Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 1
2005  FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÍVAR INGIMARSSON SAMDI Á NÝ VIÐ READING / C2 SEBASTIAN Alexandersson markvörður og þjálfari handknattleiksliðs Selfoss slasaðist illa í leik liðsins gegn Þór á Akureyri í gær í 16-liða úrslitum SS- bikarkeppninnar. Sebastian varði skot af stuttu færi frá leikmanni Þórs með hendinni og við höggið gaf vöðva- festing í upphandlegg sig og rifnaði. „Þetta lítur ekki vel út og að öllum líkindum verð ég frá í nokkrar vikur og jafnvel nokkra mánuði. Ég þarf að fara í aðgerð og bætist við langan sjúkralista leikmanna félagsins,“ sagði Sebastian í gær en hann átti að fara í nánari skoð- un á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og var ekki bú- inn að fá endanlega staðfestingu á hversu alvarleg meiðslin væru. „Eins og þetta lítur út núna þá er ég ekki bjartsýnn á að þetta sé ekki alvarlegt,“ bætti hann við. „Skotið var nokkuð fast en ekkert öðruvísi en mað- ur á að venjast en ég fann að það gaf sig eitthvað við olnbogann um leið og boltinn fór í mig. Kannski er mað- ur orðinn of gamall og skrokkurinn eitthvað farinn að gefa sig,“ bætti hann við í léttum tón. Sebastian þarf að fara í uppskurð FORRÁÐAMENN Bolton fylgj- ast þessa dagana náið með ástr- ölskum strák sem kallaður hefur verið „hinn nýi Wayne Rooney“. Drengurinn, sem heitir Panos Armenakas, er aðeins sjö ára gamall, en hann er engu að síður talinn gríðarlegt efni. Barcelona hefur þegar sent menn til Ástralíu til að skoða pilt og í vikunni fór Chris Sulley, sem er yfir knattspyrnuakademíu Bolton, til Ástralíu til að fylgjast með honum. Niðurstaðan úr þeirri ferð var að nú er fyr- irhugað að piltur komi og kanni aðstæður á Reebok Stadium þeirra Boltonmanna. „Hann kemur til Englands í næsta mánuði í frí og ætlar að nota tímann til að æfa aðeins með Bolton, bara til að sjá hvern- ig honum líkar að æfa með at- vinnumannaliði,“ sagði Dan Fletcher, umboðsmaður piltsins. „Nokkur ensk félög vita af hon- um og ef hann heldur áfram á þeirri braut sem hann hefur ver- ið á þá gæti hann vel orðið næsti Wayne Rooney eða Freddy Adu.“ Bolton skoðar „nýjan“ Rooney Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kári Kristján Kristjánsson, línumaður Hauka, fór mikinn gegn KA í 16-liða úrslitum SS-bikarkeppn- innar í gær þar sem Haukar, Stjarnan og Þór frá Akureyri tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum. / C3 Þetta eru stór tíðindi fyrir íslensk-an kvennafótbolta því Ísland á mjög raunhæfa möguleika á að kom- ast í lokakeppni EM eftir þessa breytingu. Ef fjölgunin hefði átt sér stað fyrir síðustu úrslitakeppni, sem fram fór í Englandi í sumar, hefði Ís- land komist þangað en íslenska landsliðið tapaði fyrir Noregi í auka- leikjum um sæti í úrslitakeppninni. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, á sæti í framkvæmdastjórn UEFA og var mjög ánægður með að fjölgunin hefði verið samþykkt. „Þetta er stórt mál fyrir kvennafót- boltann í Evrópu og við Norður- landabúarnir í framkvæmdastjórn- inni studdum þetta dyggilega. Það voru einhverjar vomur á mönnum með að samþykkja þetta en það hefðu að mínu mati verið röng skilaboð til þeirra sem hafa barist við að byggja upp kvennafótboltann í Evrópu ef til- lagan hefði verið felld og ekki kæm- ust fleiri en átta af 52 aðildarþjóðum UEFA í úrslitakeppnina. Þetta er mjög mikilvægt skref og það sýndi sig í úrslitakeppninni í Englandi í sumar að svona keppni er ekki lengur byrði á þeim sem hana halda, heldur eru hún farin að skila hagnaði. Það var góð aðsókn á leikina í Englandi og sterkir styrktaraðilar sem komu að þeirri úrslitakeppni. Hvað okkur Íslendinga varðar, þá hljótum við nú að setja stefnuna á að vera með í úrslitakeppninni árið 2009,“ sagði Eggert við Morgunblað- ið í gær en UEFA mun á næstunni óska eftir umsóknum um að halda keppnina. Ísland í tíunda sæti í Evrópu Íslenska kvennalandsliðið er í 10. sæti af Evrópuþjóðum á heimslista FIFA, 17. sæti af öllum þjóðum heims, og hefur til þessa verið í bar- áttu um að komast í lokakeppni átta liða en ávallt vantað herslumuninn. Evrópuþjóðir fyrir ofan Ísland á heimslistanum eru Þýskaland, Nor- egur, Frakkland, Svíþjóð, Danmörk, Ítalía, Rússland, England og Finn- land. Telja má líklegt að einhver þessara þjóða fengi til sín úrslita- keppnina 2009 og þá ykjust mögu- leikar Íslands enn. Næstu þjóðir fyr- ir neðan Ísland eru Holland, Úkraína, Spánn, Tékkland, Sviss og Serbía-Svartfjallaland. Knattspyrnusamband Evrópu leggur til tólf liða úrslitakeppni Evrópumóts kvenna 2009 „Röng skilaboð ef til- lagan hefði verið felld“ FRAMKVÆMDASTJÓRN Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, samþykkti á fundi sínum á Möltu í fyrradag að fjölga liðum í úr- slitakeppni Evrópumóts kvennalandsliða úr átta í tólf, frá og með næstu keppni. Undankeppni fyrir hana hefst árið 2007 og úr- slitakeppnin fer fram árið 2009. ■ „Mikil gleðitíðindi“ / C4 Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.