Tíminn - 10.03.1971, Page 7

Tíminn - 10.03.1971, Page 7
MWíVIKUDAGUK 10. marz 1971 TIMIN N GULLNA HLIÐ Ungmennafélag Reykdæla: Sýning á Gullna hlið- rnu eftir Davíð Stefánsson Leikstjóri: Bjarni Steingrímsson Tónlist eftir Pál ísólfsson wjwna hliðið verður íslend- ingum vafalítið lengi hugstætt leikverk og sýnt sýknt og heil- agt í bæ og byggð, enda hefur það alla burði tik þess að lifa. Rætur þess standa djúpt í þjóð arvitundinni. sögu, trú og menningu. Það er raunar afar einfalt og nærtækt í allri gerð sinni og túlkun, og svo trútt og fast tengt við hina römmu taug, að segja má að hvergi skeiki. Jón bóndi er bróðir Jóns Hreggviðssonar og kerl- ingin sy?tir Kristrúnar í Hamravík, þótt auðvitað sé þetta fólk ckki allt steypt í sama mót fremur en hver önn- ur venjuleg systkin. Þessar per sónur eru allar brot af því ís- lenzka bergi sem harðast er og seigast, mvndir úr þeirri ís- lenzku trúarvitund, sem á sér fleiri og sterkari þætti en guðs ótta og auðmýkt og tekst á við almættið um frelsi sitt og rétt ekki síður en Dani og heldur sinni rcisn og hlut jdir rauð- an dauðann. Gullna hliðið er hugtækt verk að því leyti, að persónur þess eru skýrar gerðir og mjög trúverðugar, og sumar líka gæddar litríkum persónuleika, þó að aðrar séu týpur einar. Skáldlcg tilþrif lyfta verkinu einnig m.jög víða. Umgerð þess gefur færi á að beita sviðs- tækni til áhrifa, en mannlegt bardús í fábreyttara lagi, og er verkið að því leyti i góðu sam- ræmi við nýstefnu ýmissa nú- tímahöfunda. Mér finnst meira að segja oft og einatt, sem mikil tilþrif og sláttur á atvinnuleikurum spilli alþýðlegum tærleik Gullna hliðsins á sviði (nema fyrirgangur óvinarins, sem oft- ast er í fullum rétti). Þess vegna verða sýningar áhuga- mánna, sem ekki falla fyrir freistingum ofleiksins, oft og einatt miklu betri túlkun verks ins, sannari mynd og nærfærn- ari túlkun. Gullna hliðið er því einstaklega vel fallið til sýn- ingar í áhugamannalcikhús- um, þar sem fólk beitir raun- trúrri þekkingu sinni á þeirri lífsmynd. hugarheimi og per- sónugerð sem það þekkir í þessum heimi og öðrum, frem- ur en lærðum leikaraskap við túlkunina. Mesta hætta áhuga- manna er þá að ofleika. Mér virtist sýning Ung- mcnnafélags Reykdæla á Gullna hliðinu- í félagsheim- ilinu að Logaiandi sýna þetta og sanna eins og bezt varð á kosið, og ég held, að ég hafi varla séð trúverðugri túlkun þessa leikverks, þegar á hcild- er litið. Aðall þeirrar sýningar var trúverðug einlægni, djúp- ur skilningur á anda verksins. og gamansemi þess ætíð látin þjóna alvörunni. þar sem und- antekningu mátti kalla, ef glytti í skrípi og hvergi í aðal- hlutverkum, sem bera verkið uppi. Þá var þetta umtalsverð sýning að því er snerti le.ik- tjöld og sviðsbrögð, og má furðu kalla, hve ágætlega það tókst allt saman með frumstæð um tækjum og í þröngum húsa- kosti. Leiktjöld höfðu þau gert Ingibjörg Einarsdóttir og Stefán Magnússon og fór þar saman vandvirkni og hug- kvæmni. Smámyndin. sem var umgerð fyrsta þáttar. var engin handaskömm. Þó var hagvirkn- in enn meiri í síöari þáttum á himnaveginum. en þeim vídd- um er enginn hægðarleikur að koma fyrir á svo litlu sviði. Sviðsstjórn öll var svo liðug. að ekki bar út af nema einu sinni, og engin vandkvæði virt- ust að framleiða eldglæringar, skruggur og skruðninga af hressilegasta tagi. Það vakti einnig athygli, hve leikfólkið kunni flest vel hlutverk sín, og framsögn þess var oftast mjög skýr. þótt ekki væru allir jafn ir í þeirri list. Bjarni Steingrímsson virðist hafa veitt leikfólkinu góða leið sögn. Hann hefur auðsýnilega verið býsna glöggur að velja í hlutverk, þótt hann þekkti ekki fólkið, en ef til vill hef- ur hann notið hjálpar giöggra heimamanna við það. Hann hef ur ekki leitt fólkið út á hinn hála ís tilþrifa atvinnuleikar- ans né ærsla ofleiksins, og þvi fær sýningin öll þennan sam- ræmda. eðlilega biæ, og per- sónugerðirnar þennan eftir- tektarverða trúleik. Kjartan Sigurjónsson, kenn- ari, las prólógus verksins áður en tjald reis og flutli þann skáldskap ágætlega. Kjartan lék einnig sýslumanninn mynd uglega. Ármann Bjarnason lék Jón bónda af hófsemi og skýr- leik, gerði lir honum viðkunn- anlegan mann en ekkert skripi. Gífuryrðin urðu eðlileg orð í munni hans og fengu gilda merkingu, en urðu ekki fárán- legur kjaftháttur drísilmenn- is ,eins og stundum ber við, þegar Jón er ofleikinn. Kerlinguna konu hans lélc Halldóra Þorvaldsdóttir og fór með það hlutverk svo að hún heyjaði sér í fullum mæli þá samúð áhorfenda, sem nauðsyn- legt er til þess að jafnvægi leiks ins haldist. Hún hafði góð tök á mildinni, sem ekki slær und- an þrátt fyrir allt, þegar til úr- slita kemur, og teflir þá jafnt ekki af sér. Þótt þetta stingi í stúf rið meðférð annarra leik- ara, i’askaði það ongan veginn hinum jafnvæga svip leiksins, vegna þess hvert eðli og til- gangur þessa hlutverks er, held ur gaf sýningunni í heild þann gust og umbrot, sem nauðsyn- legt var og skýrði andstasðurn- ar, svo að hófsemin á hina hlið ina naut sín því betur. Leikur Sverris var stórgóður og þrótt- mikill og framsögn hans áhrifa mikil og skilrík. Brynhildur Stefánsdóttir lék grasakonu og gerði af henni sannferðuga mynd og töluvert litríka. Framsögn hennar var sérstaklega góð. inn og smámennskuhrottann sinn á hvora hlið, og þótl hann nálgaðist ofleikinn stundum ískyggjlega, fór hann ekki yfir, markið. Aðrir leikendur, sem fóru með hlutverk voru Stefán Egg- ertsson, Þorvaldur Jónsson, Jón Þorsteinsson, Jóhannes Gestsson, Ragnhildur Þörsteins dóttir. Ingibjörg Einarsdóttir, Guðni Sigurjónsson. Þon-aldur Pálmason, Sigríður Einarsdótt- ir, Steinar Vilhjálmsson og Þor- valdur Jónsson, sem söng fjalla svaninn og hefur nokkuö sér- stæða og hljómfallega rödd. Allt þetta fólk fór mcð alúð og góðum skilningi með hlut- verk sín, en þau eru flest smá- Við gullna hliðið. Lykla-Pétur (Andrés Jónsson) til vinstri, þá Jón bóndi (Ármann Bjarnason) og kerlingin. við almættið sem óvininn. Hún túlkaði hlutv. með eðlilegum og hógværum hætti alþýðukor,- unnar, sem er einlæg og sönn með festuna að bakhjarli hvað sem á d.ynur, klædd þeim vopn fasta, heimaofna serki, sem jafnvel klær djöfulsins hrökkva af. En það var ekki fyrirgangurinn í þessari túlk- un. Óvininn lék SveiTÍr Guð- mundsson. sem er allvanur og lærður leikari og hefur nokkr- um sinnum sézt hér á fjölum Þjóðleikhússins. Hann var sá eini í hópnum, sem bar á sér ótvírætt snið atvinnuleikarans, sem túlkar hlutverkið með hik lausu valdi og stórkarlalegum tilþrifum, beitir sér og dregur í minni hlutverkum mátti sjá ýmislegt, sem allrar athygli var vert. Til að mynda var leikur Gerðar Unndórsdóttur í hlut- verki konu, frillu Jóns kunn- áttusamlega unnin persónu-’ mynd, leikin af þrótti. Þá hlaut presturinn í höndum Guðbrands Valdimarssonar að vekja athygli fyrir ísmeygi- lega skarplega tilraun til per- sónusköpunar og kímilega týpugerð. Aiulrés Jónsson var hinn virðulegasti Lykla-Pétur og gætti vel hins mannlega, sem ekki má þurrkast af hlut- verkinu en hefði ef til vill mátt skerpa útlínur betur. Jakob Guðmundsson sýndi skemmtilega mynd af rikis- bubbanum með undirlægjuhátt Kerlingin á Himnagöngunni hittlr vegfarendur á leið niður. myndir til fyllingar og skýring- ar, og um sum þeirra má segja, að þau eigi vaíasamt erindi í leikinn. Búningar voru flestir vand- aöir og gervi lýsandi í bezta lagi. Þó gat ég ekki fyllilega fellt mig við allt það hvítflæði, sem yfirþyrmir sviðið í síð- ustu atriðum leiksins, eftir að til himnaríkis kernur. Ég held, að höfundur hafi ællazt til meiri sundurgcrðar og sterk- ari litaskipta, og færi það bet- ur. Auk þess þurfa þcir fram- liðnu helzt að vera dáiítið mannlegri, halda sér betur, svo að samrýmist inntaki verksins og anda. Sýning sem þessi, unnin og æfð af áhugafólki, sem aíla daga er bundið við störf í sveit, er ekki aðeins vitni um félags t lynt fqlk og þróttmikið félags- starf, heldur lislaviðburður, sem fullkomin ástæða er til að veki athygli út fyrir sveita- mörk. Hún gefur sýn til fleiri leiða hugtækrar listtúlkunar en uppfærsla lærðra og þaul- æðra atrinnuleikara, og hún sýnir leikvcrkið eigi sjaldan í öðru og nýju Ijósi, víkkar hring þess og fyllir. Túlkun áhugafólks er oft og cinalt trúrri við verkið, skilar því stundum hreinu og skýru, sem atvinnulqikarinn yfirskyggir cða brenglar með valdi sínu og tilþrifum. Ég hafði áður aðeins séð Gullna hliöið í meðferð stórleikara, en eftir að hafa séð þessa ágætu sýningu áhuga- fólksins í Logalandi, leikur í mínum huga ofurlítið annað Ijós um þelta verk. En svo fer vafalaust jafnan fyrir hverj- um Ieikhúsgesti eftir hverja nýja sýningu, sera til einhvers hefar verið faarð á fjalir. AK

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.