Tíminn - 28.05.1971, Síða 2
2
TIMINN FÖSTUDAGUR 28. maí 1971
Lagarfljótsnefndin ásarrrt Axel Aspelund formanni Stangaveiðifélags Reykjavikur. Talið frá vinstri Ólafur Þor-
stensson, Jóhann Þorsteinsson, Sigurbjörn Eiríksson, Axel Aspelund, Jakob Hafstein form. nefndarinnar og Jón
Þóroddsson.
(Tímamynd Gunnar)
Stangaveiðifélag Reykjavíkur og
tvær ferðaskrifstofur með ferðir
á vatnasvæðin á Austurlandi
EB—Reykjavík, fimmtudag.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
mun í sumar, í samvinnu við
Ferðaskrifstofu Zoega og Ferða-
skrifstofuna Úrval, skipuleggja
tólf 5 daga veiðiferðir á hið víð-
áttumikla vatnasvæði Austurlands,
þ. e. Lagarfljótssvaeði og vatna-
svæði Breiðdalsár, sem Stanga-
veiðifélagið hefur nýlega tekið á
leigu «1 fiskiræktar.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi í dag í hmn nýja glæsilega
félagsheimili Stangaveiðifélags
ins. Standa ferðímar yfir frá 2,
júlí tfl K. september. Fara þátt-
takendmr frá Reykjavík til Egils-
staða með Flngfélaei íslands. Við
komuna til EgQsstaða fá þátttakend
ur bifreið tH afnota meðan á dvöl
inni eystra stendur. Annast veiði
menn þanmg sjalfir áfian akstnr
að og £eá veiðistöðonum. Veiðidag
ur í twerri ferð hefst að morgni
laugardag og lýknr nm hádegi á
þriðjndegL Meðan á dvölinni
stendnr er þátttakendum séð fyr
ir fæði og gistmgu í góðu og vdst-
Þegar kölkunm
gefur tórrmn.
Núverandi rfldsstjóm heifur setið
lengi að völdum. Aldur hennar er
orðinn sMkur að hún ber öll merfci
samskonar hrömnnar og verður hjá
fólki, sem elli hefur komið á kné.
Altt sem hún gerir er snjallt og
gott, og eikki linnir sjálféhóli því, sem
fyl'gir í kjötfar ellinnar, og stundum
hefuT verið nefnt karlaraup, En
fyrir utan karlaraupið her hún önn-
ur og hættumeiri meifci sins aldur-
dóms, Því henni verða á meiri elli-
gtöp en sæmilegt getur talizt. Þess
eru ljósust dæmi í land'helgismálinu,
þar sem „gamalmennið” skortir bæði
kjark og manndóm til að tafcast á við
vandann af þeirri einurð, ’ sem ís-
lenzku þjóðinni er brýnust nauðsyn
á, nú é þessum timamótum í sögu
áratuga langrar baráttu fyrir rétti
okfcar til fiskimiðanna umihverfis
landið,
I stað þess að ræða landhelgismál-
ið unir rikisstjómin við karlaraupið
um sinn, en Morgunhlaðið og Aliþýðu-
blaðið viðra nú ákaflega unnin „af-
rek” stjórnarinnar efclki síður en
væntainleg „afrek.”. A Atþýðublaðinu
í gær er helzt að skilja, að þafckar-
vert sé að helztu málaflokkar skuli
legu húsnæði. Auk ferðanna tólf,
verður í upphafi veiðitímans far-
in Jónsmessuferð, eins konar
vígsluferð, sem stendur frá fimmtu
degi til mánudags. Séu fjórir um
bifreið, kostar ferðin á Lagarfljóts
svæði með veiðileyfi kr. 12.800, en
f Breiðdal kr. 14.390.00 Séu 3 um
bifreið kostar ferðin á Lagarfljóts-
svæði með veiðileyfi kr. 13.200 og
kr. 14.700 í Breiðdalinn. Er all-
ur kostnaður ferðarinnar innifal-
inn í þessum upphæðum utan ben
síns. Þá er einnig hægt að fara í
þpgsar ferðir án þess að kaupa
veiðileyfi og er kostnaðurinn þá
nokkuð minni.
Stangaveiðifélagið tók vatnsvæði
Lagarfljóts — þar með talin Jök-
ulsá, á leigu sl. haust og vatna-
svæði Breiðdalsár í jan. sl. og
hefur nú hafið fiskirækt að full-
um krafti, eins og Tíminn hefur
skýrt frá. Skipuð var sérstök nefnd
innan Stangaveiðifélagsins til þess
að annast þessi vatnasvæði. Hef-
ur hún verið kölluð Lagarfljóts-
nefndin. Jakob V. Hafstein er
©kfci haifa verið með öllu hiunzaðir.
Þar segár:
„Tölur eru ékfci ákemmtilesning, en
samt tala verkin. A íslandi á þeim
áraitug, sem nú er að Mða, hafa orðið
stónstigari framfarir, en áður eru
dæmi um í sögu lands og þjóðar.
Fólagsmál, tryggingamái, menntamál,
sjávarútvegsmál svo fjórir málafiiofck-
ar séu nefndir, þar sem rikisafsfcipti,
að meira eða minna leyti eru snar
þáttur í framförum.”
Og efcfci raupar Morgunblaðið
minna. Það eyðir heilum léiðara í að
mikla fyrir lesendum framkvæmdir
næstu ára, og . leggur áherzlu á
pappírisivirfcjanir sínar. Síðan er
hnykkt á raupinu um hin óunnu verfc
og sagt:
„Það er augljóst, að þessar miklu
framikvæmdir marka upphaf að nýju
framfaraskeiði í atvinnuháttum
landsmanna.”
Dæmigert karlaraup er einmitt
svona. Þar varðar engan um stað-
reyndir. Þar er staðið að stofnun,
komið á fót, hrint í framkvæmd og
stofnað alveg endalaust. Það er ein-
mitt þessi kölkunartónn, sem kominn
er i málgögn ríkisstjórnarinnar.
Sva rthöfði.
formaður ncfndarinnar_ en aðrir
er skipa hana eru þeir Ólafur Þor-
steinsson, Jóhann Þorsteinsson, Sig
urbjörn Eiríksson og Jón Þórodds
son.
Jakob Hafstein skýrði blaðam.
frá því, að laxveiði væri leyfð á
8 stengur daglega neðan við Lag-
arfoss og yrði þar bátur til afnota
fyrir veiðimenn. Ofan við Lagar-
foss væri víða góð silungsveiði
í Lagarfljóti og á vatnskilum berg
vatnsánna, sem i það falla. Bleikj-
an í þessu mikla vatnsvæði værl
á tíðum mjög væn. Meðalþyngd
á laxi neðan Lagarfoss væri um 8
pund.
Vatnasvæði Breiðdals verður
skiptí fjögur veiðisvæði og verða
2 veiðistengur leyfðar daglega á
hverju svæði. Mikil sjóbleikja geng
ur á þetta vatnsvæði og er með-
alþyngd hennar 3—4 pund. Stærstu
laxarnir sem veiðzt hafa í ánni
eru allt að 24 pundum, en 12—18
punda laxar eru býsna algengir.
Bezti laxveiðistaður Breiðdalsár
er Beljandinn. Þar er ráðgert að
koma fyrir laxastiga og lengist
þá laxveiðisvæði vatnasvæðisins
um 20 km. Auðheyrt var á forráða-
mönnum Stangaveiðifélagsins á
blaðamannafundinum í dag, að
þeir gera sér miklar vonir um,
vatnasvæðin, en fiskiræktaráform
Stangaveiðifélagsins á þessum
tveim veiðisvæðum, eru þau mestu
á Norðurlöndum í dag, að því er
Jakob V. Hafstein sagði blaða-
mönnum. Er félagið skuldbundið
til að sleppa 150 þús. laxaseiðum
ár hvert á Lagarfljótssvæðinu Út-
lit er fyrir að jafnvel allt að 200
þús. seiðum verði sleppt þar í ár.
Sáu landsleik-
inn út af
Vestf|örðiim
GS-ísafirði, fimmtudag.
í gærkvöldi var vélskipið
Júlíus Geirmundsson á heim-
leið að sunnan og sjö sjómílur
norðvestur af Kópaskex-i hættu
skipsmenn að sjá íslenzka sjón-
varpið. Fóru þeir þá að leita
fyrir sér og rákust á norska
sjónvarpið og sást það mjög
vel. Klukkan 11,05 að norskum
tíma sáu skipvcrjar landsleik-
inn milli íslendinga og Norð-
manna. Voru þá sýnd mörkin,
en ekki allur leikurinn.
Sást ckkert síður til norska
sjónvarpsins en íslenzka sjón-
varpið sést þarna vanalega.
A MALÞINGI
GIRO-AFGREIDSLUSTAÐIR
VERDA UM 400 TALSINS
SJ—Reykjavík, fimmtudag.
Nú um mánaðamótin maí-júní
hefst almenn gíróþjónusta hér á
landi. Að þjónustu þessari standa
póst- og simamálastjórn, viðskipta-
bankar, Samband íslenzkra spari-
sjóða og Seðlabanki Islands og var
samstarfssamningur þessara aðila
undirritaður £ Reykjavík 15. apríl.
ísland er fyrsta landið, þar sem
svo víðtækt samstarf er tekið upp
á þessu sviði.
Afgreiðslustaðir fyrir gíróvið-
skipti eru bankar, pósthús og spari-
sjóðir um land allt og verða um
400 talsins. Gíróþjónusta er aðal-
lega fólgin £ þv£ að flytja fjármagn
milli viðskiptaaðila, það er að taka
við skilgreindri greiðslu frá greið-
anda og koma henn til viðtakanda
á þann hátt, að ótvírætt komi fram
gagnvart báðum aðilum fyrir hvað
greiðslan er. Ofangreindar stofn-
anir hafa lengi annazt þetta hlut-
verk, en með nánu samstarfi og
samstæðu eyðublaði, gíróseðli, eru
hvers konar millifærslur og bein-
ar peningasendingar gerðar fljót-
virkari og einfaldari fyrir alla að-
ila.
Notkun gírófyrirkomulags er tal-
in auðvelda mjög alla innheimtu
og spara kostnað við hana. Einnig
er hentúgt, fyrir ýmis fyrirtæki og
aðra, að nota gíróþjónustuna til út-
borgana.
Fyrirtæki og einstaklingar geta
stofnað sérstaka gíróreikninga og
verður Póstgíróstofan í Reykjavík
reikningamiðstöð fyrir pósthúsin.
í bönkum og sparisjóðum er jöfn-
um höndum hægt að nota ávísana-
féikningá"'óg' Hlaupareikninga til
gíróviðskipta.
Sameiginlegt gíróeyðublað að
meðtöldu þjónustugjaldi, kr. 10.00.
Séu 1000 eyðublöð eða fleiri keypt
í einu, fæst prentaður stuttur texti
fyrir viðskiptamenn á eyðublöðin
án aukakostnaðar.
Orðið gíró er dregið af gríska
orðinu gyros, sem merkir þringur
eða hringrás. Gíróþjónusta er nú
starfandi í um 40 löndum, en
hvergi er um verulega srmvinnu
pósts og síma og innlánastofnana
að ræða. ísland er fyrsta landið,
sem tekur upp svo víðtækt sam-
starf á þessu sviði og ætti það að
verða viðskiptaaðilum gírókerfis-
ins til mikils hagræðis, auk þess
sem samvinnan hefur í för með sér
ódýrari rekstur gíróþjónustu.
Fjöldi afgreiðslustofnana og
dreifing þeirra um landið hefur
það í för með sér, að allir lands-
menn hafa tiltölulega jafna að-
stöðu til að nota sér gíróþjónust-
una.
Þennan mánuð hefur gírókerfið
verið kynnt starfsmönnum þeirra
stofnana, sem að gíróþjónustunni
standa, og jafnframt þeim aðilum,
sem sýnt hafa áhuga á að nota
gíróþjónustu.
Undirbúningsnefnd, sem unnið
hefur að máli þessu skipuðu Bjöm
Matthíasson, hagfræðingur, Einar
B. Ingvarsson, bankafulltrúi, Jón
G. Bergmann, aðalféhirðir, Jón P.
Guðmundsson, sparisjóðsstjóri, Páll
Daníelsson, hagdeildarstjóri, Þor-
geir K. Þorgeirsson, forstöðumað-
ur Póstgíróstofunnar, og Ólafur S.
Valdimarsson, skrifstofustjóri.
Réðust inn og
börðu manninn
OÓ-Reykjavík, fimmtudag.
Maðurinn sem ráðizt var á í
íbúð sinni s.l. mánudagskvöld, er
nú kominn heim af spítala. Ber
hann allt aðra sögu af viðskiptum
sínum við strákana þrjá, sem réð-
ust á hann og misþyrmdu. Strák-
arnir hfldu því fram, að maðurinn
hafi boðið þeim inn til sín, en
hið sanna er ,að maðurinn var að
dytta að húsi sínu að utan og
þegar hann brá sér inn, voru
strákarnir komnir þar og heimt-
uðu áfengi, og létu dólgslega.
Neituðu þeir að hleypa manninum
út úr herberginu. Tveir þeirra
réðust á hann og snerist maður-
inn til varnar.
Einn þeirra var með einhverja
dulu fyrir andlitinu, en hinir ekki.
Gengu þeir svo frá manninum
að hann lá meiddur á gólfinu.
Voru árásarmennirnir handteknir
skömmu síðar. Ekki þurfti að úr-
skurða þá í gæzluvarðhald, því
tveir þeirra áttu yfir sér refsi-
dóma, og sitja nú inni.
AUKAFULLTRUAÞING SIB
HALDIÐ 1.-2. JÚNÍ
Aukalulltrúaþing verður haldið
í Melaskólanum í Reykjavík dag
ana 1.—2. júní n.k. Þingið verður
sett þriðjudaginn 1. júní kl. 10
árdegis.
Á 21. fulltrúaþingi S.Í.B. í júní
1970, var samþykkt að fela stjórn
inni að boða til aukaþings í jan-
úar 1971. Þar sem samningar við
ríkisvaldi á s.l. ári drógust nokk
uð á langinn og ýmis ákvæði
hinna nýju samninga, þegar peir
lágu fyrir, voru óljós að því er
varðaði barnakennara, var ákveðið
að fresta þinghald; þar til í júní.
Á þinginu verður fjallað um
launa- og kjaramál barnakennara.
Hinir nýju kjarasamningar verða
kynntir og ræddir. Framsögu-
menn verða Kristján Thorlacius,
furm, BSRB, og Svavar Hclgason,
starfsmaður S.Í.B.
Þá in Kri:tjí J. Gunnars-
son, ‘ skólasfjori, kynna Grunn-
skó..-frumvarpið og svara fyrir-
spurnum.
Gert er ráð fyrir, að þinginu
ljúki síðari hluta dags á miðviku-
dag.
Leigubílstjórar
mótmæla fyrirvara
tryggingafélaganna
KJ—i-Reykjavík, fimmtudag.
Bandalag ísl. leigubílstjóra hefur
mótmælt fyrirvara bifreiðatrygg-
ingafélaganna, um þann rétt sem
.félögin áskilja sér til hækkunar
á ábyrgðartryggingum eftir 1. sept-
ember n.k.
Sendu leigubílstjórar bréf með
mótmælunum til heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytisins og dóms-
málaráðuneytisins, og einnig sendu
leigubílstjórar bréf til samstarfs-
nefndar bifreiðatryggingafélag-
anna, þar sem fyrirvarinn var
talinn algerlega ólögmætur, og
honum mótmælt harðlega.