Tíminn - 02.04.1970, Page 3
FEVEVITUDAGUR 2. aprfl 1970.
TÍMINN
Enn eift dæmi um stefnu í landbúnaðarmálum:
Fyrir skömmu frumsýndi Leik-
félag Húsavíkur Þi'ð munið hann
Jörund, eftir Jónas Árnason. Leik
stj. er Jónas Jónasson, en leiktjöld
gerði Steinþór Sigurðsson. Húsið
var fullsetið, og fögnuðu áhorfend
ur leiknum mjög. Höfundurinn,
Jónas Árnason kom norður til
Charlie Brown til vlnstrl — Páll Þór Kristlnsson, Ladd le og hnátan: Jón Guðlaugsson og María Axfjörð. þess ag vera yiðstaddur frumsýn-
inguna. í leikslok var leikendujn
mjög vel fagnað, og leikstjóri og
höfundur kallaðir fram, og Björn
Friðfinnsson bæjarstjóri ávarpaöi
þá nafna og leikendur og þakk-
aði þetta átak og gott framlag til
menningarmála bæjarins. Að lok-
um stjórnaði höfundur fjölda
söng.
STJÓRNIN ÁETLAR AÐ LÆKKA
FRAMLAGIÐ TIL NÝBÝLANNA
SKB—Reykjavík, þriðjudag.
Frumivarp ríkisstjórnarinnar um
Stofnlánadeild landbúnaðarins var
til fyrsto umræðu í n. d. fyrir
stuttu. Er frumvarpið á þá leið,
að á árunum 1970—1971 skuli rík-
isstjómininni heimilt að lækka
hvort ár framlög á fjárlögum til
llandnáms vegna nýhýla úr 9,5
milljónum króna í 3,5 milljónir
og til íbúðarhúsa vegna nýbýla
og til íbúðarhúsa á nýbýlum úr
2,4 millj. í 0,9 milljónir króna.
Nokkrir af þingmönnum Fram-
sóknarflokksins mæitu eindregið
á móti þessu frumvarpi.
Stefán Valgeirsson sagði m. a.
áð þeir fjármunir sem látnir hafi
verið til þessara hluta hafi alltaf
minnkað Þeir hafi verið ákveðnir
árið 1964, það sem þeir væru í
dag, og nú sé verið að fara fram
á heimild til að lækka þessa fjár-
hæð frá því sem sé í lögunum.
Sagði Stefán, að framkvæmda-
máttur þessa fjármagns sem hér
væri um að ræða, minnkað um
helming síðan lögin voru sett og
nú bæði iandbúnaðaráðherra um
heimild til að taka fjármuni, en
[FDBHn™
AF LANDSBYGGÐINNI
QQ.
Patreksfjörður:
Fjöldi manns bíður
flugfars
SJ-Patreksfirði, miðvikudag.
Afli Patreksíj arðarlbáta hefur
verið með allra bezta móti á land
inu á vertíðinni. Á þetta einkum
við um línuveiðarnar. Netaveiðar
hafa gengið verr, en eftir 20. marz
hafa veiðar verið tregari en fyrr
á árinu.
Allmikill hópur fólfcs er nú
teppt á Patreksfirði, en flug þang
að hefur legið niðri undanfama
daga. Flugvél fór þangað kl. 8
í imorgun en tókst ekki að lenda.
í gær fennti feikimikið. Og átt
er vestlæg, en þá eru lendingar-
skilyrði oft slsem á flugvellinum.
Fólkið, sena bíður eftir flugfari
var hér flest í heimsókn um pásfc-
Félagsmálaskólinn
Fundur verður í Félagsmála-
sfcólanum á mánudaginn, og verð
ur fundurinn að venju að Hring-
braut 30, og hefst kl. 20,30.
Andrés Kristjánsson, ritstjóri,
mætir á fundinum og flytur erindi
um blaðamennSku.
Öllum er heimill aðgangur að
fundum Félagsmálaskólans.
ana. Áætlunarflug er nú til Pat-
reksfjarðar þrisvar í vitou.
Ólafsfjörður:
Þrír bátar landa
BS—Þriðjudag, fyrir páska.
Aflinn hér hefux verið heldur
tregur og vinna þar af leiðandi
nokkuð stopul. Veiðihorfur hjá
togbátunum eru ekki svo slæm-
ar, ef veðrið hamlaði ekki veið-
um. Stígandi landaði hér í gær 20
lestum, Sigurbjörg er að landa
í dag svipuðu magni og Sæþór
bíður löndunar.
Akranes:
Nýtt fiskiskip sjósett
QB—Akranesi, fyrir pásfca.
Nýtt fiskiskip var sjósett s. 1.
sunnudag hjá Þorgeir og Ellert á
Akranesi. Skipið er 100.61 rúm-
lestir að stærð og er úr stáli.
Það var byggt fyrir Hjálmar Gunn
arsson, útgerðarmann, Grundar-
firði. Skipið er teiknáð af Guð-
mundi Erlendssyni skipaverkfræð-
ingi hjá Þorgeiri og Ellert og
byggt undir eftirliti skipaskoðun-
ar ríkisins í samræmi við reglur
„Det norske Veritas". Það er sér-
stafclega styrkt fyrir siglingar í
ís. Þá er sfcipið útbúið fyrir veið-
ar með net, línu og botnvörpu
og búið öllum nýjustu vélum og
tækjum, sem í slífcum fiskiskip-
um tíðfcast. Aðalvélin er 425 ha.
Caterpillar og D 353 TA.
Ljósavél er Volvo Penta MD 50
AK, 62 ha.
Samanlögð raforkuframleiðsla
aðalvélar og ljósavélar eru 49 kw.
Frystilest einangruð og búin tækj-
um til kælingar af Sabro-gerð.
Skipstjóri verður Hjálmar Gunn-
arsson, en kona hans, Helga Árn'a-
dóttir, gaf því nafnið Siglunes SH
22. Slkipið fer á netaveiðar innan
fárru daga.
Þorlákshöfn:
Landlega og 30
bátar lágu inni
KJ—Rvík, þriðjudag, fyrir páska.
í dag var landlega í Þorláks-
höfn, og munu alls um 30 bátar
hafa legið í höfninni þar í dag.
Þetta voru Þorlákshafnarbátarn
ir allir, bátarnir sem gerðir eru
út frá Eyrarbakka og Stokkxeyri
og svo eitthvað af togbátum, sem
höfðu leitað hafnar vegna veðurs.
Vonzkuveður var í Þorlákshöfn
en vel fór um bátana í höfninni.
Til Þorlákshafnar hafa nú bor-
izt um átta þúsund tonn af loðnu,
og gengur vel að bræða. Það sem
af er vetrarvertí'ð hafa borizt um
þrjú þúsund tonn af fiski á iand
í Þorlákshöfn, og er það nokkru
minna, en á sama tíma í fyrra.
ekki hækka framlag til þessara
mála.
Kvað Stefán, þetta vera eitt af
mörgum dæmum um þá landbún-
aðarstefnu sem nú rikti í land-
inu.
Þá vék Stefán nofckrum orðum
að veðdeildinni og sagði að hún
skuldaði nú 14,5 milljönir. Og ef
hægt hefði verið að taka ein-
hverja fjármuni frá landnáminu,
sem ekki sé, þá hefði verið nær
að setja þá fjármuni í veðdeildina
til að styrkja hana.
Kvaðst Stefán viljá beina þeirri
fyrirspurn til landbúnaðaráðherra
hvort ekki sé hugmyndin að hækka
þennan byggingarstyrk, sem stað-
ið hafi í stað, þótt dýrtíðin hafi
vaxið um helming á samna tíma
og einnig hvort ríkisstjórnin ætli
virkilega efcfci að gera neitt í máli
veðdeildarinnar.
Halldór E. SigurðSson kvaðst
vilja sameina stofnlánadeildina
við Búnaðarfélagið til að nýta
betur f jlármagnið. Kvað haán á mis
skilningi byggt að stofnlánadeildin
wæri betur starfhæf nú en verið
hafi fyrir 1960.
Vilhjálmur Hjálmarsson kvaðst
vera andvígur frumvarpinu af
þeirri ástæðu að eðlilegt sé að
láta starfsemi landnámsins þróast
inn á þau verksvið sem aðkall-
andi séu og því megi ekki skerða
það fjármagn sem það hafi til
umráða.
Jón Kjartansson sagði að með
þessu frumvarpi sé lagt til áð
lækka framlag til nýbýlahygg-
inga. Kvað hann það furðulegt að
þíng sem samþykkti milljónafram-
lag til byggingar húss fyrir ríkis-
stofnanir, skuli nú með þessu
frumvarpi ætla að lækka framlag
og ráðast þannig á þá sem sízt
megi við því. Nær væri að rótta
því ungaf ólki sem vildi setjast
að í sveit hjálparhönd, en veita
því unga fólki sem vildi setjast
frurmvarp gerði ráð fyrir.
Að lokinni umræðu var frum-
varpinu vísað til annarar umræðu
og landbúnaðarnefndar.
16 ára dreng-
ur grýtti tófu
PÞ—Þorlákshöfn, þriðjudag.
Fólfc, sem býr í þorpinu á Þor-
lákshöfn, sá á laugardaginn tófu
á klöppunum utan við þorpið. 16
ára drengur, Jóhannes Jóhanns-
son brá snöggt við og tókst hon-
um að elta dýrið uppi og bana
því með grjóti, en rebhi mun hafa
verið eitthvað þungur til hlaup-
anna af loðnuáti, því eins og menn
vita, er mikið af loðnu þarna við
þorpið.
Til gamans má geta þess, að
Jóhannes er náfrændi Hinriks ívars
sonar i Merkinesi, þeirrar frægu
refaskyttu.
C. V. Narssimhan
Narasimhan
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri
SÞ kemur
hingað
Fimmtudaginn 2. apríl bemur
í heimsókn til íslands aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, C.V. Narasimhan.
Kemur hann hingað í boði Fé-
lagis Sameinuðu þjóðanna og mun
hann halda fyrirlestur fyrir al-
menning föstudaginn 3. apríl, um
Tækniaðstoð Sameinuðu þjóðanna.
VerOur fyrirlesturinn í Norræna
húsinu og hefst kl. 5,30 e.h.
C. V. Narasimhan hefur starfað
í þjónustu Sameinuðu þjóðanná
um fimmtán ára skeið. Undanfarin
ár hefur hann gegnt störfum að-
stoðarframkvæmdas'tjóra samtak-
anna og jafnan veittíaðal-skrifstofu
U Thant í höfuðstöðvum Samein-
uðu þjóðanna forstöðu. Á síðasta
ári var hann einnig skipaður að-
stoðarframfcvæmdastjöri United
Nations Development Programme,
en ‘sú stofnun annast tækniaðstoð
og tæknisamvinnu af hálfu Sam-
einuðu þjóðanna.
Hefur ísland nýlega hlotið
ýmsa fyrirgreiðslu af hálfu stofn-
unar þessarar, Á hennanvegum
hefur m.a. verið framkvæmd hér
almenn jarðefnaleit, könnun á
ferðamálum og markaðshorfum
fyrir niðursuðuvörur. Áður veitti
stofnunin framiag til grundvallar-
rannsókna hér í raforkumálum.
Mun Narasimhan ræða í fyrir-
lesti sírium um markmið tækni-
aðstoðar Sameinuðu þjóðanna og
framfcvæmd hennar. -Er fyrirlest-
urinn öllum opinn.
Það er í tilefni 25 ára afmælis
Sameinuðu þjóðanna að Félag
Sameinuðu þjóðanna hefur fengið
þennan næst æðsta mann samtafc
anna til þess að koma hingað til
lands og ræða málefni þeirra.
Mikill fögnuður á frumsýningu á Húsavík
i