Tíminn - 28.05.1971, Blaðsíða 4
£etið iJii AjcHíatp
Þá er fyrsta liluta kosningabai'-
áttunnar í sjónvarpinu, flokka-
kynningunni, lokið. Kynningar-
þættirnir sex voru nokkuð ólíkir,
allt frá væmnum þætti sjálfstæðis
manna upp í skemmtiþátt Fram-
boðsflokksins.
Skoðanir manna á þessum kynn
ingarþáttum eru vafalaust mjög
misjafnar, og hver dæmir fyrir
sig.
Þátturinn um Framboðsflokk-
inn var að sjálfsögðu mesta grín-
ið, þótt sumir hafi reyndar litið
á auglýsingaskrum og tannbursta
bros sjálfstæðismanna sem grín.
O-listamenn voru með gagnrýni á
alla flokkana. en þó lang mest á
íhaldsmenn. Er auðheyrt, að
menn hafa yfirleitt skemmt sér
vel við grínþátt O-listans.
Annars voru l'lestir þættirnir
málefnalegir, og var rætt um
þau þjóðmál, sem efst eru á baugi
um þessar rnundir — landhelgis-
málið, byggðaþróunarmál, efna-
hagsmálin og hrollvekjuna, sem
blasir við 1. september, velferðar
málin og þar þá sérstaklega elli-
lífeyrinn og mörg önnur mál.
í hinni málefnalegu umræðu
stóðu hinir ungu frambjóðendur í
baráttusætum Framsóknarflokks-
ins sig einna bezt, en ýmsir aðrir
komu einnig vel fyrir.
GÓÐIR DAGSKRÁRLIÐIR
Annars hafa ýmsir góðir liðir
verið á dagskrá sjónvarpsins að
undanförnu.
Má þar t. d. nefna sænska sjón
varpsleikritið á sunnudagskvöldið
— Hún kallaði mig djöfuls morð
ingja. Þetta leikrit fjallaði um
vörubílstjóra, sem varð fyrir því
að aka á ungan dreng á reiðhjóli
og verða honum að bana. Þótt
hann væri reyndar í fullurn rétti
lagalega séð, og sýknaður af öllum
ákærum, þá hafði þetta mjög sterk
áhrif á bílstjórann, og lýsti mynd
in því vel og sannfærandi.
Fræðslumynd norska sjónvarps
ins um Japan, sem sýnd var síðar
á sunnudagskvöldið, var einnig
ágæt og skemmtileg á að horfa.
Á sunnudagskvöldið var einnig
þátturinn „Dansar frá ýmsum
löndum“, þar sem nemendur og
kennarar í fjórum dansskólum
sýndu marga dansa. Þessir dans-
ar voru yfirleitt mjög sfeemmti-
lega útfærðir og þátturinn í heiid
mjög skemmtilegur og fjölbreyti-
legur.
SKEMMTILEGUR VIÐTALS-
ÞÁTTUR.
Á mánudagskvöldið var dagskrá
sjónvarpsins óvenju skemmtileg.
Þátturinn Kona er nefnd var á
dagskrá fyrst eftir fréttir og ræddi