Tíminn - 17.09.1970, Blaðsíða 8

Tíminn - 17.09.1970, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 17. september 1970 TTMINN Konur hasla sér völl í starfsgreinum karla. Nú lobs sjá bandarískar kon- nr hylla undir að þær verði viðurkenndar sem jafnréttháar karlmönnum. Eftir liálfrar aldar umhugs- unartúna hefur fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkt stjórnarskrárbreytingu, sem á að koma í veg fyrir hvers kon- ar misrétti kynjanna. En frá þeim áfanga til fulls jafnrétt- is f framkvæmd er löng leið. Og það vita konurnar í hinni nýju hreyfingu bandarískra kvenna (Woman's Liberation), sem hafa sagt þjóðfélagi karl- mannsins algjört stríð á hend- ur. Meðlimir rauðsokkahreyfing arinnar voru á áheyrendapöll- um þingsins og gerðu hróp að öldungnum Emanuel Eller úr flokki demókrata (81 árs), sem gerði lokatilraun til að fá at- kvæðagreiðslu frestað. — Allt frá því að Adam lét af hendi rifbein til þess að konan yrði sköpuð, hefur okk- ur verið kennt, að á konum og körlum sé líkamlegur og sál- fræðilegur mismunur, sem ekki yrði á móti mælt, sagði hann. Vive la difference . . . (Lifi mismunurinn). Eller sagði, að með væntan- legri stjórnarskrárbreytingu yrði stigið skref aftur á við í mannkynssögunni, og krafðist þess að málið yrði kannað bet- ur í lögfræðilegri nefnd, sem hann er formaður fyrir. En hjá henni hefur málið hvílt í friði frá því 1923, sama ár og Eller var kosinn formaður nefndarinnar. En nú fékik mál- ið ekki að hvíla lengur. Stjórn arskrárbreytingin var sam- meSal banda- riskra tivenna gerast sifellt tíðari. Eftir langa umhugsun hafa þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings ákveð- ið að viðurkenna jafnrétti kvenna á við karla Afmælisgjðf handa banda- rísku rauösokka- hreyfingunni þykkt með 346 atkvæðum gegn 15 — öll atkvæði karlmanna. Ein kona úr hópi þingmanna ætlaði að greiða atkvæði gegn málinu, en ákvað í þess stað að tilkynna forföll þegar atkvæða greiðslan fór fram. Andmælendur vísuðu til þess, að er konur fengju jafn- rétti ættu þær á hættu að missa margvísleg réttindi, sem þær hefðu hlotið á undanförn- um árum allt frá atvinnuör- yggi og barnsburðarorlofi til ekkjubóta og barnameðlags. í staðinn fengju þær nýjar skyld ur svo sem þá að greiða fyrr- verandi maka meðlag og ættu á hættu að þurfa að fara í herinn eins og karlmenn. Jafnréttisfrumvarpið þarf einnig að fá samþykki öldunga- deildarinnar og minnst tveggja þriðju allra einstakra ríkja, en ekki er talinn nokkur vafi á að svo verði, að stjórnarskrárbreyt ingin verði afmælisgjöf til bandarískra kvenna. nú þegar 50 ár eru liðin frá því að þær fengu kosningarétt 1020. Þó eru lítil tengsl milli þessara tveggja atburða, því nú er bar- izt fyrir jafnrétti kynjanna á öðrum sviðum þjóðfélagsins, barizt um kaup, starfsframa og frelsi kvenna til að gegna hvaða stöðu sem er. Konum í Bandaríkjunum hef ur aldrei tekizt að láta veru- lega að sér kveða í stjórnmál- um. Á þessum 50 árum hafa aðeins 75 konur verið kosnar til fulltrúadeildar þingsins, og nú eiga þar sæti á Bandarikja- þingi aðeins 11 konur af 535 þingmönnum samtals. Margar þeirra hafa verið ekkjur stjórnmálamanna, sem hafa komizt á þing út eitt kjör- Margaret Chase-Smith tímabil af samúðarástæðum eft ir andlát manns þeirra. Aðrar hafa verið kosnar að nafninu til í stað eiginmanna sinna, sem af einhverjum ástæðum gátu ekki verið i framboði. ,.Þið fá- ið tvo landstjóra í stað eins,“ sagði landstjóri Texas eitt sinn, þegar kona hans fór í framboð eftir að hann hafði orðið að víkja. Sama gerði George Wall- ace, sem kunnur er vegna kyn- þáttahaturs síns, þegar hann samkvæmt lögum Alabamaríkis gat ekki setið næsta kjörtíma- bil. Eiginkona hans lézt á lands stjórnartíð sinni, og nú er Wall ace á ný í framboði. Frú Leónóra Romney, sem nýlega hefur verið valin fram bjóðandi republikana fyrir Michiganríki, skartar einnig lánsfjöðrum, enda þótt hún hafi sífellt mótmælt því ákaft að vera kölluð frú George Romney eftir eiginmanni sín- um, sem var landstjóri i mörg ár og nú er húsnæðismálaráð- herra i stjórn Nixons. Ein þeirra fáu bandaristcu kvenna, sem getið hafa sér stjórnmálaframa, er Margaret Ohase Smith, sem nú er eina konan í öldungadeildinni. Eins og margar aðrar komst hún inn f heim stjómmálanna fyrir atbeina manns síns, en siðan 1940 hefur hún stöð- ugt átt sæti á Bandaríkjaþingi. Hún gat sér einkum frægð, þeg ar hún varð fyrst til að snúast gegn stefnu McCarthys 1950. Hún er nú öldruð og farin af kröftum, en vakti nýlega á sér athygli með „samvizkuyfirlýs- ingu,“ sem hún sendi frá sér, þar sem hún varar við þeir-i miklu hættu sem stafar af stjórnleysi og kúgun í landinu. Einn öldungadeildarþmgmað- ur og tíu fulltrúadeildarþing- menn er lág fulltrúatala fyrir bandarískar konur, sem eru meirihluti íbúa landsins. Og í ríkisstjórninni á engin kona sæti. Sömu, sögu er að segja um hæstarétt og flesta aðra dðmstóla, (af 8750 dómurum í landinu eru 300 konur — flest- ar héraðsdómarar), áhrifa- stöður við háskóla og kennslu- stofnanir, fyrir utan kannski kvennaháskóla. Fjöldi kvenna í háum stöð- um er í miklu ósamræmi bæði við mannfjölda og menntun sumra kvenna. Aðeins 9% fólks í stöðum, sem krefjast háskóla- menntunar eru konur, 7% af Iæknum, 3% lögfræðinga og 1% verkfræðinga. Meðalbyrjun arlaun háskólamenntaðra kvenna eru lægri en karla með sömu menntun. f greinum þar sem konur hafa þegar haslað sér völl eisa þær samt í erfiðleikum við að ná æðstu stbðum. Níu af hverj um tíu barnakennurum cru konur en 8 af 10 skólastjórum við sama námsstig eru karl- menn. Tvær konur verða pró- fessorar í Harvard í vetur, eng- in kona var þar í prófessors- stöðu í fyrra. Samt eru 15% þeirra sem útskrifast frá Har- vard árlega konur. Aðeins á einu hagfræðilegu sviði skara konur fram úr mönnum og það eru konur sem lifa í fátækt 1968 voru með- alárslaun hvítra karlmanna 7.870 dollarar og karlmanna af öðrum kynþáttum 5.314 doll- arar. meðalárslaun hvítra kvenna. sem unnu úti. voru 4.580 dollarar og kvenna af öðr- um kynþáttum 3.487 dollarar. Meðallaun kvenna sem unnu fulla vinnu voru 58,2% af laun um karla. Konur vinna sér sem sagt inn helming þess sem kari- ar gera. Og yfirleitt þurfa kon ar að hafa háskólapróf til að fá hærri iaun en karlmaður sem lokið hefur unglingaprófi. Menntan er þannig engin trygging fyrir konuna á vinnu- markaði 6% háskólamenntaðra í vígahug. kvenna vinna störf þar sem engrar sérstakrar menntunar er krafizt, og 17% stúlkna, með stutta háskólamenntun að baki fara inn í lægstu stöðurn- ar á vinnumarkaðinum. Eins er um stéttarfélögin. og konur fá jafnvel ekki að ganga í mörg þeirra, jafnvel þótt dómur hafi verið kveðinn upp um að óleyfilegt sé að úti- loka konur frá nokikurri starfs- grein. í mörgum atvinnugrein- uni fá konur ennþá lægra kaup en starfsbræður þeirra, jafn- vel fyrir sömu vinnu. Aðstöðu þeirra hefur oft verið líkt við aðstöðu blökkumanna og ann- arra minnihlutahópa, en þeirri samlíkingu mótmæla allir hlut- aðeigendur kröftuglega. Ríkisstjórn og dómstólar reyna að bæta úr þvi misrétti, sem stingur hvað mest í augu, þótt þessir aðilar mismuni kynjunum ekki síður en aðrir. Frá 1963 hafa verið til lög um jafnrétti kynjanna hvað laun og vinnu snertir. Flestar kærur vegna brota á þessum lögum koma frá konum, sem eru undix borgaðar, en það tekur mörg ár að fá mál þeirra leiðrétt Samkvæmt lögum þessum ei aðeins í fáum undantekninguti leyfilegt að gera greinarmui á kynjum í auglýsiogum ua lausar stöður, t.d. þegar íei* Framhald á 14. síðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.