Tíminn - 23.05.1971, Síða 5
bjuggu þau saman um langan
tíma. Þau gátu hins vegar ekki
gifzt, þar sem Lewis var kvæntur
og ensk lög leyf'ðu ekki skilnað.
Eliot ávann sér frægð sem skáld
sagnahöfundur með skáldsögunni
Adam Bede árið 1859. og síðan
komu aðrar skáldsögur sem vöktu
mikla athygli, þar á meðal Midd-
lemarch.
Skáldsögur Eliot fjalla yfirleitt
um líf alþýðufólks í litlum bæj-
um, og er oft lögð sérstök áherzla
á að lýsa sálfræðilegri þróun
einstaklinganna. Þykir George
Eliot vera í hópi beztu skáldsagna
höfunda Englendinga fyrr og síð-
ar, og verður gaman að sjá
hvernig tekizt hefur að koma
skáldverki hennar í kvikmynda-
búning.
Fyrsti þátturinn verður sýndur
á mánudagskvöldið kl. 21.25
FLOKKAKYNNlNG
í SJÓNVARPINU
Á þriðjudag og miðvikudag verð
ur kynning á stjórnmálaflokkun-
um í sjónvarpinu, ein klukkustund
hvort kvöldið. Hver flokkur hef-
ur 20 mínútur til umráða, og
verður dregið um röð þeirra þeg-
ar að útsendingunni kemur, en
flokkarnir ei-u Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag, Framboðsflokkur,
Framsóknarflokkur, Samtök frjáls
lyndra og vinstri manna og Sjálf-
stæðisflokkur. Þrír flokkar eru
kynntir hvort kvöldið.
Dagskrá þessar voru teknar
upp í sjónvarpssal í gær, laugar-
dag, og ráða forystumenn flokk-
anná efni þeirra. Verður forvitni-
legt að sjá hvernig þeir kynna
flokka sína.
TVÆR FRÆÐSLUMYNDIR
í sjónvarpinu í næstu viku
verða tvær fræðslumyndir um fjar-
læg lönd, sem geta verið athygl-
isverðar.
Fyrri mvndin er á sunnudag-
inn og hefst kl. 21.40. Nefnist
hún Frá landi morgunroðans, og
fjallar um Japan nútímans. Mynd
in er norsk og lýsir þeim ótrúlegu
framförum í tækni og vísindum,
sem orðið hafa í landinu frá
stríðslokum og ýmsum vandamál-
um í því sambandi, m.a. hinnj al-
varlegu mengun andrúmsloftsins í
stórborgum landsins — en sú
mengun er alræmd um allan heim.
Hin myndin er sýnd á þriðju-
dagskvöldið og hefst kl. 22.15.
Hún nefnist Zúlúland, og er frá
austanverðri Suður-Afríku, þar
sem hinir þekktu Zúlúsvertingjar
lifa enn. Er fjallað bæði um gamla
og nýja þjóðhætti Zúlú-manna,
sem eitt sinn voru hvað mestir
hermenn í Afríku. AKB
Sjónvarpsieikritið, sem sýnt verður á sunnudagskvöld nefnist „Hún kallaði mig
döfuls morðingia". Fjallar það um hugarástand bifreiðastjóra, sem orðið hefur
bprni að bana í umferðlnni.