Tíminn - 02.07.1970, Qupperneq 2
2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 2. Júlí 1970.
ROSKINN BÓNDI SÝNIR
MÁLVERK Á LISTAHÁTÍÐ
Einn 36 listamanna, sem sýna
verk sín á sýningunni, fslenzk
nútímamyndlist, í Myndlistarhús-
inu á Miklatúni, er Einar Karl
Sigvaldason, fyrrum bóndi að
Fljótsbakka við Skjálfandafljót.
Einar Karl Sigvaldason.
Hann hefur nú vikið þaðan fyrir
nýrri kynslóð, og sonur hans er
tekinn vi® jörðinni. Einar Karl
býr nú að Smyrlahrauni 6 í
Hafnarfirði.
Við hittum Einar Karl að imáli
fyrir skömmu og spurðum hann
um þátttöku hans í sýningu sam-
tíðarmálara.
— Ég á tvö olíumálverk á sýn-
ingunni, annað nefni ég „Frá lið-
inni tíð“, og sýnir það pilt og
stúlku að binda bagga. Hitt mál-
verkið er af spóa, setn er að villa
um fyrir hundi svo hann fari
ekiki í hreiðrið hans. Það heitir
„Á heiðinni". Þessar myndir eru
báðar nýlegar. Ég byrjaði að
teifena 8 ára gaenall, og olíuliti
féfek ég þegar ég var 17 ára. Ég
hef alla tíð síðan fengizt við
myndagerð í tómslundum. Einn
vetur var ég við þetta sem aðal-
nám hjá Þórhalli heitnum Björns
syni, teikni- og smíðakennara, að
Laugum.
— Það er allt í lagi með bónda,
þótt enginn geti um hann, sagði
Einar Karl, — en það er verra
með málara, þeir verða helzt að
vera eitthvað á orði. Ég er annars
ekkert að hugsa um að halda
sjálfstæða sýningu strax.
Einar Kari Sigvaldason starf-
aði í vetur í fiskiðjuveri í Hafn-
arfirði, en málar þegar hlé verð-
ur frá vinnu. Hann á talsvert
af myndum í sínum fórum og
kvaðst ef til vill halda sýningu
í haust eða næsta vor.
— S.J.
Annað tveggja málverka Einars
Karls á sýningunni á Miklatúni.
(Myndir GE.).
Fljúgandi diskur - eða hvað?
hringinga frá fólki, sem einnig I an um, að hlutur þessi hefði sézt
sá hlutinn. Þá sáu hann einnig greiniiega og að hann væri flat
margir fiskimenn. Öllum bar sam I ur, kringlóttur og iýsandi.
Samstarf Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags í Grundarfirði
NTB—San Juan, miðvikudag.
Einkennilegur hlutur, flatur,
kringlóttur og lýsandi, sást á
flugi í nánd við Vestur-Indíur í
fyrrinótt. Þúsundir manna sáu hlut
inn. en það var áhöfnin á „Ra 2“
sem fyrst tilkynnti um þetta fyrir
bæri.
Norman Bafeer, siglingafræðing
ur var á stjómvakt, þegar hann
sá einkennilegt fyrirbæri á lofti.
Baker vakti Heyerdahl og mexi
kanska mannfræðinginn, sem með
er í förinni. Þeir stóðu aliir þrír
og fylgdust með þessum hlut í
fullar tíu mínútur.
Áhöfn „Calamara" hafrannsókn
arskips Sameinuðu þjóðanna, til-
kynnti einnig, að þar hefði verið
fylgzt með þessum hlut.
Dagblöð og útvarpsstöðvar á
Karíbaeyjum fengu hundrúð upp
KJ—Reykjavík, miðvikudag.
í Grundarfirði misstu Sjálf-
stæðismenn meirihluta sinn í
hreppsnefnd í sveitarstjórnarkosn
ingunum, sem fram fóru 31. maí
s. 1. Unnu Framsóknarmenn
hreppsnefndarmann af Sjálfstæð
isflokknum.
Nú virðist hafa tekizt samstarf
með Sjáilfstæðismönnum og Al-
þýðubandalagsmönnum í hrepps
nefndinni, því Halldór Finnsson
efsti maður á lista Sjálfstæðis-
manna var endurkjörinn oddviti
í Grundarfirði með atkvæðum
Sjálfstæðismanna og Alþýðubanda
lagsfulltrúans.
Starf sveitarstjóra í Grundar-
firði hefur verið auglýst laust til
umsóknar, og nú er eftir að vita
hvort Sjálfstæðisflokkur og
Alþýðubandalag standa saman að
fejöri sveitarstjóra.
Norðurá: 459 —
Þverá: 435
f júnímánuði veiddust alls 459
laxar á stöng úr Norðurá í Borg
arfirði, á móti 236 á sama tíma
í fyrra. Eru þessir laxar veiddir
á 30 dögum (áin opnuð 1. júní)
Og það var hann Árni Kristjáns-
son, forstjóri, sem fyrsta laxinn
veiddi á stöng úr ánni þetta veiði
tímabilið, og jafnframt fyrstur
stangveiðimanna landsins e_r
veiðir lax á stöng þettá árið. Á
dögunum skrapp Árni norður í
land og renndi í Víðidalsána, þar
sem hann fékk sinn annan lax, og
var sá 7 punda.
Þveráin kennir wm fvrr vi«
nábýlissystur sína, Norðurána.
Veiddust 435 laxar úr Þverá í júní
og eru þeir veiddir á 20 dögum
(áin opnuð 10. júní). Hefur veiðin
þar verið mjög jöfn og enginn
„laxlaus" dagur komið þafK frá
þvf áin var opnuð. Á laugardag
og sunnudag veiddust alls 40 lax-
ar á þær fimm stengur, sem þá
voru í ánni.
f fyrra veiddust um 400 laxar
á stöng úr ánni í júnímánuði, en
alls munu 1400 laxar hafa veiðzt
úr ánni allt veiðitímabilið í
fyrra.
Þverá: 21,8 á dag, —
NorSurá: 15,3 á dag
Ef reiknað er út eftir fyrr-
greindum tölum þessara feng-
sælu vatnsfalla, hve margir laxar
hafa veiðzt að meðaltali úr án-
um í júnímánuði, kemur í Ijós,
að Þverá er með tæpa 22 laxa
að meðaltali á dag, en Norðurá
með rúma 1S laxa á dag. Hins
vegar verður að gæta að þvi, að
lítið var um veiði úr Norðurá
fyrstu dagana eftir að hún var
opnuð, þar eð mikil flóð voru
í ánni svo og kuldi, og mun
stangaveiðin þar ekki hafa byrjað
fyrir alvöru fyrr en um 10. júní,
eða þegar Þveráin var opnuð.
— EB.
NTB-Tromsö — Mikil hita-
bylgja hefur gengið yfir Nor
eg undanfarið og hefur dag
eftir dag verið þar um 30
stiga hiti víða.
NTB-London — f gærkvöldi
hófst sólarhringsverfefall flug
freyja og flugþjóna hjá brezka
Flugfélaginu BEA, samtals um
1300 manns. Aflýsa varð 169
áætlunarferðum, sem 15000
farþegar ætluðu með. Talið er,
að á þessu verkfalil startfsfólks
ins. hafi BEA tapað 250 þús
und pundum í fargjöldum.
NTB-Hilleröd. — Tveir gríinm
klæddir menn rændu í gær
banka í Hilleröd. Þeir komust
undan í bíl með hátt í tvær
mi'lljónir ísl. króna. Bíllinn
fannst yfirgefinn litlu seinna,
en hvorki hefur sézt tangur
né tetur af ræningjunum.
MIKIL LÆKKUN Á
TELEX-GJÖLDUM
Hinn 1. júlí 1970 lækkar gjald-
ið fyrir símtöl, telexviðsfeipti og
skeyti til ýmissa Evrópulanda.
Lækkunin er mest á telexvið-
skiptunum, eða um eða yfir helm
ing til helztu viðskiptalandanna í
Evrópu, sem hægt er að hafa sjálf
virkt samband við og nýlega hef-
ur komizt á. T. d. til Danmerfeur
læfekar telex-viðsfeiptagjaldið úr
kr. 216.00 í kr. 87.00 fyrir 3 mín-
útur. Símtölin lækka um rúmlega
40 kr. viðtalsbilið til flestra landa.
Símskeytin breytast minna, lækka
flest um nærri 90 aura pr. orð,
en er óbreytt til Bretlands og
Norðurlanda. Ennfvemur lækkar
telexgjaldið til Kanada og Banda-
rikjanna um fjórðung. Ástæðan
fyrir þessum lækkunum er aðai-
Sumargistiheimili
Kvennaskólanum
Blönduósi
FB—Reykjavík, miðvikudag.
Gistiheimili í Kvennaskólanum á
Blönduósi var opnað 15 júní s.l.
Sigurlaug Eggertsdóttir, hús-
mæðrakennari veitir heimilinu
forstöðu í sumar, en margir munu
kannast við hana frá því hún veitti
forstööu gistiheimili í húsmæðra
skólanum á Löngumýri ásamt Jón
ínu Bjarnadóttur, húsmæðrakenn-
ara, og nú skólastýru húsmæðra-
skóíans á Laugum.
Á gistiheimilinu á Blönduósi
verður á boðstólum morgunverð-
ur, næturgisting, móttaka hóp-
ferða, kaffisala með gómsætum
kökum og fyrirgreiðsla fólks með
viðleguútbúnað. Gistiheimilið verð
ur opið fram f september næst
komandi.
Mannlaus bifreið
niður brekku
eftir árekstur
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
I gœr var ekið á bílinn Y-2734,
sem er rauður Volkswagen, á stæð
inu við Bllaþjónustuna við Suð-
urlandsbraut. Varð áreksturinn
um kl. 6. Sá sem ók á bílinn hef-
ur hraðað sér á brott strax eftir
verknaðinn og er hans nú leitað.
Við ákeyrsluna var hægra aft-
urbretti Volkswagnsins dældað en
áreksturinn varð svo harður. að
bíllinn, sem var mannlaus rann
niður brekkuna áleiðis niður á
Suðurlandsbraut. Þar lenti bíllinn
á steinvegg og skemmdist talsvert
við þann árekstur. Ef einhver vitni
hafa orðið að þessum atburði e’-
viðkomandi beðinn að láta um-
ferðardeild rannsóknarlögreglunn
ar vita.
lega sjálfvirka sambandið á Tel-
ex, og svo breytingar á sæsíma-
gjöldum.
Reykjavík, 1. júlí 1970.
Póst- og símamálastjórnin.
VINNINGAR
í KOSNINGA-
HAPPDRÆTTI
REYKJAVlKUR
KJÖRDÆMIS
1970
1. Nr. 13400 Ferð til Mallorca f.
tvo. Nr. 2 — 7 Flugferðir til Evr
ópu f. tvo komu á númer 3317,
4449, 4450, 7328, og 15119. nr.
, og 9. Skipsferð til Evrópu hvor
miði fyrir tvo. nr. 18388 og 7362.
(Birt án ábyrgðar)
SÝNINGAR
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Málverkasýningar þær, sem stað-
ið hafa í tilefni af Listahátíðinni
hafa verið framlengdar til sunnu-
dagskvölds, og auk þess högg-
myndasýningin á Skólavörðuholti.
Sýning Munchs í viðbyggingu Iðn
skólans vefður opin frá klukfean
14 til miðnættis alla daga.
Victoria de los
Angeles
synpr í kvöld
EB-Reykjavík, miðvifeudag.
Vegna þess að spænska söng-
konan Victoria de los Angeles,
er kom hingað til landsins í gær,
kvefaðist lítillega við að koma
í hið norræna loftslag, hefur
hljómleikunum í Háskólabíói, þar
sem hún mun syngja einsöng,
verið frestað um einn dag. Ákveð
ið hafði verið að hljómleikarnir
hefðust kl. hálf níu í kvöld, en
vegna fyrrgreindra orsaka hefj-
ast þeir nú á sama tíma annað
kvöld i Hásfeólabíói.