Tíminn - 02.07.1970, Page 12
n
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 2. júlí »16.
Vera Caslavska —' hefur endursent öll sín verðlaun til Svoboda
— hér er hún með manni sínum, Josef Odlozil, sem nú hefur
verið rekinn úr tékkneska fþróttasambandinu, þegar þau voru
gefin saman meðan á Olympíulcikunum í Mexíkó stóð.
Skilaði verð-
launapeningunum
Tékkneska fimleikakonan,
Vera Caslavska, sem unnið hef
ur til margra gullverðlauna, á
Ólympíulei'kum og heimsmeist
aramótum fyrir þjó'ð sína, hef
ur endursent öll þau verðlaun,
sem hún hefur unnið til, og
gefin hafa verið af tékkneska
íþróttasambandinu, og ríkinu.
Sendi hún öll verðlaunin til
forsetans, Ludvik Svoboda, í
mótmælaskyni við, að maður
hennar, silfurmethafinn í 1500
m. á Ólympíuleikunum í
Tokío, Josef Odlozil, hefur
verið rekinn úr tékkneska
íþróttasambandinu, og bönnuð
öll afskipti af íþróttum. vegna
stuðnings við Dubcek, og hans
stefnu í stjórnmálum.
Fyrir utan, Odlozil voru 7
aðrir kunnir íþróttamenn og
þjálfarar reknir úr samband-
inu. og meðal þeirra er Emilie
Zatopek, hinn heimsfrægi
hlaupari, allir fyrir sömu sök.
■fr Eins og við sögðum Ifrá í
blaðinu s.i. þriðjudag, fór fram
opin kvennakeppni hjá Golf-
klúbbi Ness um helgina, og
ur'ðu þá efstar og jafnar Laufey
Karlsdóttir og Eiísabet Möller.
Þær útkljáðu keppnina í vik-
unni, og sigraði þá Laufey í 18
holu keppni (98—26= 72) Elísa-
bet fór á (102—25=77).
Á laugardaginn kemur fer fram
hjá Golfklúbbi Ness 18 holu
höggleikur með forgjöf, svonefnd
„Ambassadorkeppnin“ en verð-
laun til hennar eru gefin af vín
firmanu Ambassador.
■fc Hjá Keili í Hafnarfirði fer
fram á laugardag svonefnd hjóna
keppni, en í þeirri keppni taka
þátt flestir eða allir karlmenn
klúbbsins.
Slá þeir fyrstu höggin á hverri
braut, en eiginkonan lýkur svo
við hverja holu með því að slá
síðustu höggin, sem stundum geta
orðið nokkuð mörg.
Ekki má bóndinn mögla, þótt
ilia gangi, því hann getur fengið
víti, fyrir að skamma konuna á
golfvellinum.
Á sunnudag hefst' í Grafar-
holti önnur stærsta golfkeppni
sumarsins, en það er keppni, sem
er haldin í tilefni íþróttahátíðar
ÍSÍ.
Hefst keppnin á sunnudag, en
henni lýkur laugardaginn 11. júlí.
Keppt verður í öllum flokkum. Þ.
a. s. í meistaraílokki, 1. flokki, 2.
flokki og 3. flokki karla, öldunga,
unglinga og drengja, svo o>g í
kvenna og stúlkna.
ÍÞRÓTTA
HATÍD1970
- setningarathöfn fer fram á sunnudag
Alf—Reykjavík, — f gær boð
aði stjórn ÍSÍ blaðamenn á sinn
fund og kynnti þeim dagskrá
fþróttahátíðar ÍSf, sem hefst um
helgina. Er dagskráin mjög fjöl
brcytt, enda verða sýndar eða
keppt í 20 greinum íþrótta. íþrótta
þing hefst á laugardag, en hin
eiginlega íþróttahátíð hefst með
skrúðgöngu íþróttafólks á Laug
ardalsvöll á sunnudag, en þar
mun Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ
setja hátíðina. — Nánar verður
skýrt frá hátíðinni næstu daga, en
hér á eftir fer dagskráin 3 fyrstu
dagana.
LAUGARDAGUR 4. júlí.
Kl. 13,30 Sumarbúðir opnaðar.
SUNNUDAGUR 5. júlí..
Hús Slysavarnafélags íslands við
Grandagarð.
Kl. 09,30. 50. íþróttaþing, setning,
ávörp, þingstörf.
Hópganga íþróttafólks.
Kl. 13,15 Þátttakendur safnast sam-
an við gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar.
Kl. 14,15 Gangan hefst. Gönguleið:
Kringlumýrarbraut — Suðurlands
braut, Múlavegur, Engjavegur,
Laugardalsvöllur.
LAUGARDALSVÖLLUR.
Kl. 14,45 íþróttahátíiðin hefst.
Kynning: Sveinn Björnsson, for
maður Íþróttahátíðarnefndar ÍSÍ.
Setning hátíðarinnar: Gísli Hall
dórsson, forseti ÍSÍ.
Hátíðarfáni dregin að húni.
Ávarp menntamálaráðherra: dr.
Gylfi Þ. Gíslason. Avarp borgar
stjóra Reykjavíkur: Geir Hall
grímsson.
Lúðrasveitir leika.
Kl. 15.30 Fimleikasýning telpna
10—12 ára. Stjórnendur Hlín
Torfadóttir og Hlín Árnadóttir.
Kl. 16.00 Keppni frjálsíþrótta-
manna um Evrópubikar Bruno
Zauli.
Undanrás: Belgía, Danmörk,
Finnland, írland, ísland. Fyrri
hluti.
(Aðgangseyrir: Stúka 150 kr.
Stæði 100 kr. — 25 kr.)
Kl. 20.00 Glímusýning. Stjórnandi
Agúst Kristjánsson.
Judosýning. Stjórnandi Yamamoto
frá Japan. Fimleikasýning karla —
15 ára og eldri — Stjórn. Valdi-
mar Örnólfsson og Viðar Símonar
son.
Knattspyrnuleikur: Urval knatt
spyrnumanna 18 ára og yngri'
Reykjavík — Laidið.
(Aðgangur ókeypis).
Sundlaugarnar í Laugardal. 1
Kl. 18.00 Sundknattleiksmeistara-
mót Islands.
(Aðgagnur ókeypis).
Við Laugarnesskóla
Kl. 18.00 íslandsmeistaramót í
handknattleik utanhúss.
(Aðgangseyrir 50 — 25 kr.)
Við Laugalækjarskóla.
Kl. 18.00 íslandsnteistaramót í
handknattleik utanhúss.
(Aðgagnur ókeypis).
Knattspyrnuvellir í Laugardal
og víðar í Reykjavík.
Kl. 17.00 Hátíðarmót yngri flokk
anna í knattspyrnu.
(Aðgagnur ókeypis).
Golfvöllur við Grafarholt
Kl. 16,30 Hátíðarmót Golfsam-
bands íslands.
(Aðgagnur ókeypis).
fþróttahöllin í Laugardal.
Kl. 21.00 Dansleikur. Dansleiknum
lýkur kl. 01.00.
(Aðgangseyrir 150 kr.).
MÁNUDAGUR 6 júlí.
Hús Slysavarnafélags íslands við
Grandagarð.
Kl. 09,30 50. íþróttaþing — þing-
störf.
Laugardalsvöllur.
Kl. 20.00 Keppni frjálsíþrótta-
manna um Evrópubikar Bruno
Zauli. Undanrás: Belgía, Danmörk,
Finnland, írland, ísland. Síðari
hluti.
(Aðgangseyrir: 100 kr. — 25 kr.)
Sundlaugarnar í Laugardal.
Kl. 20.00 Sundkeppni unglinga 16
ára og yngri: Rvík — landið.
(Aðgangseyrir 50 — 25 kr.)
Við Laugarnesskóla.
Kl. 19.00 íslandsmeistaramót í
handknattleik utanhúss.
(Aðgangseyrir 50 — 25 kr.)
Við Langholtsskóla:
Kl. 19.00 íslandsmeistaramót i
handknattleik utanhúss.
(Aðgangseyrir 50 — 25 kr.)
Við Laugalækjarskóla.
Kl. 19.00 islandsmeistaramót í
handknattleik utanhúss.
(Aðgangseyrir 50 — 25 kr.)
Knattspyrnuvellir í Laugardal og
víðar í Reykjavík.
Kl. 18.00 Hátíðarmót yngri flokk
anna í knattspyrnu.
(Aðgagnur ókeypis).
Golfvöllur við Grafarholt.
Kl. 16.00 Hátíðarmót Golfsam-
bands íslands.
(Aðgangur ókeypis).
íþróttahöllin í Laugardal.
Kl. 14.00 Hátíðarmót Badminton
sambands íslands.
Kl. 16.00 Sögusýning — opnun.
Kl. 20.00 Fimleikasýning: Áhalda
leikfimi karla. Stjórnendur Ingi
Sigurðsson og dr. Ingimar Jóns-
son .Firnleikasýning kvenna (frúar
ílokkur) Stjórnendur Ástbjörg
Gunnarsdóttir og Margrét Bjarna
dóttir. Fimleikssýning, drengja-
flokkur frá Vestmannaeyjum.
Stjórnandi Gísl; Magnússon.
Bikarkeppni Körfuknattleikssam
bands íslands.
(Aðgangur ókeypis).
Jóhannes í keppnisbann?
KlpReykjavík.
Margir hafa eflaust velt því
fyrir sér eftir „slagsmálaleik-
inn“ roilli VfB Speldorf og
landsliðsins í fyrrakvöld, hvort
Jóhannes Atlas. verði dæmdur
í keppnisbann, en honum var
vísað af leikvelli í þessum sögu
lega leik. Jóhannes var einnig
„bókaður“ í leiknum milli
Fram og ÍBA um síðustu helgi.
Og samkvæmt liinum nýju aga
reglum KSÍ á hann á hættu
að verða dæmdur í keppnis-
bann fyrir þessi brot.
Íþróttasíðan hafði tal að
Helga V. Jónssyni, formanni
aganefndarinnar, og spurði
hann um málið.
Helgi sagði, að nefndinni
hefði enn ekki borizt skýrsla
frá dótnaranum í lei'knum, og
gæti hún ekki tekið málið fyr-
ir fyrr en hún hefði borizt. En
skýrslur frá dómurunum eiga
að vera komnar til nefndarinn
ar í síðasta lagj tveim dögum
eftir leik.
Bærist skýrslan frá dómaran-
um í þessum leik ekki í dag
(þ.e.a.s. fimmtudag), félli mál-
ið niður. Ef hún bærist, yrðu
allar aðstæður athugaðar, Jó-
hannes gæti haft málsbætur
fram að færa, og ekkert víst
að hann yrði dæmdur í keppn-
isbann, eins gæti áminning
komið til, en það væri dóm-
stólsins að dæma um það.
Helgi sagði einnig, að mikil
brögð væru á því, að dómarar
trössuðu að senda skýrslur, t.
d. hefði nefndinni enn ekki bor-
izt skýrsla frá íeik ÍBA og
,Fram um síðustu helgi.
Væri því ekki hægt að
dæma í þeim málum, sem upp
hefðu komið þar, og ef Jó-
hannes hefði hlotið áminningu
í þeim leik, væri það mál fall
ið niður. Aganefndin væri bú-
in að kvarta undan nokkrum
dómurum til dómarafélagsins,
fyrir þann trassaskap, að
senda ekki skýrslur um leik-
brot til nefndarinnar. Og væri
það mál í athugun.
Íþróttasíðan hefur fregnað,
að verði Jóhannes dæmdur í
keppnisbann fyrir leikinn með
landsliðinu á móti Speldorf,
muni Fram hér eftir, ekki
lcyfa sínum leikmönnum að
leika með úrvalsliðum.
Jóhannes Atlason
/