Tíminn - 10.03.1971, Qupperneq 10
ro
MIÐVIKUDAGUR 10. marz 1971
TIMINN
THOMAS DUKE:
NINETTE
32
— E1 þú hefur hug á plássinu,
get ég kannski fylgzt með og lát-
ið þig vita. ,.Hafnsögumaðurinn“
gaut lævíslega tii hans augunum.
Maríus vætti varir sínar í æsingi.
— Það er ekki svo að skilja —
■növitað vona ég. . . Francois
verður náttúrlega búinn að ná
sér þcgar kappsiglingarnar byrja,
cn ef að það yrði þarna einhver
mögulciki, vona ég a'ð þú látir
mig vita.
„Hafnsögumac'urinn" dró aug-
un i pung' og kinkaðj kolli tals-
vert íbygginn. — Það er aldrci
að vita, sagði hann skrækur að
vanda, og geispaði.
— Fáðu þér í glas, sagði Marí-
us, og ýtti til hans rauðvínsflösku.
— Þú getur fengið að sofa í
seglakompunni í nótt ef þú vilt.
„Hafnsögumaðurinn" skoðaði
miðann á flöskunni. — Nú .iá,
þaö er ódýra tegundin. Það var
ckki laust við ásökun í rómnum.
— En skítt mei) það, ég tek hana
með mér í bólið.
Maríus var kominn á fremsta
hlunn með að tugta hann dálítið
til fyrir þcssa dæmalausu frekju,
en stilltj sig á síðustu stundu. —
Mundu jDetta með Francois, sagði
hann tiltölulega stillilega.
XV.
Það var kominn morgun.
Hardy var í vondu skapi þegar
hann vaknaði. Hann gat séð bak-
ið á Maríusi úti í horninu. Að
venju var hann a'ð ,.malla“ galek.
Tveir Grikkjanna voru vaknaðir
og sátu súrir á svipinn á koju-
stokkum sínum. Þessj dagur
mundi tæpast færa þeim nokkuð
nýtt, né eftirsóknarvert. Þeir
voru kvæntir menn. og urðu að
senda næstum hvern einasta eyri
til eiginkonu og barna í Grikk-
landi. Þeir vissu fyrirfram hvern-
ig dagurinn mundi veroa —- ga-
lek og vinna — ekkert annað.
Maríus var raunar sá af skips-
höfninni, sem mest hafði út úr
j lífinu. Hið létta, yfirborðskennda
samband hans við Sally. kastaði
! honum ekki út í neinar sálrænar
'flækjur. Sjómannaslífið var ákjós-
anlegast fyrir ókvæntan mann,
sem gat léttilega lyft sér yfir
vandumálin. Nokkrar kvöþdstund-
ir með stelpu, sem manni þótti
vænt um í augnablikinu — og svo
búið. Á næstu höfn gat maður
svo alltaf litið í kring um sig.
Allar dýprj tilfinningar voru ó-
æskilegar, ef maður vildi þá ekki
baka sjálfum sér allar lifs- og sál-
ar kvalir. Hann hafði raunar
fengið alveg ágæta útrós í slags-
málunum á Welcome Bar. Ja,
fjandinn hafi það, var hann þá
ekki enn laus við Wivi úr sinni
sál? Hann hafði Þó ekkert fund-
io fyrir því, þegar hún gekk út
með C'harles sér við hlið. En í
dag var það eitthvað öðruvísi,
innst inni var ormur efasemdar
og eftirsjár, sem nagaði og nag-
aði. Og svo leiksýningin uppj hjá
Ninette á eftir. Hún var ekki vel
fallin til þess að sefa sjúka sál.
Nei, fjandinn hafi það eí hann
skildi kvenfólkið. Þegar öllu var
á botninn hvoift var það mellan
ein, sem hentaði sjómanninum.
Ilinar allar voru óljósar drauma-
verur glapsýn, sem endaði jafn-
í vonbrigðum og söknuði. Guð
komj til, mörg trú og trygg sjó-
mannskonan heldur þó heimili
fyrir sig og börn sín, svo til fyr-
irmyndar er, meðan eiginmaour-
inn siglir um öll heimsins höf
svo árum skiptir En ef þetta er
ekki sjáfskipting og fábjánahátt-
ur, veit ég ekki hvað á að kalla
það.
Maríus lagði galekan frá sér á
borðið, auðsjáanlega nokkuð utan
við sig. Fjandinn hafi það líka,
hugsaði hann, nú riksar sá Gamli
um allt dekkið svo ég get ekki
komið „Hafnsögumanninum" í
land. Vonandi fer hann ckki að
hreyfa sig úr seglakompunni. Það
yrði meira uppistandið.
Hann gat ekki almennilega
fundic* sjálfan sig í dag. Nú var
hann rélt að segja búinn með
sex-metrann. Léttu ;oði kom á
hið föla andlit hans þegar hann
minntist þess að Franeois væri
sjúkur. Ef satt skyldi segja, von-
aði hann að Francois yrði sem
mest rúmfastur fram yfir kapp-
siglingarnar. Það var lúalega hugs
að, það vissi hann vel, en það
var hans einasli möguleiki. Ilann
sneri upp á yfirvaraskeggið, og
gaut augunum til Hmíy, sem ein-
mitt var að setjast framan á í
þessu. Hann virtist heldur ekki
vera neitt upplagður. Þaö var
kvenfólkið. sem var að gera hann
vitlausan. Hann gat ekkj ad því
gert að finna til kyrrlátrar sigur-
gleði. þegar hann hugsaði til Sall-
yar en hann skammaðist sin strax
á eftir. Þetta var að miklast á
kostnað Hardys. Þrátt fyrir allt,
gaf það honum öryggi að standa
á bak við atburðina með Ilardy
sér við hlið.
Larsen skipstjórj gekk eirðar-
laus aftur og fram um dekkið.
Ilann var nýbúinn að fá sím-
skeyti um að hafa snekkjuna sjó-
klára klukkan 10. Fjórir Englend
ingar höfðu leigt hana til þess
að halda veizlu utan við landhelg
islinu, til heiðurs prinsinum af
Wales. Larsen fór um dekkið á
einhvers konar valhoppi og saug
))umalfingurinn ákaflega. en þetta
hvort tveggja bar öruggt vitni vax
andi ólgum geðsmunanna.i — Ó,
hvað hann hataði þessar stríðs-
gróðamannasiglingar. Mátti mað-
ur þá heldur biðja um að vera
aðeins skipstjórj á þrímastraðri
skonnortu.
Hann horfði hvasst og ekki sem
vinsamlegast á hóp ferðamanna.
cr safnazt hafdi saman á bryggj-
Linni. Það var þokkalegt ástand aö
tarna — aldrei ærlegur póker leng
: ur. Maríus og Ilardy voru alltaf í i
landi. Þeir voru báðir af göflun-
um gengnir hér í Canncs. 'Hann
reif réiðilega í hinn svarta lubba,
sem spratt fram úr hinni blá-
rauðu höku. Hann beygði sig aft-
urábak og horfði upp til vind-
hanans, til að sjá hvaðan hann
væri. Svo öskraði hann:
— Verið tilbúnir á dekki.
Hinir fjórir Englendingar
komu um borð klukkan 10.
Larsen skipstjóri horfði ckki
beint hýrlega á hina fjóra kjól-
klæddu herra, sem gengu upp
landgöngubrúna. Þeir tilheyrðu
ekki „the bright young pcople'*
manngerðinni, sem var þó '*vo
algeng hér á ströndinni. Á and-
litum þeirra var sjálfur lífsleið-
inn greinilega uppmálaður.
þreyta og þungiyndi var mest á-
berandi. Á hæla þeirra fóru þrír
skutulsveinar, sem báru stóra
tösku á milli sin.
Hinir fjórir herrar gáfu til
kynna, að þeir hefðu orðio varir
við tilveru Larsens skipstjóra,
með því að kinka lítilsháttar til
hans kolli. en skutulsveinunum
gáfu þeir merki um að bera tösk
uarnar niður í samkvæmissalinn.
Allir báru þeir kíki framan á sér,
í afar fínum hulstrum. Þeir töl-
uðu saman í hljóði.
Bifreið ók að landganginum og
fjórar glæsilegar.konur stigu út
úr honum, allar í dýrasta skarti.
Larsen skipstjóri var líkastur því
sem hann hefði fengið slag, þeg-
ar dömurnar tipluðu um borð.
Þær kinkuðu næstum ósýnilega til
hans kolli, þegar þær gengu fram
hjá honum, og gáfu sig síðan á
tal við hina fjóra herramenn.
Sikipshöfnin starfaði á hástigi und
ir öllum þessum dýrðarljóma.
Maríus var einna líkastur sveín
gengli, og sveimaðj á milli lúgunn
ar og framm í og seglakompunn-
ar, sem var aftur á. Hann var al-
veg me'ð lífið í lúkunum. Lágvær-
er miðvikudagurinn
10. marz
Árdegisháflæði í Rvík kl. 05.55.
Tungl í hásuðri kl. 00.13.
HEILSl 'OÆZLA
Slysavarðstofan í Borgarspítalan-
u m er opin allan sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
81312.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir fyr-
ir Reykjavík og Kópavog sími
11100.
Sjúkrabifreið í Hafnarfirði sími
51336.
Almeunar upplýsingar um lækna-
þjóuuslu í borginni eru gefnar i
símsvara Læknafélags Reykjavík
ur, sími 18888.
Fæðingarheimilið i Kópavogi,
Hlíðarvegi 40, sími 42644.
Tannlæknavakt er í Ileilsuverndar-
stöðinni, þar sem Slysavarðstof-
an var, og er opin laugardaga og
sunnudaga kl. 5—6 e. h. — Sími
22411.
Kópavogs Apólek er opið virka
daga kl. 0—19, laugardaga kl. 9
—14, helgidaga kl. 13—15.
Keflavíkur Apótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl.
9—14, helgidaga kl. 13—15.
Apótck Hafnarfjarðar cr opið alla
virka daga frá kl. 9—7, á laugar-
dögum kl. 9—2 og á sunnudög-
um og öðrum helgidögum er op-
ið frá kl. 2—4.
M^uusóttarbólusetning fyrir full-
orðna fer fram í Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur á mánudögum
kl. 17—18. Gengið inn frá Bar-
ónsstíg, yfir brúna..
Kvöld- og heigarvörzlu apó(í'ka
i Reykjavík vikuna 6.—12 marz
annast Laugavegs-Apótek og Holts
Apótek
1 ■' '\OMi
Skipaútgerð ríkisins:
Ilekla er i Reykjavík. Herjólfur
fer frá Reykjavík kl. 2.1,00 í kvöld,
ti! Vestmannaeyja. Herðubreið fór
frá Reykjavík kl. 24,00 í gær-
kvöld, vestur um land í hringferð.
Skipadeild S.Í.S.:
Arnarfell fer í dag frá Húsavík til
Svendborgar, Rotterdam og Hull.
Jökulfell er í Reykjavík. Dísarfell
er í Reykjavík. Litlafell fer í dag
frá Reykjavík til Vestfjarða. Helga
fell fer í dag frá Húsavík til Setu-
bal. Stapafell er í olíuflutningum á
Faxaflóa. Mælifell átti að fara í
gær frá Augusta til Rvíkur. Nordic
Proctor er í Reykjavík. Freyfaxi
, átti a'ð .fara í gær frá Amsterdam
til Svendborgar.
“ ’-'l ÁGSi.fP
Skaftfellingar.
Skaftfcllingafélagið heldur kaffi-
samsæti fyrir eldri Skaftfellinga í
Skipholti 70. sunnudaginn 14. marz
kl. 3 e. h. — Stjórnin.
Kvenfélag Bæjarleiða
heldur fund að Hallveigarstöðum
miðvikudaginn 10. marz, kl. 8.30 e.
h. Reynir G. Karlsson, framkvstj.
Æskulýðsráðs Reykjavikuf kemur
á fundinn. — Stjórnin.
Skemmtifundur Kveiinadeildar
Slysavarnafélagsins í Reykjavík
verður í Slysavarnafélagshúsinu,
Ga-andagarði, fimmtudaginn 11.
marz og hefst kl. 8,30 e. h. Þar
skemmtir Jónas Jónasson útvarps-
maður og Inga María Eyjólfsdóttir
syngur, við undirleik Ólafs Vign-
is Albertssonar. Fjölmennið. —
Stjórnin.
Kvenfélag Laugarnessóknar
bý’ður eldra fólki í sókninni Lil
'sosr s'ssp yoop
PAVPS M'G-H/ n
• skemmtunar og kaffidrykkju í
Laugarnesskólanum, sunnudaginn
14. marz kl. 3. Gerið okkur þá
ánæg.ju að mæta sem flest. —
Nefndin.
K'RKJAN
Laugarneskirkja.
Föstumessa í kvöld kl. 8,30. Séra
Garðar Svavarsson.
LEIÐRÉTTING
A bls. 19 í Tímanum í fyrradag
er mynd af knapa og hesti og slend-
ur undir: „Þorkell Þorkelsson á
Faxa“. Þetta er rangt. Á hestinum
er Aðalsteinn Aðalsteinsson og
hesturinn heitir Neisti.
ÁRN^D HEILLA
80 ára er í dag, miðvikudaginn
10. marz, Salótne Kristjánsdóttir
frá Sveinsstöóum í Dalasýslu. nú
til heimilis að Austurbrún 6, Rvík.
Salóme mun taka á móti gestum
að Bolholti 4, eftir kl. 20 í kvöld.
7POSS /WiW RO80EP TPS PA/L
APL> L/A'PLyPP£ TPPQVPSWMO
POB0/TP 77/P 0/Wy-A/7P T7/AT
MP.4//S /M i-vpovg -' mss.‘P/?/T/:
/S/LT Lvoprwo W/m
.MPAMW/ZT, JV/mr//£P£AL
PAA/y PCP9EPS ■ ■ ■ i-r-
/VSJUST GOTUSA UOB.AS
0/G AS TP£LASTBA//A'UO0
— Pinkcrton maðurinn skaut á okkur.
— Griman hlýtur að bafa gert hann
skclkaðan og Blake sagði lionum, að
skemindarvargarnir værn hér nálægt.
Seinna, er Newton að lesa skeyti
— Hm, Childs segir, að Blake trúi að
hann sé Pinkerton-maðurinn og liann sé
húinn að finna tvo menn til að skclla
skuldinni á.