Tíminn - 10.04.1970, Qupperneq 11
FÖSTUÐAGTOl 10. aprfl 1970.
TIMINN
27
Húsráðendur
Geri við og stilli hitakerfi
Geri við V.C. kassa, heita
og kalda krana, þvottaskál
ar og vaska. Skipti hita.
Hilmar J. H. Lúthersson
pípulagningameistari.
Sími 17041 tii kl. 22.
EFLÚM OKKAR
HEIMABYG6Ð
SKIPTUM .VIÐ
SPARISJODIHN
» • . . • ' '
SAM3AN0. ÍSL/ SPARISJÓCA'-
NÝJAfi ZETOR DRATTARVÉLAR
Nýjar Zetor dráttarvélar á sér-
staklega hagstæOu verði.
Á síðastliðnu ári var skipt um
umboð fyrir Zetor dráttarvélar
frá Tékkóslóvakíu og tók
ÍSTEKK (íslenzk-tékkneska verzl
unarfélagið h.f.) við því.
Innflutningur á endurbættri og
nýrri gerð af þessum vélum hófst
á síðastliðnu ári, en eldri gerðir
af Zetor hafa verið í notkun hér
á landi um árabil og hafa réynzt
mjög vel, eru sterkar og hafa
mikla dráttarhæfni. Nýju Zetor
vélarnar eru mjög fullkomn-
ar hvað allan tæknilegan útbún
að snertir, auk þess sem vélarn
ar hafa fengið nýtt og smekklegt
útlit. Sérstaklega er fjölvirka
„Zetormatic“ vökvakerfið athygl
isvert og Zetor aflvélin, sem er
mjög gangviss og fer strax í gang
í miklum kuldum, sem annars.
Allur útbúnaður Zetor vélanna
er í fullu samræmi við - ströng-
ustu nútímakröfur. Fer þar sam-
an fallegt form vélanna, tæknileg
ur útbúnaður, fjölhæfni og sterk
bygginig þeirra þannig að nýting
þeirra við hin fjölbreytilegu störf
séu sem mest. Með Zetor vélun-
um fylgir varahluta- og verkfæra
sett, sem er innifalið í verði vél-
anna.
Verð Zetor dráttarvélanna er
mjög hagstætt miðað við aðrar
sambærilegar dráttarvélar á mark
aðnum og getur verðmunur verið
um kr. 50—60 þúsund á vél, sem
Zetor er ódýrari.
Ze.or 3511, 40ha„ 10 gíra
kostar aðeins um kr. 171.000.00.
Innifalið í þessu verði er fullkom
inn standard útbúnaðar og áfest
öryggisgrínd. Þessi gerð er hent-
ug til allra almennra bústarf,
þar sem hún er létt og lipur og
við hana má tengja hvers konar
hjáipartæki. Zetor 5511, 60ha.,
10 gíra kostar um kr. 259.000.00
og með standard útbúnaði auk
vökvastýris og öryggisgrindar.
Þessa gerð má fá með fullkoninu
öryggishúsi, miðstöð, rúðuþurrk-
um o.fl. og kostar þá um kr.
271.000,00. Þetta er aflmikil vél
til allra þyngri starfa s.s. til að
knýja þungar jarðvinnslu- eða
uppskeruvélar og önnur þung
tæki. Flestir bændur munu nú
hafa fengið senda upplýsinga- og
verðlista yfir Zetor dráttarvél-
arnar og er þar að finna greina-
góðar upplýsinga og lýsingu á
vélunum og hvað hægt að fá
aukalega með þeim.
Vegna þess hve Zetor dráttar-
vélarnar eru óvenju hagstæðar,
er eftirspurn eftir þeim rnjög
mikil. Er því þeim bændum, sem
hyggja á dráttarvélakaup í vor
bent á að hafa samhand við
umboðið hið fyrsta og tryggja
sér vél í tíma fyrir vorannirnar.
ÍSTEKK mun kappkosta að
veita góða varahlutaþjónustu og
taka verksmiðjurnar árs-ábyrgð á
vélunum, auk þess sem sérþjálf-
að starfslið annast eftirlit og þjóa
ustu fyrir þær.
Eins og áður er getið er Zetor
umboðið hjá ÍSTEKK (íslenzk-
tékkneska verzlunarfélagið h.f).,
Lágmúla 5, sími 84525, Reykja-
vík, sem veitir allar nánari upp-
lýsingar og fjrringreiðslu þeim er
þess óska.
Miklar framfarir hafá átt
sér stað i fóðurflutningi
Fóðurblandan h.f. var stofnuð
1960, af 12 fyrirtækjum á Suður-
Vestur- og Norðvesturlandi, er
seldu fóðurvörur til bænda.
Höfðu þessi fyrirtæki þá átt í
miklum erfiðleikum með að full-
rœegja eftirspurn bænda á sínu
svœði efítir innlendum kjarnfóður
blöndum. Á fyrstu árum fyrirtæk
hrirx: var aðeins framleidd kúafóð
urblanda og aðeins til að full-
aægja þörfum hluthafa. En fljót-
lega kom í Ijós að þörf var fyrir
fleM tegundir blanda og fram-
lefðum við nú fyrir allar tegund-
ir búfjár.
Á þessum árum var allt kjarn-
fóður keypt frá U.S.A. aðallega
maismjöl, byggmjöl, hominy feed
auk varpfóðurs og blandaðs
bænsnakorns, og allt sekkjað. Þá
var ekki heimilt að kaupa fóður-
vöru frá Evrópulöndum, enda þótt
verð þar væri oftast mun hag-
stæðara og flutningsgjöld frá Ev-
rópu mikið lægri, en þar sem
sem gjaldeyrisforði þjóðarinnar
var eklti of mikill, varð að kaupa
allar fóðurvörur undir svokölluð-
um Plr480 vörukaupsamningi við
UJSjA- X
Strax í upphafi reyndum við ao
ná sem beztum kaupum á fóðr-
inu frá U.S.A. og leituðum ávallt
tílboða hjá mörgum aðilum þar^ í
hvert sinn er keypt var, og tók-
um síðan frá þeim aðila er bezt
bauð, en á tilhoðum gat oft mun-
að verulega á verði. Allar þess-
ar fóðurvörur voru fluttar hing-
að sekkjaðar frá New York, dýr-
ostu hafnarborg heims, en þar
vwru hafnax- og lestunargjöld
mjög há, svo eðlilegt var að flutn-
ingsgjöldin væru í samræmi við
það.
Við gerðum okkur því fljót-
lega Ijóst, að í fóðuikaupamálum
væri breytinga þörf og í ársþyrj-
un 1966 gerðuim við fyrstir fóð-
urinnflytj enda, tilraun með inn-
flutning á ómöluðum og ósekkj-
uðum maís til íslands frá U.S.A.
Eimskipafélag íslands, varð góð
fúslega við. óskum okkar um
flutning á lausu korni og gat
lækkað flutningsgjaldið um helm-
ing frá sekkjavöru-fiutningsgjaldi
sem stafaði fyrst og fremst af því,
að laust korn rúmast betur í lest-
um og ekki siður af því, að nú
var lestað í annarri höfn, og
korninu dælt um borð í skipið,
skipafélaginu að kostnaðarlausu.
auk . þess var innkaupsverð á
lausu ómöluðu korni mun lægra
vestra en á mjöli í sekkjum.
Ljóst var að með þessari tilraun
var brotið blað í fóðurinnflutn-
ingi.'Verð lækkaði mjög mikið og
þarna sparaðist dýrmætur gjald-
eyrir og flutn.gjöldin lækkuðu þá
þegar um helming. Hins vegar
var aðstaðan hérlendis til mót-
töku á lausu korni svo og möl-
un þess mjög erfið, svo verðið
lækkaði þá þegar ekki nema um
kr. 600.- pr. tonn, en ljóst var
að hægt var og rétt að haífa þenn-
an hátt á fóðurinnflutningi í fram
tíðinni og flytja þá vinnu sem
þessu fylgdi yfir á íslenzkar hend
ur, og óþarfi að greiða erlendu
vinnuafli gjaldeyri fyrir vinnslu
á vörunni. Við fluttum inn á
þessu fyrsta ári um 1800 tonn af
lausu korni og um áramótin 1966
1967 hófu svo bæði M.R. og SÍS,
innflutning á fóðri á sama hátt
og hafa þessi þrjú fyrirtæki síð-
an flutt inn árlega 20—30 þús.
tonn af lausu korni, malað það
hér og blandað íslenzku fiski-
mjöli, grænmjöli og öðrum nauð-
synlegum snefilefnum og fram-
leitt fóðurblöndur fjrir allar teg.
búfjár. Við þennan iðnað mun nú
láta nærri að vinni um 50—60
manns hérlendis.
Við í Fóðurblöndunni h.f. vor-
um búnir um nokfcra hríð að ala
með okkur þá von, að við gætum
reist hér fullkomna mölunar- og
blöndunarstöð, og fenigum á fyrri
hluta árs 1966 hingað erlendan
verkfræðing til áætlunargerðar og
leiðbeiningarstarfa. Fengum við
síðan erlent tilboð í allar vélar og
varð hetidaráætlun byggingar-
kostnaðar um 12 milljónir króna
fyrir verksmiðju sem gat afkast-
að 50 tonnum á dag,_ miðað við
8 klst. vinnudag. Með í þessari
áætlun var gert ráð fyrir köggl-
uðu fóðri og útbúnaði til að flytja
laust fóður í bulkbifreiðum beint
til bænda. Við sóttum þá þegar
um og fengum leyfi viðskipta-
málaráðuneytisins til erlendr-
ar lántöku á vélum. En á síðari
hluta ársins 1966 komu fram til-
lögur um breytingu á innflutn-
ingsháttum á fóðri. S'kapaðist þá
mikil óvissa um samkeppnisað-
stöðu okkar gagnvart innflutn-
ingi á fullunnu fóðri frá Evrópu,
og því talið óvarlegt að leggja í
mikla fjárfestingu fyrr en séð
væri, hvemig þróunin jrrði. . . í
ársbyrjun 1967 ex svo fóðurintt-
flutningur gefinn frjáls og hefur
verið það síðan. Við hófum þá
innflutning á fullunnu fóðri frá
B.O.C.M. í Bretlandi og seldum
þáð ásamt okkar innlendu fóður-
blöndum, auk þess seljum við nú
einnig fóðurblöndnr frá P.PJH. í
Danmörku, svo við -getum boðið
bændum fjölbreytt vöruúrval,
bæði sekkjaðar fóðurvörur og
eða laust á dœlubifreið okkar.
Að fenginni reynzlu, er sýni-
legt að íslenZkar fóðurvöruiðnað-
ur getur staðizt erlenda sam-
keppni og hefur félagið því ásamt
S.ÍJS. og M R. ákveðið að stíga
fyrsta framfarasporið til uppbygg
ingar öflugs fóðurvöruiðnaðar á
íslandi, með byggingu korngeyma
við Sundahöfn. Enda er það sann-
fœring okkar í Fóðurblöndunni
h.f., að hagur íslands og íslenzkra
bænda, er bezt tryggður með því,
að allur innflutningur og vinnsla
á kjarnfóðri sé í höndum
íslenzkra aðila.