Tíminn - 19.07.1970, Side 2
*
14 TIMINN SUNNUDAGUR 19. júlí 1970
Elena Irtla var eini Ijósi punkturinn fyrir Charlotte I öllum látunum krlng um skilnaSinn. Ntarehos
sér dóttur sína sjaldan nú orðið.
CHARLOTTE
Charlotte á neinni fjárhagsað-
stoð að halda, þar sem hún er
dóttir auðkýfings. En henni
fannst dóttirin eiga rétt á að
njóta auðæfa föður síns. Niar-
chos féllst á það. en gengur
illa að standa í skilum. — í
hvert sinn, sem ég minntist á
þessa peninga í símanum, seg
ir Charlotte, fór hann að æpa
eins og krakki.
Enn sem fyrr
Mallorka
London
ódýrustu og beztu
utanlandsferðirnar
Leiguflug beint til
Spánar Dvöl i
London á heimleið
ferðaskriístofa bankastræti 7
símar 16400 1207$
Brottför annan hvem mið
vikudag.
Vikulega i ágúst og sept.
15—17 dagar
Verð frá kr. 11.80o,uO.
Eitt sinn sendi hann Char-
lotte rándýra nælu frá þekkt-
um skartgripasala í New York.
En nokkrum dögum síðar, fékk
hún reikninginn.
Nú upp á síðkastið lítur út
fyrir að samkomulagið hafi
batnáð aftur, því Elena litla
er farin að dveljast vikum sam
an hjá föður sínum og fyrir
kemur að hjónin fyrrverandi
fara út samaa, þótt enginn viti,
hvort ástin hefur blossað upp
á ný. ..
Tveir heimar
Einhverntíma á Charlotte
Ford að hafa sagt: — Eftir
allt sem ég hef gengið í gegn
um með Stavros, skil ég ekki,
hvernig ég hef haldið andlegu
heilbrigði.
Gegn um öll skólaár sín,
(hún segist þá hafa verið á
stærð við „lítinn fíl“) varð hún
að fara til messu á hverjum
degi. Það var og bannað að
vera á ferli utan skólagarðsins.
Stúlkurnar máttu ekki kynn-
ast mjög náið og dag hvem
voru vissir þagnartimar, þegar
þær máttu ekki tala saman.‘ J-i
Ég var nunna í 12 ár.. segir
Charlotte. — Það var eins og
að vera í fangelsi.
Ef Charlotte sleppir að fara
til messu, það gerist stundum,
segist hún alls ekki hafa á til-
finningunni, að heimurinn sé
að farast. Henni stendur líka
alveg á sama um, hvað ka-
þólska kirkjan hefur út á skiln
að hennar að setja.
Charlotte kom fyrst fram í
selskapslífið árið 1959 og varð
fræg á svipstundu, sem ein eft
irsóknarverðasta stúlka lands-
ins.
Tveim árum síðar, sumarið
1961, urðu þau systkinin fyr-
ir þungu áfalli, þegar foreldr-
ar þeirra tiikynntu þeim, að
þau hefðu ákveðið að slíta sam
vistum.
— Við fórum öll að gráta,
segir Charlotte. — Þetta var
svo gri-mmilegt, og ekkert okk
ar hafði grunað hið minnsta.
— Fyrst kenndum við Christ-
inu um allt saman og hötuðum
hana. En við vitkuðumst og nú
skiljum við, að það er aldrei
ein manneskja, sem eyðileggur
hjónaband.
Sparar aurinn
Móðir Charlotte og Anne
systir hennar spyrja alderi um
verð hlutanna sem þær kaupa.
En Charlotte sjálf er undarlegt
sambland af eyðslusegg og
nirfli. Hún borgar með ánægju
1000 dollara fyrir kjól frá ít-
ölsku tízkuhúsi, en hins vegar
heldur hún nákvæmt bókhald
yfir hvern einasta eyri, sem
hún lætur frá sér. Hún óttast
að þjónustufólk hennar sé ekki
nógu sparsamt og þess vegna
kaupir hún yfirleitt sjálf í mat
inn og það sem til heimilisins
þarf.
Henry Fard sagði eitt sinn,
að Charlotte hefði svo mikið
fjármálavit, að ef hún hefði
verið karlmaður, hefði hún yf-
irtekið stjómina á Ford Mot-
or Company.
Þegar Charlotte innréttaði
íbúð sína í New York, hugsaði
hún þó ekkert um, hvað allt
kostaði. Meðal annars var vinnu
herbergi Niarchosar breytt í
gesta þerbergi með baði og
miklar sögur gengu um, hvað
þetta herbergi væri ríkmann-
lega búið.
— Megum við sjá herbergið,
sem kostaði 60 þúsund dollara?
sagið eitt sinn gestur við Char
lotte. — Sextíu þúsund? hvar-
aði Charlotte. — Nei, það kost
aði um 100 þúsund, — og hún
var næstum móðguð.
— Þegar ég geri eitthvað,
segir hún, — vil ég gera það
almennilega.
— Þess vegna er ég ein
taugahrúga.
Áætlanir úf um þúfur
Frægar persónur eru alltaf
í nágrenni Charlotte. Einhvern
tíma sagði faðir hennar að
henni geðjaðist bara að fólki,
sem hefði eitthvert nafn. En
Charlotte sjálf segir þetta öðru
vísi: — Mér geðjast aðeins að
fólki, sem hefur fengið eitt-
hvað út úr lífinu.
Þegar tekið er tillit til að-
stæðna, er ekki hægt að segja,
að Charlotte Ford farj mikið
út. Margt bendir til þess, að
hún njóti þess að vera ein, þótt
hún hafi eitt sinn sagzt myndu
verða galin, ef hún ætti a@ lifa
lífinu ein.
Hún vill gjarna verða til
gagns, en ósjaldan verður
minna úr framkvæmdum en
ætlað er. Eitt sinn hugðist hún
berjast framan við skjöldu gegn
mengun loftsins í New York,
en þá var það einhver sem
benti henni vinsamlega á, að
mengun þessi væri að mestu að
kenna bifreiðum. Hana langaði
til að starfa hjá Ford Founda-
tion, sem er eins konar góðgerð
arstofnun, en faðir hennar
bannaði það, á þeim foísendum,
að þá yr'ði hún álitin „njósn-
ari“ fjölskyldunnar.
Þótt Charlotte sé hvorki
menntuð sem kecinslukona né
fóstra, langar hana ákaflega
mikið til að gera eitthvað fyr
ir börnin. Hún hefur miklar
áhyggjur af lífi barnanna í fá-
tækrahverfunum, en þegar hún
ekur í fína bílnum sínum gegn
um þessi hverfi, finnst henni
hún óvelkomin þar.
Hún finnur til hamingju-
kenndar, þegar hún er meðal
barna. Hún svarar öllum spum
ingum þeirra af þolinmæði og
er fullkomlega hún sjálf.
Gæti hún þá hugsað sér, að
leggja hart að sér tjl að
mennta sig til, dæmis í barna-
sálfræði?
— Ég ver'ð að viðureknna,
að mig langar anzi lítið til að
vera í skóla í tvö ár í viðbót,
svarar hún. — En ef til vill
gifti ég mig aftur og eignast
fleiri börn. . .
Bátar til sölu
56 tonna bátur (Eikarskip) í mjög góðu lagi.
9 tonna nýlegur Dekkbátur (til sölu eða leigu)
HÚSAVAL, Skólavörðustíg 12,
Símar 24647 — 25550.
Þorsteinn Júlíusson hrl. Helgi Ólafsson sölustj.
heimasími 41230.
Einbýlishús til sölu
Einbýlishús á Selfossi 120 ferm. 5 herh. nýlegt
vandað hús, stór bílskúr, lóð girt og ræktuð.
Laust strax.
Einbýlishús á Siglufirði 5 herb. steinhús, 1 góðu
lagi.
HÚSAVAL, Skólavörðustíg 12,
súnar 24647 — 25550.
Þorsteinn Júlíusson hrl. Helgi Ólafsson sölustj.
heimasími 41230.
Auglýsing um lögtök
Samkvæmt beiðni Ríkisútvarpsins dags. 10.
júlí 1970 úrskurðast hér með, að lögtök fyrir
ógreiddum afnotagjöldum hljóðvarps- og sjón-
varpstækja fara fram að átta dögum liðnum frá
birtingu úrskurðar þessa.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 17. júlí 1970.
í náttfötinl Charlotte hugsar a8 mestu sjálf um dóttur sína, Elenu,
sem nú er þriggja ára.