Morgunblaðið - 27.10.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.10.2005, Blaðsíða 9
hafa verið meiri en hann hafi átt von á. Fyrir utan beina fjármögnun, höfum við séð samstarfssamninga og sölu- samninga í framhaldi af þingum og flest byggt upp gott tengslanet sem mun nýtast. „Það er þannig óhætt að fullyrða að fyrirtækin sem tóku þátt í þinginu í vor hafi náð góðum árangri.“ Má nýta betur skattfé Opinberar stofnanir gætu í auknum mæli nýtt sér Seed Forum til að öðlast betri sýn á nýsköpun hér heima og er- lendis, að mati Jóns Helga. „Sjóðir á borð við Nýsköpunarsjóð atvinnulífins veita fé til nýsköpunar en mikilvægt er að þeir sem taka ákvarðanir um slíkt hafa ekki aðeins innlendan samanburð þegar þeir meta innlendar umsóknir. Með því að taka virkan þátt í Seed Forum ferlinu geta þessir aðilar öðlast góða yfirsýn yfir það sem er að gerast í nýsköpun er- lendis og verða þar af leiðandi betur í stakk búnir til að meta hvaða íslensku nýsköpunarhugmyndir eru líklegastar til að ná árangri. Þar með er hægt að nýta fé skattborgaranna betur.“ Jón Helgi bendir einnig á að hið op- inbera geti á auðveldan hátt aukið gæði í utanríkisþjónustu sinni með því að taka þátt í Seed Forum ferlinu. „Það er eitt af hlutverkum stofnana og sendiráða að greiða götu fyrirtækja erlendis og þátttaka í Seed Forum eykur einungis þekkingu og tengsl- anet þeirra sem taka þátt og þannig má gera góða þjónustu betri,“ segir Jón Helgi en tekur fram að ís- lensku Seed Forum fyrirtækin hafi notið mjög ágætrar þjónustu íslensku sendiráðanna og VUR í New York, London og Moskvu. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005 B 9                          / " #   2   % . %& '(     4 4  # ( "5 " #  (6 #  5   # ! "  ! " # # "   ! 7 " ! #  & '(   . & '(  8"5 9: &9)# 2/ 9' ; < . === „FYRIRTÆKI mitt fékk talsvert umtal í kjölfar Seed Forum í apríl og það eru klárlega fleiri sem hafa áhuga á verkefninu. En fjármögnun nýs fyrirtæki tekur yfirleitt nokkuð langan tíma, jafnvel tvö til þrjú ár, og við erum í því ferli núna,“ segir Ósk- ar Jónsson, framkvæmdastjóri GDTS, sem kynnti hugmynd sína um harðkorna skósóla, kennda við Græna demantinn, á Seed Forum í apríl sl. Óskar segir þingið einstakt tækifæri fyrir nýsköpunarfyrirtæki til að koma hugmyndum sínum á framfæri. „Að mínu mati er Seed Forum frábær vettvangur fyrir sprotafyrirtæki til að koma hug- myndum sínum á framfæri og eini vettvangurinn hér á Íslandi. Seed Forum eru auk þess orðin sterk sam- tök á Norðurlöndum og teygja anga sína víðar. Þannig er ákveðin við- urkenning fólgin í því að taka þátt í Seed Forum.“ GDTS tók þátt í Seed Forum þingi í Moskvu sl vor en Óskar segir Rúss- land mjög áhugaverðan markað og þar hafi hann fundið fyrir miklum áhuga. „En maður þarf talsvert fjár- magn til að ráðast á svo stóran mark- að. Sprotafyrirtæki þurfa öll að glíma við vandann við að fá til sín fjármagn. Allir vilja að frumkvöðullinn dragi vagninn einn en þegar vagninn er síðan kominn af stað eru þeir hinir sömu tilbúnir til að stökkva á hann. Sprotafyrirtæki eru jafnan ekki með mikla sölu né veltu. Þar af leiðandi er erfiðara fyrir fyrirtækin að sækja fjármagn. En okkur er að takast að yfirstíga þennan þröskuld og í dag eru í vinnslu sölusamningar í Rúss- landi og á Íslandi,“ segir Óskar. Seed Forum hjálpaði mikið Hugbúnaðarfyrirtækið AGR kynnti innkaupa- og markaðsstýringarkerfi AGR Innkaup á Seed Forum í Reykjavík í apríl. Hálfdan Gunn- arsson, framkvæmdastjóri AGR, seg- ir þátttökuna í Seed Forum hafa ver- ið mjög lærdómsríka. „Undirbúningsvinnan fyrir þingið gagnaðist okkur mjög vel, þar sem gerðar voru viðskiptaáætlanir og stofnað var til tengsla við aðila í svip- uðum sporum. Þátttakan í Seed For- um skilaði okkur einnig góðri fjár- mögnun, þannig að þátttaka í þinginu hefur reynst mjög vel.“ Að sögn Hálfdans er AGR um þessar mundir að stofna fyrirtæki í Danmörku sem verður söluaðili fyr- irtækisins þar í landi og annast markaðssetningu á Norðurlöndum. „Við höfum einnig fylgt okkar málum eftir annars staðar í Evrópu, höfum tryggt okkur endursöluaðila og höf- um þegar gert nokkra sölusamninga á kerfinu. Hlutirnir eru þannig komnir á hreyfingu og það er engum blöðum um það að fletta að Seed Forum hjálpaði okkur mikið.“ rmagn hema@mbl.is Te ik ni ng /A nd ré s Það kennir ýmissa grasa á fjárfestingaþinginu Seed Forum sem haldið verð- ur á Nordica Hotel á morgun. Þar verða m.a. kynntar viðskiptahugmyndir um teiknimyndir, sjávarfallarafstöð, samheitalyf, borðspil, risasjónvarps- skjái, gagnvirk leiktæki, sjúkdómsgreiningu og upplýsingaöryggi. Óskar Jónsson Hálfdan Gunnarsson Eini vettvangur sprotafyrirtækja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.