Tíminn - 02.07.1970, Page 6
*
TÍMINN
Sivaxandi fjöldi fólks les
SAMTÍÐINA
hið skemmtilega heimilisblað allrar fjölskyldunn-
ar. Þið fáið póstsend 10 stór blöð á ári fyrir að-
eins 200 kr., og kostaboð okkar til nýrra áskrif-
enda er: 3 árgangar fyrir aðeins 375 kr., meðan
upplag endist.
Póstsendið því strax þennan pöntunarseðil:
Ég undirrit. óska að gerast áskrifandi að
SAMTÍÐINNI og sendi hér með 375 kr. fyrir
árgangana 1968, 1969 og 1970. (Vinsamlegast
sendið þetta í ábyrgðarbréfi eða póstávísun).
Nafn ...........................
Heimili.........................
Utanáskrift: SAMTÍÐIN, Pósthólf 472, Reykjavík.
Laust starf
Starfsstúlka óskast að Sundlaug Kópavogs. Laun
samkvæmt 9. launaflokki. Frekari upplýsingar
um starfið veitir forstöðumaður sundlaugarinnar.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 15. þ.m. og
sé þar greindur aldur og fyrri störf.
1. júlí 1970.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Ferðafólk - Ferðafólk
Heitur matur í hádeginu og á kvöldin.
Grill-réttir — kaffi og smurt brauð allan daginn.
Staðarskáli, Hrútafirði.
Ánamaðkar til sölu
Upplýsingar í síma 12504 og 40656.
Ádalen ’31 Leikstjóri: Bo
Gunnar Wider'berg. Kvikmynd
ari: Jörgen Person. Sænsk frá
1969. Sýningarstaður: Gamla
bíó. Myndin er í litum.
Þessi stórmerka tnynd ein-
kennist af samiið og skilningi
á báðum aðilum, verkamönn-
'um og iðjuhöldum. Ríka fólkið
gæti ekki breytt öðruvísi og
fátækir eiga engra kosta völ.
Myndin fjallar um hina ör-
lagaríku baráttu venkamanna
fyrir betri kjörutn 1931 í Ada-
len í Norður-Svíþjóð. Verk-
smiðjueigendur fengu herinn
til að vernda verkfallsbrjóta
sem þeir fengu til að skipa
út farmi. Þá kom til átaka og
verkfallsmenn ákváðu að ganga
til Lunde tnáli sínu til stuðn-
ings.
En herinn hóf skothríð á
óvopnaða göngumenn og drap
fimm. Myndin er tileinlkuð
minningu þeirra sem féllu.
Widerberg hefur verið minn-
ingu þeirra trúr.
Hann teflir fram andstæð-
um, heimili verkamanns og
iðjuhölds, þeir eru báðir ósköp
venjulegir menn. Iðjuhöldur-
inn veit að fjórir aurar erj svo
sem ekkert en einhver verð-
ur að hugsa um þá. „Það verð
ur að halda atvinnulífinu gang
andi“ segir verkfallsbrjótur-
inn, það er næstum hægt að
sjá hver lagði honum orðin
í munh.
Kjell (Peter Schildt) ungi
verkamannssonurinn er íengi-
liður milli fjölskyldnanna.
Hann er keimlfkur Anders í
„Kvarteret Korpen“ sem Wid-
erberg gerði 1963. Hann þyrst
ir í þekkingu, veit að mennt
er máttur. „Við verður að afla
okkur þekkingar" segir hann.
Fyrstu fálmandi skref hans á
vegi ástarinnar er í senn
spaugileg og brjóstumkennan-
leg.
Hann er opinn fyrir nýjung-
um, hefur gaman af jazz, hann
FIMMTWDAGUR 2. júlí 1970.
Á myndinni sést Harald Andersson dauösærður í Ádalen ’31
eftir Bo Widerberg.
og félagarnir reyna að herma
eftir Duke Ellington í „Black
and tan fantasy" með heima-
tilbúnum hljóðfærum.
Hedwig (Anita Bjorik) kona
verksmiðjueigandans sýnir hon
um heim langt frá striti hvers
dagsins, verk frönsku impressó
nistanna. Hún leikur líka fyrir
hann klasssíka tónlist.
Foreldrarnir, Harald Anders
son (Roland Hedlund) og móð
irin (Kirsten Tidelius) eru sér
staklega vel valin og leikin,
gerfi alveg afbragð. Byrjunia
geymir í sér alla töfra myndar
innar, þegar hún strýkur skyrt
una, hjálpar honum í og horf
ir á hann með tilliti fullu af
ást og trausti sem endurminn-
ingar margra nótta og daga
skapa.
Ekkert styggðaryrði heyrist
um verkfallið sem óhjákvæmi-
lega hefur í för með sér eymd
og skort fyrir fjölskylduna.
Þau gera sér dagamun og
fögnuður yfir lifinu sjálf j gagn
tekur þau, hér er engin þörf
að segja „ég elska þig“, öll
útslitin orð eru óþörf þar sem
hamingjan ríkir.
Gildi myndarinnar er eink-
um fólgið í ýkjulausum lýsing
um á þessu fólki, sem höfund
ur þekkir niður í kjölinn. —
Hann talaði við marga sem
tóku þátt í verkfallinu og þeir
koma fram í göngunni miklu.
Næmt auga Persson fyrir
litum og birtu gera mynd þess
að listaverki hvað snertir kvik
myndatöku. Allt of oft eru litir
notaðir eins og súkkulaðihjúp-
ur um sykurbráð en hér undir
strika þeir. T.d. þegar Kjell
sér myndirnar í bókinni, sjá
um við móður hans með litiu
dóttur sína við árbakkann aS
þvo þvott, efni sem marg’r
impressónistanna spreyttu sig
á.
Þó að myndin fjalli um stór
pólitísk átök missir Widerberg
hvergi sjónar á aðalatriðinu,
fólkinu sjálfu, sem berst fyrir
betri framtíð fyrir börnin. Hún
er átakanlega sönn og heii-
steypt, það örlar hvergi á öfg
um, enginn tilraun gert heldur
til að fegra veruleikann.
Frábær natni Widerbergs
dylst hvergi, við hið minnsta
atriði. Hann gerir rétt í því
að nota enga tónlist sem ekki
tilheyrir atburðunum, það er
mikið áhrifaríkara að heyra
litlu ósamhljóma hljómsveitina
leika „Internationalin", en ein
hverja fína hljómsveit.
Kjell er maður framtíðar-
inar, hann verður á einum degi
fullorðinn, tekur á sig skyldur
og kvaðir. Það er til hans sem
móðir hans leitar þegar hún
fær ekki afborið tómleika og
sorgina, hann rífur í sundur
blóðuga skyrtu föður síns, nú
verður að hefjast handa.
Eins og í Elvira Madigan er
lokaatriðið frábærlega fallegt,
litla stúlkan leikur sér að sápu
kúlum úti í skógi, faðir hennar
lét ekki líf sitt til einskis. Sví
þjóð er mesta velferðarríki
heims.
Það ætti enginn að láta þetta
áhrifamikla listaverk óséð.
MEST NOTUÐU
H3ÓLBARÐAR
Á ÍSLANDI
Flestar gerðir
ávallt
lyrirliggjandi
KAUPFÉLAG
TÁLKNAFJARÐAR,
TÁLKNAFIRÐI.