og sam
þykktu ályktanir í Laxárvirkjunar
málinu. Er þar m. a. skorað á
Alþingi að leyfa þegar fuUvirkjun
Laxár. Nokkru áður var svipaður
fundur „áhugamanna um virkjun
Laxár" haldinn á Húsavfk.
Framhald á bls. 22
Vestur-Húnvetningar
Aðalfundur Pramsóknarfélags
Vestur-Húuvetninga verður hald-
inn í Félagsheimilinu Hvtamms-
tanga, laugardaginn 28. marz, H.
14.
Venjuleg aðalfundarstörf —
Stjórnmálaumræður. Stjómin.
HUÓP YFIR VEGGINN í FYRRA-
DAG, BAÐST ENNGÖNGU IGÆR
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Maður kærði lF<amsárás til
lögreglunnar í Reykjavík í gær
kvöldi. Sagði hann að tveir
menn hafi ráðizt á sig og hafi
annar barið sig og hinn stung
ið sig hnífi. Við athugun kom
{ ljós að rispa, sem verið gæti
eftir hníf er á öxl mannsins,
en sárið er óverulegt. Lögregl
an handtók annan árásarmann
inn í gærkvöldi, en hinn, sem
ákærður er fyrir að hafa beitt
hnífnum er enn ófundinn, en
lögreglan veit nafn hans og
er mannsins leitað.
Mennirnir setn árásin-a gerðu,
komu í tiltekið hús við Hverf
isgötu í gærkvöldi. Mun erindi
þeirra hafa verið að fá þar
keypt áfengi og höfðu þeir
grun um að í húsinu væri slík
ur varningúr til sölu. Eftir því
sem nœst verður komizt, voru
mennirnir að þrálta um verð
á veigunum við húsráðanda og
vildu ekki greiða það sem upp
v«r sett. Endaði það með því
að annar kaupendanna sló selj
andann i andlitið og hinn réð
ist einnig á hann, að því er
húsráðandi segir með hnífi.
Sá árásarmannanna sem hand
tekinn var í gærkvöldi viður
kenndi að hafa gefið manninum
á hann, en segist ekki hafa orð
iö var við að félagi sinn hafi
beitt hnífi.
Eftir að maðurinn kærði
árásina, kannaði lögreglan húsa
kynni þess sem ráðizt var á og
fannst þar talsvert magn af
áfengi.
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Kel'sifangi brá sér út fyrir fang
elsisvegginn umhverfis Hegningar
húsið við Skólavörðustíg kl. 3 í
gær. Hans var leitað til kl. 4 í
dag. Þá bankaði hann upp á að
Skólavörðustíg númer 9 og bað
um gistingu. Manninum var ekki
úthýst.
Um þrjúleytið í gær voru nok'kr
ir fangar úti j garði að viðra sig.
ní Að venju var fangavörður í garð
inum, þegar innisetumennirnir fá
að vera úti. Hafði vörðurinn snúið
sér undan andartak og klifraði þá
einn fanginn snögglega yfir vegg
inn og hvarf. En fangaverðir
verða að treysta því að fangarnir
sitji á sér og hlaupi ekki út fyrir
þegar þeim sýnist. Eins og marg
sagt hefur verið frá í Tímanum er
fangelsið við Skólavöí ðustíg alls
ekki mannhelt. Virðist fara eftir
duttlungum þeirra sem inni sitja,
iivort þcir halda því áfram eða
ekki.
Þegar er upp komst að fangi
var strokinn var lögreglunni gert
viðvart. Hófst þá leit að mannin
um, cn án árangurs. Kom hann
heim til nióður sinnar í gær en
hafði þar stutta viðdvöl. Sagði
hann móður sinni að hann ætlaði
að fara og gefa sig fram í Hegn
ingarhúsinu, en það gerði hann
ekki í gær.
Eftir að strokufanginn gaf sig
fram í dag, sagðist hann hafa ver
ið á ferli í borginni í gærkvöldi,
nótt og fram til kl. 4 í dag.