Tíminn - 10.03.1971, Qupperneq 3

Tíminn - 10.03.1971, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 10. marz 1971 TÍMINN 3 Er h.undastrí6 í uppsigtingu í V estmannaeyjum? KJ—Reykjavík, þriðjudag. Það er víðar en í Reykjavík sem hundahald er bannað og því banni hefur ekki verið framfylgt, fyrr en að nú á að gera gangskör að því að út- rýma þessum mest umtöluðu dýrum. Bæjarfógetinn í Vestmanna- eyjum auglýsir í bæjarblöðun- um, og vitnar þá til reglugerð- ar frá í janúar 1940, að af gefnu tilefni sé skorað á alla þá, sem hafa hunda í umsjá sinni, að fjarlægja þá úr um- dæminu nú þegar og í síðasta lagi 1. júní 1971. Segir bæjar- fógeti, að að þeim tíma liðnum muni þessari þrjátíu ára reglu- gerð verða framfylgt með lög- reglugerð, eftir því sem efni standa til. SLYSAHÆTTA VEGNA FUGLA VIÐ FLUGVÖLLINN IEYJUI KJ—Reykjavík, þriðjudag. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyj- um hefur með auglýsingu bannað að bera fiskúrgang í garða í grennd við flugvöllinn í Eyjum, svo og að geyma loðnu í grennd flugvallarins vegna slysa hættu, sem stafar af fuglageri í námunda við völlinn. Það er kunnara en frá þurfi að segja að sjófuglar, og aðrir fuglar reyndar líka, geta verið hættuleg ir flugumferð í nágrenni flugvalla. Girnilegt slóg, og miklir loðnu- bingir geta freistað fuglanna, og þess vegna hefur bæjarstjórinn í Eyjum, að gefnu tilefni, sett þessa auglýsingu í bæjarblöðin. Þeim Eyjabúum, sem þegar hafa sett slóg í garða sína, er bent á að hylja það þegar jarð- vegi, segir bæjarstjóri. Leikstjóri og söngstjóri „Hársins" Fóru til Hafnar til þess 49 undirrita skjal og fagna aðgerðum Alþing- is gegn tóbaksneyzlu KJ—Reykjavík, þriðjudag. Fjörutíu og níu þekktir borgar- ar í Reykjavík og víðar, hafa und- irritað skjal, þar sem fagnað er öllum aðgerðum Alþingis gegn tóbaksneyzlu, og lýst er yfir ein- dregnum stuðningi við frumvarp til laga um bann gegn tóbaksaug- lýsingum. Yfirskrift skjalsins hljóðar svo orðrétt: „Vaxandi þekking á af- leiðingum tóbaksreykinga hefur viða um lönd orðið grundvöllur nýrrar baráttu gegn útbreiðslu þeirra. LEIÐRÉTTING í grein um bók Gunnars Bjama sonar um íslenzlka hestinn, sem birtist í blaðinu í gær, birtist mynd, sem sög'ö var vera af Faxa og knapinn Þorkell Þorkelsson. Þetta er ekki rétt. Hið rétta er, að myndin er af Neista og knap inn er AÖalsteinn Aðalsteinsson. Biður blaðið velvirðingar á Þess um mistökum. Spiíakvöld á Sauðárkróki Þriðja og síðasta spilafcvöldið í þriggja flokíka keppninm verð ur í Framsóknarhúsinu föstudag inn 12. marz, og hefst kl. 9 s.d. Verðlaun veitt. Nefndin. Öllum aðgerðum Alþingis gegn tóbaksneyzlu er fagnað. Lýst er yfir eindregnum stuðn- ingi við frumvarp til laga um bann gegn tóbaksauglýsingum. Undirskriftalistinn var svo í dag afhentur skrifstofustjóra Al- þingis af Bjarna Bjarnasyni lækni og fleiri. Þeir sem undirrita skjalið eru leiðandi menn á sviði heilbrigðis mála, íþróttamála, kennslumála, samtaka, sem berjast gegn áfeng- is- og tóbaksnotkun, formenn landssamtaka ýmissa og forystu- menn stjórnmálasamtaka ungs fólks, alls 49 manns. Klemmdist í bíl OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Bílstjóri slasaðist illa í morg- un er hann klemmdist fastur í sæti í hörðum árekstri. Tók nokkurn tíma fyrir sjúkraliða að ná manninum út úr bílnum, en hann var með opið beinbrot á öðrum fætj og að auki talsvert marinn og meiddur. Slysið varð kl. 8.30 í morgun. Stór sementsflutningabíll með dráttarvagni ók vestur Suðurlands- braut og beygði í átt að Miklu- braut móts við Elliðavog. Á móti kom lítill pallbíll og lentu bíl- arnir hver framan á öðrum. Áreksturinn var svo harður að vél minni bílsins gekk aftur og inn í húsið og klemmdist bílstjórinn þar. Framsóknarvist Framsóknarvistin verður fimmtu daginn 18. marz á Hótel Sögu. Nánar auglýst síðar. Aðalfundur FUF Akranesi Athugasemd Vegna fréttar í Tímanum fimmtu daginn 4. marz, vill undirritaður taka fram, að hann hafi aldrei verið spurður um neitt í sam- bandi við leigu á Laxá í Aðaldal, af blaðamanni Tímans. Hermóður Guðmundsson, Árnesi. Aðalfundur FUF á Akranesi verð ur haldinn laug ardaginn 13. marz í Fram- sóknarhúsinu Sunnubraut 21. Dagskrá: Venju leg aðalfundar- störf, önnur mál. Atli Freyr Guðmundsson, erind reki, mætir á fundinum og svar ar fyrirspurnum. — Stjórnin. — Um kl. 5 e. h. föstudaginn 26. febrúar átti ég blað'asamtal við Hermóð Guðmundsson og spurðist fyrir um það hvort veiði klúbburinn Strengur hefðj tekið á leigu þann hluta árinnar er Her móður hefur umráðarétt yfir, og játaði Hermóður því, cn vildi ekki meira um það segja. Efni leigu- samningsins er bví ekk' hafður eftir Hermóði, enda kemur það hvergi fram í umræddri frétt. — EB. að kynna sér Hárið þar SJ—Ryekjavík, þriðjudag. Brynja Benediktsdóttir, sem um þessar mundir stjórnar upp- setningu á „Hárinu" hjá Leik- félagi Kópavogs, fór í morgun til Kaupmananhafnar, ásamt Sigurði Rúnari Jónssyni hljómlistarmanni í Náttúru, sem er söngstjóri sýn- ingarinnar. Erindi þeirra þangað er að sjá sýningu Dana á „Hár- inu“, sem frumsýnd var nú á föstu daginn, 5. marz, í Cirkusbygning- en við Jernbanagade. Ætla þau einkum að kynna sér tækniatriði í sýningu Dananna á verkinu .En sennilega þarf að flytja hingað tæki í sambandi við Ijós, hljóð og tónlist í væntan- legri sýningu Leikfélags Kópa- vogs. Ef til vill munu þau semja um að fá nauðsynlegan útbúnað hingað í ferðinni. HJÚKRUNARKONUR Staða deildarhjúkrunarkonu við hjúkrunar- og endurhæfingadeild Borgarspítalans er laus til um- sóknar. Upplýsingar gefur forstöðukona Borgarspítalans, í síma 81200. Reykjavík, 8.3. 1971. Heilbrigðismáiaráð Reykjavíkurborgar. HJÚKRUNARKONUR Staða yfirh.Vjkrunarkonu við sótthreinsunardeild Borgarspítaluns er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1.—15. maí 1971. Umsóknarfrestur er til 20. apríl n.k. Upplýsingar veitir forstöðukona Borgarspítalans í síma 81200. Reykjavík, 8.3. 1971. Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar. HJÚKRUNARKONUR Hjúkrunarkonur óskast á lyflækningadeildir Borg- arspítalans. Upplýsingar gefur forstöðukona spítalans í síma 81200. Reykjavík, 8.3. 1971. Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar. K.S.Í. Í.S.I. Knattspyrnumót innanhúss Knattspyrnusamband íslands efnir til innarhúss- knattspymumóts 1 karla- og kvennaflokki dagana 8., 10. og 12. apríl n.k. í Laugardalshöllinni. Hvert félag hefur aðeins rétt til að senda eitt lið í hvorn flokk. Þátttökutilkynningar sendist í póst- hólf 1011 strax, ásamt þátttökugjaldi sem er kr. 100,00 fyrir hvorn flokk. Knattspyrnusamband íslands. AS snúast gegn sjálfum sér Þau tíðindi hafa nú gerzt, að Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra, hefur lagzt h því á Alþingi ásamt stjórnar- þingmönnum, að samþykkt verði sú stefna, að lánasjóður námsmanna verði efldur í áföngum, svo að hann geti annað allri lánaþörf náms- manna að þremur árum liðn- um, en Gylfi hafði sjálfur fyrr á þcssu þingi, er nú situr, lýst því yfir, að hann væri fylgj- andi þeirri stefnu og myndi greiða fyrir því að hún næði fram að ganga. Þeir Magnús Kjartansson og Þórarinn Þórarinsson lögðu fram frumvarp sem felur þá breytingu í sér, sem náms- menn hafa talið mikilvægasta, þ.e. að tímasett verði fram- kvæmd þess ákvæðis núgild- andi laga, að hin opinbera að- stoð, sem lánasjóðurinn veiti, nægi námsmanni til að standa straum af eðlilegum námskostn aði í viðbót við það fé sem námsmaðurinn getur aflað sér sjálfur. Kveður frumvarpið á um að fé sjóðsins verði aukið í áföngum að því marki að frá og mcð námsárinu 1974 til 1975 verði unnt að fullnægja allri fjárþörf námsmanna um- frarn cigin tekjur þeirra. f haust þegar Gylfi Þ. Gísla- son lýstj sig fylgjandi þessari stefnu, sagði hártn að það væri undir Alþingi komið, hvort hægt yrði að framkvæma þessa stefnu. Frumvarp þcirra Þórar- ins og Magnúsar var ekkcrt annað cn tillaga um að Alþingi samþykkti þessa yfirlýstu stefnu ráðherrans, og ekki geng ið lengra en svo að lagt var til að þetta yrði gert í áföng- Ium svo ráðrúm gæfist til að afla fjár til að tr.vggja fram- kvæmd stefnunnar. | Boltaleikur íjj í menntamálanefnd neðri deildar Alþingis lögðust þing- monn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins gegn frum- varpinu og leggja til að því verði vísað til ríkisstjórnar- innar, og fór ekki milli mála, að Gylfi Þ. Gíslason var and- vígur samþykkt frumvarpsins. Eysteinn Jónsson lýsti þessum vinnubrögðum við boltaleik. Menntamálaráðherra scgði, að hann gæti ekki ákveðið neitt um aukin fjárframlög, það yrði Alþingi að gera. Og stjórnar- þingmennirnir á Alþingi segðu þegar til þcirra kasta kæmi, að heir gætu ekki tekið neina Iákvörðun. Þarna verður ríkis- stjórnin að ráða ferðinni og því vísum við þessu til ríkis- stjórnarinnar! 30 þúsund íslendingar í framhaldsskólum á íslandi í vetur Samkvæmt yfirliti frá Fræðslumálaskrifstofunni um fjölda nemenda í framhaíls- skólum á fslandi, sem birt hef- ur verið á lþ. sem fylgiskjal með þingskjali, kemur það fram, að rúmlega 20 þúsund Framh á 14. síðu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.