Tíminn - 13.11.1970, Qupperneq 1
-Bi* Kynþáttadeílur um forn-
markstiraöa menningu afrískra negra
í Svíþjóð
Bílstjórar í Svíþjóð virða
reglur um hámarkshraða á veg-
um að vettugi. Þannig hefur
komið í ljós, að einungis ti-
undi hver bOstjóri virðir 50
kílómetra hámarkshraða.
Sænska ríkislögroglan hei-
ur nýlega lokið rannsókn, sem
hún hefur framkvæmt og not-
að til þess kvikmyndavélar.
Hefur hún kvikmyndað umferð-
ina á mörgum stöðum og mælt
hraða bifreiðanna. Bílstjórarn-
ir hafa að sjálfsögðu ekki haft
nokkra hugmynd um að þeir
væru kvikmyndaðir.
Rannsóknin leiddi í ljós, að
stundum eru það ekki einu
sinni 10% bílstjóranna sem
virða 50 kílómetra hámarks-
hraðann. Mældur var hraði
2091 bíls og af þeim voru að-
eins 178 bílar á réttum hraða.
Af þeim 1913 bílum, sem óku
of hratt, voru tæplega þriðj-
ungur á hraðabilinu 50/60
kílómetrar á fclukkustund, en
nm 500 fóru yfir 70 kílómetra
Og um 100 voæu á 80/90 kíló-
metra hraða á fclufckustund.
12 bílstjórar óku náfcvaem-
lega helmingi hraðar en leyfi-
legt var, og einn bíll fór á 110
kílómetra hraða.
Nú er það ekki aðeins, að
þarna hafi verið 50 kílómetra
hámarkshnaði á fclufckustund,
heidur gildir sú regla í Sví-
þjóð, að hvergi má fara yfir
90 kílómetra hraða á Klufcku-
stund. Samt sem áður fóru 10%
bílstjóranna hraðar en jafnvel
þetta hámark ieyfir.
Rannsóknir þær, sem hér að
ofan greinir, fóru fram í höf-
uðborginni, StO'kkhólmi. En
ástandið úti um landsbyggð-
ina virðist engu betra.
Þannig sýnir rannsókn lög-
reglunnar á Skáni, að þar fara
bílstjórar engu betur eftir
regium um hámarkshraða, sem
kveða á um 70 kílómetra
hraða á klufckustund. Og bíl-
stjórarnir hægja ekkert á bíl-
um sínum þótt þeir aki fram
hjá skiltum, þar sem hámarks-
hraðinn er tilkynntur, eða
fram hjá aðvörunarskiltum t.d.
við skóla. — E.J.
í næstu viku fer Miss World fegurðarsamkeppnin fram í London, en þetta er árleg samkeppni og meðal þeirra
þekktustu sem fram fara. Myndin hér að ofan er af þremur þátttakendum í þessari samkeppni, og eru þær
f.v. Anna Seheving 'Hansdóttir, frá íslandi, Jung Hee Lee, frá Kóreu, og Hisayo Nakamura frá Japan. Stúlkurnar
voru að skoða sig um í brezku höfuðborginni þegar myndin var tekin. (UPI)
_______________________________________________________________________________________________________
Áhrif afnáms laga um birtingu á kynferðislýsingum:
Kynferðisglæpum fækkar
Fyrir liggur nú skýrsla um nið-
urstöður rannsókna, sem gerðar
voru til að kanna hvaða áhrif af-
nám laga um birtingu á kynferð-
islýsingum í máli og myndum
hefði í Danmörku. Segir í Dagens
Nyheter að nokkur atriði í skýrsl-
unni séu sériega athyglisverð.
Rannsókninni stjórnað- danski íl-
fræðingurinn Berl Kotschinsky,
sem starfar við Kaupmannahafn-
arháskóla. Voru athuganirnar gcrð
ar að tilhlutan bandarískrar bing.
nefndar, sem hefur með það
vandamál að gera hvort afnema
skuli samsvarandi lög í Bandaríki
unum.
Það voru einkum tvö atriði sem
rannsóknin beindist að í sambandi
við lögin um ótakmarkað frjáls-
ræði, hvað snertir birtingu á lýs-
ingum á kynlífi og kynfærum, en
rúmt ár er nú síðan Danir afnámu
allt eftirlit í þessum efnum. í
fyrsta lagi: Hvernig tekur fólkið
þessu írjálsræði? Og í öðru lagi:
Ilvaða áhrif hefur þetta frjálsræði
í birtingu kynlífslýsingar á kyn-
ferðisglæpi?
Svarið við fyrri spurningunni er,
að yfirleitt sóu Danir samþykk-
ir afnámi laganna um takmörkun
á birtingu kynlífslýsinga. Aðeins
17—18 af hundraði þjóðarinnar
eru á móti ótakmörkuðu frelsi
um birtingu á títtnefndu efni.
Athyglisverðasta niðurstaða rann
sóknarinnar er að kynferðisglæp-
um hefur fækkað verulega, síðan
Framhald á bls. 18.
Þegar útrýmingarbarátta Hiti-
ers stóð sem hæst, var hann
minntur á, að Albert Einsteiu,
upphafsmaður afstæðiskenningar-
innar, væri Gyðingur. Hitler svar-
aði því til að Einstein hefði efcki
verið upphafsmaður kenuingarinn
ar, heldur hefði stolið henni úr
blöðum látins vísindamanns. Þessi
afstaða er táknræn fyrir þá, sem
eru svo ofsafengnir í kynþátta-
skoðun sinni, að þeir geta ómögu
lega fengizt til að trúa, að „óæ@ri“
þjóðflokkur geti unnið nokkur
afrek.
Sé þetta haft í huga, er ekki
merkilegt, að nú hefur komið
upp stríð meðal visinda- og
stjórnmálamanna, vegna árangurs
fornleifarannsófcna og þjóðfræði-
legra rannsókna á afrískri list.
Um marga mannsaldra hafa Af-
rífcubúar verið taldir standa öðr-
um þjóðum lægra og er það líka
talin ástæða þess, að þeir hafa
enga listamannahæfileika.
Evrópskir ldstsérfræðingar urðu
þess vegna afar undrandi, þegar
Bretar, eftir að þeir höfðu ráðizí
inn í konungsríkið Benin í Mið-
vestur Nígeríu, fundu bronze gríit:
ur, fílabeinsmyndir og tréskurðafi
myndir, sem báru vott um háþró
aða list og flóknar aðferðir.
Evrópsku sérfræðingamir, seiL
héldu því fram, að afrískir hefðu
alls enga Jistamannahæfileika,
álitu, að þessir hlutir væru komniir
frá Portúgölum, sem komið höfðu
upp nýlendum meðfram strönd-
inni á 15. öld, en þó voru nokkrir,
sem ekki vildu slá því föstu.
Stríðið milli sérfræðinganna
hélt áfram, þar til fyrir fáum ár-
um, þegar William Flagg, sem
fyrrum var fomfræðiprófessor við
Gambridge, sló því föstu, að þessi
afrísku listaverk væra mun eldri
en jiortúgölsku nýlendurnar.
Agreiningurinn um Benin-lista-
verkin er þó aðeins smávægilegur
í samanburði við öllu háværari
deilur, sem nálguðust það að vera
stjórnmálastyrjöld og stóðu um
eitt mesta ferðamannaundur í
Rhódesíu — Zimbabwe-rústirnar
við Fort Victoria. Vegna þeirra
hafa margir merkir fornleifafræð-
ingar sagt upp stöðum sínum,
meðal annarra þeir Peter Garilafce
og Roger Summers, sem störfuðu
fyrir þjóðeninjasafn Rhódesíu. Gar
lake segir ítarlegar rannsóknir leiSa
í ljós, að rústirnar séu up.phaflega
byggðar af vel skipulögðum inn-
fæddum þjóðflokki, en hvítir í
Rhódesíu hafa opinberlega lýst því
yfir, að Afríkumenn sjálfir séu
alls ekki færir um að byggja
svona merkilega hluti. Hvítir vilja
fremur trúa því, sem rómantískir
rithöfundar hafa komið á breik,
að Zimbabwe hafi verið byggt af
Aröbum eða Pöníkum, se,m réðust
inn í landið fyrir hundruðum ára.
Deilurnar náðu nýlega hámarki,
þegar hægra-blað básúnaði
það, að í ferðamannabæklingum
þeim, sem gefnir em út í Rhó-
desíu, sé haldið fram staðlausum
fullyrðingum um, að Rhódesía hafi
fyrr á öldum verið miðstöð háþró-
aðrar svertingjamenningar.
— Ef þetta væri rétt, ættu svart
ir í rauninni að fara með öll völd
Framhald á bls. 18.