Tíminn - 10.03.1971, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.03.1971, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 10. marz 1971 TIMINN 5 MEÐ MORGUN KAFFINU Sólveig gamla var komin á trræðisaldur, en hún vissi viti sínu, og gárungarnir kölluðu hana stundum Tímann, enda var Iiún oft spurð í þaula. Eitt sinn kom hún í búð, þar sem Henrik Berndsen var verzlunarmaður, en hann þurfti oft að leita hjá henni frélta sem aðrir. Nú spurði Hendrik hvort hann væri fiðluleikari. Norð- maðurinn, sem ætti barnið með henni dótturdótturdóttur henn- ar. — Ja, hann kunni að minnsta kosti að spila á þá fiðluna, svar aði sú gamla. Eiginmaðurinn — Konan mín er 88 kíló. Hún er núna í riiegr- unarkúr og missir 11 kíló á ári, sem sagt, eftir átta ár er ég laus við hana. Læknirinn:' Jæja, frú mín góð, nú hefi ég skrifað úpp á resept fyrir yður, og yður mun finnast, sem þér séúð tíu árum yngri. Gamla frúin: Guð hjálpi mér, hvað verður þá um ellistyrkinn minn? — Nei, frú, þér hafið ekkert stóra fætur, aðeins óvenju- langar tær. Tveir gamlir karlar hittust á förnum vegi vordag einn. „Guði sé lof og þökk,“ sagði annar. ,,Nú er vor og allt sem í jörðina er látið mun fara að koma upp.“ „Nei, guð hjálpi okkur. Það vona ég ekki, því ég á þrjár kerlingar í jörðinni.“ Það var stúkusamkpma í samkomuhúsinu, og fyrirlesar- inn talaði af miklum hita og þunga: ... „Við skulum taka hverja ein ustu brennivínsflösku, hverja vínflösku og hverja einustu bjórflösku og sökkva þeim á hafsbotninn.“ „Húrra fyrir því,“ hrópaði einn áheyranda og klappaði mikið fyrir fyrirlesaranum í lok erindisins, svo að fyrirles- arinn vildi gjarnan ná tali aí hinum áhugasama hlustanda. „Þér emið væntanlega bind- indismaður?" „Nei, ég er kafari," svaraöi áhugasami hlustandinn. denni DÆMALAUSI — Ileyrðu Vilson, viltu brjóta þetta óskabcin með mér? — Hvcrs óskaðirðu? ■ '' li . ' ' '' 1 \' '|s -N. V V N .C I * i ■ ■: ' ... Clara Pontoppidan hefur nú verið leikkona i heil 70 ár og af því tilefni var haldin veizla um daginn. Þar komu saman vinir, samstarfsmenn og ættingjar Tony Curtis er nú oúðinn 46 ára og loksins hefur heitasta ósk hans verið uppfyllt: Hann hefur eignast son. Þetta gerðist i þriðja hjónabandi Tonys og móðirin heitir Leslie Allen. Tony á þrjár dætur fyrir, tvær með Janet Leigh og eina með Christine Kaufmann, en hann sér þær aldrei, því hann vildi bara eignast syni. María Callas hefur nú sótt um skilnað frá hinum eina rétta eiginmanni sínum, Meneghini. Þau hafa búiö aðskilin í 11 ár, en gátu ekki fengið lögskilnað vegna hinna ströngu, itölsku laga. Nú eru lögin breytt og María vill skilnað, Meneghini gamla, sem er 76 ára, til mik- illar sorgar. Hann hefur allan tímann vonað að hún kæmi aft- ur, þegar Onassis-ástinni lyki. Það var Meneghini, sem kost- aði Maríu til söngnáms á sínum tíma og það var líka hann, sem fékk hana til að leggja af. Kannske hefur gamli maðurinn séð eftir þessu, þegar Onassis kom auga á gyðjuna. Areiðan- legar heimildir segja, að María vilji fá skilnaðinn til að vera frjáls og reiðubúin, þegar Onassis einn góðan veðurdag sé orðinn leiður á Jaquelinc. Líklega er hun að syngja fyr- ir bangsann sinn, því þetta er mikil söngkona, þegar komin á vinsældarlistann í Danmörku. Hún heitir Pernilla og er sex ára. Lagið á vinsældalistanutn fjallar um kött, sem dans v tangó og Pernilla hefur líka sungið það tvisvar í sjónvarp- ið. Söngkonan býr hjá ömmu sinm, þvi mamma hennar vinn ur suður i Afríku, Pernille er í leikskóla á daginn, en í vor fer hún í alvöruskóla. Hún á engan kött og því síöur nokk- urn, sem 'dansar tangó. En hún á margar brúður og bangsa og hefur sérhcrbergi með sjón- varpi og öðrum þægindum. . Iranskeisari var skorinn upp um daginn — í fjórða sinn — vegna augnanna. Sagt er að hann hafi verið veikur í aug. | unum, síðan á hann var ráðizt j fyrir. 2.1 ári og hann.-.særðizt í l andliti. Seinni árin hefur hann j alltaf borið dökk sólgleraugu á J almannafæri, líklega til a® verjast ofbirtu flashpera Ijós- myndara. Nú ættu þó augun að vera í lagi, en keisarinn verð- ur að sleppa vetrarfriinu í ár, því hann þolir enn ekki snjó- birtu. Ieikkonunnar, setn er alltaf jafnhress og kát, þótt hún sé nú 88 ára, enda er hún enn að leika af kappi. Hjá henni á myndinni er höggmynd, sem mynd- höggvarinn Georg Ulmer gerði af henni, þegar hún var 25 ára og dansaði berfætt, en það þótti ákaflega djarft í þá daga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.