Tíminn - 10.03.1971, Qupperneq 13

Tíminn - 10.03.1971, Qupperneq 13
mmMGVR 10. marz 1971 ÍÞRÖTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 SpámaSur ofekar að þessu sinni beitir Jóhann Guðbjörnsson. stræt isvagnabílstjóri. Jóhann hefur ásaant syni sínuim Kristjáni og félaga hans Guðmiundi Sigurvins syni, unnið þá hæstu upphæð, sem um getur í getraununum hér á landi, eða 403 þúsund krónur. Það fengu þeir er þeir sendu inn 100 seðla fyrir nokkru og voru þá með 1 seðil með 12 réttum og 6 rnecí 11 réttum. Fyrir utan þessa upphæð hafa þeir svo fengið einu sinni 7 þúsund krónur og einu sinni 20 þúsund. ■: . :-.v;x-íS:-x: lil GÍSLI BLÖNDAL kom íslenzka liðinu á bragSið meS tveim fyrstu mörkunum í jafnteflisleiknum við Rúmenana Gren búinn að svara! Gunnar Gren, knattspyrnu- maðurinn og þjálfarinn frægi l frá Svíþjóð, sem Valsmenn sendu tilboð um að gerast þjálfari 1. deildarliðs þeirra í knattspyrnu, hefur nú svarað bréfi Vals, sem sent var fyrir; þrem vikum. í svarinu segist hann hafa áhuga á að koma til Vals, og þjálfa liðið í siunar. En ekki er ftruggt hvort úr því verður. Valsmenn eru nú að athuga \ sinn gang og kanna málið bet- ur, og verður því nokkur bið á því, að hægt verði að birta ðrugga frétt um, hvort þessi frægi leikmaður og þjálfari kemur. — klp.— Spá Jóhanns, sem er mikill Arsenal-aðdóandi er þessi á seðli nr. 10: Lcikb 18, man 1971 1 X 2 BlAckpooi — Lesds % Coventry — Liverpooí X CryefaJ Fakce — Awenal X Derby — Manoh, City v Evortoa — Stoka X HuddereSdd — Burnley / Ipswioh — Newcastía / Mftn, TJtd, — Nott*m Fof. u Soutlwmpton — W SÁ, / Tottenham — Chabea X WoIvm — West Ham / Bwindon — Leicester £ Hjalti hélt upp á afmælið! Glæsileg markvarzla hans á síðustu mínútum leiksins við heimsmeistarana frá Rúmeníu, í hans 50. landsleik, nægði til jafnteflis, 14:14 Jóhann Guðbjörnsson Klp-Reykjavík, þriðjudag. Síðari landsleikurinn við heims meistarana frá Rúmeníu, verður Hjalta Einarssyni, markverði, örugglega minnisstæður leikur. Þar lék hann sinn 50. landsleik fyrir ísland x handknattleik, og sjaldan eða aldrei hefur hann sýnt aðra eins markvörzlu og á lokamínútum þessa leiks. Þessi leikur verður honum jafn minnis stæður og fyrri leikurinn við Rúmeníu var mikil martröð. Hann sýndi að erin er ,,gamli maður inn“ eins og félagar hans ungu í handknattleiknum kalla hann, fær um að róta svo í gömlu glæðun- um, að skíðlogi — og svo sannar lega brann glatt hjá honum á hinum eftirminnilegu lokamínút- um. Hjalti kom í markið í síðari hálfleik, og tók þá við af félaga sínum úr FH, Bjrgi Finnbogasyni, sem hafði mátt sjá á eftir 11 skotum í netið í fyrri hálfleik, þar af 5 í röð á síðustu 6 mínút um hálfleiksins, en á þeim kafla breyttu Rúmenarnir stöðunni úr 7:6 fyrir ísland í 11:7 fyrir þá. Þennan 4 marka mun tókst ís- lenzka liðinu að minnka í 11:9 í byrjun síðari hálfleiks, en þá komu 3 mörk í röð frá Rúmenum á nokkmrn mínútum — allt mörk sem Hjalti Einarsson gat ekki ráð ið við — tvö hraðupphlaup og eitt vítakast. Fleiri urðu mörkin ekki, =em gamla kempan lét fara inn hjá sér. Geir Hallsteinsson minnkaði bilið í 14:10 oig síðan var hann aftur á ferðinni með ann að mank 14:11. — Gísli Blöndal minnkaði muninn í 14:12 með vítakasti og Björgvin Björgvins son í 14:13 með glæsilegu xnarki af linu. Á þessum tíma hafði Hjalti var ið glæsilega hvað eftir annað, og smitao'ist liðið af honum, og leik ur þess var ofsalegur — í einu orði sagt. Þegar 4 mínútur voru til leiksloka jafnaðj Viðar Símon arson leikinn, 14:14, en það mark var heldur ódýrt, því markvörður Rúmena sló knöttinn í eigið mark eftir Jaust skot hans. Síðustu 4 mínúturnar voru æsi spennandi og öllum ógleymanleg- ar. Glottið sem komið var á and lit Rúmenanna, þegar þeir höfðu 5 mörk yfir, hvarf með öllu og þeir tóku á honum stóra sínum við að reyna að skora, en allt kom fyrir ekki — Hjalti Einars son sá um það. — Andstæðingur Hjalta í hinu markinu sýndi ekki síðri leiik á þessum kafla, en hvað eftir annað varcíi hann ótrú legustu skot, frá stórskyttunum íslenzku. Þegar flauta tímavarðarins gall við í leikslok, og JAFNTEFLI VIÐ HEIMSMEISTARANA VARÐ STAÐREYND, urfðu fagnaðarlætin í Laugardalshöllinni slík, að sjald- an eða aldrei hef ég heyrt annað eins. Menn gátu líka fagnað vegna þessa, en það hefði örugglega ekki verið gert, ef Hjalti Einarsson hefði ekki náð að sýna sínar gömlu, góðu hliðar. Hann opnaði augu hinna fyrir því, a@ leikurinn væri ekki tapaður, þótt fimm mörkum munaði, — það gaf vítamínsspraut- una, sem dugði. MÖrk íslenzka liðsins skoruðu: Geir Hallsteinsson 6, Gísli Blöndal 3, Ólafur Jónsson 2, Viðar Símonarson 2, Björgvin Björgvinsson 1. JOE FRAZIER sigraði CASSIUS CLAY „Orðhákurinn frá Louisville" — Var stöðvaSur af Joe Frazier í keppninni um heims- meistaratitilinn í þungavigt Milljónir manna um lieim allan sátu við sjónvörp sín eða við útvarpstæki, til að fylgjast með lýsingu á hnefaleikakeppni aldar innar, sem fram fór í Madison Square Garden í fyrri nótt, en þá mættust þeir Joe Frazier núver andj handhafi heimsmeistaratit- ilsins í þungavigt í hnefaleikum og „orðliákurinn frá Louisvillc", Cassius Clay, sem hafði þann titil fyrir 3 áruin. Mikill áhugi var á leiknum, enda varla farið framhjá neinum læsum manni í heiminum. að hann ætti að fara fram, því flest ef ekki öll blöð höfðu skrifað mikið um hann og keppendurna báða. Að vanda hafði Cassius Clay haft stór oi'ð um mótherja sinn, og hafði lofaö því að leggja hann að velli í 7. lotu. Frazier talaði aftur minna, en gerði þess meira, því hann lék sér að því að lumbra á Clay í nær öllum lotunum. í fyrstu 4 lotunum hafði Clay betur. Hann dansaðj í kringum Frazier, og kom á hann hverju högginu á fætur öðru, en eftir hvert högg veifaðj hann til áhorf enda, sem voru um 20 þúsund. Dansinn og veifið hætti eftir 4. lotu, því þá tók Frazier að pumpa járnhnefum sínum í skrokk Clay — en það eru víst engin smá högg. Clay skorti allan hraða til að komast undan þess- um höggum, og fór svo að lok um að hann var kominn í vörn. en Frazier sótti, Clay reyndi að koma rothöggi á Frazier, en var langt frá aö takast það. í síðustu lotunni, var Clay orðinn útkeyrður, og þá sendi Frazier hann í gólfið, en Clay náði að standa á fætur þegar dómarinn hafði talið upp að fjór um. Dómararnir þrír dæmdu Frazi- er sigurinn, og var enginn ósam mála því. — En dómarnir voru 11:4—9:6—8:6 (og ein jöfn) fyrir Frazier. Ekkert heyrðist í Clay eftir leik inn, og var áiit manna að hann hefði kjálkabrotnað, en bað var eina ástæðan. sem mönnum gat dottið í hug, þegar hann vildi ekkert segja. S o var þó ekki — ,.ori7hákurinn“ var hreinlega orð- laus. STRIGASKÓR Allar stærðir SOKKAR í öllum litum LEIKFIMIBUXUR í ölium litum Badmintonspaðar og töskur Hulstur fyrir badmintonspaSa Markmannapeysur og „ _ stakar síðbuxur ^voruvet^ 5 -f-i Klapparstíg 44 — sími 11783 POSTSENDUM

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.