Tíminn - 26.05.1970, Page 3

Tíminn - 26.05.1970, Page 3
MtroJUDAGUR 26. maí 1970. Stjórn Skólafélags Kennara- skólans Mótmælir tilskipun menntamálaráðherra varðandi inntöku í skólann Blaðinu barst í gær eftirfar- andi tilkynning: St.iórn Skólafélags Kennaraskóla íslands mótmælir harðlega síðustu tilskipun menntamálaráðherra varðandi inntöku almenns 1. bekkj ar í haust. Við hendurn á, að þessi tilskip- un brýtur algjörlega í bág við loforð ráðherra á uppeldismála- þingi síðastliðið sumar, en þá sagði hann, að í haust yrði stúd- entspróf eða sambærileg mennt- un inntökuskilyrði í skólann, eins og í nágrannalöndum okkar. Þar sem þessi yfirlýsing ráðherrans lá fyrir, álitu menn, að engir gagn- fræðingar eða landsprófsmenn yrðu teknir inn í haust. Sú verður þó eigi raunin á, ef svo fer, sem stefnir. Menntamála- ráðherra hefur aðeins hækkað eini unnamark gagnfræðinganna lítil- lega. Þess vegna má búast við, að nú setjist álíka f jöldi í fyrsta bekk og undanfarin ár. Og alveg eins og í fyrra er nú sagt, að þetta verði síðasti fyrsti bekkurinn með þessu sniði, — næsta haust verði inntökuskilyrðunum breybt. Þess ber einnig að geta, að vœntanlegum fyrsta bekk er ekki ætlað sams fconar nám og þeim, sem nú eru í skólanum. Ætlazt er til, að nám þessa „síðasta" bekkjar gagnfræðinga og lands- prófsmanna verði mun meira en fyrri árganga. Nám hans í skólan- um á sem sé ekki að vera fjögur ár til kennaraprófs eins og nú er, heldur sex eða sjö ár. Það jafn- gildir vitaskuld því, að þeir væru fjögur ár í menntaskóla, eða í framhaldsdeildum gagnfræðaskóla, og síðan þrjú ár í Kennarskólan- um. í reynd er því stúdentspróf eða sambærileg menntun gerð að inntökuskilyrði. Hins vegar á að hrúga fjölda nemenda, sem í raun- inni eru menntaskóla- eða fram- haldsdeildanemar í yfirfullan Kennarskólann. Hvers vegna í ósköpunum má nám þeirra ekki fara fram í menntaskólum eða framhaldsdeildum? Er ekki fárán- Iegt að setja þá í þann skólann, sem býr við mestu þrengslin, og er auk þess alls ekki menntaskóli og því síður framhaldsdeild gag.n- fræðaskóla, heldur sérskóli til að mennta kennara? Við mótmælum því harðlega, að kennaranám okkar verði útþynnt meir en orðið er með því að auka enn á þrengslin og aðstöðuleysið, algjörlega að ástæðulausu. Við bendum einnig á, að engum er greiði gerður með því að taka inn landsprófsmenn og gagnfræðinga í haust, því að menntun þeirra hlýtur einnig að bíða tjón af alls- leysi Kennaraskólans, sem nú þeg- ar hefur tæplega 1000 nemendur, þó svo að skólahúsið sé gert fyrir 200. Þess vegna er það krafa okk ar, að í haust verið einungis tekn ir inn nemendur, sem hafa stúd- entspróf eða sambærilega mennt- un. Það er eina lausnin, sem við- unandi er fyrir kennaramenntun- ina í landinu. Stjórn Skólafélags Kennarskóla íslands. Bílar á kjördag Þeir stuðningsmenn B-listans, ^em lána vilja bíla á kjördag, eru beðnir að hafa saniband við kosningaskrifstofuna sem fyrst. TÍMÍNN Fyrsti vinningurinn í Gestahappdrætti sýningarinnar var afhentvr f dag. ÞaS er Elna Supermatic saumavéi. Á myndinni sést Baidur Ágústsson, verziunarstjóri h|á Silla eg Valda, óska vinningshafa, Elísabetu Jóhanns- dóttur tll hamingiu. (Tímamynd: GE) AÐGANGUR BARNA TAKMARK- AÐUR AÐ HEIMIUSSÝNINGUNNI SB-Reykjavík, mánudag. Á sýningunni „Heimilið-veröld innan veggja“, var í dag tilkynnt, að framvegis fengju börn innan 12 ára ekki aðgang, nema í fylgd með fullorðnum. Þótti starfsfólki sýningarinnar mál til komið, því að það hefur verið erfiðleikum bundið undanfarna daga, að hafa hemil á börnum, sem komið hafa á sýninguna ein síns liðs og notað staðinn til að leika sér á! Um 13000 manns höfðu séð SJ—Reykjavík, mánudag. í dag voru birt úrslit í sníða- og saumasamkeppni Álafoss h.f., „Norðurljósaföt 1970“. Þátttak- endur voru 14 og átti fatnaður- inn að vera úr ullarefnum, svo- nefndum norðurljósaefnum frá verksmiðjunni Álafoss. Tíu verð- laun voru veitt, 25.000 kr., 5.000 kr. og átta 1000 kr. verðlaun. Fyrstu verðlaun hlaut Svava Finn bogadóttir, Akranesi, fyrir sam- festing í rauðum litum með húfu og veski úr sama efni. Dóra Guð- björt Jónsdóttir fékk önnur verð- laun fyrir minikjól með silfur- keðju og belti, sem hún hefur sjálf smíðáð. Svava hefur áður_ fengið verð- laun í keppni hjá Álafoss en þá fyrir prjónaskap. Það var fyrir útprjónaða herrapeysu með sjals- kraga, sem síðan hefur verið frám leitt mikið af í fjöldaframleiðslu. Framsóknarmenn og aðrir stuðningsmenn B-listans, sem fengið hafa senda happ- drættismiða vegna borgar- stjómakosninganna, em vin- samlega beðnir að gera skil sem allra fyrst. Uppgjöri er veitt móttaka að Hringbraut 30, á afgreiðsiu Tímans í Banka- stræti og á öllum hverfaskrif- stofum flokksins. sýninguna um lokun í gærkvöldi, þar af komu 5000 í gær, sunnudag. Um fimmleytið í dag, fékk blaðið þær upplýsingar, að inn á svæðið hefðu, það sem af er deginum, selzt 70 aðgöngumiðar fyrir full- orOna, en 300 fyrir börn. Starfsfólk í hinum ýmsu deildum kvartaði svo mikið undan ágangi barnanna, sem jafnvel voru í eltingaleik eða feluleik á sýningarsvæðiinu, að gripið var til þess, að takmarka að- gang barna að sýningunni. Seinnipartinn í dag var tízku- Svava fékk á sínum tfma önnur verðlaun fyrir hana. Saimfesting- inn, sem verðlaun hlaut að þessu sinni, hefur Svava hugsað sér eink um fyrir unglingsstúlkur, en eig- endur Álafoss h.f. telja norður- ljósaefnin eiga vel við £ fatnað handa þeim aldursflokki. Dóra Guðbjört Jónsdóttir er gull- og silfursmiður, og taldi hún að beltið, myllurnar og keðjan sem fylgja kjól hennar kostuðu um 4000 kr. í framleiðslu. en vitaskuld væri unnt að búa þessa hluti til úr ódýrara efni en silfri. Heimilt var að senda fatnað á karla og konur. börn jafnt sem fullorðna í keppnina, en enginn þátttakenda hafði ráðizt í að sauma norðurljósaföt handa kari- mönnum. Hvenær fáum við að sjá íslenzka karlmenn ganga á ný í innlendum litklæðum? Þriðju til tíundu verðlaun hlutu þessar konur: Kristín Kristinsdótt- ir, Reykjavík, Elín Jónsdóttir, Kópavogi, Margrét Jako'bsdóttir, Reykjaví’k, Steinunn Friðriks- dóttir, Hafnarfirði, Steinunn Thor arensen, Mosfellssveit, Guðrún Eyj ólfsdóttir. Kefiavík, Eva Vilhelms dóttir, Reykjavík og Sigurdís Sveinsdóttir, Reykjavík. Þau skilyrði voru fyrir þátt- töku í keppninni að Álafoss hefði framleiðslurétt á verðlaunafatnað inum og sýningarrétt í 4 mánuði. Dómnefnd skipuðu: Frú Dýrleif Ármann, frú Auður Laxness og Björn Guðmundsson, klæðskeri. Norðurljósaefnin éða regnboga- sýning og voru áhorfendur mest- megnds börn. „Lukkupotturinn", vinsæli, í bás Dráttarvéla, hefur verið opnaður 6 sinnum það sem af er sýningunni og enn er alltaf biðröð vi® nann. Vinningur í Gestahappdrættinu er dregdnn út á 3ja daga fresti og síðasti vinningurinn, Elna Super- matic saumavél, sem dregin var út á laugardagskvöldið féll í hlut Elísabetar Jóhannsdóttur. Næsti vinningur er Mallorca-ferð, sem dregin verður út á þriðjudaginn. efnin eins og þau eru líka' nefnd eru þunn ullarefni og kosta um 450,00 kr. metrinn. Atvinnumálaáætlun f ræðu sinni í útvarpsumræð unum um borgarmálefni Reykja víkur, sagði Kristján Benedikts son, borgarfulltrúi Framsóknar flokksins, að þa'ð væru tvö at- riði, sem Framsóknarmenn teldu þýðingarmest í stjórn borgarinnar. Annar væri með- ferð á fjármálum borgarinnar og hitt væri atvinnuuppbygg- ingin. Um þetta sagði Kristján: Hvernig til tekst í þessum efnum skiptir sköpum um það, hvort hér verða eðlilegar fram- farir á næstu árum, hvort hér verður fátækt e@a velsæld. Framsóknarflokkurinn leggur á það höfuðáherzlu, að aukins sparnaðar og hagsýni verði gætt í öllum rekstri borgarinn ar og stofnana hennar, þannig að sem mestur hluti teknanna nýtist til framkvæmda og ann- arra nauðsynlegra verkefna. Flokkurinn telur, að vel þurfi að vanda fjárhagsáætlan- ir og skipuleggja framkvæmdir borgarinnar langtum betur en gert hefur verið til þessa og koma í veg fyrir, að fjármagn liggi árum og áratugum saman í hálfgerðum byggingum og mannvirkjum, sem ekki er brýn þörf fyrir, meðan önnur nauð- synlegri verkefni bíða úrlausn- ar vegna fjárskorts. Framkvæmdir á vegum borg arinnar verði við það miðaðar a@ þjóna þörfum borgarbúa í heild og nýta fjármagnið sem bezt og skynsamlegast. Framsóknarflokkurinn vill stuðla að því, að heilbrigð verktakastarfsemi geti þróazt og að verklegar framkvæmdir verði boðnar út. Þess verði gætt að íþyngja ekki láglaunafólki né þeim, sem mikla ómegð hafa, með of háum útsvarsgrciðslum. Fasteignaskattar af hóflegu íbúðarhúsmæði verði ekki gerð ur að tekjulind borgarinnar umfram það, sem nú er og létt verði undir með nýjum atvinnu greinum með því a@ skatt- leggja þær vægilega fyrstu árin. Framsóknarflokkurinn leggur til, að gerð verði sérstök áætl- un um atvinnumál í borginni næstu árin og verði við samn- ingu hennar gætt fyllsta sam- ræmis við tilsvarandi áætlanir annarra byggðarlaga. Telur flokkurinn, að efla beri undirstöðuatvinnuvegina, og brýn nauðsyn sé að koma á fót nýjum atvinnugreinum, útrýma atvinnuleysi og skapa þeim Reykvíkingum, sem dvelj ast erlendis í atvinnu, mögu- leika til að snúa heim aftur. Þá telur flokkurinn, að borg in eigi að haga framkvæmdum sínum þannig, að þær stuðli að atvinnujöfnun milli ára og henni beri að leggja höfuð- áherzlu á að efla og glæða at- vinnulífið almennt fremur en gerast beinn þátttakandi í at- vinnurekstri, nema brýna nauð- syn beri til. Útqerðin í Reylqavík Framsóknarflokkurinn telur nauðsynlegt, að Bæjarútgerðin verði endurskipulögð með það Framhnld á 11. sfðu Verðlaun veitt fyrir „Norðurljósaföt 1970”

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.